Monitor - 06.10.2011, Side 20
20
FIMMTUDAGUR
6. OKTÓBER
2011
Settu saman þína eigin dagskrá í appinu og
deildu henni á Facebook. Svo færðu áminningu
í símann korteri fyrir tónleikana.
m.siminn.is/airwaves
Náðu í Airwaves appið
og upplifðu hátíðina
með okkur
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
W
O
N
W
E
I
/
N
M
4
8
3
6
3
Monitor hitti nokkra Airwaves-aðdáendur og spjallaði við þá um hátíðina í ár,
hverju þau eru spenntust fyrir og hvernig ætti að koma sér í Airwaves-gírinn.
NJÓTIÐ AUGNABLIKSINS
Hjalti Axel
Yngvason
Hvað hefur þú farið oft á Air-
waves? Þrisvar sinnum.
Hvað er eftirminnilegast? Klaxons
í Listasafninu, Late of the Pier á
Nasa, Jose Gonzales í Þjóðleikhú-
skjallaranum þar sem ég óð upp á
svið og tók í hendina á honum og
þakkaði honum fyrir, Whitest Boy
Alive og svo röðin á Ratatat sem
ég gafst upp á og reyndi að klifra
inn um gluggann á Nasa. Það tókst
ekki.
Hvað ætlar þú að sjá í ár? Af
þeim erlendu er ég spenntastur
fyrir Beach House, tUnE-yArDs,
Elephant Stone, The Ghost Of A
Saber Tooth Tiger, Young Galaxy og
Leif Vollebekk en af þeim íslensku
eru það Retro Stefson, Prins Póló,
Klassart, Ojba Rasta, Hjaltalín,
Lifun, Jón Jónsson og GusGus.
Síðan er alltaf skemmtilegast að
detta inn á eitthvað sem maður
veit ekkert hvað er og komast að
því að maður fílar það í botn.
Hvernig kemur þú þér í Airwaves-
gírinn? Að hlusta á einhverja tón-
listarmenn sem ég hefði ábyggilega
ekki heyrt um ef þeir væru ekki að
koma á Airwaves.
Heilræði fyrir Airwaves? Það er
mjög mikilvægt að vera í góðum
skóm sem þægilegt er að standa í
lengi, síðan er lykilatriði að stilla
drykkjunni í hóf fyrstu dagana
og taka sér svo hið klassíska
eftir-Airwaves frí á mánudeginum,
yfirmanni þínum til mikillar gleði
og undrunar.
Margrét
Björnsdóttir
Hefur þú farið oft á Airwaves?
Ég hef farið tvisvar sinnum áður.
Hvað er eftirminnilegast? Ég
verð að segja Chromeo árið
2007, á hápunkti hipsteratíma-
bilsins míns. Mér fannst þeir
alveg frábærir. En svo eru Of
Montreal-tónleikarnir í Hafnar-
húsinu ansi eftirminnilegir.
Hvað ætlar þú að sjá í ár?
Ég ætla að kíkja á stórvini mína
í Lockerbie og Snorra Helgason.
Ég verð að sjá Beach House og
jafnvel Karkwa. Svo er ég rosa
heit fyrir að sjá Mugison flytja
Haglél diskinn. Annars á ekkert
að vera að plana of mikið.
Hverju ertu spenntust fyrir?
Ég er svakalega spennt fyrir
Beach House, John Grant,
Dungen og HAM. En ég er líka
mjög spennt fyrir að klæða mig
upp, því Airwaves er ekki bara
tónlistarhátíð fyrir mér. Þetta er
svona semí eins og 5 dagar af
áramótum. Á Airwaves er allur
klæðnaður leyfilegur.
Hvernig kemur þú þér í
Airwaves-gírinn? Ég set á góða
Airwaves-tónlist og dansa.
Heilræði fyrir Airwaves? Ég
myndi fara í hlýjum jakka því
það getur verið algjört helvíti að
bíða í röðunum eða bara vera
búin að drekka nógu mikið. Og
að sjálfsögðu að mæta tíman-
lega á staðina.
Sigurður
Eggertsson
Hefur þú farið oft á Airwaves? Ég
hef farið á fimm hátíðir og stefni
eins og óð fluga á þá sjöttu. Margir
vina minna missa ekki úr hátíð
og taka út veikindadaga á þessum
tíma.
Hvað er eftirminnilegast? Eftir-
minnilegustu tónleikarnir voru þeir
allra fyrstu í flugskýlinu. Þá var ég
aðeins sautján ára og svindlaði mér
inn á ljósrituðum miða og fannst
ótrúleg upplifun í alla staði.
Hvað ætlar þú að sjá í ár og fyrir
hverju ertu spenntastur?
Ég er þrælspenntur fyrir mörgum
böndum í ár eins og Agent Fresco,
Hljómsveitin Ég, Jónas Sig og
Ritvélar Framtíðarinnar, Mugison,
Valdimar og enn fleiri en ég kem
fyrir hér. Það væri draumur að sjá öll
þessi bönd koma fram, en stundum
þarf að velja og hafna. GusGus
kemur mér alltaf í Airwaves-gírinn,
helst þó eldri lögin þeirra.
Heilræði fyrir Airwaves?
Heilræði fyrir þá er ætla sér á hátíð-
ina er að gera smá heimavinnu, vita
hvert maður ætlar sér og hvenær.
Einnig er góð og hlý úlpa skilyrði
því raðirnar geta verið geigvænlegar
á vinsælustu atburðina. Úlpan
verður þó að vera verðlaus í augum
viðkomandi því henni þarf að henda
af sér þegar inn er komið án þess að
pæla í afdrifum hennar frekar.
Einnig mæli ég eindregið með
því að vera með bros á vör og ást
í hjarta því þá skiptir í raun ekki
máli hversu löng röðin er eða léleg
böndin, maður fer alltaf sáttur heim.
Þorkell Máni
Pétursson
Hvað hefur þú farið oft á
Airwaves?
Ég held ég hafi farið á meira en
minna allar hátíðirnar síðan
þetta byrjaði, þannig að þetta
verður ellefta skiptið mitt
núna í ár.
Hvað er eftirminnilegast?
Eftirminnilegustu tónleikarnir
eru einna helst Ham, Mínus og
80th Matchbox b-line disaster.
Þeir voru mjög eftirminnilegir
og virkilega góðir.
Hvað ætlar þú að sjá í ár?
Ég er mjög spenntur fyrir
kölskakvöldinu í Hörpu á mið-
vikudag. Ég held að það sé mitt
„line up“ nokkuð augljóslega.
Það eru margir skemmtilegir
tónlistarmenn sem koma þar
fram.
Hverju ertu spenntastur fyrir?
Ég er mjög spenntur fyrir
Glóbus og Rakvélunum. Síðan
er ég líka virkilega spenntur
að sjá böndin Zebra and Snake
og 22-Pistepirrko, það verður
gaman.
Hvernig kemur þú þér í
Airwaves-gírinn?
Ég fæ mér bara tvöfaldan
soja-latte og kemst í góðan
Airwaves-gír við það.
Heilræði fyrir Airwaves?
Bara ekki halda að þú sért
eitthvað merkilegur og farðu
í röð.
Þórhildur
Þorkelsdóttir
Hvað hefur þú farið oft á Airwaves?
Ég hef farið þrisvar, árin 2007, 2008
og 2010.
Hvað er eftirminnilegast? Mod-
erat í Listasafninu í fyrra standa
algjörlega upp úr. Svo má nefna
Yelle, Chromeo, the Teenagers, CSS,
Familjen, Vampire Weekend og
Timber Timbre. Svo voru íslensku
böndin Jungle Fiction, Retro Stefson
og FM Belfast líka öll með klikkaða
tónleika í fyrra.
Hvað ætlar þú að sjá í ár? Því miður
kemst maður aldrei yfir að sjá allt
sem mann langar, en þá er „off
venue“-dagskráin líka algjör snilld!
Vonandi næ ég bara að sjá sem allra
mest.
Hverju ertu spenntust fyrir? Beach
House hafa verið í miklu uppáhaldi
síðustu ár svo ég er virkilega spennt
að sjá þau loksins „live“. Annars er
ég mega spennt fyrir TuNe YaRdS,
Totally Enormous Extinct Dinosaurs,
The Ghost Of A Saber Tooth Tiger,
SBTRKT og svo verður forvitnilegt að
sjá Sinéad O’Connor!
Hvernig kemur þú þér í Airwaves-
gírinn? Í mínum augum er Airwaves
það allra skemmtilegasta sem gerist
á Íslandi þannig ég þarf varla meira
en hugsa út í það til að komast í
gírinn. En annars er smá hefð hjá
mér að tékka á böndunum sem eru
að fara að spila á youtube og búa til
Airwaves-playlista.
Heilræði fyrir Airwaves? Ekki plana
of mikið og njóttu augnabliksins. lh