Morgunblaðið - 30.04.2010, Side 38
38 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
MÉR
LEIÐIST
EN EKKI
OF MIKIÐ
HVAÐ ERT ÞÚ
AÐ GERA?
STEFNA
Í ÁTT AÐ
FULLKOMNUN
ÞÚ REIFST
HESTINN
MINN!
JÁ, MYNDIN HAFÐI
EKKERT LISTRÆNT GILDI
EKKERT LISTRÆNT GILDI?!?
ÞAÐ TÓK MIG ÞRJÚ KORTER
AÐ TEIKNA ÞENNAN HEST!
ALVÖRU LISTAVERK TAKA
MINNST KLUKKUTÍMA
ÞÚ MÁTT KALLA MIG UNGAN RÓMANTÍSKAN KJÁNA,
EN ÞEGAR ÉG HUGSA UM HJÓNABAND ÞÁ... ÞÚ ERT UNGURRÓMANTÍSKUR
KJÁNI
ELLI, ÉG HELD AÐ
ÞAÐ SÉ KOMINN TÍMI
TIL AÐ TAKA NÆSTA
SKREFIÐ Í ÞESSU
SAMBANDI
PRÓFAÐU
AÐ SEGJA
„HALLÓ“
LETIDÝRIÐ ELLI Á
HRAÐSTEFNUMÓTI
ÆTLAR
ÞÚ AÐ
KJÓSA
JOHN
McCAIN?!?
ÉG
TRÚI
ÞESSU
EKKI!
ÉG VEIT AÐ
ÞÚ HEFUR
VERIÐ AÐ
VINNA FYRIR
OBAMA HER-
FERÐINA, EN
SAMT...
ÞÚ VERÐUR AÐ
SJÁ HLUTINA Í
RÉTTU LJÓSI.
OBAMA HEFUR ÝMSA
KOSTI, EN HANN ER
SAMT BARA ENN
EINN PÓLITÍKUSINN
ÞÚ ERT FARIN AÐ
LÍKJAST HENNI MÖMMU
ÞINNI MEIRA OG MEIRA!
ÉG SAGÐI
BARA AÐ ÞAÐ ER
ÝMISLEGT VIÐ
HANN SEM MÉR
LÍST VEL Á
ÉG ER ALLT Í EINU
EKKI MJÖG HRIFINN
AF ÞVÍ HELDUR
ÞÚ ÆTTIR
AÐ LÁTA
HANN Í
FRIÐI!
HANN
ÆTTI
FREKAR AÐ
LÁTA ÞIG Í
FRIÐI!
ÉG ER EKKI
HRIFINN AF ÞVÍ AÐ ÞÚ
HITTIR FYRRVERANDI
KONUNA MÍNA!
ISbook
ISbook er ný og
skemmtileg tengsla-
netsíða sem er hönnuð
á Íslandi en er hýst hjá
tæknirisanum Webs í
Bandaríkjunum. ISbo-
ok býður notendum
upp á ýmsa afþrey-
ingu, eins og til dæmis
ókeypis kvikmyndir og
tónlist sem er alltaf
hægt að nota og
öruggara spjallforrit
en á Facebook og Mys-
pace, það kallast
,,Meboo’’ og er ein-
ungis aðgengilegt á
ISbook og öðrum WEBS-heimasíð-
um. ISbook verður sífellt stærri
með hverjum klukkutímanum sem
líður enda er vefurinn uppfærður
reglulega og einnig eru mun færri
auglýsingar en á Facebook, Mys-
pace og slíkum vefsíðum. Bíómynd-
irnar á ISsbook eru öllum aðgengi-
legar. ISbook er flott í útliti og mun
nútímalegri en Facebook og Mys-
pace. Sjá www.isbook.webs.com.
Sigþór Constantin.
Vélar í hreinsunina?
MIKIÐ dáist ég að hetjunum sem
fóru austur með tvær hendur sínar
og sálarkrafta að berjast við öskuna
undir Eyjafjöllunum.
Mér hefur dottið í hug að gúmmí-
hjólavélar með breiðkjafti gætu
drýlað öskunni á ökr-
unum undir Eyjafjöll-
unum núna meðan
ekki er komin mikil
bleyta í svörðinn. Akr-
arnir á Þorvaldseyri
og túnin á bæjunum í
kring yrðu þá eins og
Mini-Vatnsdalshólar til
að sjá, kannski yrði
líka skjól af drýlunum
og betri spretta í
kring. Drýlin má svo
hugsanlega verja fyrir
vindi með rúllubagga-
plasti fyrst og svo setti
maður kannski
grasfræ í þau (maður
má víst ekki stinga
upp á þjóðarblóminu sem Álfheiður
vill útrýma) og þá bindast þau til
sumarsins og áfram og geta þá
geymst til seinni tíma, komist á
Minjaskrá og orðið náttúruvætti.
Hola þau að innan og leigja túr-
istum.
Á milli drýlanna yrði styttra nið-
ur á grasrótina og þá gæti eitthvað
sprottið á milli þeirra.
Væri ekki gaman að gera ein-
hverjar tilraunir í öskufallsstjórnun
úr því að bæði gosstjórnun, fjár-
málastjórnun og ferðamálastjórnun
virðist vera lítt vera á færi Íslend-
inga?
Halldór Jónsson
Ást er…
… þegar margra mánaða
aðskilnaður gleymist á
augabragði.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30,
vinnustofur opnar kl. 9.- 16.30, út-
skurður, bingó sem vera átti kl. 13.30.
fellur niður.
Árskógar 4 | Smíðastofa opin kl. 9
Bólstaðarhlíð 43 | Kertanámskeið kl.
9. Dalbraut 18-20 | Söng- og
harmonikkustund kl. 14.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
botsía kl. 10.45. Listamaður mánaðar-
ins.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Fé-
lagsfundur í Stangarhyl 4 kl. 14 með
frambjóðendum til borgarstjórnarkosn-
inga 29. maí. Frambjóðendur skýra frá
stefnumálum sínum sem snerta eldri
borgara, fyrirspurnir, kaffiveitingar.
Dansleikur sunnudagskvöld kl. 20,
Borgartríó leikur fyrir dansi.
Félagsheimilið Gjábakki | Vegna opn-
unar á nýju félagsheimili eldri borgara í
Boðaþingi verður engin starfsemi í Gjá-
bakka eftir kl. 13.30 í dag. Félagsvistin
verður á sínum stað kl. 20.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl.
9.30 og 13, málm- og silfursmíði kl.
9.30, jóga kl. 10.50, félagsvist kl.
20.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Jóga kl.
9.30, ganga kl. 10, leikfimi kl. 10.30.
Gleðigjafarnir koma saman og syngja
kl. 14.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Félagsvist FEBG kl. 13, opið til kl. 16.
Furugerði 1, félagsstarf | Messa í dag
kl. 14. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson,
Furugerðiskórinn leiðir söng undir
stjórn Ingunnar Guðmundsdóttur.
Messukaffi.
Háteigskirkja | Brids fyrir konur alla
föstudaga kl. 13.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9,
botsía kl. 10, bókabíll kl. 14.45.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi
kl. 11.30, brids kl. 12.30, opið hús 6.
maí, dansleikur 7. maí, Þorvaldur Hall-
dórsson leikur og syngur. www.febh.is.
Hvassaleiti 56-58 | Vinnustofa kl. 9,
postulínsmálning, myndlist kl. 13, bingó
kl. 13.30, kaffisala í hléi. Baðþjónusta
fyrir hádegi, hársnyrting.
Íþróttafélagið Glóð | Botsía í Gjábakka
kl. 13. Uppl. í síma 554-2780 og á glod-
.is
Korpúlfar Grafarvogi | Laugardaginn 1.
maí er opið hús frá kl. 13-16 á Korpúlfs-
stöðum. Til sýnis og sölu verður ýmis
varningur sem Korpúlfar hafa unnið.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða-
klúbbur kl. 10.10, leikfimi kl. 11, opið
hús - vist/brids, veitingar kl. 14.30.
Norðurbrún 1 | Myndlist og útskurður
kl. 9, leikfimi kl. 13. S. 411-2760.
Vesturgata 7 | Skartgripagerð/
kortagerð, glerbræðsla, enska kl. 11 30,
tölvukennsla kl. 13.30, sungið við flyg-
ilinn kl. 14.30, kaffiveitingar kl. 14.30,
dansað í aðalsal.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, leir-
mótun kl. 9, handavinnustofan opin,
morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10,
bingó kl. 13.30.
Hjálmar Freysteinsson yrkir aðgefnu tilefni:
Flest þarf að skera naumt við neglur,
nú sækir kreppan okkur heim.
Þá eru settar siðareglur –
en svo er að fara eftir þeim.
Friðrik Steingrímsson í Mývatns-
sveit var fljótur að bæta við:
Eftir á margir naga neglur
og nægtalíf endi skjótan fær,
sumir halda að siðareglur
séu til þess að brjóta þær.
Það er jafnan auðsótt mál að fá
vísur Friðriks birtar:
Þó að bæði þetta og hitt
þurfi reglur strangar,
birta máttu bullið mitt
bara ef þig langar.
Ólafur Stefánsson heyrði af því,
að Sigrún Haraldsdóttir og Jón
Ingvar Jónsson væru hlið við hlið í
Vísnahorninu, og orti í léttum dúr:
Heyrði áðan undir væng,
– olli hugar pínu,
að þau væru í einni sæng
inni á Moggadýnu.
Sigrún svaraði að bragði: „Já, ég
er í góðum félagsskap í Mogganum
í dag.
Lítið heldur leiðist mér
lífið við að dunda.
Gríðarlega gaman er
með Gylfa, Jóni og Munda.
Þar er einnig Birgir Hartmanns-
son en ég kom honum ekki í vísuna
með góðu móti.“ Og hún bætti við:
Ég er eins og fleiri frúr,
forðast eymd og doða,
reyni að hafa alltaf úr
einhverju að moða.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af kreppu og siðareglum