SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Side 6

SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Side 6
6 3. júlí 2011 Þ að er líklega vel við hæfi að Ice- landair er samstarfsfyrirtæki Þórs- ara á Akureyri við hið árlega Polla- mót, sem nú stendur yfir. Þar líða um velli knattspyrnumenn 30 ára og eldri og sannast á sumum, eins og flugfélagið auglýsir gjarnan, að hugurinn ber menn hálfa leið. Sumir eru reyndar í toppformi og blása vart úr nös eftir heilan leik. Þar fara hugur og hönd saman, hugur og fótur, réttara sagt. Aðrir kvarta undan því að skilaboðin úr heil- anum berist ekki eins hratt niður í fæturna og á árum áður. Hugurinn ber þá hálfa leið og ekki einu sinni flugfélag dugar til að komast lengra! Ég hitti gamalkunnan leikmann á Þórsvell- inum í gærmorgun. Hvernig er heilsan? „Fín,“ sagði hann, brosti breitt og tók á sprett. Laust eftir hádegi hittumst við aftur. Hvernig er heilsan? „Alveg þokkaleg,“ sagði hann og stakk að- eins við fæti. Um kaffileytið dró fyrir sólu í Eyjafirði um stund og þá líkingu má nota um suma þátt- takendur á Pollamótinu. Við hittumst þriðja sinni. Hvernig er heilsan? „Hún hefur oft verið skárri,“ sagði hann, settist og hélt um mjöðmina. Fallþunginn er meiri á Þórsvellinum norð- an Glerár en á KA-svæðinu á Brekkunni. Þar hlaupa um 1.500 strákar (og nokkrar stelpur) úr 5. flokki og á þeim vígstöðvum er vanda- málið ekki það sama og hjá þeim eldri; frekar að fæturnir vinni hraðar og með öðrum hætti en hugurinn vill helst. En fjörið er hið sama á báðum stöðum. Helst að meira sé tuðað í dómaranum á Þórs- svæðinu enda inneignin þar meiri á reynslu- bankanum margumrædda. Páll Magnússon, sem einn hefur dæmt á hverju einasta móti, kvartaði þó ekki undan framkomu leikmanna í gær. Hefur marga fjöruna sopið og flautar bara aðeins hærra en venjulega ef einhver er með múður. Pollamótið er nú haldið í 24. skipti og ef- laust verður mikið tilstand næst. KA-menn byrjuðu með Essó-mótið (sem nú nefnist N1- mót) ári á undan þannig að merkileg tímamót eru á þeim bænum núna og mikið um dýrðir. Hópur þeirra heldri er marglitur. Margir leikmannanna hafa komið ár eftir ár. Þeir sem elstir voru á fyrstu mótunum hafa reyndar lagt skóna á hilluna en þeir sem rétt voru skriðnir yfir löglegan Pollamótsaldur fyrir aldarfjórðungi eru sumir hverjir enn á kreiki. En bera sig misjafnlega. Nokkrir stjórnmálamenn eru á svæðinu, fjölmiðlamenn, að minnsta kosti einn at- vinnumaður í handbolta – Róbert Gunn- arsson – og einhverjir fyrrverandi atvinnu- menn í þeirri íþrótt. Fjöldi þekktra fótboltamanna er svo auðvitað mættur til leiks; hetjan Arnór Guðjohnsen kemur fyrst- ur upp í hugann. Einnig lögreglumenn og lögfræðingar, húsmæður, hagyrðingar, bændur og búalið. Víkingar eru með fjölmenna sveit að vanda þar sem Andri Marteinsson og Atli Einarsson eru fremstir í flokki. Einhvern tíma hafa þeir fagnað sigri og stefna ótrauðir á gullið sem fyrr. Atli brosti í gær eftir sigurleik. „Ætli þetta verði samt ekki síðasta mótið mitt,“ hvíslaði hann að mér. Það er eins og ég hafi heyrt það áður … Sumir leggja nefnilega skóna á hilluna í lok Pollamóts og segjast aldrei ætla að taka þá fram aftur. Mæta svo alltaf galvaskir að ári. Sannað að hugur ber suma bara hálfa leið! Lengi lifir í einstaka gömlum glæðum Bræðrasynirnir Halldór Ómar Áskelsson, fyrrverandi landsliðsmaður úr Þór, til vinstri, og Bragi Sigurðsson, heimilislæknir á Akureyri, mættust í fyrsta skipti á knattspyrnuvelli í gær. Frændurnir sættust á skiptan hlut. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Þuríður Þorsteinsdóttir í Reyni (til hægri) stígur dans við Úlfhildi Indriðadóttur í liði ÍR-drottninga. Lengst til vinstri er Berglind Jónsdóttir. Morgunblaðið/Skapti Vikuspegill Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Sagan segir að áður en fyrsta Pollamótið var haldið hafi Þórsarar hringt í Veðurstofu Ís- lands og spurt hvenær mestar líkur væru á góðu veðri nyrðra. Svar- ið hafi verið fyrsta helgin í júlí, og þess vegna sé mótið ætíð haldið þá. Þetta var rifj- að upp þegar sólin birt- ist skyndilega um miðja viku og hiti hækkaði um nokkrar gráður, eftir ótrúlegt kuldakast upp á síðkastið. Mestar líkur á góðu veðri Aðalsteinn Sigurgeirsson formað- ur Þórs fyrir aldarfjórðungi velti því fyrir sér, þar sem hann sat í búningsklefanum með nokkrum öðrum „gamlingjum“ eftir að þeir léku sér saman í fótbolta, hvort ekki væri þjóðráð að hópurinn keppti einhvern tíma. „Það væri gaman að halda mót fyrir okkur,“ sagði Aðalsteinn upp úr eins manns hljóði og hinum leist vel á hugmyndina. Já, höldum Pollamót, sagði ein- hver. „Og þá gerðum við það bara,“ segir Aðalsteinn þegar hann rifjar þetta upp nú. Með Steina á æfingunni voru meðal annars Benedikt Guð- mundsson, sem einnig hefur verið formaður Þórs, og Bjarni Hafþór Helgason, stormsenter og tónlist- armaður með meiru. Hann samdi Pollamótslag sem ómar gjarnan við félagsheimilið Hamar. Mótið var smátt í sniðum í upp- hafi, níu lið tóku þátt en þeim fjölgaði ört. Eftir því sem þeir elstu á fyrstu mótunum eltust var komið á fót sérstakri deild 40 ára og eldri. Flottasta breytingin varð svo auðvitað þegar kvennalið bættust í hópinn. „Það væri gaman að halda mót fyrir okkur“ Hvar man eftir Duffys gallabuxum? KA-menn skrýddust í gær búningum frá síðara hluta síðustu aldar. Kempurnar heita, frá vinstri, Eggert Sig- mundsson, Guðmundur Sigurðsson og Arnar Valsteinsson. Morgunblaðið/Skapti www.noatun.is www.noatun.is Pantaðu veisluna þína á eða í næstu Nóatúns verslun Grillveislur 1299 á mann vERÐ FRá mEÐmEÐl æti Grísahnakkasneiðar Lambalærissneiðar Kjúklingabringur Lambafille Þín samsetning Grillveislur Nóatúns

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.