SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Qupperneq 39
5. júní 2011 39
Lögregla í Missouri í Bandaríkjunum mætti nýverið
hættulegum krókódíl, eða svo hélt hún. Lögreglu-
menn í Independence, úthverfi Kansasborgar, brugð-
ust við útkalli þess efnis að stór krókódíll hefði sést á
tjarnarbakka í borginni. Lögregluþjónn hringdi í dýra-
verndunarsamtök, sem ráðlögðu honum að skjóta
krókódílinn úr því sem komið væri.
Lögreglan fór eftir þessum fyrirmælum og skaut
krókódílinn ekki einu sinni heldur tvisvar en kúlurnar
bara hrukku af dýrinu. Var það vegna þess að krókó-
díllinn var úr steypu.
Eigandi lóðarinnar sagði lögreglu síðar að hann
hefði sett krókódílinn þarna sem skraut til þess að
halda börnum í burtu frá vatninu. Íbúar hefðu því ekk-
ert að óttast.
„Það eru engir krókódílar á þessum slóðum. Við er-
um of norðarlega og það er of kalt,“ sagði Bill Gra-
ham, talsmaður hins opinbera í þessum málum.
Lögreglumaðurinn viðurkenndi að atburðurinn
hefði fengið mikla athygli. „Þegar maður lítur til baka
er þetta fyndið. En við verðum að taka allar upphring-
ingar alvarlega,“ sagði hann.
Krókódíll í Kansasborg
Þessi krókódíll er hins vegar ekta.
Meira af dýrum því tollgæslan í Taílandi lagði hald
á hvorki meira né minna en 451 skjaldböku í
ferðatöskum úr farþegaflugi frá Bangladess til
Bangkok. Einnig fundust nokkrir krókódílar og voru
þessir sko alls ekki úr steypu eins og sá í Kansas.
Fengurinn, sem náðist á hinum fjölfarna Suv-
arnabhumi-flugvelli, er virði tæplega 3,8 milljóna
króna.
Tollgæslan fékk ábendingu um þennan ólöglega
innflutning á dýrum. Meintur innflutningsmaður,
ættaður frá Bangladess, virðist hafa fengið veður
af þessum aðgerðum og flúði við komuna til Bang-
kok.
Þetta er stærsti fengur sem tollgæslan hefur
gert upptækan frá því í september í fyrra þegar
1.140 skjalbökur fundust á einum degi.
Taíland á landamæri að fjórum löndum og er
töluvert reynt að smygla dýrum ólöglega inn í land-
ið og gæslumenn á Suvarnabhumi leggja oft hald á
lítil dýr í farangri. Þeir fundu tveggja mánaða gaml-
an tígrisdýrshvolp í tösku í ágúst í fyrra. Hann var
falinn á milli tígrisdýrabangsa og var á leið til Ír-
ans.
Talið er líklegt að skjaldbökurnar hafi átt að
enda í Chatujak-markaði í Bangkok, sem er risa-
stór markaður með 11.000 básum og búðum. Sér-
stakur hluti markaðarins er lagður undir dýr og eru
stundum seld þarna dýr sem eru í útrýming-
arhættu.
Með skjaldbökur í
farteskinu
Ein af skjaldbökunum sem lagt var hald á.
Vestmannaeyja. Út við sjóndeildarhringinn bregður kvöldroða á him-
ininn, eins og rétt eftir sólarlag,“ segir Sigurður og heldur áfram:
„Nú er sem nótt hafi fallið yfir. Stjörnur tindra á himni, dimm ský
ber við sjóndeildarhringinn og kvöldroðinn má heita horfinn. Allir lit-
ir eru horfnir úr landslaginu, túnin eru ekki lengur græn og fólkið á
sandinum er álengdar séð eins og dökkur skuggi. Manni verður hroll-
kalt. Örstutta stund, fyrst eftir almyrkvann, er óhætt að horfa berum
augum á hina svörtu kringlu, sem milljónir manna beina nú athygli
sinni að. Undir Eyjafjöllum blikar rafmagnsljós í bæjarglugga.“
Algjör sólmyrkvi stóð í um það bil eina mínútu. Jafn skyndilega og
sól sortnaði birti svo aftur og við „höfum verið vitni að undursamlegu
fyrirbrigði, séð myrkur og ljós víkja hvort fyrir öðru á örskömmum
tíma, dag og nótt takast í hendur og skilja á ný með furðulegum
hætti,“ segir í áðurnefnri Morgunblaðsgrein.
Sólmyrkvar verða þegar tungl er nýtt. Alskuggi tunglsins hittir þá
jörð og nær þar yfir takmarkað svæði í senn, en þetta svæði færist eftir
jörðinni meðan myrkvi stendur. Meginatriðið er að hver sólmyrkvi
nær aðeins yfir ákveðið svæði eða belti á yfirborði jarðar, segir á vís-
indavef Háskóla Íslands. Á vef almanaks HÍ eru upplýsingar um næstu
sólmyrkva á Íslandi. Við þurfum, skv. því sem þar kemur fram, að
bíða í 14 ár eftir að sjá næsta almyrkva sem verður 20. mars 2015. Ferill
myrkvans þá liggur sunnan og austan við Ísland og hér verður deild-
armyrkvi og í Reykjavík mun tungl hylja 97% af þvermáli sólar. En
þangað til bíðum við – og hver veit nema við upplifum þá eitthvað líkt
því sem sást á Skógasandi árið 1954 þegar menn sáu myrkur og ljós
víkja hvort fyrir öðru á örskömmum tíma.
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
’
Svartur sand-
urinn, sem við
stöndum á
verður þungbúnari á
svipinn og skrúð-
grænt landið upp af
honum missir smám
saman lit sinn.
Sigurður
Bjarnason
Blake Lively með Karli Lagerfeld stjóra Chanel en leikkonan er eitt andlita tískuhússins.
Reuters
’
Lively hefur verið þekkt
fyrir langa og ljósa lokka
sína. Það vakti því mikla
athygli þegar hún litaði hárið á
sér rautt.
Lively er að slá sér upp með Leonardo DiCaprio.
Mynd af atriði úr Gossip Girl. Blake (Serena) með
fyrrverandi kærastanum Penn (Dan).