Morgunblaðið - 28.04.2010, Page 26
26 Velvakandi
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ER ÞAÐ BARA
ÉG EÐA ERU TIL
OF MARGAR
SJÓNVARPS-
STÖÐVAR?
B-BL B-BL B-BL
B-BL B-BL B-BL
B-BL B-BL B-BL
B-BL B-BL B-BL
ÞÚ ERT AÐ HORFA
Á STÖÐINA ÞAR
SEM FÓLK SLÆR
Á VARIRNAR
Á SÉR
HÉRNA ERU
VAXLITIRNIR.
TAKK FYRIR
LÁNIÐ
ÞAÐ ER ERFITT AÐ VERA
REIÐUR ÚT Í FÓLK SEM
SKILAR Á RÉTTUM TÍMA
PABBI, HVAÐ KALLAR MAÐUR
MANN SEM HELDUR AÐ
HEIMURINN EIGI AÐ
SJÁ FYRIR HONUM?
VÍKING
!
HÆ, ÉG
HEITI LÁRA
HÆ, ÉG
HEITI
SONJA
SÆLL,
ÉG HEITI
BRYNJA
...ELLI...
HÆ
LETIDÝRIÐ ELLI Á
HRAÐSTEFNUMÓTI
BARACK
OBAMA?!?
KEMUR EKKI
TIL GREINA!
ÉG FRÉTTI AÐ HANN HEFÐI
VERIÐ EINKANUDDARI
OSAMA BIN LADEN
ÞAÐ ER
KOMINN NÝR
ORÐRÓMUR!
KOMDU SÆL, ÉG ER AÐ HRINGJA
FYRIR KOSNINGAHERFERÐ OBAMA
GETUM
VIÐ TREYST
Á ÞINN
STUÐNING?
HVAÐ ERT ÞÚ AÐ
GERA HÉR, HVER
SEM ÞÚ ERT?
ÉG HEITI
BIG-TIME
SJÁLFUR ER
ÉG JONAH
JAMESON
SEGÐU MÉR ÞÁ,
JONAH...
HVAÐ ÞÚ ERT
AÐ GERA HÉR MEÐ
KONUNNI MINNI
Heilræði
Biblíunnar
ÉG er sammála
ábendingu Einars
Ingva Magnússonar,
sem birt var í Velvak-
anda 24. apríl sl., um
að fara eftir heilræð-
um Biblíunnar. Til
dæmis stendur í Je-
remía, kafla 17, versi
11: „Sá sem aflar auðs
og eigi með réttu, er
eins og akurhæna,
sem liggur á eggjum,
er hún eigi hefir orpið.
Á miðri ævinni verður
hann að yfirgefa auð-
inn […].“ En ég vil
ekki gera lítið úr þeim sem viður-
kenna mistök sín, ég virði þá fyrir það
Óla Sveinbjörg Jónsdóttir
Að spara
„STARFSFÓLK fann leiðir til að
spara á Landspítala.“ Mér datt í hug
leið sem líka gæti sparað dálítið, þá á
ég við að eins verði komið fram við
þingmenn og eldri borgara. Ef kerfið
telur að sá gamli hafi „of háar tekjur“
frá lífeyrissjóði eru laun hans frá TR
afnumin. Eins má
hugsa sér að laun þing-
manna fyrir nefnd-
arstörf yrðu dregin frá
föstum launum, það
myndi spara ríkissjóði
töluvert. Líka má gefa
sér lausan tauminn í
sparnaði og leggja nið-
ur úrelt kerfi handhafa
forsetavalds – þriggja
einstaklinga – sem
kostar milljónir. Það
má leggja niður
mannanafnanefnd, því
hún er í besta falli
óþörf. Svona má halda
lengi áfram. Tillögur
óskast.
Ein sparsöm.
Hugmynd
SVEINN Jök ulsson vill benda á að
við sorphauga eru notaðir traktorar
með járnhjólum með göddum á, sem
eflaust myndu nýtast við að mylja
ösku-steypuskán léttilega.
Lesandi.
Ást er…
… orðsendingarnar
sem hann skilur eftir á
ísskápnum fyrir þig.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30,
vinnustofur kl. 9, postulín kl. 9,
Grandabíó, útskurður kl. 13.
Árskógar 4 | Handav./smíði/
útskurður kl. 9, heilsugæsla kl. 10,
söngstund kl. 11.
Bólstaðarhlíð 43 | Spiladagur, gler-
list,
Bústaðakirkja | Samvera kl. 13.
Handavinna spjall og spil. Bílaþjón-
usta, skráning í síma 553-8500.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa kl. 9,
leikfimi kl. 10, verslunarferð kl. 14.40.
Dalbraut 27 | Handav. kl. 8, vefn. kl.
9, leikfimi kl. 11. Listamaður mánaðar-
ins.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Göngu-Hrólfar kl. 10, söngvaka kl. 14,
söngfél. FEB æf. kl. 17. Skrán. í sum-
arferðir s. 588-2111. Kynning á íbúðum
í Hólabergi 84 (við hlið Gerðubergs)
28. apr. kl. 15 í D-sal Gerðubergs.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl.
9.30/10.30, glerlist kl. 9.30 og 13, fé-
lagsvist kl. 13, viðtalstími FEBK kl. 15,
bobb kl. 16.30, línudans kl. 18, sam-
kv.dans kl. 19.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Mynd-
list kl. 9, ganga kl. 10, leikfimi kl.
12.45, postulín/kvennabrids kl. 13.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatns- og kvennaleikfimi, brids og
bútasaumur, fastir tímar. Móttaka gler-
muna í Jónshúsi kl. 10-16 í dag fyrir
vorsýningu.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
kl. 9, engin leiðsögn frá hád. v/
leikhúsferðar í Þjóðleikhúsið, lagt af
stað kl. 12.30. Spilasalur op. frá há-
degi. Kynningarfundur kl. 15 á íbúðum
fyrir aldraðra á vegum FEB. Á morgun
kl. 13 lagt af stað í heimsókn til eldri
borgara í Hrunamannahreppi.
Grensáskirkja | Samverustund kl. 14..
Háteigskirkja | Setrið, alla miðviku-
daga, kaffi kl. 10, bænaguðsþjón. kl.
11, súpa/brauð kl. 12, brids kl. 13.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, út-
skurður, tálgað með Óla kl. 13.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, pútt og
bókm./söguklúbb. kl. 10, línudans kl.
11, handav./glerbræðsla/útskurður kl.
13, píla/ bingó kl. 13.30, Gaflarakór kl.
16, www.febh.is.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30,
9.30 og 10.30, vinnustofa kl. 9.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Kópa-
vogsskóla kl. 15.30, glod.is
Korpúlfar Grafarvogi | Keila í Keilu-
höllinni í Öskjuhlíð á morgun kl. 10.
Listasmiðja Korpúlfsst. opin frá kl. 13
á fimmtud.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfr kl. 10.30, iðjustofa - námsk. í
glermálun og myndlistarnáms. kl. 13.
Norðurbrún 1 | Útskurður og opin
vinnustofa kl. 9, félagsvist kl. 14. Sími
411-2760.
Vesturgata 7 | Myndmennt/postulín
kl. 9, sund kl. 10, hádegisv. kl. 11.30,
Bónus kl. 12.10, tréskurður kl. 13.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja,
handavinnust., morgunsamvera söng-
ur/helgistund, framh.saga kl. 12.30,
bókband, verslunarferð kl. 12.20,
Dans, Vitatorgsbandið, kl. 14.
Ólafur Stefánsson skrifar stutta
hugleiðingu um eldgos og vísur:
„Þegar Hekla tók að gjósa vorið
1947, var Jón kadett viðloðandi í
Strætinu, eins og oft bæði fyrr og
síðar. Þeir Haraldur Hjálmarsson,
ásamt Dósóþeusi Tímóteussyni,
höfðu setið að drykkju inni á sjoppu
og þegar þeir komu út á götu, voru
blaðsölustrákar að hrópa tíðindin
af gosinu. Þá orti Halli.
Það er ekkert þjóðartjón
þó að Hekla gjósi,
en illt er að vera verri en Jón
og vitlausari en Dósi.
Jón var sjálfur hagorður og mik-
ill ljóðavinur. Kristinn Mortens
(pabbi Bubba) gerði eftirfarandi
vísu Jóns „landsfræga“ í Reykjavík
er hann söng hana í partíum og
spilaði undir á gítar:
Ó, lof mér Drottinn að deyja
dapurt er mannlífið.
Fósturlandsins Freyja
er farin í ástandið.
Mörg vísan varð til í því sam-
félagi sem myndaðist í strætinu.
Sumir voru fastagestir, aðrir komu
þar aðeins við. Ekki voru þar allir
dagar sunnudagar, eins og þessi
vísa sýnir:
Kalt er mér á klakaspori,
kannski hlýnar aldrei meir.
Það er ekki víst að vori,
vinur, fyrr en maður deyr.“
Péturs Stefánsson sá að ekki er
auglýst vísnakeppni á Sæluviku
Skagfirðinga, eins og mörg und-
anfarin ár. Hann yrkir:
Glittir víða í gremjutár,
geðstyggð margra eykur;
á Sæluviku er í ár
enginn vísnaleikur.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af eldgosi og Freyju