SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Page 34

SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Page 34
34 3. júlí 2011 K nattspyrnufélagið Valur fagnar 100 ára afmæli í ár og af því tilefni hannaði Guð- mundur Jörundsson sér- stakan hátíðarbúning fyrir félagið. „Ég sóttist eftir þessu,“ segir hann um hvernig þetta kom til. „Grunn- hugmyndin var að þetta átti að vera búningur sem þeir myndu spila í allt sumarið,“ segir hann en út af styrkt- araðilunum var það snúið. „Þeir áttu að spila í þessu á afmælisleiknum en þetta endaði í að vera söluvarningur og svo voru strákarnir myndaðir í þessu. Þetta er hinn opinberi afmælisbúningur,“ segir hann en búningurinn er óneit- anlega virðulegri en þeir sem leik- mennirnir klæðast venjulega. Guðmundur útskrifaðist sem fata- hönnuður frá Listaháskóla Íslands í vor og vakti útskriftarlína hans töluverða athygli. Hann starfar líka sem aðal- hönnuður Herrafataverzlunar Kormáks & Skjaldar og hefur gert jakkaföt fyrir þessa herramannslegu búð. Vantar fallega búninga „Ég elska Val svo mikið,“ segir hann um af hverju hann langaði til að gera þetta. „Mig langaði til að gera eitthvað fyrir Val á afmælinu. Mér fannst hafa vantað fallega búninga í fótboltanum. Það er svo sjaldan sem búningarnir eru fallegir.“ En hvað finnst honum helst vanta í búningana? „Það er lítið sem þarf að gera, helst leita aftur í að gera fallegri smáatriði. Það eru auglýsingarnar sem sjúska þessa búninga alltaf strax,“ segir hann en auglýsingar frá hinum ýmsu fyrir- tækjum eru ekki prýði á búningunum þó þær kunni að vera gagnlegar. Einna mest áberandi við hátíðartreyj- una er reimaða hálsmálið, sem Guð- mundur segir vera „mjög klassískt“. Hann er með hugmynd um að gera síðar búning sem liðið gæti spilað í og ljóstrar upp pælingum um leðurbætur og leðurreimar. Hefur það ekki áhrif á leikmenn hvernig þeir taka sig út í búningnum? „Þeir hefðu náttúrlega unnið þennan leik ef þeir hefðu spilað í þessu!“ segir Guðmundur og vísar til afmælisleiksins við ÍBV. Treyjan er úr bómull Efnisval afmælisbúningsins er óvenju- legt, treyjan er úr bómull en núorðið eru alltaf notuð gerviefni í þessar flíkur. „Það er strax miklu fallegra að hafa þetta úr bómull. En það er hægt að gera fallegar treyjur þó þær séu úr gervi- efni,“ segir hönnuðurinn sem valdi líka efnið með tilliti til aðdáendanna en það er auðvitað miklu þægilegra að vera í bómullartreyju. Annað sem Guðmundi fannst að jafn- aði ekki vera fallegt í fótboltabúningum er hvernig er prentað með stafrænum hætti á þá. Valsmerkið er saumað í há- tíðartreyjuna sem hann hannaði. „Það gerir svo mikið. Það er svo ljótt þegar þetta er prentað,“ segir hann en stórt Valsmerki er fyrir miðju á treyjunni. Merkið er vel staðsett með tilliti til þess að hægt er að vera í jakka yfir á leikjum án þess að skyggja á merkið. Innblásturinn að þessu og öðru kem- Fatahönnuðurinn Guðmundur Jörundsson er hér ásamt leikmanni Vals, Matthíasi Guðmundssyni, sem er íklæddur afmælisbúningnum sem Guðmundur hannaði. Úrvals hátíðar- búningur Hönnuðurinn Guðmundur Jörundsson vildi gera eitthvað fyrir knattspyrnufélagið sitt í tilefni aldarafmælisins og útkoman varð sérstakur há- tíðarbúningur sem liðsmenn Vals klæddust á af- mælinu og er nú til sölu á Hlíðarenda. Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Mynd: Ómar Óskarsson omar@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.