SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Page 34
34 5. júní 2011
Ó
lafur Þorkell Helgason hefur
verið matreiðslumaður í
Seljaskóla frá því mötuneyti
skólans var opnað 1. febrúar
2005 og eldar á hverjum degi fyrir hátt í
650 manns. Síðustu sex árin áður en
hann kom til starfa í skólamötuneytinu
var hann á Hótel Sögu. Hann segir mikil
umskipti í því að hafa loksins „dottið
inn í þessa dagvinnu“ enda fylgir kvöld-
og helgarvinna starfi matreiðslumanns-
ins á hótelum og veitingastöðum.
Hann er búinn að vera í veitinga-
bransanum frá því hann byrjaði að læra
1976 á Hótel Esju og segist síðan þá hafa
verið „úti um allt og líka erlendis“ og „á
Naustinu þarna í gamla daga, það þótti
fínn staður á þeim árum“.
Ljóst er að þarna fer maður með
reynslu en hann nær líka til barnanna
og hefur líkað vel að elda ofan í nem-
endur og starfsfólk skólans.
En hvað hugsar Ólafur um þegar hann
skipuleggur skólamatinn?
„Bara það sem þau vilja. Ég reyni
að hafa þetta hollt og vera með fisk
tvisvar í viku,“ segir hann.
„Maður er búinn að prófa að
vera með grænmetisbuff og
grænmetislasagna til að þóknast
foreldrunum og Lýðheilsu-
stofnun. Þau bara henda þessu
meira og minna, þau gera það
greyin.“
Hvað vilja krakkarnir?
„Þau vilja bara þennan dæmigerða
íslenska mat, það er mín reynsla. Þau
eru voðalega hrifin af plokkfiski og
soðnum fiski, kjötbollum og lasagna.
Grjónagrauturinn er líka gríðarlega vin-
sæll,“ segir Ólafur og ítrekar vinsældir
soðins fisks. „Þau fussa stundum og
sveia yfir honum en borða hann alltaf
mjög vel.“
Þegar hann er með fisk í matinn sýður
hann ekki allt í einu heldur er að sjóða
hann allan hádegismatinn, í smærri
skömmtum, svo allir fái bragðgóðan
fisk.
Þótt hollustan sé markmiðið verður
stundum að breyta til eins og gert var
nú í vetrarlok en boðið var upp á kakó-
súpu í lok maí. „Þau eru búin að vera að
biðja um þetta í allan vetur,“ segir Ólaf-
ur og hlær.
Eldar matinn frá grunni
„Ég elda allan mat hérna
meira og minna frá
grunni,“ segir
hann en það
var lasagna daginn sem blaðamaður kom
í heimsókn. „Ég lagaði kjötsósuna alveg
frá grunni og var með fersk pastablöð,“
segir Ólafur sem var vel tilhafður í
kokkafötunum í skínandi hreinu eld-
húsinu.
Á milli 96 og 97% nemenda eru í mat
hjá Ólafi og er hann ánægður með þetta
háa hlutfall.
Á föstudögum er hann með spónamat
eins og grjónagraut eða skyr
með rjómablandi og
ávöxtum. Það
henti vel því
krakkarnir
fari
stundum fyrr heim þá.
Einn daginn í maímánuði var grísafile
á boðstólum, Ólafur játar að það hafi
verið á tilboði. „Það er mikil pressa á að
reka þetta vel.“
Honum leiðist sú neikvæða umræða
sem hefur ráðið ríkjum í sambandi við
skólamötuneyti í vetur. „Mér hefur
fundist þetta leiðinleg umræða,“ segir
Ólafur en honum gremst að sagt sé að
verið sé að gefa börnum fóður í skólum.
„Eins og maður væri að gefa börnunum
óþverra. Mér leiddist þetta og fannst
þetta skrýtin umræða.“
Hann er ekki heldur sáttur við nýj-
ustu umræðuna um niðurskurð. „Þá
bara kveður maður held ég. Það er
vinnutíminn sem heldur manni hérna,
ekki launin,“ segir Ólafur, sem útskýrir
að gott samband við börnin sé líka
gefandi hluti af starfinu. „Þetta eru
miklir vinir mínir. Þau heilsa
manni hérna og koma stundum
til að kveðja mig. Blessuð börn-
in, þau eru mjög skemmtileg.
Ég lít á þessa krakka sem vini
mína, jafningja, það er lang-
þægilegast.“
Láta þau vita ef þeim finnst
eitthvað ekki gott? „Já aldeilis.
Þau láta mann heyra það. Ég próf-
aði einu sinni að gefa þeim ávaxta-
graut með rjóma. Það kom einn lítill til
mín og sagði: „Heyrðu Óli, þetta hefur
þú aldrei aftur!““
Sjálfur segist Ólafur hafa verið alinn
upp á „þverskorinni ýsu, saltkjöti, skötu
Agúrkur eru góðar með steiktum fiski. Það er líka hægt að grínast með grænmeti.
Vatnsmelónurnar eru girnilegar.
„Heyrðu Óli,
þetta hefur þú
aldrei aftur!“
Ólafur Þorkell Helgason er matreiðslumaður í
Seljaskóla og eldar ofan í hátt í 650 manns á
hverjum degi. Hann lítur á börnin sem jafningja,
leiðist neikvæð umræða um skólamötuneyti og
segir börnin elska soðinn fisk.
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Myndir: Sigurgeir Sigurðsson sigurgeir@mbl.is
Steiktur fiskur með
sósu úr AB-mjólk. Borð-
aður með kartöflum,
grænmeti og ávöxtum.