Morgunblaðið - 28.04.2010, Page 28

Morgunblaðið - 28.04.2010, Page 28
28 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2010  Í dag er formleg opnun á sjón- varpsvef Fjölbrautaskólans við Ár- múla. Á vefnum verður hægt að sjá ýmislegt kvikmynda- og sjónvarps- efni sem framleitt er af nemendum skólans. Á vormisseri unnu nemendur kvikmyndaáfangans BÍÓ213 að uppsetningu á fundaröð í skólanum sem var sett upp eins og sjónvarps- þættir. Fyrri þátturinn af „Upp úr skotgröfunum“ fjallaði um framtíð íslenskrar kvikmyndagerðar og sá síðari um hvort lögleiða eigi spila- víti á Íslandi. Er nú hægt að sjá fyrri þáttinn á vefsíðu skólans, en sá síðari mun birtast fljótlega; http://www.fa.is/sjonvarp. Verkefnið er undir handleiðslu Þórs Elís Pálssonar kvikmynda- gerðarmanns og snýr það að upp- töku og vinnslu á sjónvarpsefni. Gestir fyrri þáttarins voru m.a. Katrín Jakobsdóttir mennta- málaráðherra og Páll Magnússon útvarpsstjóri. Upp úr skotgröfunum – Umræðufundir á netinu Fólk Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is ÍTÖLSK kvikmyndahátíð verður sett í Norræna húsinu á morgun og stendur til 3. maí. Hátíðin ber yfirskriftina Sögur af innflytjendum. Sýndar verða fjórar myndir: Nuovo mondo, Il vento fa il suo giro, Lamerica og Quando sei nato non puoi piú nasconderti. „Myndirnar sem við sýnum eru tengdar þem- anu innflytjendur/útflytjendur og vandamálum tengdum þeim; framandi og öðruvísi fólk, um- hverfi og menning,“ segir Simona Storchi lektor í ítölsku við Háskóla Íslands sem skipuleggur há- tíðina ásamt fleirum. En að henni standa Nor- ræna húsið, Ítalska sendiráðið, Ítalska félagið á Íslandi, ítalskan við Deild erlendra tungumála við Háskóla Íslands og Stofnun Vigdísar Finn- bogadóttur. „Ítalar flúðu land sitt áður fyrr en nú er það öfugt. Mikið af innflytjendum kemur til Ítalíu í von um betra líf og frelsi. Því miður fer ekki allt- af vel fyrir þeim og margir þurfa að glíma við fordóma og skort á umburðarlyndi. Málefni fjöl- menningar og afnám kynþáttaaðgreiningar snerta margt á Vesturlöndum svo við ákváðum að sýna nokkrar ítalskar bíómyndir tengdar því til að vekja umræðu um málefnið,“ segir Simona. Sýningar eru í Norræna húsinu fimmtudag, laugardag, sunnudag og mánudag og hefjast kl. 20 öll kvöldin. Enginn aðgangseyrir er inn á myndirnar sem eru sýndar með enskum texta. Sögur innflytjenda á Ítalskri kvikmyndahátíð Ítölsk Úr myndinni Nuovomondo eftir Crialese.  Leikfélag Akureyrar hefur ákveðið að koma suður og sýna leikritið 39 þrep í Íslensku óper- unni í maí. Uppselt var á nær fimm- tíu sýningar fyrir norðan. Í þessum óborganlega gamanleik fara fjórir leikarar á kostum í 139 hlutverkum. Leikstjóri sýningar- innar er María Sigurðardóttir en hún sló eftirminnilega í gegn með sýningunum Sex í sveit og Fló á skinni. Sýningafjöldi í Íslensku óperunni er takmarkaður. Miðasala á 39 þrep er hafin á midi.is og opera.is, einnig er hægt að nálgast miða í síma 511- 6400. Gamanverkið 39 þrep sýnt fyrir sunnan Á morgun, fimmtudaginn 29. apríl, kemur út nýjasta viðbótin við Pott- þétt seríuna. Gripurinn er númer 52 en alls hafa verið gefnir út um 90 diskar í Pottþétt-röðinni. Á honum verður að finna helstu slagara dagsins í dag, þar af tíu íslensk lög. Fimm laganna munu ekki hafa ver- ið gefin út áður, en þau eiga Friðrik Dór, Pétur Ben og Eberg, Ingó og Veðurguðirnir, Hvanndalsbræður og Last Boy. Hið gríðarlega vinsæla lag Dikta, „Thank You“, er meðal þeirra laga sem má finna á disknum, svo og „Söngur um lífið“ með Páli Óskari. Meðal erlendra flytjenda á plöt- unni má nefna Adam Lambert, Pixie Lott, Lady Gaga, Medina, Goldfrapp og Sidney Samson. Safnplatan Pottþétt 52 kemur út á morgun Eftir Hólmfríði Gísladóttur holmfridur@mbl.is NÆSTKOMANDI föstudag ætla nemendur Tónlistarskóla FÍH að syngja á tónleikum plötuna Lifun eftir Trúbrot. Tónleikarnir eru verkefni söngnema í rytmísku deild skólans en þar er kenndur popp- og rokksöngur þó áherslan sé að mestu leyti á djass. Með söngvurunum spila hljóðfæra- nemar við sömu deild og er samspil fyrir uppsetninguna hluti hljóðfæra- námsins. Umsjón með náminu og verkefninu hafa kennararnir Ásgeir Ásgeirsson og Kristjana Stefánsdóttir sem sat fyrir svörum um tónleikana. „Við setjum upp tvær svona upp- færslur á ári, fyrir áramót varð fyrir valinu söngbók Magnúsar Eiríkssonar og svo Lifun núna eftir áramót,“ segir Kristjana. Hún segir flesta nemend- urna vera lengra komna, en að þau hafi fengið að velja hvorri uppfærsl- unni þau tækju þátt í. Það eru kenn- arar skólans sem velja hvaða verk eru tekin fyrir hverju sinni en þau eru val- in með hliðsjón af nemendahópnum sem flytur þau. „Við reynum að velja þetta þannig að það henti nemend- unum, við svona lítum yfir hópinn og sjáum hvað passar. Í fyrra völdum við Burt Bacharach og þar á undan We Will Rock You með Queen, en okkur langaði að leggja áherslu á íslenskt í ár. Þessi samspil sem eru í skólanum eru mikið djass-miðuð og ekki eins mikið um rokk. Þannig að við vorum bæði að hugsa þetta tónlistarlega og sönglega, þó að þetta sé aðallega verk- efni söngdeildarinnar.“ Aðlagað fyrir kvenraddir Kristjana segir verkið mjög krefj- andi, bæði fyrir söngvarana og hljóm- sveitina, en að krakkarnir séu búnir að vera einstaklega duglegir við æfingar og að mikill metnaður verði lagður við flutninginn. Lögunum hefur verið bróðurlega skipt á milli söngnemanna eftir því hvað hentar röddum þeirra en allir koma þeir til með að syngja sóló ásamt því að radda hvert hjá öðru. Vegna þess hvernig Trúbrot var skip- uð þegar Lifun kom út hefur þurft að laga tónlistina að sönghópnum. „Já, við höfum náttúrlega aðlagað það heilmikið því þegar Lifun kemur út 1971 þá voru þetta bara karlsöngv- arar í sveitinni, en í þessum hópi sem flytur þetta núna eru fimm stelpur og tveir strákar. Þannig að við höfum þurft að hafa tóntegundaskipti út af stelpunum. Þetta er mjög mikið radd- að og þetta eru mjög flóknar raddir, sem þau hafa legið yfir og hefur bara gengið mjög vel.“ Aðspurð segir Kristjana að tónleik- arnir verði bæði fyrir augu og eyru en að útvíðu buxurnar fái þó að hanga inni í skáp að sinni. „Þetta verða al- vöru rokktónleikar, það verða ljós og rosa „sound“. En þau ætla ekki að fara í hippagallann,“ segir hún og hlær. „Þetta verður stíliserað og smart. Það var lengi verið að spá í hvort við ættum að gera það eða ekki, en við ákváðum að hafa þau í sparifötunum.“ Krefjandi en skemmtilegt Kristjana segir krakkana hafa kannast misvel við plötuna en þau hafi öll verið spennt að takast á við tónlist- ina. „Þeim finnst þetta alveg frábært. Þetta er lúmskt krefjandi og ég held að það hafi komið þeim svolítið á óvart. Það er mikið um tóntegundaskipti og taktskipti og svo eru mjög flóknar raddir inni á milli, mikið um þéttradd- arsöng. Sem er ekki algengt í rokk- tónlist, þannig að hljómalega er þetta oft á tíðum mjög djass- og klassískt- blandað í og með. Þetta er kannski ekki ósvipað því sem þau hafa kynnst í náminu tækni- lega séð, en mörg þeirra eru að syngja mjög djassaða eða þá poppskotna tón- list, þannig að þetta er kannski í fyrsta skipti sem þau syngja alvöru rokk. Söngnámið er líka mjög einstaklings- miðað nám en þetta er partur af nám- inu, að læra að koma fram og læra á æfingaferlið, sem getur verið mjög flókið og stórt, og að læra þessa fag- mennsku, að þurfa að koma á söng- æfingar til að syngja saman. Þetta er ekki eins og að vera í kór, þau þurfa að syngja þetta á fullu blasti í míkrófón og það þarf að hljóma mjög vel, þannig að við erum búin að vera með æfingar í gegnum söngkerfi og þau eru búin að vera að stilla sig saman. Þannig að þetta er gífurlegur lær- dómur sem þau fá af því að taka þátt í svona uppfærslu og þau koma vel skól- uð og svolítið sjóuð út í bransann, þau sem ætla sér í hann eftir námið. Ég held að það hafi komið þeim öllum mjög á óvart hvað þetta er flókið, en svo þegar þau hafa verið að æfa þetta hafa þau bara tekið ástfóstri við mús- íkina.“ Morgunblaðið/Kristinn Rokk „Þetta er ekki eins og að vera í kór, þau þurfa að syngja þetta á fullu blasti í míkrófón,“ segir Kristjana Stefánsdóttir söngkennari krakkanna. Lifun á fullu blasti í míkrófón  Tónlistarnemar í FÍH flytja Lifun eftir Trúbrot á tónleikum á föstudaginn  Lofa miklu rokki og róli  Meðlimir Trúbrots hafa boðað komu sína Hljómsveitin Trúbrot varð til árið 1969 í kjölfar þess að forsprakkar Hljóma og Flowers ákváðu að stofna nýja grúppu. Upphaflegir meðlimir sveitarinnar voru Gunnar Þórðarson, Rúnar Júlíusson, Shady Owens, Karl Sighvatsson og Gunnar Jökull Hákonarson. Lifun kom út 1971 og var þriðja plata sveitarinnar, en þegar hún kom út höfðu breytingar orðið á bandinu og meðlimir komið og far- ið. Shady hafði t.d. yfirgefið strák- ana en Magnús Kjartansson geng- ið til liðs við þá. Lifun var frumflutt í Háskólabíói 13. mars 1971 við mikinn fögnuð áheyrenda. Samning plötunnar og æfingar fyrir tónleikana tóku að- eins sex vikur en hún er af mörg- um talin ein besta íslenska plata sem út hefur komið og hefur með- al annars verið flutt af Sinfóníu- hljómsveit Íslands. Lifun var samin og æfð á sex vikum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.