Morgunblaðið - 30.04.2010, Síða 21

Morgunblaðið - 30.04.2010, Síða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2010 Torf á þingi Verið er að þökuleggja Austurvöllinn fyrir framan Alþingishúsið, þar sem þessi unga stúlka brá á leik á þökurúllunum. Ræðutextinn á þingi getur líka oft verið tyrfinn. Golli UNDANFARNIR mánuðir hafa um margt verið erfiðir fyrir íslensku þjóðina. Við hrun bankanna féll sú ímynd að Ís- land væri „stórasta land í heimi“ og að Ís- lendingar væru al- mennt séð hæfi- leikaríkari og betri en aðrir. Dómharka þjóð- arinnar í eigin garð er mikil og hleypur með ýmsa í gönur. Vissulega var margt sem fór aflaga í sam- félaginu síðastliðin ár en neikvæðni og hatur út í náungann eru ekki gildi sem æski- legt er að einkenni nokkurt samfélag. Horfum fram á við Við verðum að gefa sjálfum okkur þá gjöf að leyfa okkur að hugsa til framtíðar. Hugsa um það hvern- ig samfélag við viljum búa börnum okkar og barnabörn- um. Er það samfélag þar sem ein- staklingurinn fær að blómstra og umgjörð ríkisins er slík að hug- myndir íbúanna nái flugi? Eða er það samfélag reiði, neikvæðni og mótmæla við heimahús? Þrátt fyrir allt eigum við mikil sóknarfæri sem felast í því hversu ung og vel menntuð þjóðin okkar er, að ógleymdum þeim miklu nátt- úruauðlindum sem landið og fiski- miðin okkar geyma. Að ná jarðsambandi Náttúra Íslands hefur að und- anförnu minnt á hver það er sem ræður. Það eina sem við getum gert er að reyna að aðlaga okkur þeim aðstæðum sem hún býður hverju sinni. Þetta hefur íslenska þjóðin vitað í gegnum aldirnar og þó draumurinn um alheimsyfirráð hafi um stund villt okkur sýn þá byggjum við á sterkum grunni og því munum við standa atburði lið- inna missera af okkur. Verkefnin sem fylgja eru erfið og að sumu leyti ógnvekjandi en samhent við- brögð samfélagsins alls við þeirri vá sem steðjar að íbúum Eyjafjalla segja mér að Íslendingar kunna þrátt fyrir allt enn að standa sam- an. Að þessu leyti hefur Eyjafjalla- jökull gefið okkur jarðsamband að nýju. Samfélagið er sterkt og á þeirri staðreynd munum við byggja blómlega framtíð. Eftir Unni Brá Konráðsdóttur »Margt fór aflaga í samfélaginu sl. ár en neikvæðni og hatur út í náungann eru ekki gildi sem æskilegt er að ein- kenni nokkurt samfélag. Unnur Brá Konráðsdóttir Höfundur er þingmaður Sjálfstæð- isflokksins í Suðurkjördæmi Sterkt samfélag SAMKVÆMT lögum er Samgönguráði ætlað mik- ilvægt hlutverk við að und- irbúa samgönguáætlun. Ráðinu er ætlað að móta for- sendur samgöngustefnu sem ráðherra byggir á sínar til- lögur um uppbyggingu og rekstur samgöngukerfisins sem hann leggur fyrir Al- þingi til endanlegrar af- greiðslu. Enn þá er unnið eftir samgönguáætlun sem var mótuð árið 2005 Núverandi samgönguráðherra tók við ráðuneytinu 24. maí árið 2007. Síðan eru liðn- ir nærri ellefuhundruð dagar og nætur. Fljót- lega á ferlinum skipaði hann nýtt Samgöngu- ráð. Við skipun þess var ekki ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur. Varaformaður Samfylkingarinnar, Dagur B Eggertsson, var skipaður formaður ráðsins. Ég er þess full- viss að eftirmaður minn á stóli samgöngu- ráðherra batt miklar vonir við verk hins nýja formanns. Það var búist við snörum hand- tökum við að móta nýja, breytta og ekki síst „framsækna“ stefnu. Ekki síst þegar litið var til þess að sá hinn sami Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi og frv. borgarstjóri hafði mjög haft sig í frammi í umræðunni um samgöngu- mál og hafði fundið stefnu fyrrver- andi samgönguráðherra flest til for- áttu. Má þar t.d. nefna umræðu um að leggja ætti nýja Sundabraut hið snarasta þrátt fyrir að borgin hafi ekki lokið skipulagi. Loks taldi borgarfulltrúinn réttast að loka Reykjavíkurflugvelli sem fyrst og byggja þar þétta byggð til að auka framboð á íbúðarhúsnæði á höf- uðborgarsvæðinu. Allt fram til þessa dags, í nærri ellefuhundruð daga, hefur Samfylk- ingin sætt sig við að fylgja fram þeirri stefnu og forgangsröðun sem ég sem samgönguráðherra mótaði og fékk samþykkta á Alþingi árið 2005 sem langtíma- samgönguáætlun. Sú áætlun var síðan endur- skoðuð og samþykkt á Alþingis í mars mán- uði 2007 sem endurnýjuð áætlun fyrir tímabilið 2007 til 2010. Þessi metnaðarfulla áætlun var fyrsti hluti nýrrar langtímaáætl- unar sem átti að gilda til ársins 2018 með lög- boðnum endurskoðunaráföngum. Og hún hafði hlotið ríkulega umfjöllun í samgöngu- nefnd Alþingis. Því miður hefur ekki allt gengið eftir við að koma þessari áætlun í verk og fjölda verka verið frestað. Engu að síður hefur verið unn- ið við mörg mikilvæg og stór verk sem tekin hafa verið í notkun sem hafa gjörbreytt sam- göngukerfinu, s.s. tvöföldun Reykjanes- brautar og nýjan veg um Þröskulda og Ísa- fjarðardjúp svo fátt eitt sé nefnt . Að mati ráðherra Samfylkingarinnar var staða ríkissjóðs svo sterk í byrjun ársins 2008 að framlög til samgönguverkefna voru aukin til að vega upp samdrátt í þorskveiðum og var stefnt að því að hraða framkvæmdum samkvæmt hinni gömlu og góðu áætlun. En því miður hrundi allt áður en þau áform kom- ust til framkvæmda. Ný samgönguáætlun Kristjáns L. Möller og Dags B. Nú hafa þau tíðindi gerst að formaður Samgönguráðs hefur komið frá sér tillögu að samgönguáætlun. Ráðherra hefur lagt hana fyrir Alþingi. Þessir nærri ellefuhundruð dagar hafa verið notaðir til þess að setja sam- an áætlun sem færir engin ný verkefni fram í samgöngumálum þjóðarinnar. Engin ný stefnumótun eða tímamót umfram það sem er í gildandi áætlun. Áfram sömu áform um fjáröflun og framkvæmdir sem ég hafði und- irbúið og sett inn í áætlun og fengið sam- þykkta. Þar er meira að segja gert ráð fyrir Samgöngumiðstöð við Reykjavíkurflugvöll eins og áður. Hins vegar eru felld burt mik- ilvæg verkefni í vegagerð, s.s. framkvæmdir við Sundabraut og jarðgöng milli Arn- arfjarðar og Dýrafjarðar auk fjölmargra ann- arra smærri vegabóta, helst á landsbyggð- inni. Jarðgöngin úr Dýrafirði eru lykill að eflingu byggðar á Vestfjörðum. Vegabætur á sunnanverðum Vestfjörðum ættu að vera keppikefli miðað við þá áherslu sem við verð- um að leggja á hagkvæman rekstur í sjávar- útvegi í kjölfar hrunsins. Það er því spurt: Hvað varð um öll loforðin og áformin sem varaformaður Samfylking- arinnar og formaður Samgönguráðs hefur haft uppi um breytta stefnu í samgöngu- málum svo ekki sé talað um samgöngu- ráðherra? Enn öðlast hugtakið „dagsatt“ nýja og breytta merkingu. Hvað segja þing- menn Samfylkingarinnar um þessa forystu varaformannsins í samgöngumálum? Enn um stund verða þau að ylja sér við verkefni í samgöngumálum sem sjálfstæðismenn settu af stað. Það hefur ekkert heyrst frá þing- mönnum Samfylkingarinnar sem hömpuðu stefnu flokks síns í samgöngumálum fyrir kosningarnar. Lítið er geð guma. Eftir Sturlu Böðvarsson »Hvað varð um öll loforðin og áformin sem varafor- maður Samfylkingarinnar og formaður Samgönguráðs hefur haft uppi um breytta stefnu í samgöngumálum, svo ekki sé talað um samgönguráðherra? Sturla Böðvarsson Ný samgönguáætlun Dags B. Eggertssonar Höfundur er fyrrverandi samgönguráðherra og forseti Alþingis.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.