Morgunblaðið - 28.04.2010, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 28.04.2010, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2010 Morgunblaðið/Jónas Erlendsson „Túristagos“ Arcanum fór margar ferðir með ferðafólk að eldgosinu á Fimmvörðuhálsi. Gamanið kárnaði þegar jökullinn byrjaði að gjósa. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is „ÞAÐ er allt stopp hjá okkur, út af ösku á jöklinum,“ segir Benedikt Bragason sem rekur ferðaþjón- ustuna Arcanum í Sólheimakoti í Mýrdal. Hann sér ekki fram á að geta notað dýran útbúnað sinn til vélsleðaferða á Mýrdalsjökul í sum- ar. Sigurður Baldvinsson, sem býður upp á hundasleðaferðir á Mýrdals- jökul, er að meta stöðuna. Hans fyr- irtæki hefur einnig verið í lamasessi frá því askan fór að falla. Mikið var að gera hjá ferðaþjón- ustunni Arcanum eftir að gosið hófst á Fimmvörðuhálsi enda var gott að fara á vélsleðum til að skoða eldstöð- ina. Benedikt segir að askan hafi fljótlega farið að valda vandræðum og þegar gos hófst í Eyjafjallajökli og aska féll í nágrenninu hafi alveg lokast fyrir alla möguleika. „Sleðarnir þola ekki öskuna. Skíð- in slitna og búnaðurinn eyðileggst. Það þýðir ekkert að reyna,“ segir Benedikt. Arcanum hefur fjárfest mikið í vélsleðum og ýmsum búnaði sem þarf í slíkt úthald og sér ekki fram á að fá neinar tekjur í sumar, á aðal- ferðamannatímanum. „Við getum kannski farið að huga að þessu eftir næsta vetur, athuga með að setja aftur í gang. Þá verðum við á byrj- unarreit. Við þurfum að hefja mark- aðssetningu upp á nýtt því væntan- lega töpum við viðskiptavinum okkar þegar ekki er hægt að bjóða ferðir,“ segir Benedikt. Alltaf einhver leið Arcanum hugar að því að bjóða upp á jeppaferðir til að skoða gosið en segir að til þess þurfi mikla fjár- festingu til viðbótar. „Eitthvað þarf maður að hafa að gera en það bjarg- ar ekki afborgunum af sleðunum,“ segir Benedikt. „Það finnst alltaf einhver leið til að gera eitthvað úr þessu, það er bara spurning um hvar og hvernig,“ segir Sigurður Baldvinsson sem rekur ferðaþjónustuna dogsledding.is. Hann býður upp á hundasleðaferðir á Mýrdalsjökul og þegar ekki er fært þangað draga hundarnir hjólavagna á Sólheimasandi. Ekki er vitað hvaða áhrif askan hefur á hundana og skíði sleðanna þannig að Sigurður hefur ekki viljað hreyfa sleðana frá því öskufallið hófst. Hann á von á fólki um helgina og ætlar að prófa að hreyfa hundana einhvern næstu daga. „Við verðum svo að sjá hvernig jökullinn kemur undan vetri og ösku,“ segir Sigurður og segir koma til greina að fara með úthaldið annað ef ekki verði fært á Mýrdalsjökli og söndunum fyrir ösku. Aska lamar ferðaþjónustu á jökli  Eigandi ferðaþjónustunnar Arcanum sér ekki möguleika á að bjóða vélsleðaferðir á Mýrdalsjökul í sumar  Hundasleðaferðirnar hafa einnig legið niðri en eigandinn hugar að öðrum möguleikum Morgunblaðið/RAX Hreinsun Öskunni sem mokað var frá Þorvaldseyri og Önundarhorni var sturtað í Svaðbælisá. Aska sem fallið hefur síðustu daga fauk um sveitirnar í gær. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is „MAÐUR verður aðeins að sjá til hvað eldfjallið gerir,“ segir Sigurður Þór Þórhallsson, bóndi á Önundar- horni, þegar hann er spurður hvern- ig verði með hefðbundin vorverk á Önundarhorni. Sigurður var í allan gærdag að keyra leir og ösku úr skurðum við bæinn. Hluti túnskurða við Önundarhorn hálffylltust af leir þegar hlaup kom í Svaðbælisá dag- inn sem eldgos hófst í Eyjafjalla- jökli. Um 58 hektarar af um 100 hektara túnum á Öndunarhorni skemmdust í hlaupinu. Til viðbótar féll mikil aska á túnin fyrstu dagana eftir að gosið hófst. Í dag koma menn með fjóra sturtuvagna úr Árnessýslu til að hjálpa til við hreinsun á Önundar- horni. Stór hluti túnanna er það illa farinn að ekki er um annað að ræða en að plægja þau og endurrækta. Um helgina komu sjálfboðaliðar til að aðstoða við hreinsun í kringum bæinn á Öndunarhorni. Um sex sturtuvagnar af ösku voru mokaðir upp úr garðinum í kringum bæinn og er þó hreinsun ekki að fullu lokið. Paula Kristín húsfreyja sagði mik- inn mun að losna við öskuna við bæ- inn. Búið væri að vinna mikið og gott hreinsunarstarf þó mikið væri enn ógert. Sigurður sagði að hann ætlaði sér að hreinsa ösku í kringum bæinn og af túnum og upp úr skurðum. Síðan þyrfti hann að meta stöðuna, m.a. með tilliti til þess hvernig gosið þró- aðist. Hann þyrfti að vera búinn að taka ákvörðun fyrir 20. maí um hvað hann legði í mikinn kostnað við grasrækt- un í sumar. Það væri erfitt að eyða miklum tíma og fjármagni í ræktun ef það skilaði ekki árangri vegna öskunnar. Aðrir bændur sem rætt var við undir Eyjafjöllum í gær höfðu sömu sögu að segja. Það væri of snemmt að segja til um hvernig heyskapur yrði í sveitinni í sumar. Menn einbeittu sér að hreinsunarstarfinu og ætluðu síð- an að sjá til hvernig gosið þróaðist og hvernig grösin brygðust við öskunni. Aka ösku frá bæjunum  Bændur undir Eyjafjöllum kepptust við í gær að moka ösku frá bæjum sínum  Menn treysta sér ekki til að svara því hvernig staðið verður að heyöflun í sumar EKKI liggur fyr- ir hversu mikla fjármuni Bjarg- ráðasjóður hefur til ráðstöfunar til að bæta tjón sem bændur undir Eyjafjöllum hafa orðið fyrir. Þetta segir Árni Snæ- björnsson, fram- kvæmdastjóri Bjargráðasjóðs. Unnið er að því að meta tjónið en óvissuþættir í því mati eru margir. Árni átti fund með bændum undir Eyjafjöllum í gær. Hann fór þar yfir hlutverk Bjargráðasjóðs og hver yrðu næstu skref sjóðsins, en rík- isstjórnin hefur lýst því yfir að fjár- magn verði sett í sjóðinn til að bæta bændum tjón sem þeir hafa orðið fyrir vegna eldgossins í Eyja- fjallajökli. Samkvæmt lögum á Bjargráða- sjóður að bæta tjón bænda sem aðrir bæta ekki. Sjóðurinn á að bæta tjón á ræktuðu landi, uppskeru, girðingum, skurðum og túnvegum. Árni hefur verið að skoða tjón á bæjum undir Eyjafjöllum. Hann seg- ist ekki treysta sér til að svara því hversu tjónið sé mikið. Menn viti ekki hversu mikil uppskera verði á túnum þar sem aska hefur fallið. Eins sé óljóst hvort meiri aska muni falla á næstu vikum. Tjón bænda sé því ekki enn komið fram að fullu. Heildarframlagið óákveðið Árni segist því ekki hafa getað svarað bændum hversu mikið verði bætt eða hversu mikla peninga Bjargráðasjóður komi til með að hafa til ráðstöfunar. Stjórnvöld hafi viljað fá eitthvert mat á hugsanlegu tjóni áður en ákvörðun verði tekin um hversu stórt framlag sjóðurinn fengi. Fundað verði í landbúnaðarráðu- neytinu um málið næstu daga. Árni segist vera sæmilega bjart- sýnn á að túnin undir Eyjafjöllum muni gefa af sér uppskeru í sumar. Hann segir að það verði hins vegar að vera ákvörðun bændanna sjálfra hvernig þeir haga málum, þ.e.a.s. hvaða tún þeir taki til endurrækt- unar og hvort einhver tún verði alveg hvíld í sumar. Hann segir greinilegt að bændur séu ekki tilbúnir á þessari stundu til að taka ákvörðun um næstu skref. Þeir þurfi fyrst að sjá hvernig gosið þróist. egol@mbl.is Ekki búið að meta tjón bænda Bjargráðasjóður fundaði með bændum Árni Snæbjörnsson Páll Eggert Ólafsson, bóndi á Þorvaldseyri, var bú- inn að moka um 30 vögnum af ösku af hlaðinu á Þor- valdseyri í gær. Hann sagðist halda að hann væri ekki hálfnaður með þetta verkefni. Öskuna keyrði hann á sturtuvagni niður að Svaðbælisá, en hlaupið í ánni olli talsverðu tjóni á bænum. Hitaveitan skemmdist og einhverjar skemmdir urðu á kalda- vatnslögn og rafmagnslögn frá heimarafstöð. Í gær var einnig unnið við lagfæringar á varnar- görðum við Svaðbælisá, en þeir skemmdust í flóðinu. Hætt er við frekari tjóni á túnum ef ekki verður gert við garðana. Sjóður á vegum Landgræðslunnar, sem ætlaður er til að fjármagna endurbætur á varnar- görðum á landi, mun taka þátt í kostnaði við lagfær- ingarnar. Hlíðarnar fyrir ofan bæina undir Eyjafjöllum eru áberandi svartar og greinilegt að þar er mikil aska sem hætt er við að fjúki niður í byggð í norðanáttum. 30 vagnar af ösku á hlaðinu á Þorvaldseyri og mikið eftir Morgunblaðið/RAX Hreinsun Páll Eggert Ólafsson bóndi á Þorvaldseyri. Eldgosið í Eyjafjallajökli

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.