Morgunblaðið - 30.04.2010, Side 19
Fréttir 19ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2010
STJÓRN Bandaríkjanna hefur samþykkt að reist verði vindorkustöð und-
an strönd Cape Cod (Þorskhöfða) og hún verður fyrsta vindorkustöð lands-
ins á hafi úti. Stöðin var samþykkt þrátt fyrir mikla andstöðu, meðal ann-
ars umhverfisverndarsinna og indíána, sem höfðu barist gegn henni í
tæpan áratug.
Samtök bandarískra vindorkufyrirtækja (AWEA) fögnuðu ákvörðun
stjórnarinnar og sögðu hana marka þáttaskil í vindorkuframleiðslunni í
landinu. Indíánaættbálkar á svæðinu sögðust hins vegar ætla að halda
áfram baráttunni gegn vindorkustöðinni fyrir dómstólum. Andstæðingar
stöðvarinnar segja hana m.a. spilla fiskimiðum, stefna flugvélum í hættu
og draga úr ferðaþjónustu á svæðinu. bogi@mbl.is
BANDARÍKIN
50 km
Atlantshaf
MASSACHUSETTS
Boston
New York
Martha’s
Vineyard
Cape
Cod
Nantucket
Cape Wind
verður reist
á sandrifi
Stjórnvöld í Washington hafa samþykkt að Cape Wind, fyrsta
bandaríska vindorkustöðin á hafi úti, verði reist undan strönd
Cape Cod þrátt fyrir mikla andstöðu við stöðina, m.a. indíána,
umhverfisverndarsinna og Kennedy-fjölskyldunnar
VINDORKUSTÖÐ Á HAFI ÚTI
Heimild: Capewind.org
VINDORKUSTÖÐIN Í HNOTSKURN
Bandarísk vindorkuver framleiða nú
28.206 megavött, eða um 1 prósent af
orkuframleiðslu landsins
Vindorkuverin hafa til þessa öll verið
reist á landi og vindorkuframleiðslan er
mest í Texas, Iowa, Kaliforníu, Minnesota
og Washington-ríki
Bandarísk fyrirtæki, sem ætla að reisa
vindorkustöðvar á hafi úti, beina einkum
sjónum sínum að austurströndinni vegna
þess að Kyrrahafið snardýpkar fyrr og
erfiðara er því að reisa vindmyllur við
vesturströndina
Gert er ráð fyrir því að í stöðinni verði
130 túrbínur sem framleiði 420
megavött, en það samsvarar um 75%
af orkueftirspurninni á svæðinu
Burðarstólpi
í sjó
Hæð turns:
78,6 m
Þvermál:
4,8 m
Burðarstólpinn á
að ná 24,4 metra
niður fyrir
sjávarbotninn
134m
Sjávarmál
Rafall
Oddhvasst
og mjótt
blað
Leyfir fyrstu bandarísku
vindorkustöðina á hafi úti
RÚSSNESKIR fjölmiðlar skýrðu frá því í gær að
Vladímír Pútín, forsætisráðherra Rússlands,
hefði farið í ferð með vísindamönnum til Frans
Jósefslands á norðurheimskautssvæðinu á dög-
unum. Pútín sést hér aðstoða vísindamennina við
að mæla ísbjörn sem svæfður hafði verið til að
rannsaka hann. „Ísbjörninn er herra norðurhjar-
ans,“ sagði Pútín sem strauk bjarndýrinu og
skók hrammana þegar mælingunum var lokið.
Reuters
PÚTÍN HEILSAR UPP Á HERRA NORÐURHJARANS
RÍKISSTJÓRI
Louisiana í
Bandaríkjunum,
Bobby Jindal,
lýsti í gær yfir
neyðarástandi
vegna mikils olíu-
leka sem ógnar
náttúruverndar-
svæðum við
ströndina.
Risastór olíu-
flekkur nálgast ströndina eftir að
sprenging varð í olíuborpalli í
Mexíkóflóa 20. apríl. Bandarísk yfir-
völd skýrðu frá því í gær að olíu-
lekinn væri fimm sinnum meiri en
áður var talið. Um það bil 5.000
tunnur af olíu streyma út úr borhol-
unni á degi hverjum, samkvæmt nýj-
ustu upplýsingum.
Minnst tíu friðlönd í hættu
Að minnsta kosti tíu nátt-
úruverndarsvæði í Louisiana og
Mississipi eru í hættu vegna lekans.
Við strönd Louisiana eru um 40% af
votlendi Bandaríkjanna og talið er
að olíumengunin geti ógnað varp-
stöðvum margra fugla og mikil-
vægum hrygningarstöðvum.
Lýst yfir
neyðar-
ástandi
Olíulekinn fimm sinn-
um meiri en talið var
Bobby
Jindal
FRÉTTASKÝRING
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
GILLIAN Duffy, 66 ára gömul ekkja
og eftirlaunaþegi, hafði skroppið út í
búð til að kaupa brauð og mjólk þegar
hún hitti breska forsætisráðherrann
Gordon Brown fyrir tilviljun á götu.
Samtal þeirra átti að vera ósköp
venjulegt spjall stjórnmálaleiðtoga og
kjósanda en varð að pólitísku klúðri
sem gæti orðið til þess að
Verkamannaflokkurinn ætti enga von
um að halda völdunum eftir kosning-
arnar á fimmtudaginn kemur.
Duffy hafði stutt Verkamannaflokk-
inn alla ævina en vogaði sér að bauna á
forsætisráðherrann óþægilegum
spurningum um innflytjendamál,
skatta og fjárlagahalla. Brown var
með þráðlausan hljóðnema frá sjón-
varpsstöð þegar hann talaði við kon-
una og virtist koma nokkuð vel út úr
samtalinu. Vel fór á með þeim þegar
þau kvöddust en þegar hann var kom-
inn inn í bíl sinn tók hann að baktala
Duffy, kallaði hana „fordómafulla
konu“. Hann virtist hafa gleymt því að
hann var enn með hljóðnemann og
komst að því síðar, sér til mikillar
hrellingar, að baktalið hafði verið tekið
upp og sent út í útvarpi og sjónvarpi.
„Þetta var hinn sanni Gordon
Brown – hörundsár, sjúklega tor-
trygginn og sífellt í leit að blóra-
böggli,“ sagði hægriblaðið Sun og
vinstriblaðið The Guardian lýsti klúðr-
inu sem mesta „pólitíska stórslysi“
kosningabaráttunnar.
„Missti þúsundir atkvæða“
Brown gerði strax örvæntingar-
fullar tilraunir til að „lágmarka skað-
ann“, eins og spunameistararnir kalla
það. Vandséð er þó að hann geti bjarg-
að sér út úr þessum vandræðum. For-
sætisráðherrann hefur verið staðinn
að því að segja eitt opinberlega, annað
á bak við tjöldin, viðra sig upp við kjós-
anda fyrir framan myndavélarnar en
niðra honum síðan þegar hann taldi að
enginn heyrði.
Þessi uppákoma hlýtur að verða til
þess að margir Bretar velti því fyrir
sér hvort Brown meini í raun og veru
það sem hann segir opinberlega þegar
hann reynir að koma sér í mjúkinn hjá
kjósendum.
Alan Johnson, innanríkisráðherra
Bretlands, sagði að forsætisráð-
herranum hefðu orðið á „hræðileg
mistök“ en hann væri ekkert
„skrímsli“ og hefði sjálfur ákveðið að
heimsækja Duffy til að biðja hana af-
sökunar.
Nokkrir ráðherrar í ríkisstjórn
Verkamannaflokksins óttast að klúður
Browns verði til þess að flokkurinn
geti ekki lengur gert sér vonir um að
halda völdunum, að sögn The Daily
Telegraph.
Blaðið segir aðstoðarmenn for-
sætisráðherrans hafa áhyggjur af því
að hann hafi misboðið milljónum kjós-
enda sem hafi svipaðar skoðanir og
Duffy á fjölda innflytjenda í landinu og
efnahagsmálum.
„Flokkurinn hefur ekki aðeins misst
atkvæði hennar, heldur einnig þús-
unda annarra sem hlusta á það sem
hún sagði og komast að þeirri niður-
stöðu að þeir séu sammála henni,“
hafði The Daily Telegraph eftir Lance
Price, sem var ráðgjafi Tonys Blairs í
forsætisráðuneytinu.
Spjallið varð að
pólitísku stórslysi
Forystumenn Verkamannaflokksins óttast að Brown hafi
misboðið milljónum kjósenda með því að baktala ekkjuna
Reuters
Niðurlútur Gordon Brown með
hljóðnemann afdrifaríka.
Sigurlíkur Verkamannaflokksins í
Bretlandi voru ekki miklar fyrir
en margir telja að þær hafi orðið
að engu með stórfurðulegu
klúðri Gordons Browns forsætis-
ráðherra í fyrradag.
Gordon Brown heimsótti Gillian
Duffy í um 40 mínútur eftir klúðrið
í fyrradag og aðstoðarmenn for-
sætisráðherrans reyndu að telja
hana á að fara út með honum til að
þau gætu tekist í hendur fyrir
framan fjölmiðlamenn en hún lét
ekki til leiðast, að sögn frænda
konunnar í gær.
Vildi ekki í myndatöku með Gordon Brown