Morgunblaðið - 28.04.2010, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 8. A P R Í L 2 0 1 0
STOFNAÐ 1913
97. tölublað
98. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
DAGLEGT LÍF
KONUR ERU KONUM
BESTAR Í MAROKKÓ
MENNING
SÖNGNEMAR LIFA
SIG INN Í LIFUN
6
„MAÐUR verður aðeins og sjá til hvað eldfjallið gerir,“ sagði
Sigurður Þór Þórhallsson, bóndi á Önundarhorni undir Eyja-
fjöllum, er hann var í gær spurður hvernig hann ætlaði að
haga vorverkum á næstunni. Sigurður var að hreinsa leir og
ösku úr skurðum við bæinn. Bændur einbeita sér að hreins-
unarstarfi á meðan þeir fylgjast með hvernig gosið þróast. | 4
HREINSAR ÖSKU UNDIR ÖSKUSTRÓK FRÁ EYJAFJALLAJÖKLI
Morgunblaðið/RAX
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÞAÐ er engin leið að segja til um hversu langt gosið
verður. Það eru engar leiðir færar í því,“ segir Páll Ein-
arsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands,
um mögulega þróun gossins í Eyjafjallajökli.
Páll bendir á að gosið sé að einangrast frá vatnsgang-
inum við gíginn og því séu líkur á að sprengivirknin
minnki. Á hinn bóginn sé kvikan þess eðlis að ekki þurfi
að koma til snerting við vatn til að sprengivirkni verði.
Það þýðir að allt bendir til að nokkur gjóskumyndun
haldi áfram en hversu mikil segir Páll óvissu um.
Útlit fyrir hagstæðar vindáttir fram yfir helgi
Tengiflugið flyst frá Glasgow til Keflavíkur í dag og
sagði Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Iceland-
air, útlit fyrir að það versta væri afstaðið í bili.
Vindur er orðinn norðaustlægari frá því um síðustu
helgi og eru góðar líkur á að flug frá Keflavík verði nán-
ast með eðlilegum hætti fram yfir helgi, að sögn Óla Þórs
Árnasonar, veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands.
Inntur eftir mögulegri röskun á flugi fari svo að
gjóskumyndun haldi áfram bendir Óli á að erfitt sé að spá
um vindáttir langt fram í tímann. Á hinn bóginn sé aust-
anátt algengasta vindáttin á Íslandi og kunni því að bera
gjóskuna yfir Suðvesturland. Þá sé maí jafnan þurrviðra-
samur og jákvæð áhrif regns því líklega minni en ella.
Mikil óvissa um
áhrifin á flugið
Gos gæti varað lengi Tengiflugið aftur til Keflavíkur
SKULDABRÉF á gamla Lands-
bankann hafa hækkað mikið á síð-
ustu mánuðum. Agnar Hansson,
forstöðumaður hjá H.F. Verð-
bréfum, segir hækkunina illskiljan-
lega. Þó megi skýra áhuga þeirra
sem kaupa slík bréf með því að við-
komandi aðilar vænti þess að
neyðarlögunum verði hnekkt fyrir
dómstólum. Einnig megi líta á
skuldabréf á gamla Landsbankann
sem gengisvörn. Krafa Trygging-
arsjóðs innstæðueigenda og fjár-
festa í þrotabú Landsbankans hafi
verið fest í krónum. Ef íslenska
krónan veikist mikið munu endur-
heimtur bankans verða mun meiri
en sem nemur kröfu Tryggingar-
sjóðsins og því meira til skiptanna
fyrir aðra kröfuhafa. | 14
Skuldabréf á Landsbank-
ann hugsanleg gengisvörn
Færri komust inn í fríhöfnina á
Akureyrarflugvelli en vildu eftir
að þotum í millilandaflugi var
beint þangað vegna gossins í
Eyjafjallajökli. Sala var því ekki í
samræmi við farþegatölur. Engu
að síður er verslunin hálftóm eft-
ir hverja vél. Um 3.500 manns
fóru um flugstöðina frá fimmtu-
degi þar til í gær.
Fylla á hillurnar jafnóðum
Eldgosið í Eyjafjallajökli | 4 og 6