Monitor - 06.10.2011, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR
6. OKTÓBER
2011
Hvernig upplifir þú Airwaves?
Mér finnst hátíðin snilld eins og öllum öðrum Íslendingum,
held ég. Þetta eru fimm dagar af djammi og hellingur af böndum,
allir voða glaðir. Þetta er svolítið eins og jólin komi snemma, eða
eitthvað álíka klisjukennt.
Er einhver öðruvísi stemning yfir Airwaves-giggunum heldur
en öðrum giggum niðri í miðbæ?
Já, það vilja allir sanna sig geðveikt mikið á Airwaves af því að
þarna er svo mikið af bransaliði og blaðamönnum svo ég held
að það leggi allir miklu meira púður í Airwaves-giggin sín. Það
sem mér finnst líka svo skemmtilegt er að það er alltaf svo mikið
af fólki. Það getur verið erfitt að spila í fámenni. Svo er það bara
spennan sem er í loftinu og gleðin.
Í fyrra var skrifað í blaðið Telegraph að þið hefðuð sprengt
þakið af Iðnó. Er þetta satt?
Ekki bókstaflega en stemningin var allavega geðveik, þetta var
ógeðslega gaman. Við vorum á Evróputúr fyrir þetta og fluginu
okkar seinkaði alveg massíft svo við enduðum á að missa af
sándtékkinu og brunuðum bara beint af flugvellinum á giggið. Við
vorum sem sagt geðveikt spenntir og í hálfgerðu sjokki hugsa ég.
Hvað hefur For a Minor Reflection fengist við á árinu?
Við erum búnir að vera að ferðast slatta, fórum meðal annars
til Kína, Bandaríkjanna og Evróputúr. Síðan vorum við að klára að
taka upp smáskífu og hún kemur út seinna í þessum mánuði.
Þið eruð nú á leið út til Los Angeles fyrir Airwaves. Vonist þið
til að það verði seinkun á heimkomunni svo þið mætið beint af
flugvellinum á giggið eins og í fyrra?
Miðað við hvað það gekk vel í fyrra, eigum við þá ekki bara að
segja það?
elg
Kjartan Holm gítarleikari í For a
Minor Reflection sagði Monitor frá
fimm daga Airwaves-djamminu.
Beint úr flugi
á Airwaves
M
yn
d/
Kr
is
ti
nn
M
yn
d/
Kr
is
ti
nn
Óla
fu
rA
rn
al
ds
LA
U 1
5. OK
T Harpa Norðurljós
kl.21:40
Fo
ra
M
in
or
Re
fle
ct
ion
FÖS 14. OKT Listasafnið
kl.21:00
Þú spilar í Norðurljósum í Hörpu á Airwaves. Það færi þér
kannski ekki að spila á sveittum bar?
Það getur myndast skemmtileg stemning þegar maður setur
svona tónlist inn í umhverfi sem hún á ekki að vera í. Það er
áhættusamt en sumir af mínum uppáhaldstónleikum hafa
verið á skítugum börum. Fólk sest bara á gólfið og gerir barinn
að tónleikasal.
Friðrik Dór mun meðal annars spila lög sem hann hefur gert
í samstarfi við þig. Er þetta þín leið til að fá útrás?
Já, ég laumast í poppið inn á milli þegar ég fæ leið á því sem
ég er að gera. Mér finnst gaman að gera tónlist þó það sé vinna
mín þannig að fríið mitt er að gera aðra tónlist en ég geri
vanalega.
Hvernig gengur með „Living Room Songs“?
Það gengur ótrúlega vel. Fyrsta lagið kom út á mánudaginn
og það kemur út lag á dag út vikuna. Vefsíðuhönnuðurinn
minn sagði mér að yfir 5.000 manns hefðu póstað þessu á
Facebook-ið sitt, svo þetta dreifðist eins og einhver veira.
Svo varstu að semja tónlist fyrir bíómynd, ekki satt?
Ég gerði tónlist fyrir tvær bíómyndir á síðasta ári, Óróa og
bandarísku Hollywood-myndina, Another Happy Day, sem
kemur út í nóvember. Mér finnst þetta mjög skemmtilegt og
það hentar mér mjög vel að semja tónlist við fyrirfram ákveðn-
ar aðstæður.
Svo ertu með tónleika í Hörpu 17. desember. Verður öllu til
tjaldað? Ég flýg ljósamanninum mínum og öllu mínu starfsliði
til landsins svo við getum gert þetta eins og við gerum það í
útlöndum.
Þú ert búinn að spila rúmlega 300 tónleika á síðustu þremur
árum. Er það ekkert erfitt? Ég er vinnualki, vil ég meina. En
þetta borgar sig allt saman þangað til ég enda einn einhvers
staðar sem fjölskyldulaus vinnualki. jrj
Að semja eitt lag á dag og tónlist
fyrir Hollywood-mynd eru dæmi
um það sem Ólafur Arnalds hefur
aðhafst á síðustu misserum.
Tónlistaralki
ÞAÐ MYNDI HENTA ÞEIM VEL EF
AIRWAVES FÆRI ENN FRAM Í FLUGSKÝLI
ÓLAFUR HELDUR ÁFRAM AÐ SPILA ÞAR
TIL HANN VERÐUR FJÖLSKYLDULAUS
Skannaðu og
sjáðu viðtal
við Ólaf
Arnalds
Sjáðu
Skannaðu og
sjáðu viðtal
við For a
minor
reflection
Sjáðu