SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Side 21
3. júlí 2011 21
Þ
egar leikarinn Peter Falk var
eitt sinn á ferðalagi í Afríku og
kom í lítið fátæklegt þorp þutu
börn í áttina til hans og hróp-
uðu fagnandi: „Columbo! Columbo!“ Í
þessu fátæka héraði var bara eitt sjónvarp
og þar höfðu börnin kynnst lögreglu-
manninum Columbo.
„Columbo var mesta sjónvarpslögregla
allra tíma,“ sagði leikarinn Stephen Fry
þegar hann frétti lát Peter Falk, leikarans
sem lék Columbo svo eftirminnilega.
Lögreglan í Los Angeles sendi fjölskyldu
leikarans samúðarkveðjur og sagði Col-
umbo hafa verið eina bestu löggu í sögu
sjónvarps.
Falk lést á heimili sínu í Kaliforníu fyrir
skömmu 83 ára gamall, en heilsa hans
hafði verið slæm síðustu árin og hann
þjáðist af Alzheimer.
Með glerauga
Þessi vinsæli leikari fæddist árið 1927.
Þegar hann var þriggja ára var annað
auga hans fjarlægt vegna meins í sjón-
himnu og hann fékk í staðinn glerauga
sem hann gekk með alla ævi. Hann var
vel menntaður, stundaði meðal annars
nám í stjórnmálafræði, stjórnsýslufræð-
um og bókmenntum áður en hann sneri
sér að leiklist.
Hann lék í fjölmörg-
um kvikmyndum og
var tvisvar tilnefndur
til Óskarsverðlauna, ár-
ið 1960 fyrir hlutverk sitt
sem morðingi í Murder,
Inc. og ári seinna
fyrir leik í Poc-
ketful of Mirac-
les sem hinn
virti leikstjóri
Frank Capra
leikstýrði.
Capra sagði
seinna:
„Vinnan
að
mynd-
inni
var
þjáning-
arfull, fyrir
utan sam-
starfið við Pet-
er Falk. Hann
var gleði mín
og tenging við
raunveruleik-
ann.“ Leik-
stjórinn bætti
því við að sam-
vinna við Falk
hefði fengið hann til
að gleyma þrá-
hyggjukenndri löng-
un sinni til að myrða
aðalstjörnu mynd-
arinnar Glenn Ford.
sem var víst óþolandi
allan tímann. „Þakka þér Peter Falk,“
sagði leikstjórinn.
Falk lék Columbo í fyrsta sinn í sjón-
varpsmynd árið 1968 en vinsældir þeirrar
myndar ólu af sér aðra mynd. Sjónvarps-
þættirnir voru svo gerðir á árunum 1971-
1978 og óreglulegt framhald varð á þeim á
árunum 1989-2003. Leikarinn fékk fern
Golden Globe verðlaun fyrir leik sinn í
þáttunum. Steven Spielbert leikstýrði
einum fyrsta Columbo-þættinum, þá
einungis 25 ára gamall. Spielberg hefur
sagt að á þeim tíma hafi hann lært meira
um leiklist af Falk en af nokkrum öðrum.
Falk var ákaflega vel liðinn af sam-
starfsfólki sínu. Söngvarinn Johnny Cash
lék í einum Columbo-þætti og í ævisögu
sinn fór hann fögrum orðum um Falk
sem hann sagði hafa hjálpað sér á hverj-
um degi við að ná tökum á hlutverki
sínu, en hann lék morðingja þáttarins.
Eins og róni
Columbo var um margt sérstök lögga.
Hann virtist utan við sig, og auðvelt var
að líta svo á að hann tæki ekki eftir
neinu, en staðreyndin var sú að ekkert
fór framhjá honum. Morðingjarnir van-
mátu hann nær alltaf og áttuðu sig ekki á
því fyrr en í lokin að hann hafði allan
tímann leikið sér að þeim eins og köttur
að mús.
Columbo var svo illa klæddur að aðrar
persónur töldu stundum að hann væri
róni. Vörumerki hans var regnfrakki,
slitinn og skítugur en Falk hafði á sínum
tíma keypt hann fyrir sjálfan sig. Eftir 25
ára notkun í sjónvarpi var frakkinn svo
illa farinn að það varð að henda
honum og fá annan í hans stað.
Columbo reykti vindla
öllum stundum. Hann dáði
eiginkonu sína, frú Col-
umbo sem hann vitnaði
stöðugt í en hún sást aldrei á skjánum.
Góður myndlistarmaður
Peter Falk var mikill listunnandi,
þótti ágætur myndlistarmaður og ár-
ið 2006 hélt hann sýningu á verkum
sínum. Hann var einnig mikill
áhugamaður um skák.
Leikarinn var tvígiftur. Fyrri eig-
inkona hans var píanóleikarinn Alyce
Mayo, en þau kynntust á háskólaárum
sínum, voru gift í sextán ár, ættleiddu
tvær dætur og önnur þeirra starfar sem
einkaspæjari. Seinni eiginkona hans var
leikkonan Shera Danese sem lifir mann
sinn. Þau giftust árið 1977 og hún kom
nokkrum sinnum fram sem gestaleikari í
Columbo.
Besta sjón-
varpslöggan
Leikarinn Peter Falk er látinn, 83 ára gamall.
Hann ávann sér heimsfrægð fyrir leik sinn sem
lögreglumaðurinn Columbo í samnefndum sjón-
varpsþáttum. Jafnvel í fátækum þorpum í Afríku
átti hann staðfasta aðdáendur.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@mbl.is
Peter Falk og seinni eiginkona hans Shera. Hún lék nokkrum sinnum í þáttunum um Columbo.
Peter Falk í sínu frægasta hlutverki sem Columbo. Margir telja Columbo mestu
sjónvarpslöggu í sögu sjónvarpsins.
Reuters
Peter Falk og fyrri eiginkona hans á Óskarsverðlaunahátíðinni árið 1962 en Falk var
tvívegis tilnefndur til Óskarsverðlauna.
Skannaðu kóðann til
að skoða frétt um
andlát Falks.