SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Page 47

SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Page 47
5. júní 2011 47 Tungu- mál í hættu P eter Austin er upprunalega frá Ástralíu og lærði frönsku og þýsku í framhaldsskóla. Áhug- inn á tungumálum kviknaði því snemma en síðar nam Peter hagfræði og japönsku við háskólann í Canberrra. Sá háskóli var þá einn af fáum stöðum þar sem hægt var að læra asísk fræði. „Ég hugðist læra hagfræði og japönsku og verða mjög ríkur verð- bréfasali en gafst fljótt upp á hagfræð- inni. Þá tók alfarið við nám í málvísind- unum þar sem ég hafði mikinn áhuga á mismun tungumála og öllu því sem þeim fylgir. Einn af prófessorunum þar var sérfræðingur í áströlskum frumbyggja- málum sem kveikti áhuga minn á þeim og þannig leiddi eitt af öðru,“ segir Peter. Jákvætt viðhorf skiptir máli Í dag starfar Peter í The School of Orien- tal and African Studies í London við verkefni sem kallast Endangered Lang- uages Project. Þar starfa fræðimenn við að taka upp og safna efni um tungumál í útrýmingarhættu um allan heim. Í dag eru töluð um 7000 tungumál en helm- ingur þeirra er í útrýmingarhættu. Aðal- ástæðuna fyrir því segir Peter vera að foreldarnir ákveða að betra sé fyrir börn- in sín að tala annað mál og þá stórt og mikið mál sem hafi meiri pólitísk völd. Það hættir því að tala upprunalegt mál sitt og tekur upp ríkismálið. Þetta gerist víða um heim en Petur tekur dæmi frá Englandi um velsku. Á fimmta og sjötta áratugnum hugsaði fólk þar með sér að það vildi gefa börnum sín- um yfirburði til að þau gætu fengið góða vinnu og þyrftu ekki að þjást eins og for- eldrarnir. Það byrjaði því frekar að tala ensku við börnin þó það talaði velsku sín á milli og hún varð þannig tungumál eldra fólks. „Þetta snýst mikið til um jákvætt við- horf. Ef þér finnst tungumálið tengjast því að vera fátækur, ómenntaður og fast- ur í litlum bæ en þeir sem búa í borginni tala ensku og hafa það gott þá viltu gefa börnunum þínum forskot og tala ensku. Þetta er að gerast um heim allan þar sem franska, spænska og kínverska eru að taka yfir smærri tungumál, aðallega af því að fólk hefur neikvætt viðhorf til síns tungumáls. Á Íslandi getur fólk talað fleiri tungumál en móðurmálið en nei- kvætt viðhorf verður frekar til þess að fólk ákveður að sleppa máli en bæta við. Á Íslandi á tungumálið sér frábæra sögu í gegnum Íslendingasögurnar. Hér eru líka útsendingar á móðurmálinu og mennta- kerfið styður við það. Þetta sýnir vel að styrkur tungumáls er tengdur við stærð þjóðarinnar en það dugar ekki til eitt og sér,“ segir Peter. Sex orð fyrir sand Nýlendustefna hefur líka haft sín áhrif á útrbreiðslu tungumála í heiminum. Peter segir Frakka til að mynda hafa sterka skoðun á því að Frakkland og nýlendur þess ættu að vera eitt land með einni þjóð sem talaði sama tungumál. Þannig varð franska til að mynda þjóðarmálið í Sene- gal og Nígeríu. Það var ekki fyrr en á sjötta og sjöunda áratugnum sem fólk í nýlendunum tók að ranka við sér og velta af stóli nýlendumálum. Í dag er enska að verða alþjóðlegt mál viðskipta og pólitík- ur. Peter segir þó að þjóðir ættu ekki að hætta að tala sitt eigið mál og taka upp ensku. Það sé nauðsynlegt að geta tjáð sig á öðru máli en ekki á kostnað móður- málsins. Sum tungumál eiga sér ekki orð fyrir það sem fólk sér aldrei eins og t.d. snjó. Eitt tungu- málanna sem Peter lærði er talað af hópi fólks sem býr í eyðimörk í Ástralíu og hann nefnir sem dæmi að í þeirra orða- forða megi finna fimm eða sex orð fyrir sand. Sandurinn neðst í sandhólunum er grófur en sá efsti mjög fínn. Tungumálin lýsa þannig tilfinningum og hugsunum fólksins og endurspegla umhverfið, sam- félagslega uppbyggingu og menningar- legan áhuga. Fer eftir mismunandi sam- félögum og hópum. Hvert einasta samfélag á sögur og söng og taktur hans fer eftir tungumálinu. Fjöbreytileiki tungumála Bókinni var ætlað að vera aðgengileg til aflestrar og þannig ætlað að gefa hinum almenna lesanda tækifæri til að kynnast þeim fjölbreytileika sem ríkir í tungu- málum heimsins. Peter segir þetta hafa verið nokkra áskorun til fræðafólksins sem lagði sitt af mörkum við gerð bók- arinnar þar sem það sé vanara að skrifa öllu tormeltari texta. Bókin er fallega myndskreytt og gerð samkvæmt hug- myndum um svokallaðar „coffetable books“ sem bæði eru hentugar sem stofustáss og til aflestrar. Bókin hefur nú verið þýdd á ein níu tungumál, meðal annars eistnesku, japönsku og spænsku svo fáein séu nefnd. Peter segist ekki vera viss um að hann reyni sjálfur að lesa bók- ina á íslensku, en algengt er að kennd sé íslenska þar sem norræna og fornenska eru kenndar í Englandi. Víða í Englandi gætir líka áhrifa víkinga. Til að mynda í bæjarnöfnum sem enda á thorp. Í Banda- ríkjunum koma mörg staðarnöfn frá frumbyggjatungumálum sem þar voru töluð svo og spænsk nöfn í suðrinu og frönsk nöfn í Louisana. Svona geta tungumálin dreift sér fimlega um allan heim. Peter K. Austin prófessor við Lundúnaháskóla. Morgunblaðið/Ómar Eitt þúsund tungumál kallast íslensk þýðing á verki málvísindamannsins Peters K. Austins. Peter er aðalrit- stjóri bókarinnar en hann starfar sem prófessor við Lundúnaháskóla. María Ólafsdóttir maria@mbl.is ’ Á Íslandi getur fólk talað fleiri tungumál en móðurmálið en neikvætt viðhorf verður frekar til þess að fólk ákveður að sleppa máli en bæta við.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.