Morgunblaðið - 28.04.2010, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 28.04.2010, Qupperneq 19
Minningar 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2010 læga vináttu sem við áttum frá því við vorum litlar telpur og það var mér mikil gæfa að fá að fylgja þér öll þessi ár. Fjölskyldu þinni sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur, einn- ig systkinum þínum og þeirra fjöl- skyldum. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Minning um góða og trygga vin- konu lifir. Bertha Biering. „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez.) Þetta ljóð hef ég tileinkað þeim sem mér eru kærastir. Munda frænka er ein af þeim. Hennar faðm og hlýhug átti ég jafn vísan og hjá minni eigin móður. Orðin voru jafnvel óþörf, Munda var næm á fólk og aðstæður. Kannski þess vegna finn ég enn svo sterkt fyrir henni, nú tæpri viku eftir að hún kvaddi sitt jarðneska líf. Í síð- ustu heimsókninni sýndi hún mér stolt fjölskyldumyndir, við gædd- um okkur á konfekti og rauluðum saman lagstúf. Þrátt fyrir málstol hafði Munda unun af söng og trall- aði oft af innlifun með okkur hin- um. Í messum á Skógarbæ fékk hún líka notið tónlistarflutnings og tók virkan þátt. Við Munda spjöll- uðum um allt milli himins og jarð- ar, jafnvel um hluti utan þessa jarðríkis. Hún sá meira en við hin, gat lýst árunni minni, spáði í bolla, spil og engin furða að margir leit- uðu til hennar með slíkt. Þessir hæfileikar gerðu samskiptin við Mundu svo skemmtileg, persónu- leg og jafnvel spennandi. Í vetrarkuldanum í Kanada 1990 sendi Munda mér prjónasokka og ullarföt sem hlýjuðu mér ekki síð- ur um hjartaræturnar en kropp- inn. Þannig fann ég fyrir vernd hennar og stuðningi þó hún væri mér ekki nær og finn enn. Í mínum augum var Munda hetja fyrir það að halda ótrauð áfram, standa með sjálfri sér og sýna kjark þrátt fyrir allar hindranirnar. Fordómaleysi og kærleikur voru ríkjandi eigin- leikar í fari Mundu, sem hún fékk eflaust í arf frá Ásu ömmu. Mamma og Munda áttu fallegt systrasamband sín í milli, þar sem umhyggja, virðing og kærleikur réðu ríkjum, að ógleymdri gleðinni, því þær og við hin hlógum líka oft saman. Mamma leit veik- indi Mundu sinnar líka með augum hjúkrunarfræðingsins enda með mikla reynslu af endurhæfingu og innsæi gagnvart sjúkum og umönnun þeirra. Eins mikið og maður vill ekki kveðja í síðasta sinn þá getur mað- ur ekki án þess verið. Dagarnir eftir fráfall Mundu hafa á einhvern hátt verið heilandi. Þegar maður er í sem mestum vanmætti gagn- vart lífi og dauða fyllist maður þakklæti fyrir samverustundir sem nú eru orðnar að dýrmætum minn- ingum. Það er huggun harmi gegn að hugsa til þess að við grátum yfir því sem var gleði okkar. Munda lif- ir í okkur og með upprifjun góðra minninga. Ég samhryggist þér Birgir og börnunum ykkar inni- lega. Ég lýk þessum minningarorðum mínum á texta úr Þýskri sálu- messu eftir Brahms sem Mótettu- kór Hallgrímskirkju flutti helgina sem Munda veiktist. Verkið fjallar um trú, von, sorg, gleði og þján- ingu og talaði til mín þar sem Munda var mér efst í huga. Lokasöngurinn hljómaði svona: „Sælir eru dánir, þeir sem í Drottni deyja upp frá þessu. Já, segir and- inn, þeir skulu fá hvíld frá erfiði sínu, því að verk þeirra fylgja þeim.“ (Opb 14. 13.) Elsku Munda, mín einstaka frænka. Hjartans þökk fyrir allt. Megi englar alheims umvefja þig. Þín Ása Valgerður. Þegar líf fólks slokknar koma margar minningar fram í hugann. Minningarnar um Guðmundu, eða Mundu eins og hún var kölluð af okkur íbúum í Laufrima 4. Fyrstu kynni okkar við Mundu og Birgi voru er þau fluttu ásamt fleirum í nýlegt húsnæði í Lauf- rimanum sumarið 1995. Þá var fljótlega hafist handa við að koma lóð og öðru sem því tilheyrði í stand. Munda var mikil blóma- og ræktunarkona og í dag eru á lóð- inni við Laufrimann fjölmargar plöntur af hennar sáningu. Munda var mikil listakona bæði á prjón, hekl, leir og málun og eru margar til fígururnar sem hún föndraði og myndir sem hún mál- aði. Margar voru ferðir farnar til Mundu og Birgis ef eitthvað þurfti að laga eða fá álit á. Munda hafði góðan hæfileika í að leggja spáspil og kom margt skondið fram í þeim. Þau hjón voru afar samstiga og ferðuðust víða er- lendis og áttu sínar stundir hér á Fróni. Það var gott að eiga Mundu að. Hún hafði rólyndisfas svo öllum leið vel í návist hennar. Fyrir um 5 árum síðan veiktist Munda alvar- lega og var frá því í Skógarbæ þar sem hún naut afbragðs þjónustu til hinstu stundar. Að lokum viljum við íbúar í Laufrima 4, bæði fyrrverandi og núverandi, þakka Guðmundu öll góðu sambýlisárin og vottum fjöl- skyldu hennar innilega samúð. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Fyrir hönd íbúa Laufrima 4, Hafdís B. Hannesdóttir. ✝ Lára Loftsdóttirfæddist á Bólstað í Steingrímsfirði 13. júní 1925. Hún lést á Hrafnistu 21. apríl síðastliðinn. For- eldrar Láru voru Pál- fríður Ingigerður Ás- kelsdóttir, fædd 6. mars 1897 á Svans- hóli, Kaldrananes- hreppi, látin 12. nóv- ember 1966, og Loftur Annas Bjarna- son, fæddur á Bólstað í Steingrímsfirði 18. júlí 1895, látinn 21. febrúar 1981. Systkini Láru eru Björg, fædd 1918, látin 1936, Ása Guðríður, fædd 1919, Bjarni fæddur 1920, látinn 1990, Kristján Hólm fæddur 1921, látinn 2005, Lovísa, fædd 1922, Fjóla, fædd 1927, Ragnheiður Guð- rún, fædd 1928, Sigrún Svava, fædd 1931, Björg, fædd 1937 og Ingi- munda Þórunn, fædd 1940. Lára giftist Benjamín Magnúsi Sigurðssyni frá Eyjum, Kald- rananeshreppi, þann 8. desember 1944. Benjamín var fæddur 30. október 1917, látinn 30. september 2004. Foreldrar Benjamíns voru Guðrún Ingibjörg Benjamínsdóttir, f. 8. apríl 1888, látin 1. febrúar 1957, og Sigurður Hólm Guðjónsson, fæddur 23. apríl 1886, látinn 20. júlí 1971. Þau eignuðust þrjár dætur. 1) Pálfríður Guðrún, fædd 8. sept- ember 1946, gift Hákoni Erni Hall- dórssyni, fæddum 1945. Þeirra börn Hákon Örn, kona hans Sibylle von Löwis. Sonur þeirra Hendrik. Gróa Halla, maður hennar Guðni Kr. Guðmundsson. Þeirra börn Gunnar Örn, Þrúður Sóley, Þórdís Páley og Þórunn Arn- ey, hún er látin. 2) Sóley fædd 4. júlí 1950. Fyrri maður hennar Laust Freder- iksen, fæddur 4. októ- ber 1950, látinn 1994. Synir þeirra Jack Benjamín, sambýliskona Anja Vad- um Holst. Sonur hans Nikolaj. Laust René, kona hans Lisa. Börn þeirra Kennie, Mike, Mille og Basti- an. 3) Guðrún Ragnheiður fædd 14. febrúar 1957. Látin 1999. Barns- faðir Guðmundur Bjarnason, fædd- ur 1953, sonur þeirra Einar Þór, kona hans Elva Dröfn Sveinsdóttir. Börn þeirra Daníel Fannar og Guð- rún Lára. Fyrri maður Guðrúnar Óskar Hansson, fæddur 1949. Þau skildu. Þeirra börn Lára Ósk og Benjamín Magnús. Seinni maður Guðrúnar Jörgen Pétursson, fæddur 1948. Sonur þeirra Jörgen Pétur. Lára og Benjamín bjuggu á Eyj- um, Skagaströnd, í Reykjavík og Kópavogi. Jarðarför Láru fer fram frá Digraneskirkju í dag, 28. apríl 2010, og hefst athöfnin kl. 13. Láru Loftsdóttur kynntist ég fyrst haustið 1965, er ég kom til Skaga- strandar að hitta tilvonandi konuefni mitt. Lára var hæglát og orðvör. Lítt gefin fyrir að trana sér fram, en seinna átti ég eftir að komast að því hve föst fyrir hún gat verið þegar því var að skipta. Lára ólst upp á Bólstað í Steingrímsfirði. Skólagangan var stutt, farskóli, þar sem kennarinn ferðaðist á milli bæja og dvaldi fáar vikur á hverjum. Málfundafélag var stofnað í Selárdalnum og voru fundir gjarnan haldnir á Bólstað. Að fund- um loknum var öllu rúttað út úr stof- unni og dansaði fólkið við munn- hörpuleik. Ljómaði andlit Láru ætíð er hún rakti þessar minningar, enda hafði hún mjög gaman af dansi. Lára var víkingsdugleg og var þess vegna eftirsótt til vinnu. Vann hún í fiski á Skagaströnd, í Keflavík og Reykjavík. Fór ekki mikið fyrir henni við vinnuna en að degi loknum var hlutur hennar oftast mestur. Meðan Benjamín maður hennar réri frá Skagaströnd tók hún þátt í að beita línuna. Hún stundaði línubeitingu í Grindavík og kom þar einnig í ljós að afköst hennar voru meiri en flestra, þó hægt hefði um sig. Um 1970 hóf Benni að stunda grá- sleppuveiðar frá Eyjum á Bölum og sá Lára um verkun hrognanna í landi. Seinna fór hún einnig á sjóinn með Benna að vitja um netin. Einhverju sinni er við hjónin dvöldum fyrir norðan var ég að hæla henni fyrir dugnaðinn. Fyrst að fara eldsnemma að vitja um netin, þá að kútta og hella í síuna og svo heim að elda ofan í mannskapinn. „Æ mér hefur nú alltaf leiðst heldur að elda,“ sagði hún og brosti. Allt hennar viðmót var hlýlegt og elskulegt. Hún var ein af þessum manneskjum sem maður tekur lítt eftir en saknar því sárar þegar gengnar eru. Flatkökurnar hennar beint af olíukabyssunni með smjöri eru með því besta er ég hef fengið. Þannig leysti hún öll sín verk af hendi af vandvirkni og alúð. Á meðan sel- veiði var enn stunduð frá Eyjum sá Lára um þvott á skinnunum og fóru skinn frá þeim ætíð í fyrsta flokk. Undu Lára og Benni, en þannig var að ef annars var getið var hitt jafnan nefnt samtímis, sér vel á Eyjum, þó svo að nánast öll nútímaþægindi skorti. Af mikilli natni hugsaði hún um æðarvarpið í eyjunum og varði mörgu vetrarkvöldinu við að útbúa veifur til nota í eyjunum. Eftir lát Benna flutti Lára á Hrafnistu í Reykjavík og undi þar hag sínum hið besta. Tók þátt í spila- mennsku af lífi og sál og á böllin lét hún sig ekki vanta. Hjá einni vinkonu sinni á Hrafnistu lærði hún að sauma í og útbúa jólahús og kirkjur sem hún gaf dætrum sínum og barnabörnum. Eftir að ég hóf sjómennsku voru kveðjuorð hennar ætíð „og farðu nú varlega“. Á ég eftir að sakna þeirrar kveðju og allrar hennar elskusemi.F- ar í friði. Hákon Örn Halldórsson. Elsku amma og langamma, það var laugardagssíðdegi, þú búin að eyða deginum í það sem þér þótti einna skemmtilegast að gera, spila á spil. Áfallið kom og þú vaknaðir ekki aft- ur, við kysstum þig á ennið og hvísl- uðum í eyrað þitt, kveðju til afa og litla engilsins okkar. Með langömmu og langafa lærir Þórunn Arney nú að spila olsen olsen, leggja kapla og sigla um höfin. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Guð geymi þig, elsku amma okkar Gróa Halla Hákonardóttir, Gunnar Örn, Þrúður Sóley, Þórdís Páley. Lára Loftsdóttir ✝ Hjartkær eiginkona, móðir okkar og dóttir, GRÓA GUNNLAUGSDÓTTIR, Írabakka 6, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánu- daginn 19. apríl. Fjölskyldan vill færa starfsfólki Karitas og líknar- deildar þakkir fyrir veitta umönnun. Jarðarförin hefur þegar farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd systkina og annarra ástvina, Jacek Marcin Polaszczyk, Egill Örn Erlingsson, Gunnlaugur Erlingsson, Hildur Jónsdóttir, Gunnlaugur Baldvinsson. ✝ Ástkær sambýlismaður, faðir, stjúpfaðir, tengda- faðir, afi og langafi, ÁRMANN ÞÓR ÁSMUNDSSON, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut sunnu- daginn 25. apríl. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 4. maí kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigrún Karlsdóttir. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, sonur, bróðir, mágur, afi og barnsfaðir, PÁLL SKÚLASON, lést laugardaginn 24. apríl. Jarðsungið verður frá Bústaðakirkju föstudaginn 30. apríl kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á SÁÁ. Sóley Anna Pálsdóttir, Ólafur Björnsson, Ísar Daði Pálsson, Adrían Óli Pálsson, Skúli Pálsson, Guðrún Hlíf Ludviksdóttir, Anna Júlía Skúladóttir, Ólafur Ingi Jónsson, Birgir Skúlason, Anna Guðrún Jónsdóttir, Sylvía Rán Ólafsdóttir, Hanna Sigríður Stefánsdóttir, Sigríður Sæland Óladóttir. ✝ Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, VILBORG GUÐJÓNSDÓTTIR frá Fremstuhúsum, Dýrafirði, andaðist laugardaginn 24. apríl. Guðjón Torfi Guðmundsson, Stefanía Magnúsdóttir, Þorgeir Guðmundsson, Valgerður Guðmundsdóttir, Dýri Guðmundsson, Hildur Guðmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.