SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Blaðsíða 2
2 3. júlí 2011
Við mælum með
4. júlí
Námskeið hefst í söng og leiklist í
Borgarleikhúsinu. Hvert nám-
skeið stendur í fimm daga og er
unnið markvisst að því að virkja
sköpunarkraft nemenda og að
efla sjálfstraust þeirra. Kennslan
byggist aðallega upp á leiklist-
aræfingum en einnig verður sung-
ið og dansað. Námskeiðin eru ætl-
uð börnum á aldrinum 8 til 13 ára.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leiklist og söngur
13 Sækjum ekki vatnið yfir lækinn
Kjartan Guðjónsson og Hanna María Sigmundsdóttir, nemar við Land-
búnaðarháskóla Íslands, stefna bæði á búskap í framtíðinni.
21 Besta sjónvarpslöggan
Leikarinn Peter Falk er látinn, 83 ára gamall. Hann er frægastur fyrir
túlkun sína á lögreglumanninum Columbo.
24 Slangan hans Hjalta
Ragnar Axelsson segir söguna bak við myndina.
26 Engeyingar komnir í bók saman
Oft er rætt og ritað um Engeyjarættina, þann fjölda sem kenndur er
við Engey á Kollafirði. Út er að koma myndarlegt niðjatal.
28 Hugmyndir komm-
únismans …
Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor
er að skrifa bók um íslenska kommúnista,
sem kemur út í októberbyrjun.
32 Barn gæti skriðið …
Hvalaskoðunarvertíðin er byrjuð og mörg fyr-
irtæki víðsvegar um landið tekin að sigla
með áhugasama gesti til að sjá steypireyði og fleira.
36 Elskulegastur ökuþóra
Sebastian Vettel hefur ekið eins og sá sem valdið hefur í kappakst-
urskeppni ársins. Hann var hins vegar ekki sáttur við söngröddina.
40 Slökun og ró
Það er best að reyna að slaka á öðru hverju og hafa það notalegt. Á
sumrin getum við líka notað tækifærið og slakað á utandyra.
Lesbók
44 Barátta ólíkra strauma
Hinn metnaðarfulli og merkilegi þríleikur Ólafs Jóhanns Sigurðarsonar
um Pál blaðamann er kominn út í kilju.
34
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir,
Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Skapti Hallgrímsson.
21
Augnablikið
E
inn uppáhaldsstaðurinn minn í Reykja-
vík er Ingólfstorg. Einhverjir kunna
kannski að hvá við þessu en svo margir
virðast tala illa um Ingólfstorg, segja það
„ljótt steinsteyputorg“ og þar fram eftir götunum.
Borg er meira en grasbalar og blóm, því borg er
fyrst og fremst mannlíf og það er á því sviði sem
Ingólfstorg blómstrar. Á torginu kemur saman
ótrúlega fjölbreyttur hópur fólks, hjólabretta-
kappar, mótorhjólagengi, fjölskyldufólk úr hverf-
inu, skyndibitaþyrstir unglingar, rónar, ferða-
menn og aðrir miðbæjargestir. Á þessu svæði er
byggt þétt og því er gott að fá smá pláss til að anda
og athafna sig. Allir lifa í sátt og samlyndi á torg-
inu, hjólabrettafólkið skemmtir fólkinu sem sest í
tröppurnar með ísinn sinn. Stökkin á hjólabrett-
unum eru líka mjög vinsæl hjá yngstu kynslóðinni
sem hefur sérstaklega gaman af að fylgjast með
þessari tegund mannlífs. Minnstu börnunum
finnst líka ánægjulegt að skoða mótorhjólafákana
sem lagt er í hópum við Vallarstræti. Þarna sér
maður að það eru ekki öll mótorhjól sköpuð eins,
en flokkadrættir eftir lögun eru greinilegir.
Það er sem betur fer ekki öllum sama um torgið
en fallið var frá þeim skipulagsbreytingum að færa
gula og rauða húsið við Vallarstræti inn á torgið.
Það hefði svo sannarlega verið slæmt fyrir mann-
lífið á torginu. Einhvern veginn er alltaf eins og
það megi ekki vera auður blettur í Mið- eða Vest-
urbæ án þess að það þurfi að troða húsi á hann. Á
þessu svæði er hvað mest talað um þéttingu
byggðar en það þarf líka að muna að þarna býr
fólk með fjölskyldur, sem þarf rými eins og aðrir.
Krakkar í Vesturbænum spila líka fótbolta og fara
út að hjóla eins og aðrir krakkar.
Bílaumferðin í kringum torgið er samt hvimleið,
sérstaklega við Hafnarstræti og væri ánægjulegt ef
þeirri leið yrði alfarið lokað.
Það er alltaf verið að tala um að byggja ofan á
hús en hér ætla ég að stinga upp á því að lækka
hús. Ég legg til að það verði ein hæð tekin ofan af
Morgunblaðshúsinu, svo það verði jafn hátt og hin
við hliðina á því. Þannig myndi njóta aðeins meiri
sólar á þessu góða torgi.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Hjólabrettakappar setja mikinn svip á Ingólfstorg og skemmta miðbæjargestum.
Morgunblaðið/Ernir
Mannlífið blómstrar
á Ingólfstorgi
3. júlí
Spænsk dag-
skrá og fágætar
plöntur í Dalbæ
á Snæfjalla-
strönd. Kristinn H. Árnason gít-
arleikari verður með tónleika,
reiddir verða fram spænskir réttir
og sagt frá Spánverjavígunum
1615.
7. júlí
Alþýðu-
hljómsveitin
Brother Grass
spilar í Land-
námssetri í
Borgarnesi. Hljómsveitin spilar
bræðing af bluegrass, blús, folk,
gospel og fleiru.
8. júlí
Félagar úr sönghópnum Voces
Masculorum syngja þjóðlög, ætt-
jarðarsöngva og sálmalög undir-
leikslaust í Hörpunni.
GRÓÐURMOLD - 50 LTR
Fáðu fjóra en borgaðu einungis
fyrir þrjá. Stykkjaverð, kr 1290
4 fyrir 3