SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Blaðsíða 36
36 3. júlí 2011
V
ísifingur hægri handar er orð-
inn að nokkurs konar ein-
kennismerki Þjóðverjans Seb-
astians Vettels. Hann sýnir
fjöldanum gjarnan fingurinn – en alltaf í
góðu og með bros á vör, því með þessum
hætti fagnar hann fyrsta sæti; hvort sem
er á æfingu eða í keppni.
Vettel, sem í dag (sunnudag) fagnar
enn einu sinni, að þessu sinni 24. afmæl-
isdeginum, þótti snemma ótrúlega
þroskaður og hæfur ökumaður og segja
má að um þessar mundir komist enginn
keppinautanna með framenda bílsins þar
sem Þjóðverjinn ungi er með aftur-
dekkin. Að minnsta kosti enginn einn
ökuþór öðrum fremur.
Keppt hefur verið átta sinnum í form-
úlu 1 í ár, Vettel sigrað í sex skipti en
í tvígang orðið að láta sér annað
sætið lynda. Hann getur þó ekki
annað en verið ánægður með
stöðuna, því enginn hefur nokkru
sinni byrjað keppnistímabil jafn
glæsilega og Vettel nú. Spennandi
verður að sjá hvort hann heldur
sínu striki í Silverstone á Eng-
landi um næstu helgi.
Byrjaði átta ára
Fróðir menn segja enga tilviljun
hve hratt Þjóðverjanum skaut
upp á stjörnuhimininn enda
stefndi hann lengi markvisst að
því að ná árangri.
Ótrúlegt en satt: Vettel var
farinn að keppa á kart-bílum að-
eins átta ára. Það var árið 1995.
Mörgum finnst skemmtilegt að
prófa slíkt tæki í sumarfríinu en
guttinn tók það strax alvarlega og lagði
líklega með því grunninn að glæstum ár-
angri síðar.
Vettel er sá yngsti sem keppt hefur í
formúlu 1; var 19 ára og 53 daga þegar
hann ók fyrir lið Toro Rosso í Tyrklands-
kappakstrinum 2006 og 17. júní árið eftir
varð hann yngsti ökuþór sögunnar til að
fá stig í formúlu 1, 19 ára og 349 daga.
Það var í Indianapolis í Bandaríkjunum
17. júní. Kannski má kalla hann Íslands-
vin fyrir að velja þann dag …
Vettel varð yngstur til að stíga á efsta
þrep verðlaunapalls eftir að hann kom
fyrstur í mark í Monza á Ítalíu haustið
2008 og í fyrra varð hann svo yngsti
heimsmeistarinn, 168 dögum yngri en
Bretinn Lewis Hamilton þegar hann varð
meistari 2008.
Barnungur átti
Vettel sér reyndar þrjú átrún-
aðargoð; Mikjála sem allir voru
í hópi mestu afreksmanna ver-
aldar. Þetta voru bandaríska
körfuboltagoðsögnin Michael Jor-
dan, söngvarinn Michael Jackson,
einnig úr Vesturheimi, og landi Vet-
tels, kappaksturskempan Michael
Schumacher.
Vill aðeins það besta …
Sagan segir að strák hafi mest langað
til að feta í fótspor Jacksons en fljótt
áttað sig á að röddin væri ekki nógu
góð og því látið þann draum lönd og
leið. Formúluunnendur mega þakka
fyrir það í dag. Vel má vera að hann
Elskulegastur
ökuþóra
Sebastian Vettel hefur ekið eins og sá sem valdið
hefur í kappaksturskeppni ársins. Formúluvinir
geta reyndar þakkað fyrir að hann var ekki nógu
ánægður með eigin söngrödd sem barn.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Númer eitt! Sebastian
Vettel fagnar sigri á
sinn hátt.