Morgunblaðið - 28.04.2010, Qupperneq 11
unga parið sem hefur látið draum
sinn rætast og opnað gistiheimili
og veitingastað þarna úti í auðn-
inni. Gyllt stjörnuhrap (Etoile Fil-
ante d’Or) heitir gistihúsið þeirra
og þar er hægt að fá mjög góðan
alvöru marokkóskan mat, sem hef-
ur verið nostrað við og eldaður í
marga klukkutíma. Þau eru líka
með unaðslega ferska forrétti og
eftirrétti. Allt er gert með alúð og
það skilar sér svo sannarlega.
Á fjórhjóli út í eyðimörkina,
á reiðhjóli eða á kameldýri
Hún Hind ber nafn með rentu
(upp á íslensku), því hún er háfætt
og tíguleg. Hún talar góða ensku,
enda var hún í fjögur ár í námi í
New York, þar sem hún lærði
ferðamálafræði. Hún er fædd og
uppalin í bænum Casablanca, sem
er við ströndina, en segist hafa
orðið ástfangin af Aït-Ben-Haddou,
og því ákváðu hún og maður henn-
ar fyrir átta mánuðum að opna
Gyllta stjörnuhrapið. Þetta er
barnið þeirra, eins og hún orðar
það sjálf, rétt komið á fætur en á
framtíðina fyrir sér. Það væsir
ekki um þá sem gista þar, í lengri
eða styttri tíma. Og hægt er að
fara í allskonar ferðir út frá bæn-
um, á vit ævintýranna úti í eyði-
mörkinni, ýmist á fjórhjólum, reið-
hjólum, á baki kameldýrs eða bíl,
allt eftir því hvað hentar hverjum
og einum. Í einn dag, heila viku og
allt þar á milli.
Gamli bærinn í Aït-Ben-Haddou,
hefur verið friðaður af Unesco síð-
an árið 1987 en hann saman-
stendur af ævafornum lágreistum
húsum gerðum úr leir sem eru inn-
an múra. Þar hafa margar nafntog-
aðar kvikmyndir verið teknar og
má þar nefna Arabíu-Lawrence
(1962), Jesús frá Nazareth (1977),
The Living Daylights (1987), The
Last Temptation of Christ (1988)
og Gladiator (2000).
Allir sem koma til Aït-Ben-
Haddou verða að stikla á pokum
yfir ána og ganga upp á efstu hæð
gamla bæjarins og horfa yfir.
Fólkið sem býr enn í þessum
gamla hluta, hleypir sumt ferða-
mönnum inn á heimili sín, gegn ör-
litlu gjaldi. Lítið hiklaust við.
Brosmild Hún Hind tekur á móti gestum sínum opnum örmum, hér á svölum gistihúss síns, Gyllta stjörnuhrapsins.
Morgunblaðið/Kristín Heiða
Morgunblaðið/Kristín Heiða
Fjárhirðir Þessi var að reka kindur sínar heim í fjallaþorpið fátæklega.
Kvennafyrirtækið:
arganisme@gmail.com
Hind og Aurélien:
www.etoilefilantedor.com
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2010
Daglegt líf 11
Erfiðasti hlutinn við ferðalög er yfir-
leitt að bóka hentugt flug og gist-
ingu og koma sér af stað út á völl.
Um leið og því er lokið er restin
leikur einn, svo lengi sem vel hefur
tekist til við bókunina!
Þess vegna skiptir svo miklu máli
að velja rétt þegar kemur að bók-
unum því léleg hótel sem taka á
móti gestum með okri, dónaskap og
svikum geta hæglega eyðilagt upp-
lifunina af annars frábæru ferðalagi.
Með hjálp vefsíðunnar Tripadvisor
er enginn ástæða til að lenda nokk-
urn tíma í því aftur að kaupa kött-
inn í sekknum á ferðalagi. Tripadvi-
sor er stærsta og virkasta samfélag
ferðalanga á vefnum og þar má
finna milljónir umsagna, fyrst og
fremst um hótel en líka um veit-
ingastaði, söfn, skemmtigarða og
svo framvegis. Á Tripadvisor er líka
að finna spjallsvæði fyrir innskráða
notendur og þar er hægt að leita
ráða hjá öðrum ferðalöngum. Oftast
er mun ódýrara að skipuleggja
ferðalagið sitt sjálfur en að fá ferða-
skrifstofu til að gera það, en það
getur verið mikil vinna og sér-
staklega ef ferðinni er heitið á mjög
framandi slóðir. Þá er ómetanlegt
að geta leitað í reynslubanka ann-
arra ferðalanga og á jafn virkri síðu
og Tripadvisor stendur yfirleitt ekki
á svörum.
Svo er auðvitað um að gera að
leggja sitt af mörkum með því að
svara spurningum annarra á móti og
deila eigin reynslu. Ef þú ert svo
óheppinn að hafa einhvern tíma lent
á skelfilegu hóteli er til dæmis hægt
að fá útrás fyrir vonbrigðin með því
að vara aðra við og birta myndir af
lekanum í loftinu og músaskítnum.
Vefsíðan: www.tripadvisor.com
Áfangastaðir Það er auðvelt að sigra heiminn með góð ráð í farteskinu.
Iðandi samfélag ferðaþyrstra
Harðfiskur er eitt af því hollasta sem
við getum lagt okkur til munns og
ljúffengur í þokkabót.
Allir vita að fiskur hefur góð áhrif á
heilsuna og í harðfiski er hollustan
samþjöppuð auk þess sem næringar-
efnin varðveitast mjög vel og lengi.
Þannig er harðfiskur sannkölluð pró-
teinsprengja, því samkvæmt Matís er
um 80-85% próteininnihald í harð-
fiski.
Þess vegna er t.d. tilvalið að fá sér
harðfisk eftir æfingu í ræktinni, þeg-
ar vöðvarnir þurfa á próteini að halda
til að byggja sig upp en líka ef hungr-
ið bankar upp á milli mála.
Lítill skammtur af harðfiski getur
fullnægt dagsþörf líkamans fyrir pró-
tein og auk þess inniheldur hann
mikið af ómega-3 fitusýrum sem
vinna bæði gegn gigt og krabbameini
og styrkja ónæmiskerfið. Harðfiskur
er því sönnun þess að matur getur
verið bæði hollur og ótrúlega góður,
sannkölluð ofurfæða og eitt besta
snakk sem hugsast getur.
Endilega...
Morgunblaðið/Eggert
Harðfiskur Er unnin úr steinbít og
ýsu, þorski, kolmunna og lúðu.
...gæðið ykkur á harðfiski ef
hungrið kemur upp á milli mála
Reykjanesb
æ
Rey
kjavík
Nýtt og be
tra
hjólbarðav
erkstæði
S: 590 200
6 / 590 200
7
Hjólbarðaverkstæði Bílabúð Benna - Tangarhöfða 8 - S: 590 2000 / Nesdekk - Fiskislóð - sími 561 4110 / Nesdekk - Reykjanesbæ - sími 420 3333
Sumardekkin færðu hjá okkur! Vaxtalaus lán frá Visa ogMastercard í allt að 12 mánuði