SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Qupperneq 47

SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Qupperneq 47
3. júlí 2011 47 F ela Ransome Kuti fæddist 15. október 1938 í Abeokuta, litlum bæ í Nígeríu um 100 km norðan við höfuðborgina La- gos. Hann var næstyngstur af fimm systkinum í miðstéttarfjölskyldu. Faðir hans var fyrsti formaður kenn- arasambands Nígeríu en móðir hans kvenréttindakona og pólitískur bar- áttumaður. Fela langaði til að vera tón- listarmaður frá barnsaldri og um tví- tugt fluttist hann búferlum til London og skráði sig í Trinity College of Music. Þar dvaldist hann næstu fjögur ár og lærði á píanó auk þess að leggja stund á nám í tónsmíðum. Hann stofnaði sína fyrstu hljómsveit, Koola Lobitos, og byrjaði að spila á hinum ýmsu klúbb- um borgarinnar sérstaka blöndu af djassi og vesturafrískri „High Life“- tónlist. Þar kynntist hann einnig fyrstu konu sinni sem hann eignaðist þrjú börn með, þar á meðal soninn Femi Kuti sem hefur haldið tónlistararfleifð föður síns við. Fæðing afróbítsins Árið 1963 snýr Fela aftur til Lagos og stuttu síður endurvekur hann Koola Lobitos og spilar með þeim á klúbbum víða í Lagos, en undir lok sjöunda ára- tugarins fær hann hins vegar tromm- arann Tony Allen til liðs við sig sem átti eftir að hafa mikil áhrif. Annað sem breytti lífi og þar með tónlist Fela Kuti var ferð hans til Bandaríkjanna 1969. Á meðan á dvöl Fela og Koola Lobitos í Los Angeles stóð kynntist hann ýmsum sem tengdust Black Pant- her-hreyfingunni. Þar á meðal var Sandra Isidore sem varð ástkona hans og eins konar menningarlegur lærifað- ir. Hún kynnti hann fyrir kenningum Malcolm X og Elridge Cleaver. Fela og hljómsveitin hans lentu í úti- stöðum við útlendingaeftirlitið í Bandaríkjunum og neyddust til að yf- irgefa landið en áður náðu þeir að fara í hljóðver og taka upp efni sem síðar var gefið út sem 69 Los Angeles Sessions. Hljómur sveitarinnar var breyttur og þarna var að fæðast það sem Fela sjálf- ur kallaði Afrobít, tónlistarstefna sem blandar djassi og fönki saman við hefð- bundna afríska tónlist með flóknum samofnum ryþma og söngstíl þar sem aðalsöngvari og bakraddir kallast á. Kalkútta lýðveldið Þegar Fela kom aftur til Lagos var hann breyttur maður. Til þess að undirstrika það lagði hann niður millinafn sitt, Ransome, sem hann sagði vera þræla- nafn en tók í staðinn upp nafnið Anikulapo sem þýðir „Sá sem ber dauðann í skjóðu sinni“. Hann breytti nafninu á hljómsveit sinni í Africa 70 og settist að ásamt hljómsveit, fjölskyldu, dönsurum og ýmsum áhangendum í stóru húsi, eins konar kommúnu, þar sem hann var einnig með upptökuaðstöðu. Þar stofn- aði hann sitt eigið ríki, Kalkútta lýð- veldið, og sagði sig úr lögum við níger- íska ríkið. Þá stofnaði hann klúbb sem var kall- aður Helgidómurinn (The Shrine) þar sem hann og félagar í Afrika 70 hófu að spila reglulega auk þess að taka upp efni og gefa út. Helgidómurinn var ekki aðeins klúbbur, heldur eins konar samkomustaður fyrir framsýna afríska hugsuði þar sem áherslan var ekki á ættbálka eða þjóðerni heldur samafr- ískar hugsjónir og samstöðu. Fela varð fljótt vinsæll í Nígeríu og varð nokkurs konar hetja fátæks al- múgans. Hann bar litla virðingu fyrir yfirvöldum og í lögum sínum talaði hann aldrei undir rós; þar var að finna beinar árásir á spillingu, kúgun stjórn- valda, arðrán erlendra stórfyrirtækja á alþýðu landsins og menningarlega heimsvaldastefnu Vesturlanda. Ofsóttur af stjórnvöldum Gagnrýni Fela Kuti á stjórnvöld ásamt því hversu mikla óvirðingu hann sýndi með stofnun fríríkis síns gerði að verk- um að stjórnvöld litu á hann sem ógn. Á blómaskeiði sínu frá 1970 til 1977 gaf Fela Kuti út tæplega 30 plötur og þegar mest var gaf hann út sjö plötur á ári. Lögin spanna frá 10 mínútum og upp í klukkutíma, sem kom í veg fyrir útvarpsspilun og að hann næði vin- sældum í hinum vestræna heimi en tónlistarmenn á borð við James Brown, Ginger Baker, Stevie Wonder, Paul Mcartney og Curtis Mayfield voru miklir aðdáendur og flykktust til Níg- eríu til að drekka í sig tónlistina. Uppvakningar ráðast til atlögu Árið 1977 gefur Fela út plötuna Zombie sem varð hans vinsælasta og áhrifa- mesta plata. Titillagið, sem byggist á óstöðvandi grúvi, er harkaleg ádeila á hermenn landsins, „heilalausa upp- vakninga sem hafi enga sjálfstæða hugsun og geri ekkert án skipana yf- irmanna sinna. Lagið kom af stað vakningu meðal kúgaðra íbúa landsins sem leiddi til óeirða og mótmæla gegn hermönnum á götum úti þegar fólk hermdi eftir uppvakningum er það sá til hermanna. Stuttu seinna gerðu 1.000 hermenn árás á Kalkútta kommúnuna eftir að hafa lent í útistöðum við strák úr gengi Fela. Þeir umkringdu húsið og réðust svo inn og gengu í skrokk á íbúunum, nauðguðu konum og köstuðu móður Fela út um glugga á annarri hæð. Hljóðfæri, upptökur og filmur voru eyðilagðar og að lokum kveikt í hús- inu. Fela var barinn þangað til hann missti meðvitund og fangelsaður í stuttan tíma. Þegar hann var laus úr fangelsi fór hann í mál við ríkið en „óháð“ rannsókn leiddi í ljós að það hefði verið óþekktur hermaður sem stóð fyrir aðförinni að húsi Fela. Um þetta gerði hann lagið Unknown Sol- dier. Móðir hans lést nokkrum mánuðum síðar af meiðslum sem hún hlaut í árásinni og Fela fór með líkkistuna og skildi hana eftir við herstöðvar Oluseg- un Obasanjo sem var hæstráðandi í landinu. Hann gerði um þetta lagið Coffin for Head of State þar sem hann réðst harkalega á Obasanjo. Það sama gerði hann í laginu ITT International Thief Thief, sem er gagnrýni á arðrán vestrænna fyrirtækja á Afríkubúum og spillta menn eins og Obasanjo sem láta það viðgangast. Svarti forsetinn Eftir árásina á húsið fór Fela í sjálfskip- aða útlegð til Ghana í ár og þegar hann kom til baka nákvæmlega einu ári eftir atburðina giftist hann 27 konum, flestar voru dansarar hans og bak- raddasöngkonur, í einni athöfn. Sama ár er hann rekinn frá Ghana eftir að óeirðir brjótast út þegar hann spilar lag sitt Zombie á tónleikum í höf- uðborginni Accra. Hann fer að tala um sjálfan sig sem The Black Presi- dent og hyggst bjóða sig fram til for- seta þegar lýðveldið er endurvakið 1979 (til 1983) en framboði hans var hafnað af tæknilegum ástæðum. Hann lét það þó ekki stoppa sig og stofnaði nýtt band, Egypt 80, og hélt áfram að gefa út plötur og fór í tón- leikaferðir til Evrópu. Hann var líka farinn að kafa dýpra í Yoruba-trúna. Þegar Fela var á leiðinni á tónleika- ferðalag til Bandaríkjanna í september 1984 var hann handtekinn á flugvell- inum og sakaður um gjaldeyrissmygl. Hann var dæmdur í tíu ára fangelsi en sleppt eftir 20 mánuði er ný stjórn hafði tekið við og Amnesty Int- ernational barist fyrir lausn hans. Dauðinn kemur upp úr skjóðunni Eftir að Fela losnaði úr fangelsi hélt hann áfram að gefa út plötur með Egypt 80 og túra um Evrópu og Bandaríkin og árið 1986 kom hann fram á tónleikum til styrktar Am- nesty International á Giants- leikvanginum í New Jersey ásamt Bono, Santana og fleirum. En í byrjun tíunda áratugarins fór að líða lengra á milli platna og að lokum hætti hann alfarið að gefa út. Þetta má líklega rekja til veikinda hans en hann þjáð- ist af alnæmi þó að hann neitaði að viðurkenna það eða leita lækn- isaðstoðar vegna þess. 2. ágúst 1997 komst dauðinn upp úr skjóðu Fela og hafði sigur á honum. Meira en milljón manns syrgðu þegar hann var borinn til grafar í Lagos. Fela Kuti var tón- listarmaður, byltingarsinni og frum- kvöðull. Hann var talsmaður hinna undirokuðu, fátæku og kúguðu í heimalandi sínu og arfleið hans og íkonísk staða í Nígeríu á sér aðeins fordæmi í arfleið Bob Marley á Ja- maíka. Fela Kuti bar litla virðingu fyrir yfirvöldum og í lögum sínum talaði hann aldrei undir rós. Sá sem ber dauðann í skjóðu sinni Eftir tónleika trommarans Tony Allen ásamt Stórsveit Samma í Hörpunni fyrir skemmstu er ekki úr vegi að rifja upp litskrúðugan feril Fela Kuti, sem var upphafsmaður afróbítsins. Davíð Roach Gunnarsson

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.