Morgunblaðið - 28.04.2010, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„DÓMSTÓLLINN lítur svo á að Vörður sé
skyldaður til þátttöku í félagastarfsemi með því
að greiða til félagsins. Þeir taka fyrir félaga-
frelsisákvæðið í 11. grein mannréttindasátt-
mála Evrópu og vísa jafnframt til 9. og 10.
greinar sáttmálans sem fjalla um skoðanafrelsi
og tjáningarfrelsi,“ segir Einar S. Hálfdánarson
hæstaréttarlögmaður um niðurstöðu Mannrétt-
indadómstóls Evrópu í máli Varðar Ólafssonar
húsasmíðameistara gegn ríkinu.
Úrskurðurinn sætir miklum tíðindum
Einar telur úrskurð dómstólsins sæta mikl-
um tíðindum enda geti hann haft fordæmisgildi
í málum af svipuðum toga í Evrópu.
Málið snýst um þá kröfu Varðar að þeirri
skyldu að greiða iðnaðar-
málagjald til Samtaka iðn-
aðarins (SI) verði hnekkt,
en því var komið á með laga-
setningu 1993 sem fól í sér
að gjaldið yrði 0,08% af
veltu félaga og einstaklinga.
Forsaga málsins er sú að
Gunnar Pétursson iðnaðar-
maður fór með sambærilegt
mál fyrir Hæstarétt gegn
íslenska ríkinu en rétturinn úrskurðaði í desem-
ber 1998 að gjaldtakan stríddi ekki gegn lögum
um félagafrelsi, sjónarmið sem rétturinn ítrek-
aði í máli Varðar.
Úrskurður í máli Varðar féll í desember 2005
og skilaði Ólafur Börkur Þorvaldsson hæsta-
réttardómari þá séráliti (sjá ramma) en hann
var þá ósammála meirihlutanum.
Dómstóllinn vísar ítrekað til sérálits Ólafs
Barkar í rökstuðningi sínum, röksemdafærsla
sem Einar telur afar athyglisverða.
Líkist máli leigubílstjóra
Þá rifjar Einar upp það sem líkt er með máli
Varðar og úrskurði dómstólsins í máli Sigurðar
Sigurjónssonar leigubílstjóra gegn ríkinu, þar
sem tekið var undir þau rök að ekki væri hægt
að skylda hann til aðildar að leigubílstjórafélag-
inu Frama, í máli sem Jón Steinar Gunnlaugs-
son, núverandi hæstaréttardómari, rak.
Vörður leyndi ekki gleði sinni þegar blaða-
maður bar niðurstöðuna undir hann.
„Þetta er mjög ánægjulegur dagur. Þetta er
það sem ég átti von á. Það er engu að síður
óvænt að þetta skyldi loksins koma. Ég trúði
ekki að ég væri skyldaður til að greiða í samtök
sem ég væri ekki félagsmaður í.“
Hefur fordæmisgildi í Evrópu
Mannréttindadómstóll Evrópu telur innheimtu iðnaðarmálagjalds stríða
gegn ákvæðum um félagafrelsi Lögmaður telur að vísað verði í dóminn
Vörður Ólafsson
„OKKUR þykir sem mjög hafi skort á fagleg vinnubrögð
við húsleitina og við lítum þetta mál mjög alvarlegum
augum,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans.
Samkeppniseftirlitinu hefur verið stefnt fyrir héraðsdóm
af Símanum í kjölfar húsleitar í síðustu viku. Húsleitin
var vegna farsímamarkaðarins og stöðunnar þar og kom í
kjölfar athugasemda frá Nova.
Rökin fyrir kæru Símans á hendur Samkeppniseftirlit-
inu eru að starfsmenn Þekkingar hf. hafi annast afritun
rafrænna gagna, til að mynda um viðskipti á upplýsinga-
tæknimarkaði þar sem Þekking og Síminn eiga í sam-
keppni. Samkeppnisyfirvöld segja kæruna ekki eiga við
rök að styðjast og benda á að starfsmenn Þekkingar hafi
verið á sínum snærum á vettvangi. Þá röksemdafærslu
segir forstjóri Símans ekki standast.
Skaðinn að hluta til skeður
„Meðan á húsleitinni stóð fóru þessir aðilar án eftirlits
um öll húsakynni Símans og voru klukkustundum saman
að afrita gögn af tölvum. Það var ekki fyrr en undir lok
aðgerða sem við áttuðum okkur á því hverjir þeir eru og
hvar þeir starfa. Því er sú hætta nú fyrir hendi að keppi-
nautar okkar séu með í höndunum trúnaðargögn, meðal
annars samninga við viðskiptavini. Þá er þetta alvarlegt í
ljósi þess að Þekking kærði Símann nýlega til Samkeppn-
iseftirlitsins. Kæran gerði Þekkingu vanhæfa til þess að
sinna þessu verkefni. Auðvitað má segja að skaðinn sé að
hluta til skeður en við viljum að þessum gögnum verði
eytt, eða að minnsta kosti verði það tryggt að Þekking-
armenn hafi ekki aðgang að þeim,“ segir Sævar Freyr
Þráinsson. sbs@mbl.is
Vilja að gögnum Þekk-
ingarmanna verði eytt
Morgunblaðið/Sverrir
Síminn Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, segir
ótækt að starfsmenn keppinautar hafi annast húsleitina.
Síminn kærir Samkeppnis-
eftirlit Ekki fagleg vinna
STÚLKURNAR tvær sem létust
af sárum sínum eftir bílslys á
Hafnargötu í Reykjanesbæ
snemma laugardagsmorguns hétu
Unnur Lilja Stefánsdóttir, fædd 25.
ágúst 1991, og Lena Margrét Hin-
riksdóttir, fædd 8. febrúar 1992.
Fjögur ungmenni voru í bílnum,
piltur og þrjár stúlkur. Pilturinn
sem ók bílnum var útskrifaður af
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja á
sunnudag en hann er grunaður um
ölvun við akstur, samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni á Suður-
nesjum, sem rannsakar slysið.
Þriðju stúlkunni er enn haldið
sofandi í öndunarvél á gjörgæslu-
deild Landspítala. Hún er að sögn
læknis þungt haldin. Stúlkurnar
þrjár eiga allir ættir sínar að rekja
í Garðinn.
Stúlkurnar
sem létust
Lena Margrét
Hinriksdóttir
Unnur Lilja
Stefánsdóttir
Áhrif hrunsins
á lífeyrissjóðina.
Hver ber ábyrgð?
Nánari upplýsingar á www.xd.is
Samtök eldri sjálfstæðismanna
efna til fundar í Valhöll
fimmtudaginn 29. apríl kl. 17.00.
Frummælendur eru Pétur H. Blöndal
alþingismaður og Elínbjörg Magnúsdóttir
fiskverkakona.Pétur Blöndal
Elínbjörg Magnúsdóttir
Brot úr áliti Ólafs Barkar Þorvaldssonar
hæstaréttardómara við úrskurð réttarins í
máli Varðar bregða birtu á málsatvik.
„Áfrýjandi er ekki samþykkur mark-
miðum félagsins á ýmsum sviðum en
hann telur, eins og nánar er rakið í hinum
áfrýjaða dómi, félagið vinna gegn sínum
hagsmunum, og raunar einnig fjölmargra
annarra innan iðnaðarins, sem einnig
greiði iðnaðarmálagjald án þess að vera
félagar í samtökunum […] Greiðsla fé-
lagsgjalda til reksturs félags er að jafnaði
ein af aðalskyldum félagsmanna í félögum
þar sem slíkt gjald er áskilið. Áfrýjandi er
félagi í meistarafélagi húsasmiða. Er
hvorki hann né félag hans aðili að Sam-
tökum iðnaðarins,“ sagði í álitinu en mál
Varðar var dómtekið í júní 2005.
Ósammála markmiðum SI
„ÍSLAND hrundi af því að siðferðis-
grunnurinn gliðnaði, samfélagið
laskaðist þegar eigingirnin, sjálf-
dæmishyggjan og upphafning ein-
staklingsins var í öndvegi,“ sagði
Karl Sigurbjörnsson biskup í yfir-
litsræðu í gærkvöldi við setningu
prestastefnu sem nú er haldin í
Garðabæ.
„Grunnstoðir samfélagsins
gengu úr skorðum, löskuðust, ýms-
ar hrundu. Og svo bifuðust kraftar
náttúrunnar, eldur kom upp, vatns-
flóðin dundu og askan og eimyrjan
féllu yfir byggðirnar.“
Ríkisstjórnin hefur lagt fram
frumvarp til hjúskaparlaga sem
verður rætt á lokadegi presta-
stefnu. Segir biskup að verði frum-
varpið að lögum sé einboðið að fara
þá leið sem prestastefna hefur sam-
þykkt en samkvæmt því verði í
Handbók kirkjunnar gefnir val-
kostir um tilhögun hjónavígslu eftir
því hvort í hlut eiga karl og kona
eða samkynja par. sbs@mbl.is
Siðferði og samfélag í brennidepli við setningu prestastefnu í gærkvöldi
Morgunblaðið/Kristinn
Trú Prestar landsins fjölmenntu á prestastefnu í Garðabæ þar sem lagðar eru helstu línur um kristnihald í landinu.
Upphafn-
ingin var
í öndvegi