SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Qupperneq 27
3. júlí 2011 27
skipasmiðir á sínum tíma. Pétur segir athyglivert að
næstu ættliðir frá Pétri og Ólöfu hafi áfram stundað
útgerð, landbúnað og skipasmíðar, „og virðast lítt
hafa blandast kaupmanna- og embættismannastétt-
um Reykjavíkur,“ eins og hann segir.
Pétur Guðfinnsson segir áberandi fram eftir síðustu
öld hve margir Engeyinga bjuggu á Seltjarnarnesi og í
Vesturbæ Reykjavíkur, „og raunar má segja að vel-
flestir niðjar þeirra, sem nú telja hartnær fimm þús-
und, búi enn á höfuðborgarsvæðinu. Aðeins eitt
barna þeirra flutti af svæðinu, Guðríður (1812-1889),
sem varð prestmaddama austur á landi, og á fjölda
afkomenda þar og í Húnaþingi.“
Í bókinni eru hátt í 3000 ljósmyndir og svo
skemmtilega vill til að sú elsta er ekki tekin syðra
heldur austur á Jökuldal og er af prestshjónunum í
Hofteigi á Jökuldal, Guðríði og séra Þorgrími Arnórs-
syni. Myndin mun tekin 1867 af dönskum ljósmynd-
ara sem ferðaðist um landið.
Í ritinu er ekki ítarefni um einsktalinga nema um
þau Pétur og Ólöfu. En vert er að nefna að þar er birt
merk ritgerð eftir sr. Þórð Ólafsson frá Hlíðarhúsum
(1863-1948) um fiskveiðar Reykvíkinga á síðari hluta
19. aldar. „Þar kemur skýrt fram hinn mikli þáttur
Péturs Guðmundssonar og sona hans í þróun báta-
smíða, auk þess sem hinar almennu upplýsingar um
fiskveiðarnar eiga ekki síður við útgerð Engeyinga en
annarra Seltirninga og Reykvíkinga á þessu tímabili,“
segir Pétur Guðfinnsson.
Bjarni Benediktsson
forsætisráðherra 1963-1970.
Sigríður Björnsdóttir eiginkona
Bjarna Benediktssonar.
Mæðginin Guðfinna Pétursdóttir og Pétur Hafliðason 1874
áður en Pétur hélt til Þýskalands að læra beykisiðn. Að
námi loknu ferðaðist hann víða um heiminn og sneri ekki til
Íslands fyrr en árið 1889. Þá var móðir hans löngu látin.
Prestshjónin Þorgrímur Arnórsson og Guðríður Pétursdóttir. Þetta er elsta myndin í bókinni,
líklega tekin 1867.
Horft til Engeyjar frá Reykjavík. Myndin er tekin um 1880.
Þjóðminjasafn Íslands
Guðrún „yngri“ Pétursdóttir, yngsta dóttir hjónanna í Engey,
eiginmaður hennar, Kristinn Magnússon og sonurinn Pétur.
’
Áberandi var
fram eftir síðustu
öld hve margir
afkomenda Ólafar og
Péturs í Engey bjuggu á
Seltjarnarnesi og í
Vesturbæ Reykjavíkur,
og raunar má segja að
velflestir niðjar þeirra,
sem nú telja hartnær
fimm þúsund, búi enn
á höfuðborgarsvæðinu.