SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Qupperneq 26

SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Qupperneq 26
26 3. júlí 2011 H vað eiga þau sameiginlegt, Pétur Sig- urgeirsson biskup og Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir leikskáld? En Ásta Ragn- heiður Jóhannesdóttir forseti Alþingis og Þorsteinn Gunnarsson arkitekt og leikari? Pétur „sjó- maður“ Sigurðsson alþingismaður og Pétur Sigurðs- son forstjóri Landhelgisgæslunnar? Allt er þetta góða fólk af Engeyjarætt, sem svo er kölluð og kennd við Engey á Kollafirði. Ættina þá ber oft á góma hér á landi enda margt þjóðkunnra sem til hennar teljast. Nefna má fleiri; Bjarna Benedikts- son alþingismann, ritstjóra, forsætisráðherra og for- mann Sjálfstæðisflokksins og alnafna hans, núverandi formann flokksins. Kristján Tómas Ragnarsson yf- irlækni og prófessor í New York og séra Bjarna Jóns- son dómkirkjuprest. Hlustendur Rásar 2 heyra oft í Guðna Má Henningssyni dagskrárgerðarmanni og áhugamenn um handbolta þekkja Örn Inga Bjarkason leikmann FH. Búseta í Engey til 1950 Til Engeyjarættarinnar teljast líka Kristinn Hrafnsson fréttamaður, Jónmundur Guðmarsson fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og Guðrún Ágústs- dóttir fyrrverandi forseti borgarstjórnar fyrir Al- þýðubandalagið. Svo mætti auðvitað lengi telja og hópurinn er fjölskrúðugur eins og nærri má geta. Þetta má sjá þegar gluggað er í ríkulega mynd- skreytta bók sem er að koma út og nefnist Engeyj- arættin – Niðjatal Péturs Guðmundssonar og Ólafar Snorradóttur. Þau hjón bjuggu í eynni á fyrri hluta 19. aldar, Ólöf fædd þar og uppalin en Pétur fæddist í Örfirisey og var alinn upp þar og í Skildinganesi. Niðjar hjónanna Péturs og Ólafar eru orðnir um 5000, að sögn eins þeirra, Péturs Guðfinnssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjón- varpsins og síðar útvarps- stjóra, en hann er formaður ritnefndar. „Þau eign- uðust átta börn, sem upp komust og eignuðust fjölda afkomenda, sem flestir settust að hér um nes,“ segir Pétur í formála sínum að bókinni. „Var áberandi fram eftir síðustu öld hve margir þeirra bjuggu á Sel- tjarnarnesi og í Vesturbæ Reykjavíkur, og raunar má segja að velflestir niðjar þeirra, sem nú telja hartnær fimm þúsund, búi enn á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Pétur. Búseta var í eynni til 1950 og hún varð hluti af Reykjavík árið 1978. Sigurður Kristinn Hermundarson ritstjóri bók- arinnar segir að í útgáfustarfi sínu hafi hann orðið var við mikinn áhuga á að gefin yrði út dæmigerð Reykjavíkurætt, alíslensk að uppruna. Augu margra hefðu leitað til Engeyjar en mörgum væri ljós skyld- leiki sinn í gegnum eyna. Með heppilega stærð í huga hafi hann því ráðist í að taka saman niðjatal þeirra Ólafar og Péturs. Auk niðjatalsins er að finna í bókinni grein um upphaf Engeyjarættar, þar sem raktar eru framættir þeirra hjóna en Ólöf er komin af Erlendi Þórðarsyni og konu hans Guðrúnu Gunnarsdóttur sem vitað er að voru bændur í Engey árið 1703. Því er um að ræða samfellda sögu sömu ættar a.m.k. frá því ári. Mikið hefur verið gefið út af mannfræðiritum hér á landi á síðustu áratugum og segir Pétur Guðfinnsson áhuga á þess háttar lesefni virðast síst fara þverrandi. „Annarsvegar eru rit um einstakar ættir og hinsvegar um heil byggðarlög. Hvoru tveggju hefur verið meira sinnt í hinum dreifðu byggðum landsins,“ segir Pét- ur. „Brottfluttir þaðan, mest til höfuðborgarsvæð- isins, hafa gjarnan látið sér annt um tengslin við gamlar slóðir, og viljað halda til haga fróðleik um ættingja sem hafa dreifst, sem og um gamla sveit- unga.“ Blönduðust lítt við heldri stéttir Hér hafi innfæddir Reykvíkingar sérstöðu. „Minna ber á ritum af þessu tagi hjá þeim, og á blóma- tímabili átthagafélaga var lítið um slíkt á þeirra veg- um, þótt að vísu hafi verið stofnað Reykvíkingafélag árið 1940, sem starfaði um nokkurt árabil þar á eft- ir.“ Engeyingar voru þekktir bændur, sjómenn og Bæjarhúsin í Engey um 1890. Þjóðminjasafn Íslands Engeyingar komnir í bók saman Oft er rætt og ritað um Engeyjarættina, þann fjölda sem kenndur er við Engey á Kollafirði. Út er að koma myndarlegt niðjatal hjónanna Ólafar Snorradóttur og Péturs Guðmundssonar sem bjuggu í eynni á fyrri hluta 19. aldar. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Guðný, Bjarni, Kristinn og Guðfínna Jónsbörn Oddssonar og Ólafar Hafliðadóttur. Amma þeirra var Guðfinna Pétursdóttir (fædd 1815) ein dætra Ólafar og Péturs í Engey. Pétur Guðfinnsson

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.