SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Side 38

SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Side 38
38 3. júlí 2011 Ú rslit kosninga til Alþingis vorið 1987 voru um margt sögu- leg, því aldrei áður hafði fjórflokkurinn goldið afhroð með viðlíka hætti. Borgaraflokkur Alberts Guðmundssonar, sem varð til fáum dögum áður en framboðsfrestur rann út, fékk 10,9% greiddra atkvæða. Þótti mörgum sem hin forna fótbolta- hetja fengi ósanngjörn málagjöld þegar kom til uppgjörs milli hans og Sjálfstæðisflokksins. Hulduherinn kom úr felum og atkvæði alls 16.588 kjósenda komu sjö mönnum á þing. Hin stjórnmálahreyfingin, utan fjórflokksins, sem bauð fram í kosningunum þetta vor, var Kvenna- listinn. Í kosningum fjórum árum fyrr hafði hann fengið atkvæði 5,5% kjósenda og þrjár konur á þing: Guðrúnu Agnarsdóttur, Kristínu Hall- dórsdóttur og Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur. Árið 1987 greiddu ríflega 10% kjósenda Kvennalistanum atkvæði sitt og með því urðu þingkonurnar alls sex. Stjórnmálahreyfingin var með því orðin margs megnug og öll vötn féllu til Dýrafjarðar á þann veg að Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sem hafði stjórn- Stjórnarmyndun. Við upphaf viðræðna Sjálfstæðisflokks og Kvennalista vorið 1987. Frá vinstri talið: Friðrik Sophusson, Kristín Einarsdóttir, Þorsteinn Pálsson, Guðrún Agnarsdóttir og Danfríður Skarphéðinsdóttir. Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson Myndasafnið 20.05.1987 Reynsla kynja sé jafngild A lbert Mónakóprins festir loks ráð sitt en hann gengur að eiga Charlene Wittstock í tvöfaldri athöfn um helgina en borgaraleg vígsla var haldin á föstudagskvöld og viðhafn- arbrúðkaup með bæði tignum og frægum gestum á laug- ardag. Wittstock er 33 ára gömul og fyrrverandi afrekssundkona og Ólympíukappi. Borgaralega vígslan var haldin þar sem Rainier, faðir Alberts, gekk í hjónaband með Hollywood-stjörnunni Grace Kelly fyrir 55 árum síðar. Wittstock er með skærblá augu og sterka beina- byggingu og hafa því ýmsir freistast til að bera hana sama við hina dáðu Kelly, sem lést í bílslysi fyrir um þremur áratugum. Brúðarkjóll Kelly er heimsþekktur og því pressa á Wittstock að vera í fallegum kjól en búist er við því að konunglegi brúð- arkjóllinn komi úr smiðju Karls Lag- erfeld hjá Chanel. Þetta er fyrsta hjónaband þeirra beggja en Albert hefur þó ekki verið aðgerðalaus piparsveinn. Sumir töldu að hann myndi aldrei festa ráð sitt en hann á tvö börn utan hjóna- bands. Sögusagnir hafa gengið um það síðustu daga að þriðja óskilgetna barnið hafi nýverið komið í ljós og Wittstock hafi því ætlað að hætta við brúð- kaupið og snúa aftur til Suður-Afríku. Konungshöllin segir þetta vera „ljótar sögur“, sem eigi rætur sínar í afbrýðisemi. Athöfnin á laugardag verður haldin að kaþólskum hætti og á eftir henni tekur við mikil veisla. Yfirkokkur veislunnar er enginn annar er þriggja stjörnu Michelin-matreiðslumaðurinn Alain Ducasse. Fyrir utan frönsku kampavínin og vínin frá heimalandi brúðarinnar kemur allt hráefnið í veislumatinn frá svæðum sem eru í innan við tíu kílómetra fjarlægð frá Mónakó, að því er Ducasse sagði í samtali við fréttastofu AP. Meira en þúsund blaðamenn víðs vegar að úr heiminum fylgjast með konunglega brúðkaupinu. Hátíðarhöldin hófust reyndar á fimmtudags- kvöld með ókeypis tónleikum með hinu fræga rokkbandi, The Eagles. Sjónvarpið sýnir beint frá brúðkaupinu og hefst útsendingin kl. 14.50. Albert Mónakóprins festir loks ráð sitt þegar hann gengur í hjónaband með suður-afrísku sunddrottningunni Charlene Wittstock um helgina. Henni hefur verið líkt við aðra Mónakóprinsessu, Grace Kelly, enda með skarpa beinabyggingu og ljóst hár. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Parið uppáklætt við frumsýningu á kvik- myndahátíðinni í Cannes í maí. Reuters Sunddrottning verður prinsessa ’ Fyrir utan frönsku kampavínin og vínin frá heimalandi brúðarinnar kemur allt hráefnið í veislu- matinn frá svæðum sem eru í innan við tíu kílómetra fjarlægð frá Mónakó. Frægð og furður

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.