SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Side 18

SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Side 18
18 3. júlí 2011 É g verð seint flokkaður með smærri og visnari mönnum. Góðir 180 sentimetrar á hæð (á sokkaleistunum) og örugglega 89 kíló að þyngd (að sokkaleistunum meðvigtuðum). Samt finn ég til smæðar minnar þetta síðdegi í Árbænum þegar ég heilsa þeim frændum Óðni Birni Þorsteinssyni kúluvarpara og Blake Jakobsson kringlukastara. Annar er sléttir tveir metrar og hinn 194 sentimetrar (og mögu- lega ekki hættur að stækka) og hamrammir eftir því. Þeir bjóða mér kaffi og gotterí sem ég þigg með þökkum. Það er ekki taktískt að styggja menn í þessum stærð- arflokki. Þeir gætu örugglega komið ofan í mig grænum baunum – sem ég borðaði síðast þegar ég var þriggja ára. Til allrar hamingju reynir ekki á það. Við dettum niður í dúnmjúkt leðrið í stofunni á heimili Óðins og fljótt kemur á daginn að frændurnir eru ljúf- mennskan uppmáluð, hógværir en ákveðnir eins og af- reksmenn eiga að vera. Svo sem vöxturinn gefur til kynna eru þeir af hraustu húnvetnsku kyni, bræðrasyn- ir. Blake er sonur Óskars Jakobssonar, sem um árabil var einn af okkar allra fremstu kösturum, bæði í kúlu og kringlu, en Óðinn sonur Þorsteins Jakobssonar prent- ara. Móðir Óðins er Guðrún Óðinsdóttir en móðir Blakes er Angela Jakobsson frá Texas. Kastaði fyrst í sveitinni Óðinn, sem verður þrítugur síðar á þessu ári, byrjaði að æfa boltaíþróttir sem strákur, bæði handbolta og körfu- bolta, en reyndi ekki fyrir sér í kastgreinum fyrr en hann fór í sveit í Holti í Svínadal sumarið 1996. Brá sér þá á æf- ingu hjá USAH og greip í kringluna. „Ég fann mig strax vel í þeirri grein,“ rifjar Óðinn upp en eftir þetta lagði hann leðurtuðrurnar á hilluna. Sumarið 1998 setti hann Íslandsmet í kringlu í sveina- flokki og ári síðar í drengja- og unglingaflokki. Ekki varð aftur snúið. Óðinn var þegar orðinn tveir metrar á hæð á Þegar til kastanna kemur Bræðrasynirnir Óðinn Björn Þorsteinsson og Blake Jakobsson eru í hópi okkar fremstu kastara. Óðinn hefur um árabil verið besti kúluvarpari landsins og nálgast ólympíulágmarkið óðfluga og Blake á ekki langt að sækja hæfileikana í kringlukastinu enda son- ur Óskars Jakobssonar, fyrrverandi íþróttamanns ársins. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Myndir. Eggert Jóhannesson eggert@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.