Morgunblaðið - 28.04.2010, Síða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2010
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Ný sending
Peysur og peysusett
Parketlakk
Ný vara á
góðu verði
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
www.birkiaska.is
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
Minnistöflur
Í æviágripi Guðrúnar Líndal í blaðinu
sl. mánudag þar sem talin eru upp
barnabörn hennar mátti skilja svo að
Sævar Sigurðsson og Bryndís Frið-
jónsdóttir hefðu eignast 4 börn sam-
an. Svo er ekki. Bryndís átti tvö
barnanna með Sigurði Haukdal. Þau
eru Sara Ýr og Róbert Örn.
Athugasemd
ÍSLAND getur
ekki fallist á
málamiðlunar-
tillögur for-
manns og vara-
formanns
Alþjóðahval-
veiðiráðsins,
IWC, í sambandi
við heimamarkað
og kvóta. Í frétta-
tilkynningu frá
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu-
neytinu í gær kemur fram að sem
útflutningsþjóð sjávarafurða geti
Íslendingar „ekki fallist á að skorð-
ur séu settar á viðskipti með sjávar-
afurðir sem fengnar eru með sjálf-
bærum hætti.“ Ennfremur séu
tillögur um kvóta til handa Íslend-
ingum langt undir sjálfbærnimörk-
um.
Íslensk stjórnvöld leggja áherslu
á að ekki verði teknar ákvarðanir á
ársfundi IWC í júní nk. nema með
almennu samkomulagi ríkja innan
ráðsins. „Það þjónar ekki framtíð-
arhagsmunum ráðsins að freista
þess að keyra í gegn ákvarðanir
með atkvæðagreiðslu, enda væri
það til þess fallið að auka enn á
sundrungu meðal aðildarríkja ráðs-
ins og leiða til falls þess.“
Ísland hafnar
tillögum IWC
Hvalur IWC hefur
ekki náð sam-
komulagi.
Eftir Björn Björnsson
Sauðárkrókur. | Leikfélag Sauðár-
króks frumsýndi um helgina leik-
verkið Fólkið í blokkinni eftir Ólaf
Hauk Símonarson, undir leikstjórn
Jóns Stefáns Kristjánssonar, fyrir
fullu húsi og við frábærar viðtökur
áhorfenda. Persónur og leikendur
eru 15, en auk þeirra eru á sviði
nokkrir bráðaliðar og hljómsveit,
þannig að fram koma rúmlega 20
manns en eins og alltaf er sjást ekki
allir. Bakvið tjöldin er annar eins
hópur fólks sem ekki er síður mik-
ilvægur en leikararnir.
Í áhugaleikfélögum, eins og
raunar alls staðar annars staðar,
vinna margar hendur létt verk, og
víst er um að á Sauðárkróki eru
sumar fjölskyldur áhugasamari um
leiklist en aðrar, en að þessu sinni
vill svo skemmtilega til að við upp-
færslu Fólksins í blokkinni koma að
málum tvær systur, tveir bræður,
einar mæðgur, einir feðgar, ein
mæðgin og tvenn feðgin. Fyrirhug-
aðar eru fjórar sýningar í Sæluviku
auk frumsýningar og síðan nokkrar
í næstu viku.
Árleg gleðivika
Eins og alltaf eru sýningar leik-
félagsins einn af öruggum þáttum í
Sæluviku, þessari árlegu menning-
ar og gleðiviku Skagfirðinga, sem
sett var sl. sunnudag á glæsilegri
vöru- og þjónustusýningu í Íþrótta-
húsinu á Sauðárkróki. Vikan á ræt-
ur að rekja til næstsíðustu aldar, en
þá tóku Skagfirðingar upp á því að
gera sér sérstakan og rækilegan
dagamun á þeim tíma sem árlegur
sýslufundur var haldinn. Á fyrstu
árunum voru leiksýningar, söng-
skemmtanir, málfundir og dans-
leikir uppistaðan í dagskránni. Í
tímans rás hefur fjölmargt bæst við
þannig að nú er Sæluvika Skagfirð-
inga einn fjölbreyttasta menning-
arhátíð landsins, með ótal við-
burðum vítt og breitt um hérað.
Eftir heldur kalda og risjótta tíð
að undanförnu hefur nú brugðið til
nokkurra hlýinda og bjartviðris,
þannig að Skagfirðingar hugsa sér
gott til glóðarinnar að skemmta sér
ærlega á „Sælunni“.
Fólkið í blokkinni treður
upp á Sæluvikunni
Skagfirðingar slá ekki slöku við í skemmtanahaldinu
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Leikfélag Fríður hópur Leikfélags Sauðárkróks sem sýnir leikritið Fólkið í blokkinni, eftir Ólaf Hauk Símonarson, í Sæluviku Skagfirðinga.
Í HNOTSKURN
»Saga Sæluviku Skagfirð-inga nær aftur til ársins
1874 þegar svonefndir sýslu-
fundir hófu göngu sína.
»Sjá visitskagafjordur.is.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
PÉTUR K. Maack flugmálastjóri segir að Land-
helgisgæslan ákveði hverjir eigi erindi í flugför
hennar sem flogið er að gosstöðvunum í Eyja-
fjallajökli á grundvelli almannahagsmuna. Þetta
eigi við fjölmiðlamenn sem aðra. „Spurningin er
bara hvort flogið sé í almannaþágu eða ekki. Og
Landhelgisgæslan metur það,“ segir hann. Það sé
Flugmálastjórnar að hafa eftirlit með Gæslunni,
eins og öðrum flugrekendum, og leiki vafi á því að
farþegar séu um borð á grundvelli almannahags-
muna leiti Flugmálastjórn svara við því.
Í Morgunblaðinu í gær kom fram að Flugmála-
stjórn hefði komið þeim skilaboðum á framfæri
við Landhelgisgæsluna að sækja þyrfti um leyfi til
farþegaflugs, ætlaði hún að fljúga með fjölmiðla-
menn að svæði sem skilgreint hefur verið sem
hættusvæði 2 og er nærri gosstöðvunum í Eyja-
fjallajökli.
Þurfa ekki heimild
Aðspurður segir Pétur að séu fjölmiðlamenn um
borð í flugförum Gæslunnar á grundvelli almanna-
hagsmuna þurfi Gæslan ekki að sækja um heimild
til farþegaflugs. Leyfi til farþegaflugs þyrfti hins
vegar fortakslaust ef um væri að ræða farþega sem
ætlaði að borga fyrir flugferðirnar. Rétt sé að taka
fram að rekstraraðilar loftfara þurfi að uppfylla til-
teknar kröfur til að starfa á hættusvæði 2, kröfur
sem séu sambærilegar evrópskum kröfum um flug
á fyrrnefndu svæði.
Landhelgisgæslunnar að meta
hverjir fara með í ferðir hennar
Þarf ekki heimild til farþegaflugs séu fjölmiðlar með á grundvelli almannahagsmuna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SIF Þingmenn flugu yfir gosið í vél Gæslunnar.
GUÐRÚN Valdimarsdóttir hefur
sagt sig frá 2. sæti á lista Framsókn-
arflokksins í Reykjavík og öllum
trúnaðarstörfum á hans vegum.
Guðrún segir í yfirlýsingu að óskað
hafi verið eftir að hún viki sæti, m.a.
vegna þess að fyrirtækið Miðbæjar-
eignir, sem að hluta er í eigu eigin-
manns hennar, sé nefnt á nafn í
rannsóknarskýrslu Alþingis. Vegið
hafi verið að mannorði hennar og
bornar út gróusögur af „gamla eign-
arhaldsfélagi flokksins í Reykjavík“.
Guðrún hættir á
lista Framsóknar