Morgunblaðið - 28.04.2010, Side 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2010
Leynileikhús Tveir af leynileikurum Leynileikhússins sýndu leikrit í Hafnarfjarðarleikhúsinu í gærkvöldi og fóru nokkuð leynilega.
Kristinn
SÆLL Jón Ásgeir.
Það eru dapurlegir
tímar á Íslandi núna
þegar afleiðingar
hrunsins eru að koma
í ljós, langvarandi at-
vinnuleysi, niður-
skurður á öllum svið-
um velferðarkerfisins
og stórfelld lækkun á
lífeyrisgreiðslum til
aldraðra. Félög eins
og Baugur Group eru
búin að ryksuga upp alla sjóði í ís-
lensku bönkunum. Ekki má
gleyma öllum þeim gríðarlegu fjár-
munum sem lífeyrissjóðirnir lögðu
í ykkar félög sem nú eru öll gjald-
þrota. Svona mætti lengi telja.
Nú þegar skýrsla rannsóknar-
nefndar Alþingis liggur fyrir –
gögnin skýr og staðreyndir tala
sínu máli – er hin íslenska þjóð að
vakna upp við vondan draum. Ég
má til með að senda þér smá línu
vegna pistils þíns sem birtist í
dagblaði eiginkonu þinnar 22. apríl
sl. Þar fjallar þú m.a. um vanlíðan
þína yfir hruni Íslands og fullyrðir
að þú munir gera allt til að bæta
íslensku þjóðinni upp mistök þín
og aðstoða við að byggja Ísland
upp að nýju. Að vísu eru þetta
nánast sömu orð og þú ritaðir í
grein þinni í desember 2008, „Setti
ég Ísland á hausinn?“ Eftir þá
grein var nú lítið um aðstoð frá
þér og þínu fólki, þar sem allur
tími þinn fór í að tryggja þér stór-
an hlut í verslunarveldinu Högum
og skrá það á föður þinn, svo og að
ná tangarhaldi á fjölmiðlaveldinu
365 og skrá það á eiginkonu þína,
ásamt ýmsum öðrum „fléttum“. Þú
talar í greininni um
draum þinn að byggja
upp fyrirtæki sem þú
gætir verið stoltur af,
og léti gott af sér
leiða fyrir íslenskt
samfélag, og lýsir
hvernig þú hafir í 12
ár unnið dag og nótt
til að ná því mark-
miði. Það er dapurlegt
að þetta hafi mistekist
því eins og allir Ís-
lendingar vita stóð
fyrirtækjanet þitt
fyrst og fremst fyrir
þau gildi sem þú minnist á: „Gjaf-
mildi og gegnsæi.“ Eða hvað?! Það
var t.d. aðdáunarvert hversu örlát-
ur þú varst að deila leiktækjum
þínum með þjóðinni.
Til vitnis um það eru t.d. 3 þús-
und milljón króna einkaþotan, 3
þúsund milljón króna 101 lysti-
snekkja ykkar hjóna, 2 þúsund
milljón króna 101 Charlet skíða-
skálinn ykkar í Frakklandi, og
ekki má gleyma lúxusíbúðinni ykk-
ar í New York sem kostaði vel yfir
3 þúsund milljón krónur. Þú segir í
grein þinni að þú eigir enga pen-
inga á aflandseyjum og gefur til
kynna að þú sért þar með nánast
eignalaus maður. Það er auðvitað
skelfilegt. Ekki er lengra síðan en
árið 2007 þegar þú fékkst Tinu
Turner til að syngja svo eft-
irminnilega „Simply the best“ í
Mónakóveislunni frægu. „Í draumi
sérhvers manns er fall hans falið“
orti skáldið. Vonandi þarftu ekki
að fara í biðröð eftir matvælum
eins og þúsundir Íslendinga þurfa
að gera í dag, ég vona alla vega að
þú eigir fyrir Diet Coke. Og þá er-
um við komin að tilefni þessara
bréfaskrifta. Nýlega birtust op-
inberlega tölvupóstar sem voru í
stefnu Glitnis á hendur þér þar
sem þú pirrast yfir því hversu
seint bankastjóri Glitnis bregst við
tilmælum þínum að afhenda þér
um 1000 milljónir á einkareikning
þinn. Orðrétt segir þú í póstum til
bankastjóra almenningshluta-
félagsins Glitnis: „Klára Goldsmith
ef þessu 1 milljarði sem ég átti að
fá greitt þarf 250 að fara til að
borga yfirdrátt hjá GLB prinsip
mál að vera ekki með persónulegar
skuldir á mér. Rest get ég í raun
geymt hjá GLB þ.e.a.s. 750 þannig
að net cash út hjá GLB er 1,2 til
PH.“ „Þetta eru málin nenni ekki
að bögga ykkur á hverjum degi
með þessu enda ætlast ég til að
CEO þessara félaga vinni sín mál
ef við komum þessum málum frá
þá er borðið mitt hreint. Annars er
kannski best að ég verði starfandi
stjórnarformaður GLB.“
Þessir póstar gefa sterklega til
kynna að þú hafir verið með litlar
sem engar persónulegar skuldir í
bankakerfinu, enda sagðir þú svo
eftirminnilega i viðtali við Við-
skiptablaðið nýlega: „Ég er ekki
umvafinn persónulegum ábyrgðum.
Fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af
mér.“ Því langar mig að forvitnast
hjá þér, Jón minn:
1) Arðgreiðslur til þín og fjöl-
skyldu þinnar undanfarin 5 ár
úr íslenskum eignarhalds-
félögum nema mörg þúsund
milljónum króna – þetta eru
raunverulegir peningar sem
voru greiddir til þín úr íslensk-
um bönkum. Skv. seinasta árs-
reikningi Gaums nam innleystur
hagnaður hluthafa Gaums (þ.e.
þú og fjölskylda þín) þúsundum
milljóna króna. Hvar eru þessir
fjármunir í dag?
2) Arðgreiðslur úr eignarhalds-
félögum eiginkonu þinnar nema
einnig mörg þúsund milljónum
króna undanfarin ár. Í sept-
ember 2008 – korteri fyrir hrun
– greiðir bara eitt félaga henn-
ar, ISP ehf., henni 300 milljón
krónur í arð, skv. opinberum
ársreikningi. Hvar eru þessir
fjármunir?
3) Ertu tilbúinn að upplýsa hvaða
eignir þú geymir í félögum þín-
um í Lúxemborg – þau skipta
tugum en ég spyr þig bara um
þessi til að spara plássið:
Purple Holding.
Piano Holding.
Epping Holding.
Gaumur Holding.
Er eiginkona þín tilbúin að upp-
lýsa hvaða eignir hún geymir í
Edmound Holding, en eins og
þú veist flutti hún margvíslegar
eignir þangað fyrir hrun, skv.
ársreikningum félagsins.
4) Hvaðan komu 1,5 þúsund millj-
ón krónurnar sem þú lagðir
fram árið 2008 til að kaupa fjöl-
miðlaveldið 365? ´
5) Hvaðan komu 1 þúsund millj-
ónirnar sem þú lagðir fram um
daginn til að tryggja þér endan-
lega yfirráð yfir fjölmiðlaveldinu
365?
6) Hvaðan komu þær mörg þúsund
milljónir króna sem þú varst
tilbúinn að leggja fram í tilboði
þínu til Arion banka vegna
Haga?
7) Hvaðan munu peningarnir koma
til að opna 3 nýjar Bónus-búðir í
London, sbr. fréttir þess efnis
nýlega?
8) Hvar eru þessar 1 þúsund millj-
ónir sem Pálmi vinur þinn Har-
aldsson var svo almennilegur að
millifæra á einkareikning þinn
eins og frægt er og lesa má um
í stefnu Glitnis?
9) Hvar er hagnaður ykkar hjóna
af framvirkum hlutabréfasamn-
ingum og gjaldmiðlasamningum
þar sem þið tókuð stöðu á móti
íslensku krónunni sem nefndin
minnist á í skýrslu sinni? Ljóst
er að hann nemur þúsundum
milljóna króna og veikti mjög ís-
lensku krónuna vorið 2008 sem
þjóðin er núna að súpa seyðið
af.
Ætli ég láti þetta ekki duga að
sinni en fagna þeim orðum þínum
að þú munir gera allt sem í þínu
valdi stendur til að bæta fyrir mis-
tök þín og leggja þitt af mörkum
til að byggja upp Ísland að nýju.
En þá verða menn einnig að vera
búsettir á Íslandi, Jón Ásgeir. Það
kom fram í fjölmiðlum um daginn
að þú og þín kona hafið ákveðið að
flytja lögheimili ykkar til Bret-
lands og því er ljóst að hinar miklu
skattahækkanir ríkisstjórnarinnar
sem og hinn stórfelldi niður-
skurður á öllum sviðum íslensks
samfélags mun ekki bitna á þér og
þinni fjölskyldu. Eða mun „að-
stoðin“ eingöngu verða í formi
„hugskeyta“ til hinnar íslensku
þjóðar?
Eftir Jón Gerald
Sullenberger » Vonandi þarftu ekki
að fara í biðröð eftir
matvælum eins og þús-
undir Íslendinga þurfa
að gera í dag, ég vona
alla vega að þú eigir
fyrir Diet Coke.
Jón Gerald
Sullenberger
Höfundur er kaupmaður.
Opið bréf til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar