Morgunblaðið - 28.04.2010, Qupperneq 27
Menning 27FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2010
NÚ STENDUR í Bókasafni
Seltjarnarness sýning til-
einkuð skáldinu Jóhanni Jóns-
syni. Málstofa um Jóhann og
órbirt verk hans verður haldin
í safninu í dag undir yfirskrift-
inni Ef til vill hef ég séð inn í
himininn. Lesið verður úr bréf-
um Jóhanns, ferðasögum, ör-
lagasögu ásamt ljóðum sem
verið hafa til sýnis á safninu í
apríl og markar málstofan lok
sýningarinnar, en þar getur meðal annars að líta
óbirt ljóð og bréf eftir skáldið. Lesarar verða
Gunnar Már Hauksson, Þorleifur Hauksson og
Ásgeir Jóhannesson. Málfríður Finnbogadóttir
stýrir dagskránni.
Bókmenntir
Málstofa um
Jóhann Jónsson
Jóhann
Jónsson
KAMMERKÓR Seltjarnar-
neskirkju heldur vortónleika í
Seltjarnarneskirkju í kvöld kl.
20.00. Á efnisskránni er meðal
annars Missa Brevis eftir Ja-
cob de Haan, Freaut euch alle
eftir J.S. Bach, sálmurinn Hver
fögur dyggð í fari manns eftir
Egil Gunnarsson í nýrri út-
setningu og Tantum ergo eftir
Mozart fyrir þrjár kvenna-
raddir. Einsöngvarar koma úr
röðum kórsins. Kórstjóri er Friðrik Vignir Stef-
ánsson, organisti kirkjunnar, sem leikur einnig
undir í flestum verkanna.
Tónleikarnir marka upphaf Listahátíðardag-
skrár Listvinafélags Seltjarnarneskirkju.
Tónlist
Vortónleikar í Sel-
tjarnarneskirkju
Friðrik Vignir
Stefánsson
SÖNGVARARNIR Gissur Páll
Gissurarson og Nathalía Druz-
in Halldórsdóttir flytja aríur,
ljóð og rússnesk sönglög í
Gerðubergi á föstudag kl.
12:15, við píanóundirleik Nínu
Margrétar Grímsdóttur. Á efn-
iskránni eru meðal annars verk
eftir Tsjajkovskíj, Rakhman-
inoff og Sjostakovitsj, Glinka,
Liszt, Verdi, Massenet, Tosti,
Meyerbeer og Lehár.
Tónleikarnir eru liður í tónleikaröðinni „Klassík
í hádeginu“ og lokatónleikarnir í röðinni á þessu
starfsári. Listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar
er Nína Margrét Grímsdóttir. Tónleikarnir verða
endurteknir sunnudaginn 2. maí kl. 13:15.
Tónlist
Klassík í hádeginu í
Gerðubergi
Nína Margrét
Grímsdóttir
Allir vita að sá
fundur var ekki til
mikillar lukku fyrir frum-
byggja Norður-Ameríku 30
»
TÓNLISTARFÓLK er sífellt á ferð
og flugi eins og sannaðist þegar
gosaska úr Eyjafjallajökli sáldraðist
yfir Evrópulönd með þeim afleið-
ingum að flugsamgöngur fóru úr
skorðum. Fjölmörgum tónleikum
varð að aflýsa þegar stjórnandi eða
einleikari gekk úr skaftinu, eins og
íslenskir tónleikagestir fá að kenna
á á morgun, því klarínettleikarinn
Martin Fröst komst ekki til landsins
eins og greint er frá á baksíðu.
Það hafa fleiri þurft að breyta
tónleikahaldi og þannig komst
Pierre Boulez ekki til San Diego, sat
fastur í París, Valery Gergiev, sem
stýra átti tónleikum Fílharmóníu-
sveitar New York á tónlistarhátíð
komst ekki þangað í tæka tíð fyrir
fyrstu tónleikana. Söngkonan Anna
Sophie Otter komst ekki frá Stokk-
hólmi til New York heldur.
Leif Ove Andsnes sem er vænt-
anlegur á Listahátíð í maí sat fastur
í Ósló, en hann átti að spila í Barce-
lona. Nikolai Demidenko hljóp í
skarðið, rétt náði í miða með Eu-
rostar-lestinni frá Lundúnum til
Parísar. Hann þurfti að standa
frammi á gangi alla leiðina og ók
síðan tíu tíma til Barcelona.
Tepptur Norski píanóleikarinn Leif
Ove Andsnes sat fastur í Ósló.
Gosið setur
allt úr
skorðum
Tónleikahald í upp-
námi víða um heim
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
LISTAKONAN Þorbjörg Pálsdóttir
lést í nóvember síðastliðnum, ríflega
níræð að aldri. Hún átti að baki lang-
an listamannsferil og merkilegan,
enda voru verk hennar fyrir allra
augum – nefni sem dæmi verkið
Dansleik sem stendur við Perluna á
Öskjuhlíð og er líklega það listaverk
íslenskt sem flestir hafa fest á filmu
á síðustu árum, nema ef vera skyldi
Sólfar Jóns Gunnars Árnasonar.
Fyrir stuttu var sett upp óvenju-
leg sýning á verkum Þorbjargar og
sú stendur líka stutt; síðasti sýning-
ardagur verður nú á sunnudaginn.
Sýningin er á Sjafnargötu 14,
Reykjavík, heimili og vinnustofu
listakonunnar til margra ára.
Hannes Lárusson og Ásmundur
Ásmundsson settu sýninguna upp og
Hannes segir að á sýningunni sé að
finna verk sem spanni að segja allan
feril Þorbjargar. „Fyrst og fremst
eru þetta þó verk sem tengjast eig-
inlega fjölskyldu hennar, nær-
umhverfi hennar, enda lögðum við
áherslu á þau verk.“ Hann segir að
þó ýmis verkanna hafi verið sýnd áð-
ur hafi þau aldrei verið sýnd saman
á þennan hátt.
Einskonar minningarsýning
Hannes segir að hugmyndin að
sýningunni komi frá börnum Þor-
bjargar og í raun megi segja að
þetta sé einskonar minningarsýning
um hana.
Eins og getið er er sýningin ný-
stárleg fyrir það að á henni eru verk
sem sjaldan eða aldrei hafa sést op-
inberlega og aldrei í því samhengi
sem þau eru núna, en einnig sé húsið
á Sjafnargötunni hluti af sýning-
unni, sá staður þar sem Þorbjörg bjó
og var með vinnustofu sína. „Þar
urðu næstum öll verkin á sýningunni
til og mótífin tengjast húsinu líka
sterkum böndum,“ segir Hannes.
Á sýningunni eru ríflega fimmtíu
verk, og komast ekki öll fyrir innan
dyra þannig að stór hluti þeirra er í
garðinum. „Þau stóðu líka mörg þar
á sínum tíma, því garðurinn var allt-
af hluti af vinnustofu hennar.“
Mikil aðsókn
Eins og getið er stendur sýningin
stutt, hófst fyrir viku og lýkur á
sunnudag. Hannes segir það að-
allega skýrast af því að sýningin sé
inni á heimili og því ekki aðstaða til
að hafa hana opna lengur.
„Það var ákveðið að hafa sýning-
arvikurnar tvær en ekki bara eina
vegna þess hve aðsókn að sýning-
unni var mikil,“ segir hann og bætir
við að sýningin sé opin virka daga
frá kl. 15:00 til 18:00 og um helgina
frá kl. 12:00 til 18:00.
0Aðgangur er ókeypis.
Þorbjargar Pálsdóttur minnst
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Minning Verk Þorbjargar Pálsdóttur þekkja flestir þó þeir þekki kannski
ekki til höfundarins. Nú stendur yfir sýning sem spannar allan feril hennar.
Í HNOTSKURN
» Þorbjörg Pálsdóttir fædd-ist 10. febrúar 1919. Hún
lést 11. nóvember 2009.
» Þorbjörg lærði ljós-myndun í Iðnskólanum og
lærði síðan í Berggrens Mål-
arskola og Konstfack í Stokk-
hólmi.
» Hún stundaði nám hjá Ás-mundi Sveinssyni, Sigur-
jóni Ólafssyni og Jóhanni Ey-
fells.
Sýnt á heimili
og vinnustofu
NÆSTKOMANDI fimmtudag hefst
listahátíðin List án landamæra í sjö-
unda sinn. Að þessu sinni eru ríflega
50 viðburðir á dagskrá víða um land
á næstu vikum. Mest verður um að
vera á höfuðborgarsvæðinu, en einn-
ig verða viðburðir í Borgarnesi, á
Ísafirði, Akureyri, Húsavík, Egils-
stöðum, í Vestmannaeyjum, á Sel-
fossi og á Suðurnesjum.
Fyrsta atriði hátíðarinnar verður
opnun samstarfssýningar Elínar
Önnu Þórisdóttur og Kristins Þórs
Elíassonar á Mokka kl. 15:00 á
fimmtudag, en eiginleg opnun hátíð-
arinnar verður í Ráðhúsi Reykjavík-
ur kl. 17:00 þann dag. Þá mun Katrín
Jakobsdóttir, mennta- og menning-
armálaráðherra, setja hátíðina og
fram koma Linda Rós Pálmadóttir
og Ari Agnarsson, Gjóla og Meist-
ararnir, Valur geislaskáld, Margrét
Eiríksdóttir, Skúli Steinar Pét-
ursson og Haffi Haff ásamt Ung-
Topp. Kynnar verða Ólafía Hrönn
Jónsdóttir og Sigrid Husjord. Í kjöl-
farið verður opnuð samsýning
myndlistarfólks í Ráðhúsinu sem
standa mun til 9. maí.
Meðal annarra viðburða í Reykja-
vík má nefna myndlistarsýningu á
Kaffi Rót á föstudag, kaffihús og
handverksmarkað í Hinu húsinu á
laugardag og hönnunarsýningu í
Norræna húsinu á sunnudag. Á Suð-
urnesjum hefst dagskrá í Garði á
föstudag undir yfirskriftinni „Fugl-
arnir í Garðinum“ sem mun standa
til 30. maí.
Fyrsta maí verður opnuð sýning
Safnasafnsins á Svalbarðsströnd í
tilefni af 80 ára afmæli Sólheima í
Grímsnesi. Listahópurinn Geðlist
frá Akureyri mun afhjúpa skúlptúr á
bílastæði Safnasafnsins sama dag. Á
Egilsstöðum verður hátíðardagskrá
í Sláturhúsinu og í Reykjanesbæ
verður opnuð ljósmyndasýning í
Göngugötunni Kjarna.
Í Borgarnesi opnuðu listamenn
sýningu um síðustu helgi, en hún
mun standa í Gallerí Brák til 9. maí.
List án landamæra haldin í sjöunda sinn
Fimmtíu viðburðir í boði
á listahátíð um land allt
Kristinn Þór Elíasson
Hátíð Forsíðumynd dagskrárbækl-
ings Listar án landamæra.
SL. LAUGARDAG var opnuð sýn-
ing í Bókasal Þjóðmenningarhússins
helguð rithöfundinum Sigurði A.
Magnússyni. Á sýningunni, sem var
valin yfirskriftin Í ljósi næsta dags,
eru störf Sigurðar í gegnum árin
dregin fram með munum, myndum
og texta með áherslu á feril hans
sem rithöfundar, gagnrýnanda og
þýðanda.
Sigurður A. Magnússon er rithöf-
undur og hefur starfað sem ritstjóri,
blaðamaður, gagnrýnandi, þýðandi,
höfundur ferðabóka og kynning-
arrita og síðast en ekki síst höfundur
skáldlegrar sjálfsævisögu. Hann er
einnig afkastamikill þýðandi, hefur
skrifað bækur og ritgerðir þar sem
hann kynnir Ísland og íslenska
menningu fyrir erlendum lesendum
og þýtt mikið af íslenskri ljóðlist á
ensku. Ennfremur hefur Sigurður
þýtt ljóð úr ýmsum málum á ís-
lensku, starfað sem leiðsögumaður
og unnið talsvert að félagsmálum og
gegnt formannsstöðu í fjölmörgum
samtökum og félögum og var fyrsti
formaður hins sameinaða Rithöf-
undasambands Íslands.
Sýningin stendur til 15. janúar nk.
Sýning helguð Sig-
urði A. Magnússyni
Störf Sigurðar í gegnum árin dregin
fram með munum, myndum og texta
Afköst Sigurður A. Magnússon, rit-
höfundur, gagnrýnandi og þýðandi.