Morgunblaðið - 28.04.2010, Page 8

Morgunblaðið - 28.04.2010, Page 8
Í HNOTSKURN »Í 18. grein viljayfirlýsing-arinnar til AGS segir að ekki verði frekari frestanir á nauðungarsölum og þær verði settar á áætlun í lok október. » Í lok mars höfðu 59 fast-eignir verið seldar á nauð- ungarsölu hjá sýslumanninum í Reykjavík á árinu. Þær voru 207 á síðasta ári en nauðung- arsölubeiðnir 2.504.Morgunblaðið/Kristinn Uppboð Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður býður upp lóðir. Eftir Andra Karl andri@mbl.is „SKULDARAR hrópa á réttlæti, norrænt réttlæti. Það felst í því að gripið er til almennra aðgerða og svo er skattkerfið notað til að taka frá þeim sem ekki þurfa á aðgerðunum að halda,“ sagði Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna og for- maður viðskiptanefndar, á Alþingi í gær. Stuttlega hefur verið rætt um stöðu heimila undanfarna tvo daga í þinginu og þá staðreynd að ríkis- stjórnin hyggst ekki fresta nauðung- „Skuldarar hrópa á réttlæti“  Þingmaður VG vill skoða hvort bjóða ætti sérstakt félagslegt leiguhúsnæði arsölum frekar en til loka október. Lilja sagði í gær að ef ríkisstjórnin efndi loforð þeirra ráðherra sem skrifuðu undir viljayfirlýsinguna til AGS þyrfti tafarlaust að bregðast við „Fara þarf fram greining á aðstæðum þessa hóps sem er á leið í nauðung- arsölu og hvers vegna hann er kom- inn í það ferli að ekkert annað bíður.“ Jafnframt telur Lilja að kanna þurfi þarfir sama hóps varðandi framtíðarhúsnæði. Hún varpaði þá fram þeirri hugmynd að koma á fót sérstöku félagslegu leiguhúsnæði til að taka við fólkinu sem borið verður út. 8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2010 Milljónaútdráttur Þar sem eingöngu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigandi bæði að hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti. Birt með fyrirvara um prentvillur. 4. flokkur, 27. apríl 2010 Kr. 1.000.000,- 573 B 606 B 1423 E 9744 H 22630 E 24415 E 32674 B 33542 B 36695 G 40612 B TIL HAMINGJU VINNINGSHAFAR Sigurjón Árnason sagði frá því fyr-ir rannsóknarnefnd Alþingis að Samfylkingin hefði óskað eftir því að styrkjum til flokksins yrði dreift á margar kennitölur. Naumast fer á milli mála að þarna var á ferðinni til- raun til að fara í kringum gildandi reglur, svo ekki sé fastara kveðið að orði.     Jóhanna Sigurðardóttir hefur ekkitjáð sig enn þá um þetta. En við- brögð hennar eru jafnan þau að setja þurfi nýjar reglur og skipa nýja um- bótanefnd.     Reyndur sveit-arstjórn- armaður og bloggari, Sig- urður Jónsson, segir um slíkt: „Alveg er stór- kostlegt að heyra í gamalreyndum og stjórnmálaforingjum sem nú virð- ast alveg koma af fjöllum [varðandi] hvað flokkarnir og einstaka fram- bjóðendur fengu háa styrki. Jóhanna segir eins og um flest annað: Það er agalegt að heyra þetta, en þetta var nú þá og þá giltu engar reglur. Já, það virðist koma Jóhönnu gjörsamlega á óvart hvern- ig umhverfið var og að Samfylkingin og einstaka frambjóðendur hafi ver- ið á kafi í spillingarstyrkjunum. Ekki er nú Jóhanna neinn byrj- andi á þingi. Jóhanna sem telur sig hafa eytt ævi sinni í að berjast fyrir réttlæti hlýtur nú að hafa haft tæki- færi til að taka málið upp á Alþingi. Það gerði hún ekki. Jóhönnu kemur á óvart hve verð- lag er hátt í verslunum, hvað vextir eru háir, hvað heimilin eiga í miklum vandræðum o.s.frv. Merkilegt hversu margt hefur far- ið framhjá aldursforseta þingsins.“     Er ekki orðið bæði tímabært ognauðsynlegt að setja skýrar regl- ur um hvenær er tímabært að setja nýjar reglur og skipa nýjar umbóta- nefndir eftir að nýjar vondar fréttir berast? Sigurður Jónsson Umbótanefndir Veður víða um heim 27.4., kl. 18.00 Reykjavík 9 skýjað Bolungarvík 5 heiðskírt Akureyri 9 heiðskírt Egilsstaðir 4 skýjað Kirkjubæjarkl. 7 skýjað Nuuk 1 skýjað Þórshöfn 6 alskýjað Ósló 7 skýjað Kaupmannahöfn 13 skýjað Stokkhólmur 10 léttskýjað Helsinki 13 heiðskírt Lúxemborg 17 heiðskírt Brussel 19 heiðskírt Dublin 14 skýjað Glasgow 13 skúrir London 18 heiðskírt París 20 heiðskírt Amsterdam 18 heiðskírt Hamborg 16 léttskýjað Berlín 14 skýjað Vín 19 skýjað Moskva 14 heiðskírt Algarve 27 heiðskírt Madríd 29 léttskýjað Barcelona 21 léttskýjað Mallorca 24 léttskýjað Róm 17 skúrir Aþena 16 léttskýjað Winnipeg 12 skýjað Montreal 1 snjókoma New York 14 alskýjað Chicago 8 skýjað Orlando 23 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ STAKSTEINAR VEÐUR 28. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:10 21:42 ÍSAFJÖRÐUR 5:01 22:01 SIGLUFJÖRÐUR 4:43 21:44 DJÚPIVOGUR 4:36 21:15 FULLTRÚAR Hagaskóla báru sigur úr býtum í úrslitakeppni MORGRON, mælsku- og rökræðu- keppni grunnskóla í Reykjavík og nágrenni, sem fram fór í gærkvöldi. Umræðuefnið var bann við nektardansi þar sem lið Hagaskóla talaði fyrir banni en nemendur Lindaskóla mæltu því í mót. Aðeins stúlkur skipuðu lið Hagaskóla og á þess- ari mynd er frummælandi þeirra, Ásdís Krist- jánsdóttir, í ræðustól. Aðeins einn piltur var í liði Lindaskóla og hafa kynjahlutföllin í keppni MORGRON aldrei verið stúlkunum jafn ræki- lega í vil og sást í úrslitakeppninni í gær. RÖKSNJALLAR Í HAGASKÓLA SIGRUÐU MORGRON Morgunblaðið/Golli IÐNAÐARNEFND hefur ekki enn afgreitt frumvarp um heimild til samninga við gagnaver í Reykja- nesbæ en málið hefur verið í með- förum nefndarinnar síðan í desem- ber. Fundað verður áfram um málið í dag og enn er stefnt að því að reyna að klára það fyrir vikulok. Iðnaðar- ráðherra sagði á Alþingi í gær að hún vonaðist til að þetta yrði síðasti sértæki fjárfestingasamningurinn sem gerður yrði við einstakt fyrir- tæki, enda taki við almenn lög um ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Ís- landi. Fyrsta umræða um nýfjárfest- ingafrumvarpið fór fram í gær. Með- al þeirra sem kvöddu sér hljóðs var Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks. Hann spurði Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráð- herra út í samninginn við Verne holding og hvar málið væri statt. Katrín sagði mál Verne Holding og gagnaversins í meðförum þingsins. Ráðuneytið hefði gert allt sem hægt væri til að ýta málinu áfram, svara spurningum og koma á beinum sam- böndum. Hún sagði afgreiðsluna í höndum þingsins og að málinu hefði verið vel stýrt af formanni iðnaðar- nefndar. Jón Gunnarsson, sem á sæti í iðn- aðarnefnd, hefur óskað eftir auka- fundi í nefndinni sem fyrst. „Tilefnið er að ítrekað hefur komið fram í umræðu af hálfu opinberra að- ila að mörg erlend fyrirtæki hafi lýst áhuga á að byggja upp orkufreka at- vinnustarfsemi á Íslandi,“ segir Jón í yfirlýsingu. Það sé þingmönnum nauðsynlegt að hafa yfirsýn yfir þá þróun sem á sér stað. Einnig sé mik- ilvægt að þingmönnum sé skýrt frá hver gangur er í þessum viðræðum og hvort Alþingi getur með einhverj- um hætti lagt sitt lóð á vogarskál- arnar til að greiða fyrir gangi slíkra viðræðna. andrikarl@mbl.is Ásbrú Athafnasvæði gagnavers Verne Holding á Vellinum gamla. Gagnaversfrum- varpið óafgreitt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.