Morgunblaðið - 28.04.2010, Síða 22

Morgunblaðið - 28.04.2010, Síða 22
22 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2010 ins (1962-87), gegndi þar oft varafor- setastörfum og var kjörinn heiðurs- félagi Evrópuþingsins árið 1988. Er þá fátt eitt talið af félagsmálastörfum hans. Þorvaldur Garðar var lífsverndar- maður Íslands par excellence. Hann stóð í fylkingarbrjósti þeirra sem mæltu gegn frumvörpum um víð- tæka rýmkun á eldri lögum sem heimiluðu sk. fóstureyðingu á Ís- landi, en slík lög náðu þó fram að ganga árið 1975, honum til sárrar raunar. Fyrstur manna flutti hann frumvarp um að slíkar læknisaðgerð- ir skyldu ekki leyfðar af félagslegum ástæðum, enda ætti að leysa fé- lagsleg vandamál með félagslegum aðgerðum, það var jafnan hans við- mið, og hann lét ekki undir höfuð leggjast að bera fram tillögur í því efni, einstæðum mæðrum og fátæk- um fjölskyldum til aðstoðar. Þótt hann sigldi á móti hávaðastraumi þess tíma og talaði fyrir daufum eyr- um margra á Alþingi, fékk hann líka aðra þingmenn til liðs við sig, m.a. Salóme Þorkelsdóttur, Lárus Jóns- son og Árna Johnsen. Alls flutti hann slíkt frumvarp á a.m.k. sex þingum, oftar en ekki í samfloti við aðra, en jafnan var hann leiðtoginn. Trúr var hann þeirri hugsjón til æviloka og hélt henni á loft í ræðu og riti og í samtölum við sitt samferðafólk. Hann var útnefndur heiðursfélagi Lífsvonar, samtaka til verndar ófæddum börnum, á aðalfundi þeirra 1992, og fjallaði þar í ræðu um mál- stað lífsverndar. Er hún birt í frétta- bréfi samtakanna. Skynsamlega grundaðar þingræð- ur hans og greinar verða lífsvernd- arsinnum áfram aflvaki og hug- myndabanki í baráttunni fyrir helgi lífsins. Með virðingu og söknuð í huga minnist ég Þorvaldar Garðars og hans göfugu hugsjónarbaráttu, tel til gæfu minnar að hafa fengið að kynn- ast honum persónulega og þiggja af gnægtabrunni reynslu hans. Hann var höfðinglegur í sjón og reynd, naut virðingar samherja og pólitískra andstæðinga á þingi, eins og sýndi sig þegar vinstristjórnar- meirihluti kaus hann áfram sem for- seta efri deildar 1978. Hann var hlýr maður og um- hyggjusamur, með viðfelldinn róm, glöggur í tali, gestrisinn og átti glæsilega konu, Elísabetu Maríu Kvaran, sem fyrir fáum árum er far- in á undan honum yfir landamæri lífs og dauða. Ég votta dóttur þeirra og öðrum ástvinum hjartans samúð mína. Jón Valur Jensson. Þorvaldur Garðar er látinn, rúm- lega 90 ára. Hann átti að baki langt og farsælt starf í þágu þjóðar sinnar, í félagsmálum, stjórnmálum og fleiri málum. Hann var m.a. forseti sam- einaðs Alþingis og gegndi því starfi af festu og virðingu, ekki aðeins virð- ingu fyrir sjálfum sér heldur fyrst og fremst virðingu fyrir Alþingi, sem þá var enn löggjafarsamkunda þjóðar- innar en ekki sú samkunda málþófs, sem það er nú. Af kynnum mínum af Þorvaldi er mér ljóst, að það var hon- um að þakka, að Alþingi hélt þeirri reisn undir hans forsæti, sem raun ber vitni. Aðrir mér hæfari munu sjálfsagt gera grein fyrir farsælum störfum hans í þágu þjóðarinnar. Kynni okkar Þorvaldar hófust fyr- ir rúmum 50 árum en urðu ekki náin þá. Hann var 9 árum eldri en ég, en eftir því, sem aldur færðist yfir okk- ur báða, finnst mér, að hann hafi ekki verið neitt eldri en ég. Á síðustu ár- um treystust böndin milli okkar og við hittumst nokkuð oft á heimili hans og töluðum oft saman í síma; eftir á að hyggja alls ekki nógu oft. Fráfall Elísabetar konu hans var honum mikið áfall og okkur öllum, sem hana þekktum. En það treysti vináttu okkar Þorvaldar og þá fjölg- aði samverustundum okkar. Mér þótti gaman og fróðlegt að spjalla við Þorvald og hlusta á allt, sem hann gat sagt mér af þeim fjölda manna úr öllum stéttum þjóðfélagsins, sem hann hafði kynnst og unnið með um dagana, sjómönnum, verkamönnum og stjórnmálamönnum í valdamestu stöðum þjóðfélagsins. Aldrei minnist ég þess, að hann talaði af virðingar- leysi um aðra menn eða skoðanir þeirra. Ekki var síður gaman fyrir mig að blanda geði við traustan sjálf- stæðismann, sem byggði viðhorf sín á góðum íhaldssömum gildum, sem flestir eru nú búnir að missa sjónir á með þeim afleiðingum, sem alls stað- ar blasa við, ekki síst í stjórnmálum. Ég þakka Þorvaldi fyrir, hvað hann var duglegur að hringja í mig og halda því góða lífi í vináttu okkar og samverustundum, sem ég á í minningum mínum og verða aldrei teknar frá mér. Við Tóta sendum Elísabetu og allri fjölskyldu hennar samúðarkveðjur með þakklæti. Axel Kristjánsson. Þorvaldur Garðar Kristjánsson verður okkur, sem unnum með hon- um sem forseta á Alþingi, lengi minnisstæður. Hann lét sannarlega hendur standa fram úr ermum þegar hann tók við forsetastöðunni. Okkur leist ekki á blikuna. Miklu var breytt innan dyra, fjölgað í starfsliði, kynn- ingarstarfsemi efld, þingsköp endur- skoðuð, alþjóðasamstarf aukið. Mikil áform um byggingar á Alþingisreit. Hann rak okkur áfram. Ekki gekk allt upp en margt komst áleiðis. Sjálfur dró hann ekki af sér, var mættur fyrstur manna á skrifstof- una, oftast upp úr kl. 8, og þá byrjaði ballið; hringingar út og suður, aðal- lega við kjósendur fyrir vestan eða í stofnanir í þeirra þágu hér í bænum. Hann bjó sig undir þingfundi með kostgæfni, einkum atkvæða- greiðslur, og gátu það orðið langar setur með okkur starfsmönnum. Formfestan var mikil og allt skyldi fara fram lögum og reglum sam- kvæmt. Þessi tilþrif gátu tekið á þol- inmæði okkar sem yngri vorum. En mitt í allri alvörunni átti Þorvaldur það til að slá upp í grín, og vægði þá ekki sjálfum sér. Sjálfsagt hefur Þorvald dreymt um að verða ráðherra í ríkisstjórn eins og marga stjórnmálamenn og hugsjónamenn. En aðstæður voru honum andstæðar. Eftir kosningarn- ar 1983 lá hins vegar beint við, eftir langa reynslu hans sem deildarfor- seti, að hann yrði forseti sameinaðs Alþingis þótt fleiri litu þann stól hýru auga. Fyrir Þorvaldi var forsetastaðan ekki hægur og virðingarfullur sess, heldur mikilvægt tækifæri til að láta til sín taka og marka spor. Það var hins vegar ekki auðveldur leiðangur að reisa merki Alþingis, hvorki gagn- vart meirihlutanum og forustu hans í þinginu né heldur gagnvart almenn- ingi í landinu. Alþingismenn sumir sneru líka upp á sig og stundum fannst fólki hann vera með hégóma og uppskafningu þegar Alþingi var annars vegar. En einmitt fyrir þrek sitt gagnvart skilningsleysi margra á veg og virðingu „elstu og æðstu stofnunar þjóðfélagsins“ (eins og hann orðaði það) á hann aðdáun skilda. Þorvaldur Garðar var stoltur af Alþingi Íslendinga. Þegar íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkurborg- ar, sem undirbjó hátíðarhöld þjóðhá- tíðardaginn 17. júní 1984 og bauð honum að koma í Alþingishúsið og ganga þaðan út á Austurvöll þar sem honum var ætlað sæti fyrir aftan varaborgarfulltrúa, þá sagði hann: „Nei, það verður ekki þannig!“ Slík dæmi urðu mörg næstu árin. Þetta var stundum erfitt stríð, bæði við hann og með honum, en þegar horft er til baka á forsetastörf Þorvalds Garðars er gott til þess að hugsa að hafa verið í liði með honum. Persónulega er margt að þakka að leiðarlokum, einkum þó traust og trúnað sem hann sýndi mér óverð- skuldað strax og kynni hófust, og síð- an vináttu ævilangt. Jafnan var hressandi að heyra í honum í síma þegar eitthvað fór úrskeiðis á Alþingi að hans mati, alþingismenn stóðu sig illa eða forseti fór ekki rétt að. Þegar slíkum ræðum lauk var alltaf slegið á létta strengi, sagðar sögur og síðan kvatt með innilegheitum. Guð blessi minningu Þorvalds Garðars Kristjánssonar alþingisfor- seta. Helgi Bernódusson. Í dag er Þorvaldur Garðar Krist- jánsson, fyrrum þingmaður Vestfirð- inga, borinn til moldar. Kvaddur er góður vinur en jafnframt maður sem lét sér annt um velferð umbjóðenda sinna og hvaðeina er laut að fram- gangi og framförum á Vestfjörðum. Ekki verða öll þau fjölmörgu mál er hann beitti sér fyrir tíunduð hér en kastljósinu þess í stað beint að orku- málum Vestfirðinga. Það voru framsýnir sveitarstjórn- armenn á Vestfjörðum með Fjórð- ungssamband Vestfirðinga í farar- broddi sem hófu að huga að því hvernig orkumálum Vestfirðinga yrði best fyrirkomið í upphafi átt- unda áratugar síðustu aldar. Það var sama hvert horft var, alls staðar blöstu við verkefnin, meginþorri húsa var kyntur með olíu og hluti raf- orkunnar var framleiddur með dísil- vélum. Þorvaldur Garðar, þáverandi alþingismaður, tók málið upp á arma sína, barðist fyrir stofnun orkufyr- irtækis á fjórðungsvísu af öllu afli, vel studdur af Vestfirðingum. Hann vann Gunnar Thoroddsen, þáverandi iðnaðarráðherra, á sitt band og Gunnar kom málinu í gegn hjá rík- isstjórninni. Þorvaldur Garðar er því réttnefndur „ljósmóðir“ Orkubús Vestfjarða eins og Guðmundur Ingi Kristjánsson komst að orði í vísu ortri á aðalfundi Orkubúsins 1979 þegar fluttar voru kveðjur frá þing- mönnum sem komust ekki til fund- arins. Engan fjarstaddir þingmenn þreyta en Þorvaldur Garðar kom hingað fús. Líklega má hann líka heita ljósmóðir þessa Orkubús. Þó aðeins sé litið til þessa eina máls eiga Vestfirðingar Þorvaldi Garðari mikið að þakka. Með þeim hjónum, Þorvaldi Garðari og Elísabetu Kvaran, og tengdaforeldrum mínum, Magnúsi Amlín og Ingunni Angantýsdóttur, var mikill vinskapur og vegna þess vinskapar urðu fyrstu kynni okkar Þorvaldar Garðars, ég ungur há- skólanemi, hann margreyndur þing- maður. Það var oft glatt á hjalla á heimili tengdaforeldra minna, í Hallhúsi á Þingeyri, þegar Þorvaldur Garðar og Elísabet komu í heimsókn og þar voru gjarnan sagðar sögur af ýmsu sem gerðist á ferðalögum þegar tengdafaðir minn ók Þorvaldi Garðari vítt og breitt um vegleysur kjördæmisins. Þorvaldur Garðar var sérlega vinnusamur og hafði skýra sýn á lok þeirra verkefna sem hann vann að hverju sinni. Dugnaði Þorvaldar Garðars kynntumst við hjónin vel í aðdraganda vetrarkosninganna 1983 en þá dvaldi hann á heimili okkar. Hann gekk síðastur til náða og var jafnan kominn aftur til starfa milli 5 og 6 að morgni. Þorvaldur Garðar er kvaddur með þökk fyrir hans góðu störf í þágu vestfirskra byggða. Verk hans munu halda minningu hans á lofti um ókom- in ár Dóttur Þorvaldar Garðars, Ebbu og fjölskyldu hennar, senda góðir vinir að vestan innilegustu samúðar- kveðjur. Kristján Haraldsson. Þorvaldur Garðar Kristjánsson  Fleiri minningargreinar um Þor- vald Garðar Kristjánsson bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Bækur Bækur til sölu Kortasaga Íslands 1-2, Alþingisbækur Íslands 1-9 ób., Jökull 1.-36. árg. ib., ób., Veðrið 1.-18. árg. ib., Árbók Þingeyinga 1.-20. árg. ib., Landskjálftar á Íslandi Þ.Th., Náttúrufræðing- urinn 1.-58. árg. ób., Náttúru- fræðingurinn 1.-28. árg. ib með kápum, gott band, Veiðimaðurinn 1.- 90. tb. ib., Heima er best 1. - 14 árg. gott band, Skotveiði í íslenskri náttúru O.F. Upplýsingar í síma 898 9475. Gisting Akureyri Glæsileg 2 herb. íbúð til skammtíma- leigu á Akureyri. Gisting fyrir 4. Uppl. í s. 864 1816, eydisb3@gmail.com. ÓDÝR GISTING Í REYKJAVÍK 110 Fullbúin íbúð til leigu í lengri eða skemmri tíma. Skoðaðu myndir og aðrar upplýsingar á www.annholt.is AKUREYRI Höfum til leigu 50, 85 og 140 fm sumarhús 5 km frá Akureyri, öll með heitum potti og flottu útsýni yfir Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir á Akureyri. www.orlofshus.is Leó, s. 897- 5300. Heilsa REYKSTOPP MEÐ ÁRANGRI STREITU- OG KVÍÐALOSUN Notuð er m.a. dáleiðsla og EFT (Emotional Freedom Techniques). Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur, sérfræðingur í EFT, sími 694-5494, www.EFTiceland.com. Í Hafnarfirði við lækinn Til leigu 2 herbergja nýleg íbúð á efstu hæð við Lækjargötu. Falleg íbúð, parket á gólfum og flísalagt baðherbergi/þvottahús í íbúð. Leiguverð 105 þ. pr/mán. með hita, rafmagni og hússjóð. Laus strax. Uppl. um leigutaka sendist á lovisa@heima.is Húsnæði óskast Íbúð í Reykjavík óskast Viljum gjarnan taka á leigu 2ja herb. íbúð á 1. eða 2. hæð. Barnlaus hjón. Upplýsingar í símum 821 6676 og 895 9459. Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Tölvur Til sölu Ódýr blekhylki og tónerar í HP, Dell, Brother, Canon og Epson. Send samdægurs beint heim að dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150. Sjá nánar á blekhylki.is Utsala - Útsala - Útsala Handslípaðar kristal ljósakrónur frá Tékklandi og Slóvakíu. Mikið úrval. Frábær gæði og gott verð Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Upp. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bókhald Bókhald -Ársreikningar -Framtöl Bókhald, skattaframtöl, stofnun fél., ársreikningar, VSK-uppgjör, erfða- fjársk., leigusamningar o.fl. HAGSTÆTT VERÐ. S. 517-3977. framtal@visir.is Þjónusta Gluggahreinsun Hreinsa þakrennur, hreinsa lóðir, gluggahreinsun, vélavinna og ýmis smærri verk. Uppl. 847 8704 eða manninn@hotmail.com Ljósmyndastofa Gunnars Ingimarssonar Suðurveri - Stigahlíð 45 - s. 553 4852 - lgi.is - Myndatökur fyrir alla fjölskylduna Ýmislegt Glow & blikkvörur fyrir útisamkomur í sumar, farðu inn á www.hafnarsport.is og skoðaðu úrvalið. Heitir pottar Sími 565 8899 GSM 863 9742 www.normx.is normx@normx.is persónulegt púsl Gisting Húsnæði í boði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.