Morgunblaðið - 28.04.2010, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 28.04.2010, Qupperneq 18
18 Umræðan MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2010 VIÐ skoðun á al- mennum samnings- skilmálum bílasamn- ings SP Fjármögn- unar vakna ýmsar spurningar um rétt- mæti samningsskil- málanna. Ein þeirra er hvort leigutakar/ lántakendur hafi verið látnir semja frá sér stjórnarskrárbundinn rétt til friðhelgi heim- ilis og einkalífs. Almenna samn- ingsskilmála er að finna á bakhlið samningsins. Eru þeir upptaldir í 19 greinum. 8. gr. fjallar um afnot og fleira, en í 2. mgr. þeirrar greinar segir eftirfarandi: „SP, eða þeir sem SP tilnefnir, á að hafa óskoraðan að- gang að starfstöð leigutaka, heim- ili eða starfssvæði til að skoða bif- reiðina.“ Hvað er hér átt við með óskoruðum aðgangi? Orðið óskoraður er skilgreint svo í tölvutækri orðabók á snara- .is: ó-skoraður L: algjör, óbif- anlegur, skilyrðislaus, óskertur. Því vaknar sú spurning hvort eðli- legt sé að fyrirtæki sem býður upp á neytendalán setji slíkan samn- ingsskilmála í samning við neyt- endur. Fyrirtæki sem á að hafa sérþekkingu á fjármálaviðskiptum, og hefur lögfræðinga í sinni þjón- ustu eða starfsliði! Hvaða hags- munir kalla á það að hafa óskor- aðan aðgang að starfstöð leigutaka, heimili hans eða starfs- svæði? Má SP, eða þeir sem SP tilnefnir, þar með vaða inn í lok- aðar bílageymslur fólks á hvaða tíma sólarhrings sem er, jafnvel án þess að heimilisfólk sé heima, í þeim tilgangi að skoða bifreiðina, eins og gefið er í skyn með ákvæð- inu um „óskoraðan aðgang“? Væri ekki eðlilegra að fyrirtækið gæti óskað eftir slíkum aðgangi í sam- ráði við leigutaka, og takmarkað þá ósk við aðgang að því svæði eða húsnæði þar sem bifreiðin er jafn- an geymd, s.s. bílskúr, bílskýli, al- mennri bílageymslu o.s.frv.? Hvað með starfssvæði? Getur leigutaki leyft aðgang að starfssvæði sínu án heimildar vinnuveitanda síns? Getur SP gengið að leigumun í lokaðri, að- gangsstýrðri bíla- geymslu vinnuveit- anda leigutaka? Dæmi eru um að svo hafi verið gert. Eru þetta eðlilegir viðskipta- hættir? Í 13. gr. laga um eftirlit með við- skiptaháttum og markaðssetningu seg- ir: „Óheimilt er að hafast nokkuð það að sem brýtur í bága við góða viðskiptahætti í atvinnu- starfsemi eins og þeir eru tíðkaðir eða eitthvað það sem óhæfilegt er gagnvart hagsmunum neytenda.“ SP hefur starfsleyfi samkvæmt lögum nr. 161 frá 2002. Í lögunum segir í 19. gr.: „Góðir við- skiptahættir og venjur. Fjármálafyrirtæki skal starfa í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti og venjur á fjár- málamarkaði.“ Að mínu mati stenst ofangreint ákvæði bílasamnings ekki stjórn- arskrárbundinn rétt einstaklinga til friðhelgi heimilis og einkalífs, þar sem samningsskilmálinn er settur fram einhliða í stöðluðum samningsskilmálum. En þó að samið væri sérstaklega um þetta ákvæði í samningi aðila í millum er það óréttmætur samningsskil- máli engu að síður, því þar er gróflega gengið gegn 71. gr stjórnarskrár þar sem stendur: „Allir skulu njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu. Ekki má gera líkamsrannsókn eða leit á manni, leit í húsakynn- um hans eða munum, nema sam- kvæmt dómsúrskurði eða sérstakri lagaheimild. Það sama á við um rannsókn á skjölum og póstsend- ingum, símtölum og öðrum fjar- skiptum, svo og hvers konar sam- bærilega skerðingu á einkalífi manns. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má með sérstakri lagaheimild tak- marka á annan hátt friðhelgi einkalífs, heimilis eða fjölskyldu ef brýna nauðsyn ber til vegna rétt- inda annarra.“ Það að eiga að gefa öðrum aðila óskoraðan aðgang að heimili sínu með samningi samkvæmt einhliða framsettum samningsskilmálum er gróf skerðing á einkalífi manns. Ekki einu sinni stjórnvöld mega koma inn á heimili manns nema með samþykki hans eða dóms- úrskurði. Það er því klárlega óhæfilegt að ganga svo gegn hags- munum neytenda við samnings- gerð, með stöðluðum einhliða samningsskilmálum, að í þeim beri að semja frá sér stjórnarskrár- bundin réttindi! Þennan skilmála er líka finna í lánssamningum Avant. Lögmaður SP vissi ekki að þennan skilmála væri að finna í samningum SP, þegar á það var bent. Hann sá samt ekki ástæðu til að gera neitt í að breyta honum nema þar til bært ákvörðunarvald úrskurðaði svo. Þetta er viðhorf SP í hnot- skurn með öll mál og allar fyr- irspurnir sem þeim eru sendar. SP neitar að svara efnislega fyr- irspurnum sem til þeirra er beint um efni samninga, til þess að ekki sé hægt að nota svörin gegn þeim fyrir dómstólum, samkvæmt þeirra eigin svörum. Eru þetta eðlilegir viðskiptahættir? Hefði lögfræðingurinn ekki átt að hafa frumkvæði að því að breyta skil- málanum, öllum viðskiptavinum til hags? Hvað hafa þeir að fela? Neytendastofa hefur nýlega fengið ábendingu um þennan samningsskilmála í 8. gr. Ekki verður annað séð en að honum verði að víkja til hliðar hið fyrsta og banna frekari notkun hans. Frekari hugleiðingar um lána- starfsemi SP Fjármögnunar má finna á bloggi mínu, Meira: http://rlingr.blog.is/blog/ rlingr/. Stjórnarskrárbrot SP? Eftir Erling Alfreð Jónsson » Það að eiga að gefa öðrum aðila óskor- aðan aðgang að heimili sínu með samningi sam- kvæmt einhliða fram- settum samningsskil- málum er gróf skerðing á einkalífi manns. Erlingur Alfreð Jónsson Höfundur er forstöðumaður. FÖSTUDAGINN 3. júlí 1964 hóf sig til flugs Fokker F-27-MK-200, PH-FFW, í sitt fyrsta flug. Vél þessi var smíðuð fyrir Al Nippon Airways, og fengu þeir vél- ina afhenta 15. júlí 1964. Vélin var notuð í innanlandsflugi í Japan og fór líka eitthvað til grannríkja. 8 júlí 1972 var vélin skráð sem TF- FIN, Gljáfaxi Flugfélags Íslands. 1. október 1979 var vélin skráð sem TF-FLN, Náttfari Flugleiða HF. Síðan var hún leigð til Libyan Arab Airlines, var leigð með áhöfn hinn 8. janúar 1981. 14. janúar 1982 var vélinni skilað aftur til Flugleiða. Hinn 23. febrúar 1992 var vélin seld sem PH-FFW, til Aircraft Fin- anincing and Trading BV, og sama dag var henni lagt í Maastricht í Hollandi. En saga hennar var þar með ekki sögð, því að 6. júlí 1992 fékk hún skráninguna OB-1484, hjá Express Aero í Perú. Þeir leigðu hana frá Aircraft Financing and Trading BV. Hún kemur til Reykjavíkur, frá Prestwick, hinn 11. júlí 1992, þá hafði vélin 50.440 flugtíma og 59.573 lendingar, á leið til Miami í Flórída. Þar sást hún 12. júlí 1992 og var hún þá í litum Flugleiða hf. Hún fór svo til Lima í Perú 14. júlí 1992, þá á sömu skráningu, OB-1484. Henni var svo skilað til Aircraft Financing í janúar 1993. Síðar var vélinni lagt í Mena, Ark- ansas, Arizona í janúar 1994 og var hún auglýst til sölu. Svo var hún seld, sem OB-1484, til Air Nordic SWE Avaition Inc, var það í maí 1995. Þeir keyptu hana í varahluti, og var hafist handa við að rífa hana í júní 1998, en það fréttist af henni í pörtum í Mena í janúar 1998. Hún var svo endanlega rifin í brotajárn í júní 1998 og var hún þá enn í litum Flugleiða hf. Segja má að þessi vél hafi farið víða, frá 1964 til 1998, á 34 árum. Mér auðnaðist að fá mynd af vélinni sem tekin var þegar hún var að fara í sitt fyrsta flug fyrir Express Aero, og fékk ég þá mynd frá kunn- ingja mínum í Hollandi. Meðan hún var í notkun í Perú var hún kölluð Alpamayo. Fyrsta F-27 sem við fengum, TF-FIJ, er enn í notkun hjá finnska hernum, hét hérna Blikfaxi. Sérstakar þakkir til Baldurs Sveinssonar fyrir afnot af mynd- unum frá honum. Ef einhver á mynd af Gljáfaxa er það vel þegið. SIGURBJÖRN SIGURÐSSON flugáhugamaður og hefur safnað upplýsingum og myndum af flugvélum í 30 ár. ssair@isl.is Fornir faxar Eftir Sigurbjörn Sigurðsson Náttfari hefur sig til flugs. ✝ Guðmunda fædd-ist í Reykjavík 18. mars 1947. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 19. apríl 2010. Foreldrar hennar voru Ása Guðbrands- dóttir og Hjálmar Sigurðsson. Hálf- bróðir Guðmundu er Sigurður Markússon. Alsystkini hennar eru Garðar, látinn, Sigurður og Margrét. Guðmunda giftist Birgi Jónssyni og eiga þau saman Ástu, f. 17. janúar 1978, og áður átti hún Hjálmar, f. 18. febrúar 1969, d. 6. maí 1990. Guð- munda gekk börnum Birgis í móðurstað, þeim Grétu, f. 23. apríl 1961, d. 10. jan- úar 1988, og Ár- manni, f. 15. apríl 1962. Guðmunda var húsmóðir alla sína tíð og mikil myndlistar- og hannyrðakona. Útför Guðmundu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 28. apríl 2010, og hefst athöfnin kl. 13. Kæra systir mín. Ég sit hér og horfi á blaðið, hvað get ég sagt. Það er svo óraunveru- legt að þú sért farin frá okkur þrátt fyrir löng veikindi. Þú varst svo sterkur hlekkur í lífi okkar margra. Þegar þú veiktist fyrir fimm árum þá hélt ég að við mynd- um missa þig, en með þrautseigju og dugnaði tókst þér að lifa af. Eft- ir það varstu bundin við hjólastól, með mikla talörðugleika og dvald- ist á hjúkrunarheimilinu Skóg- arbæ. En hugurinn var skýr og þú skildir allt.Við fórum margar ferð- ir til talmeinafræðings og reynt var til þrautar, en hæfni til tals kom ekki, nema að litlu leyti. Eitt er víst að þú lifðir þrátt fyrir allt innhaldsríku lífi þessi 5 ár í Skóg- arbæ. Fyrir áfallið hafðir þú verið mikil hannyrðakona, þú prjónaðir t.d. fallegan skírnarkjól fyrir barnabörnin þín. Myndlistin átti líka hug þinn og þú hélst myndlist- arsýningar bæði fyrir áfallið og síðar í Ráðhúsinu með List án landamæra á vegum Fjölmenntar. Sú sýning var stór dagur í lífi þínu. Fólk laðaðist að þér vegna þinna góðu eiginleika og þú áttir marga vini. Við gerðum margt skemmti- legt saman, fórum í gönguferðir, í leikhús og á listasöfn með Berthu besta vinkonu þinni. Oft var Biggi þinn ekki langt undan og við köll- uðum okkur tríóið hennar Mundu. Minningabrot frá æskuárum okkar á Skúlagötunni. Húsnæðið var ekki stórt en þar var alltaf hjartahlýja og nóg pláss að okkar mati. Sunnudagsbíltúrarnir með pabba á meðan mamma var að elda steikina eru ógleymanlegir. Ekið var niður að Reykjavíkurhöfn til að skoða skipin og síðan vestur í Garða við Ægisíðu til afa og ömmu. Siggi stóri bróðir kom svo inn í líf okkar vestan úr Dölum er hann hóf nám við Verslunarskólann og síðan Inga sem varð mágkona okkar, við vorum mjög ánægð með þann ráðahag því hún var bæði góð og falleg. Það var þitt gæfuspor í lífinu að hitta Birgi sem varð síðan eigin- maður þinn. Það var fallegt að sjá hvað hann bar mikla umhyggju fyrir þér. Saman eignuðust þið dótturina Ástu og sólargeislarnir þínir voru drengirnir hennar, Hjálmar Freyr og Styrmir Sölvi. Fyrir áttir þú soninn Hjálmar sem lést í mótorhjólaslysi 21 árs, það var okkur öllum mikið áfall. Kæra Bertha mín, takk fyrir hvað þú reyndist Mundu okkar vel, varst sannur vinur og alltaf til staðar. Elsku Birgir, Ásta, Kári, Hjálmar og Styrmir, Ármann og Svava, sorg ykkar er mikil en minning um góða eiginkonu, móðir og ömmu lifir. Alúðarþakkir til starfsfólks Skógarbæjar fyrir góða hjúkrun og kærleiksríka fram- komu. Elsku Munda mín. Þegar ég lít til baka er mér efst í huga þakk- læti fyrir að hafa átt þig fyrir syst- ur. Þú kenndir mér að orðin eru ekki alltaf besta tjáningarformið, heldur viðmótið, augnatillit og nærvera. Ég sé þig fyrir mér við útidyrnar í Skógarbæ, við búnar að knúsast og þú segir bless með þínu fallega brosi og frá þér streymir hlýja, þú veifar mér í kveðjuskyni. Ég á eftir að sakna þín mikið. Vertu sæl að sinni, elsku systir. Það var eitt sinn hjá okkur lifandi ljós en lífið er hverfult í mannanna heimum. Ef fellum við tár yfir fölnaðri rós við fegurstu minningar um hana geymum. (B.S.) Margrét. Elsku Munda mín, þá er komið að kveðjustund. Þær eru margar minningarnar sem ég á um þig og ég þakka þér fyrir alla þá góðu tíma sem við áttum saman. Sér- staklega er það mér ákaflega dýr- mætt hversu margar góðar stundir við áttum saman eftir að þú veikt- ist svo alvarlega haustið 2004, sem gerði það að verkum að þú varst bundin í hjólastól og áttir erfitt með að tjá þig við fólk. En þú lést það ekki hefta þig, þú hélst áfram að mála og föndra, fórst á listasöfn, kaffihús og í bíl- túr með okkur Grétu systur þinni sem þér þótti svo vænt um og henni um þig. Grétu var alltaf svo annt um það að þér liði vel og að þú fengir sem mest út úr lífinu. Við þrjár vorum alltaf svo ágætar sam- an, við hittumst hjá þér og spil- uðum, komum með nammi og ís og spjölluðum saman, við vorum líka duglegar við það að skoða myndir og rifja upp gömlu góðu tímana þegar við vorum litlar. Einnig var svo gaman hjá okkur þegar hann Birgir þinn bauð okkur heim til ykkar í Laufrima í kaffihlaðborðið sitt, þá varst þú nú aldeilis ánægð með lífið. Þú varst ung þegar þú kynntist honum Birgi þínum og það var mikið gæfuspor fyrir þig að hitta hann. Þá varstu búin að eignast frumburðinn þinn hann Hjálmar, yndislegur drengur sem þú misstir í svo hræðilegu slysi vorið 1990, þá var Hjálmar aðeins nýorðinn tutt- ugu og eins árs gamall, tveimur ár- um áður hafði Birgir misst dóttur sína (fósturdóttur þína) í slysi, svo það er óhætt að segja að lífið hafi oft verið erfitt hjá þér. En það sem hefur haldið þér gangandi er örugglega hversu mikill kraftur var alltaf í þér og viljinn að halda áfram. Þið Birgir eignuðust saman fal- lega og góða dóttur, hana Ástu sem hefur gefið ykkur tvo ynd- islega ömmustráka sem þú elsk- aðir út af lífinu. Við gátum stund- um gleymt okkur þegar við vorum að skoða myndir af þeim, og alltaf birti yfir þér þegar þú skoðaðir myndirnar en stundum sá ég tárin streyma hjá þér og það voru örugglega gleðitár yfir því að horfa á þessa fallegu drengi. Heimsóknir mínar til þín í Skógarbæ hafa verið fastir liðir í lífi mínu sl. ár og það er skrítið að þú skulir vera farin frá okkur. En núna vil ég trúa því að þú sért búin að hitta hann Hjálmar þinn og for- eldra líka, nú líði þér vel og sért laus úr fjötrum líkama þíns. Þín er sárt saknað, elsku Munda mín, ég vil að lokum þakka þér fyrir ein- Guðmunda Hjálmarsdóttir BRÉF TIL BLAÐSINS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.