Morgunblaðið - 28.04.2010, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.04.2010, Blaðsíða 6
6 FRÉTTASKÝRING Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is „Í HEILD held ég að þetta hafi gengið vel. Það hafa allir hjálpast að til að gera þetta mögulegt. Við höf- um fengið aðstoð frá Keflavíkur- flugvelli og víðar. Svo hafa farþegar líka sýnt mjög góðan skilning á að- stæðum,“ segir Sigurður Her- mannsson, flugvallarstjóri á Akur- eyrarflugvelli. Mikið hefur mætt á starfsmönnum á vellinum undan- farna daga á meðan Keflavíkur- flugvöllur og Reykjavíkurflugvöllur hafa verið lokaðir þotum vegna goss- ins í Eyjafjallajökli. Þegar álagið var hvað mest biðu um 200 farþegar brottfarar og um 400 farþegar komu með vélum frá Glasgow með stuttu millibili. Áætlun um tvöfalt stærra hús Flugstöðin á Akureyri er um 1.600 m² og því augljóst að þröng hefur verið á þingi. „Við leystum þetta með því að forfæra fram og til baka í húsinu og einnig með því að ganga á rétt annarra farþega, það er innan- landsfarþega,“ segir Sigurður. Samkvæmt samgönguáætlun er gert ráð fyrir að stækka flugstöðina um allt að 2.000 m² og stækka flug- hlöð verulega. Kostnaður við stækk- un stöðvarinnar er metinn um 900 milljónir og endurbætur á flug- hlöðum kosta um 934 milljónir. Framkvæmdir eru háðar því að fjár- festar leggi fram fé og að kostnaður- inn verði endurgreiddur með not- endagjöldum o.fl. Verði af stækkun flugstöðv- arinnar er gert ráð fyrir að hún stækki til norðvesturs. Um 3.500 farþegar farið um Akureyri Ljósmynd/Eiríkur K. Aðalsteinsson Annasamt Oft var þröng á þingi á Akureyrarflugvelli þegar þotur og farþegar streymdu á flugvöllinn.  Um 20 þotur í millilandaflugi fóru þar um á nokkrum dögum  Flugstöðin og flughlöðin eru í raun of lítil Frá því á fimmtudag í liðinni viku og þar til í gær höfðu um 3.500 farþegar í millilandaflugi og um 20 þotur farið um Akureyrar- flugvöll. Miklar forfæringar þurfti til að þetta gengi upp. Eldgosið í Eyjafjallajökli Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is BÚAST má við að öskufall geti truflað flugumferð á með- an enn gýs í toppi Eyjafjallajökuls, en ný aska er stöðugt að bætast við þær öskuagnir sem þegar svífa um háloftin að sögn Óla Þórs Árnasonar, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. „Landhelgisgæslan fór í könnunarflug um hádegisbil [í gær] og þeir sögðu að skýið væri mjög dökkt næst jökl- inum, en lýstist svo eftir því sem ofar drægi og fjær gos- inu,“ segir Óli Þór. Þyngstu agnirnar, sem falla fyrst út, lita skýið dökkt. „Þeim fannst öskufallið engu að síður vera sýnilegt alveg upp undir Ingólfsfjall,“ segir Óli Þór og kveður því viðbúið að aska sé í loftinu utan þess svæð- is. Ekki hægt að spá um lok öskufalls Jafnt og þétt bætist í öskuna og ekki er hægt að segja fyrir um hvenær öskufallinu kunni að ljúka. „Það er hætt við að askan sem þarna er að koma upp verði viðloðandi á meðan gýs á þessum stað. Þar sem þetta er í miðjum jökli verður alltaf einhver tilfærsla á vatni að hrauninu og því fylgir öskuframleiðsla.“ Hann segir að vel verði því áfram fylgst með öskufalli úr Eyjafjallajökli. Öskufjúkið sem næst eldstöðinni sé leiti hins vegar ekki að upp í háloftin svo neinu nemi. „Það truflar okkur líklega mest hér á jörðu niðri, enda tiltölulega þungar agnir sem fallið hafa næst fjallinu.“ Gert er ráð fyrir austan- og norðaustanátt og dálítilli vætu á morgun og leggur gosmökkinn þá væntanlega í suðvestur og vestur frá eldstöðinni. Á fimmtudag er gert ráð fyrir norðaustanátt og lítilsháttar úrkomu og líkur taldar á öskufalli í suðvestur. Bætist í öskuna jafnt og þétt  Búast má við að öskufall geti truflað flugumferð áfram á meðan það heldur áfram að gjósa í toppi Eyjafjallajökuls Spá um öskudreifingu Heimild: MetOffice Spá umöskudreifingu undir 20.000 fetum,gefin út kl. 18.00 í gær.Gildir til kl. 12.00 í dag. Eftir Andra Karl andri@mbl.is RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum í gærmorgun að veita allt að 350 milljónir króna í upplýs- inga- og landkynningarátak vegna fyrirsjáanlegrar fækkunar ferða- manna til landsins vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Eftir fundinn var upplýst að áætlað væri að ferða- mönnum myndi fækka um allt að hundrað þúsund á þessu ári. Það hefði í för með sér 25-30 milljarða króna tekjutap. Framlag ríkisstjórnarinnar kem- ur á móti öðru frá fyrirtækjum í ferðaþjónustu og sveitarfélögum. „Von okkar er því að átakið geti ver- ið af stærðargráðunni sex hundruð til sjö hundruð milljónir króna,“ sagði Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð- herra á Alþingi í gær. „Enda er gríð- arlega mikilvægt fyrir okkur að verja þá markaði sem við höfum þeg- ar unnið og koma í veg fyrir langvinn áhrif á greinina.“ Stærstu tölurnar Að sögn ráðherrans verður ráðist í að kynna landið erlendis með hefð- bundnum sjónvarpsauglýsingum en einnig vefauglýsingum og markaðs- setningu á samfélagsvefjum. Katrín nefndi ekki hvaða vefi hún ætti við en nefna má, að vinsælasti sam- félagsvefurinn í dag er Facebook. Jafnframt er í skoðun hvort skyn- samlegt sé að halda kynningarfundi með ferðaþjónustuaðilum og ferða- heildsölum til að upplýsa þá um stöð- una hér á landi. Við umræður um afleiðingar eld- gossins í Eyjafjallajökli á Alþingi í gær sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra að stærstu tölurn- ar og mesta óvissan tengdist því ef meiriháttar efnahagsáhrif og þjóð- hagsleg áhrif yrðu í gegnum hags- muni ferðaþjónustunnar. Sú röskun sem þegar hefði orðið á flugsamgöngum hefði verið afar kostnaðarsöm og miklu máli skipti hvernig tækist til með upplýsingaá- takið „til að verja ferðaþjónustu- greinina þannig að það takist að gera það sem mögulegt er til að koma í veg fyrir að þessir atburðir valdi verulegu tekjutapi og þjóðhagsleg- um skakkaföllum vegna samdráttar í ferðaþjónustu.“ Samtök ferðaþjónustunnar fögn- uðu í gær ákvörðun ríkisstjórnarinn- ar. Í tilkynningu frá samtökunum segir að brýnt sé að „snúa vörn í sókn þegar flug verður komið í eðli- legt horf“. Morgunblaðið/Kristinn Mýrdalsjökull Mikilvægt er og stefnt er að, að koma því á framfæri í erlend- um fjölmiðlum að jafn öruggt er að sækja Ísland heim eftir gos og fyrir það. Verja þarf unnin markaðssvæði  Öflugt átak til bjargar ferðaþjónustu Í HNOTSKURN »Þegar hefur mikill kostn-aður hlotist af röskun á flugsamgöngum vegna eld- gossins í Eyjafjallajökli. »Meðal þeirra sem hafaskaðast eru flugrekendur, ýmsir þjónustuaðilar og opin- berar stofnanir. »Miðla þarf réttum upplýs-ingum um stöðu mála hér á landi, hlutlægum upplýs- ingum og yfirvegað, að mati fjármálaráðherra. Á flughlöðunum á Akureyrar- flugvelli er aðeins pláss fyrir fjórar þotur í einu. Á meðan millilandaflug fór þar um vegna gossins þurfti Icelandair í tvígang að færa þotur til Egils- staða svo aðrar kæmust fyrir á Ak- ureyrarflugvelli. Kostnaður í hvert skipti er ekki undir einni milljón. Hilmar Baldursson, flugrekstr- arstjóri Icelandair, segir að brýn- asta umbótamálið á Akureyri sé að stækka flughlöðin og hann myndi setja stækkun þeirra framar í for- gangsröðina en stækkun flug- stöðvarinnar. Þurftu að færa þotur til Egilsstaða www.noatun.is GRILLAÐUR KJÚKLINGUR KR./STK. 998 MEÐ HEIM HEITT Ódýrt, fljótlegt og gott! MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2010

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.