Morgunblaðið - 30.04.2010, Side 24

Morgunblaðið - 30.04.2010, Side 24
24 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2010 ✝ Sigurður ArnarSvanberg Ein- arsson fæddist í Hafn- arfirði 23.10. 1936. Hann lést á heimili sínu, Erluási 2 í Hafn- arfirði, 23. apríl sl. Hann var sonur hjónanna Indíönu El- ísabetar Guðvarð- ardóttur f. 12.11. 1911, d. 18.5. 2006 og Einars Sigurðssonar f. 20.10. 1912, d. 10.9. 1942 úr Húnavatns- sýslunni. Systkini Sig- urðar eru Guðvarður Björgvin f. 21.7. 1931, d. 17.6. 1956, eftirlifandi maki hans er Jóna Bríet Guðjóns- dóttir, Sigurður f. 11.11. 1932, d. 25.10. 1935, Arnfríður f. 29.3. 1934, d. 12.6. 1935, Svana Einey f. 4.1. 1943, maki hennar er Pétur Haf- steinn Jóhannesson. Eftirlifandi maki Sigurðar er Lísabet Sólhildur Einarsdóttir ljósmóðir, f. 22.12. 1935, foreldrar hennar Viktoría Gunnarsdóttir látin og Einar Þór Jónsson látinn. Þau voru búsett að Völlum í Hvolshreppi. Börn Sig- urðar og Lísabetar eru 1) Indíana F. E., f. 1958, maki Aðalsteinn Að- alsteinsson, f. 1958, dóttir hennar er Laufey Birna Ómarsdóttir, f. 1977, maki Benedikt Guðmundsson, f. 1975, dóttir þeirra Eres Ósk, f. 2010. 2) Viktoría Ingibjörg, f. 1960, maki Jón Marías Torfason, þeirra börn a) Lísabet Ósk, f. 1981, maki Helgi Gunnarsson, f. 1980, þeirra börn eru Vikt- oría, f. 2004 og Breki, f. 2005, b) Arnar Bjarki, f. 1990, c) Al- dís Anna, f. 1991, d) Kristinn Þór, f. 1996. 3) Einar Svanberg, f. 1961, maki Dagrún Njóla, f. 1964, þeirra börn a) Birgir Þór, f. 1987, b) Viktoría Ósk, f. 1994, c) Óskar Örn, f. 1996, d) Ragnar Örn, f. 1999. 4) Sigríður Lísabet, f. 1963, maki Guðmundur Jónsson, f. 1957, þeirra börn a) Sól- ey, f. 1985, b) Jón Magnús, f. 1987, c) Sigurður Arnar, f. 1994, d) Guð- mundur Þór, f. 1995. 5) Sólborg, f. 1965, hennar synir a) Pálmar, f. 1989 b) Arnar, f. 1992 Sveinssynir. 6) Sigurður Arnar, f. 1969, maki Birna Kristjánsdóttir, f. 1970, dæt- ur þeirra a) Sóley Rut, f. 1994, b) Thelma Líf, f. 1999. Sigurður gekk í Iðnskólann og lærði bifvélavirkjun og vann við þá iðn í 20 ár. Síðan lá leiðin til Olíufé- lagsins. Þar vann hann við lag- erverslun í 27 ár. Sigurður verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þín ástkæra eiginkona, Lísabet. Elsku hjartans pabbi minn. Þú varðst þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að deyja heima í faðmi fjöl- skyldunnar með mömmu þér við hlið. Að fá að hjúkra þér í erfiðum veikindum dag og nótt voru for- réttindi fyrir mig sem ég hefði ekki vilja missa af, elsku pabbi minn. Þú misstir systkini þín ung og föður þinn einnig, en móður þína 95 ára. Þú varst fjórða barn for- eldra þinna fæddur í Kóngsgerði en það hét húsið sem þið bjugguð í þá. Seinna fluttust þið á Álfaskeið í Hafnarfirði en þá voru erfiðir tímar, ekki mikið um vinnu. Stund- um varð amma að sækja vinnu frá heimilinu. Þú sagðir mér sögur af því að í erfiðleikum og sorg þegar þú varst lítill strákur og gast ekki sofið þá fórst þú út í gluggann horfðir til himins og þegar skýin voru að dragast til fannst þér sem himnarnir opnuðust og þú sæir Jesú. Svona varst þú fallegur, elsku pabbi. Þú sagðir mér einu sinni frá æsku þinni. Þú máttir leika þér úti við á daginn eftir að þú varst bú- inn að læra. Þú varst strax mikið náttúrubarn. Úti hittust krakkarn- ir í götunni og gerðu ýmislegt skemmtilegt sér til dundurs. Það var farið í leiki eins og fallin spýta, það er nokkurs konar feluleikur, þú lékst þér líka með sippuband og hafðir gaman af. Svo þótti þér skemmtilegt að fara í yfir, þá var bolta hent yfir kofa og þurfti þá vinur þinn að vera hinum megin við kofann og grípa boltann. Þú áttir ekki mikið af leikföngum, það sem þú áttir bjóst þú til sjálfur. Þú smíðaðir þér bíla og varst þú með vegi út um allt, það var góður maður sem gaf þér gamla sög sem var hætt að bíta og notaðir þú hana sem fjöður í bílinn þinn. Þú smíðaðir þér líka byssur og sverð og það voru sko bardagar í göt- unni þinni. Þú lékst þér einnig í snjónum á veturna og skíðaðir um allan bæinn. Þú þurftir mikið að bjarga þér sjálfur, æska þín og uppeldi kenndu þér það og þú með þetta góða hugvit lagðir fljótt grunn að þeim góða duglega ástríka manni sem þú varst. Þú kenndir okkur systkinunum að hugsa í lausnum ekki í hindrunum Að tileinka sér jákvæðni og bæta sig daglega. Tala uppbyggilega um sjálfan sig og umorða vandamálin á jákvæðan hátt, þekkja kosti sína og rækta þá. Þú kynntist mömmu ungur, þið eignuðust mig og giftuð ykkur og skírðuð mig í leiðinni í stofunni heima hjá ömmu. Þar bjugguð þið fyrst. Þið eignuðust fimm börn til viðbótar, byggðuð ykkur fallegt heimili að Erluhrauni 2b, þar sem við ólumst upp við mikið ástríki. Í minni æsku var mikið farið í ferða- lög á sumrin, þá var gist í tjaldi og alltaf var verið að veiða fisk í Þing- vallavatni eða Rangánni. Þið héld- uð alltaf vel utan um hópinn ykk- ar, æska mín er uppfull af góðum minningum. Jólin pabbi. Þú varst svo mikið jólabarn, fórst í búning til að lesa upp pakkana fyrir okkur þegar við vorum lítil og seinna fyrir barna- börnin. Þingvellir, einhver fegursti staður landsins, þar byggðuð þið ykkur hús og þar hefur stórfjöl- skyldan oft verið saman komin við gleði og góðan mat. Takk fyrir að vera pabbi minn. Minningarnar um þig lifa sem gim- steinar. Þín dóttir, Indiana. Elsku hjartans pabbi minn. And- lát þitt bar að hægt og hljótt, frið- ur yfir og þjáningar þínar liðu frá. Móðir mín við hlið þér í rúminu ykkar, við börnin þín sex öll í kring. Eins og þú hefðir óskað þér og áttir þú það svo sannarlega skilið pabbi minn. Eftir sjúkdóms- greiningu þína ók ég eins og í draumi upp í Erluhraun. Þar byggðuð þið æskuheimili okkar systkinanna. Ég staðnæmdist við húsið svolitla stund og minning- arnar streymdu fram. Hugur minn leitar aftur um 30- 40 ár. Erluhraunið er malarvegur, allt iðar af lífi, börn á öllum aldri að leik. Ég 7 ára í hrauninu, hrufl á hnéð, fæ koss og plástur og lífið heldur áfram í leik og áhyggjuleysi æskunnar í hrauninu heima. Það kvöldar, systkinin háttuð í kojur, mamma og pabbi fara með bæn- irnar. Hvílíkur kærleikur – hvílík umhyggja. Ég aðeins eldri átta mig á því að síðasta setningin í faðirvorinu er ekki „og góða nótt elskurnar mínar“. Föstudagur „baðdagur“, börnin böðuð, tvö og tvö, ég og Sobba saman, Erluhraunið iðar af lífi, hlátrasköllin óma út í hraunið. Laugardagur í æsku minni, börnin í Erluhrauni fengu að vaka og fjöl- skyldan sameinaðist yfir banda- rískri bíómynd, tveir pakkar af ís, hvorum skipt í átta sneiðar og sykruð sólber með. Hvílík ánægja skein úr litlu andlitunum, hvílík gleði ríkti. Kisa sleikir bréfið, allir fá jafnt. Sunnudagur, afi og Sólborg í heimsókn, húsið ilmar af steiktum lambahrygg, afi með kóngabrjóst- sykur, pokanum skipt jafnt á milli barnanna. Hásumar, amma í heim- sókn, allir á svölunum, mamma smyr brauð og blandar djús á flösku. Undirbúningur í Erlu- hrauni fyrir jólin, það er bakað, eldað, föndrað og útbúnar jólagjaf- ir. Börnin bíða eftir pabba, hann kemur heim úr vinnu, þá geta jólin komið. Keyrum út gjafir, þvílík gleði og kærleikur í loftinu. Jóla- tréð bíður skreytt í stofunni. Við á leið með tjald til Þingvalla, mikil tilhlökkun, allir bíða spennt- ir. Pabbi veiðir í þjóðgarðinum, mamma sýður kartöflur og silung. Sigga fer ekki í skólann í dag, hún er með hita og uppköst, fæ að liggja í ykkar rúmi, pabbi kemur heim í hádeginu, óttast um Siggu sína, sest á rúmstokkinn, strýkur mér um ennið og óskar góðs bata. Hvílík umhyggja. Erluhraunið iðar af unglingum, líf og fjör, síminn hringir mikið. Börnin í Erluhrauni eru að fara út á lífið. Aldrei neinn með lykil, mamma og pabbi vaka eftir banki, allir skila sér á réttum tíma heim. Aldrei neinn í straffi, öllum treyst. Lífið hefur upp á margt að bjóða, margar leiðir í boði fyrir unglingana í Erluhrauni. Allir rata réttu brautina. Pabbi minn, takk fyrir að veita mér kærleiksríka, áhyggjulausa æsku, þar sem þarfir og hamingja okkar systkinanna var ávallt í fyr- irúmi. Takk fyrir að veita mér stuðning í öllu sem ég tók mér fyr- ir hendur og styrk í erfiðleikum. Takk fyrir að elska mömmu, virða og dá, öll ykkar ár. Það voru for- réttindi að hafa þig sem föður og fyrimynd í lífinu. Hvíl í friði, elsku pabbi minn. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Þín, Sigríður L. Það er skrýtið að sitja hér einn og hugsa til þess að þú sért farinn, pabbi minn, og hugsa til allra góðu stundanna sem við áttum saman. En þær ætla ég ekki að rifja upp hér. Guð sá að þú varst þreyttur og þrótt var ekki að fá, því setti hann þig í faðm sér og sagði: „Dvel mér hjá“. Harmþrungin við horfðum þig hverfa á annan stað, hve heitt sem við þér unnum ei hindrað gátum það. Hjarta, úr gulli hannað, hætt var nú að slá og vinnulúnar hendur verki horfnar frá. Guð sundur hjörtu kremur því sanna okkur vill hann til sín hann aðeins nemur sinn allra besta mann. (Höf. ók. Þýð. Á. Kr. Þorsteinsson) Takk fyrir allt og Guð geymi þig, pabbi minn. Sigurður Arnar. Það var mikið lán að kynnast Adda tengdaföður mínum sama ár og faðir minn lést skyndilega fyrir aldarfjórðungi síðan. Við náðum strax vel saman enda Addi hvers manns hugljúfi, léttlyndur, sannur vinur og fjölskyldufaðir. Í litlu samfélagi myndast oft skemmtileg tengsl og hafði Addi gaman að rifja upp frá bernskuárum sínum vinskap sinn við Guðmund afa minn, kaupmann í Hafnarfirði, ótal sögur af veiðiferðum, ekki þótti ónýtt í þá daga að eiga bindi sem keypt hafði verið í útlöndum. Það er dýrmætt ungu fólki að geta leitað til reyndari manna um hvað eina. Hann hafði sterkar skoðanir, ákveðinn, traustur og fastur fyrir. Addi var afar hand- laginn og skipti engu máli hvaða iðngrein var undir, allt lék í hönd- unum á honum, vandvirkur og kröfuharður, hans verk munu lengi standa. Adda verður sárt saknað af stórum hópi barna, þar er ríki- dæmi hans mikið. Þau hjón voru mjög samrýmd og náin, ferðuðust mikið hin síðari ár. Þau byggðu upp unaðsreit á Þingvöllum þar sem Addi naut sín öllum stundum. Það má segja að hans ókostur hafi verið hversu ósérhlífinn hann var, hann vann alltaf mikið, gleymdi sjálfum sér, skæðir sjúkdómar bönkuðu upp á sem hann hafði jafnan sigur á, sjónin skertist mik- ið hin síðari ár sem reyndist hon- um mjög þungbært. Enn réðst hinn illvígi sjúkdómur á hann og nú varð ekki við neitt ráðið. Ég vil að lokum þakka honum allt, minningin um þennan góðan mann mun ávallt lifa. Guðmundur Jónsson. Elskulegur tengdafaðir minn Sigurður Arnar Einarsson er lát- inn. Mig langar með nokkrum orð- um að minnast Adda en það var hann kallaður. Gleði, hlýja og sterk fjölskyldubönd og jákvæð sýn á lífið einkenndu hann. Sig- urður sagði alltaf að maður ætti að gera það sem maður vildi en ekki bíða með það því það gæti orðið of seint. Ég man svo vel eftir því er ég kynntist dóttur þeirra. Hún bauð mér heim í kaffi. Þá bjuggu foreldrar hennar hjá henni, þau Addi og Dista, en ég vissi ekkert um það, ég er ekki frá því að ég hafi fengið þarna kvíðasting er inn var komið, en sá kvíði hvarf fljótt er ég fann hvað þau tóku mér vel. Bros hlátur og spaug var aldrei langt undan hjá tengdaföður mín- um. Blessuð sé minning þín. Aðalsteinn. Elsku afi minn. Hér sit ég og reyni að koma í orð hversu mikilvægur einstak- lingur þú varst og munt ávallt vera í mínu lífi. Ég er svo lánsöm að hafa fæðst inn í þessa yndislegu fjölskyldu sem þú og amma eruð svo stolt af. Þú varst alla þína tíð svo duglegur maður, vannst mikið og vel og ólst af þér sex börn sem öll eiga um sárt að binda í dag. Fjölskyldan hefur farið stækkandi með hverju árinu og erum við barnabörnin nú orðin sautján og barnabarnabörnin þrjú. Þið amma hafið alltaf verið svo stolt af þessari fjölskyldu og því er það dýrmætt að þú hafir fengið þína síðustu ósk uppfyllta að kveðja þennan heim á þínu heimili með fjölskylduna hjá þér. Ég er svo lukkuleg að eiga fullt af minningum um þig, elsku afi minn. Þú varst alltaf svo jákvæður og studdir okkur barnabörnin í öllu sem við tókum okkur fyrir hendur. Ég man eftir páfagauka- ræktuninni sem þú varst með í bíl- skúrnum í Erluhrauni þegar ég var barn og eftir innkaupaferð- unum í Miklagarð. Fékk ég iðju- lega að borða kremkex á leiðinni heim sem þið amma keyptuð í stórum pokum. Og þegar þið amma voruð að passa mig og Lís- betu kúrðum við tvær á milli ykk- ar ömmu. Eins situr í mér þegar þú leiddir mig upp að altarinu í fermingunni minni, það þótti mér voða vænt um. Þið amma áttuð yndislegt heim- ili alla ykkar tíð og var ég svo lán- söm að búa hjá ykkur fyrstu fjög- ur árin í Erluhrauni. Þar var alltaf mikið líf og fjör og held ég að betri stað til að alast upp á sé erfitt að finna. Allir krikketleikarnir sem spilaðir voru á sumrin í garðinum, öll jólaboðin þar sem stórfjölskyld- an kom saman á aðfangadag og allar aðrar veislur sem haldnar voru í þessu húsi. Veisluhald var eitthvað sem þér leiddist alls ekki en þér þótti mjög notalegt að hafa alla fjölskylduna hjá þér. Fyrir rúmum tuttugu árum byggðuð þið amma sumarbústað á Þingvöllum. Þér þótti svo ómet- anlegt að geta eytt lunganum af sumrinu í sveitinni með Þingvalla- vatnið við hliðina á þér. Það eru ófáar veiðiferðirnar sem farnar hafa verið að vatninu og ævinlega verkaðir þú Þingvallableikjuna og eldaðir hana eftir kúnstarinnar reglum. Betri fisk þekktir þú ekki. Allt frá því að þú kynntist ömmu hefur samband ykkar verið aðdá- unarvert og hef ég ávallt tekið ykkar samband mér til fyrirmynd- ar. Þið minntuð mig alltaf á ást- fangna unglinga og varst þú ekk- ert feiminn við að segja við hvern þann sem þú hittir að Dista þín væri fallegasta konan sem þú hefð- ir augum litið. Samband ykkar var sterkt og samheldnari hjón hef ég ekki kynnst á minni ævi. Elsku afi minn, aldrei hefði mig grunað að þú fengir ekki meiri tíma hér á jörð. Að þú kæmist ekki í skírnina hennar Eresar Óskar og að þú fengir ekki meiri tíma með henni en þennan eina mánuð. Ég mun sjá til þess að minning þín muni aldrei gleymast og að Eres Ósk fái að heyra af því hversu yndislegur maður hann langafi hennar var. Betri mann er erfitt að finna. Ég mun ávallt elska þig, elsku afi minn. Hvíldu í friði. Þitt elsta barnabarn, Laufey Birna. Elsku afi Addi, þín er sárt sakn- að, við söknum gleði þinnar þegar við komum í heimsókn og hve ánægður þú varst þegar við kom- um í sveitina þína á Þingvöllum og veiddum handa þér fisk og þú tókst alltaf á móti okkur með bros á vör. Við munum alltaf muna eftir fallega dansinum þínum sem þú tókst fyrir okkur á Þingvöllum síð- astliðið sumar. Heimilið og fjölskyldan var ávallt efst í huga afa, hann naut sín best þar sem öll fjölskyldan var samankomin og sérstaklega þegar allir komu saman á Þingvöll- um og þegar við gerðum saman laufabrauð á jólunum sem var hefð á hverju ári. Amma og afi höfðu verið saman í tugi ára og fengu þau að skoða allan heiminn á þeim tíma, þau voru varla komin heim þegar þau voru búin að panta aðra ferð. Alltaf hugsaðirðu vel um okk- ur, afi, og vildir það besta fyrir okkur. Eins og þegar við fórum í heimsókn til ykkar ömmu og vor- um á leiðinni heim klukkan hálf Sigurður Arnar Svanberg Einarsson HINSTA KVEÐJA Elsku afi minn, ég sakna þín svo mikið en nú ertu kominn til Guðs og allra englanna. Ég veit samt að þú munt alltaf verða hjá okkur. Ég mun sakna þess að hafa þig ekki hjá okkur á Þingvöllum, ég sakna þess að geta ekki veitt fleiri fiska fyrir þig í soðið. Ég mun sakna þess að þú kemur ekki oftar í mat til okkar og ég mun sakna þess að þú verður ekki meira hjá okkur á hátíðum. Þinn, Guðmundur Þór.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.