Monitor - 22.09.2011, Síða 8
8 Monitor FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2011
stíllinn
Rósa María Árnadóttir útskrifaðist frá Verzlunar-
skóla Íslands síðastliðið vor og vinnur nú í fullu
starfi hjá Nova í Kringlunni. Auk þess vinnur hún
um helgar í vintage-búðinni Rokki og Rósum
á Laugaveginum. Rósa María hefur lengi haft
mikinn áhuga á tísku og er vintage-tíska henni
efst í huga. Stíllinn spurði hana spjörunum
úr um fatastílinn, vintage-tísku og hvað væri
ómissandi í vetur.
Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum?
Hann er stílhreinn, kvenlegur en samt smá
öðruvísi. Ég blanda mikið saman nýjum og göml-
um fötum. Mér finnst til dæmis mjög gaman að
vera fín, ég kaupi mér reglulega kjóla og á alltof
mikið af þeim.
Hvenær fórstu að nota vintage-föt?
Ég man að þegar ég var í níunda bekk kom
tímabil þegar allir voru að kaupa sér ballkjóla í
Spúútnik og þess háttar en það hætti svo fljótt.
Síðan þegar ég var að byrja í menntaskóla fór ég
að ganga meira í vintage-fötum. Ég var að vinna
í fatabúð með Elísabetu vinkonu minni sem gekk
mikið í svona fötum þá og ég byrjaði að herma
örlítið eftir henni. En svo þróaðist þetta og mér
byrjaði að finnast mun skemmtilegra að kaupa
mér föt sem ég vissi að enginn átti eins. Í dag er
meirihlutinn af fataskápnum mínum vintage-föt.
Hver er þín helsta fyrirmynd í tískuheiminum?
Það er engin viss fræg persóna sem ég lít eitt-
hvað sérstaklega upp til. Ég skoða mikið tísku-
blogg eins og lookbook.nu. Ég skoða einnig mikið
evrópsk tískublogg eins og stokkholmstreetstyle.
se þar sem þessi evrópska tíska á mjög vel við
mig. Svo heimsæki ég reglulega elisabetgunnars.
com, þar er hægt að finna mjög margt flott.
Átt þú þér uppáhaldshönnuð?
Mér finnst Marc Jacobs alltaf flottur og einnig
Stina Goya. Af íslenskum hönnuðum finnast
mér Kalda-systurnar mjög flottar, Aftur og
einnig fannst mér Spakmannsspjarir mjög flott á
Reykjavík Fashion Festival núna um daginn.
Hver er uppáhalds vintage-búðin þín?
Það er alveg klárlega Rokk og Rósir. Ég kíki líka
oft í Spúútnik og Nostalgíu og svo er hægt að
finna margt fallegt í Rauða Kross búðinni.
Hvaða flík myndir þú segja að væri ómissandi
fyrir veturinn?
Klárlega loðkragar og í öllum litum. Góðar og
flottar úlpur, það er búið að vera mikið úrval
af flottum úlpum í Spúútnik og Nostalgíu og
þessum vintage-búðum. Cape-in verða flott í
vetur og fylltu hælarnir halda áfram að vera
vinsælir. Svo er algjör nauðsyn að eiga stóra, kósí
prjónaða peysu og leðurstuttbuxurnar verða líka
málið, við þykkar litaðar sokkabuxur.
„Þessi gamli stíll á miklu betur við
mig,“ segir Rósa María en Stíllinn
fékk hana til að sýna okkur uppá-
halds vintage-flíkurnar sínar.
Vintage
ÆÐI
VESTI:
ROKK OG RÓSIR
HATTUR:
RAUÐA KROSS BÚÐIN
BUXUR:
ROKK OG RÓSIR
SKÓR:
TOP SHOP
SKYRTA:
NOSTALGÍA
KJÓLL:
ROKK OG RÓSIR
BUXUR:
KULTUR
SKÓR:
DIN SKO (SVÍÞJÓÐ)
SOKKABUXUR:
OROBLU
JAKKI:
RAUÐA KROSS BÚÐIN
KJÓLL:
ROKK OG RÓSIR
SOKKABUXUR:
OROBLU
HÁLSMEN:
ROKK OG RÓSIR
SKÓR:
NELLY (SVÍÞJÓÐ)
SKÓR:
RAUÐA KROSS BÚÐIN
BOLUR:
SPÚÚTNIK