Morgunblaðið - 30.04.2010, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 30.04.2010, Blaðsíða 28
✝ Gunnar fæddist íReykjavík þann 20.10. 1941. Hann lést á Landspítalanum 26. apríl. Foreldrar Gunnars voru Árni Jóhanns- son, f. 26.3. 1913, d. 19.12. 1995 og Ingi- björg Álfsdóttir, f. 29.12. 1916, d. 20.8. 2009. Systkini Gunn- ars, 1) Sigurrós Jó- hanna, f. 29.7. 1939, 2) Helga Elísabet, f. 22.2. 1943 og 3) Jóhann, f. 1.6. 1950. Gunnar kvæntist Guðnýju Jónasdóttur f. 7.12. 1948, þroska- þjálfa, þann 31.8. 1970. Foreldrar hennar voru: Jónas Jóhannesson f. 4.2. 1904, d. 15.2. 1974 og Lára Gunnarsdóttir f. 21.1. 1917, d. 26.4. 2) Jónína, f. 6.3. 1975, viðskipta- fræðingur. Eiginmaður hennar er Guðni Ingvason f. 18.1. 1974, stjórn- málafræðingur. Sonur þeirra er Ar- on Elí f. 13.8. 2002. Sonur Jónínu er Gunnar Árni f.17.2. 1997. 3) Gunnar Már f. 18.5. 1978, tölvunarfræð- ingur. Kona hans er Laufey Þór- arinsdóttir f. 11.5. 1979, leikskóla- kennari. Sonur þeirra er Þórarinn f. 19.11. 2008. Gunnar var hárskeri að mennt og starfaði lengst af við þá iðn á eigin stofu, Hárstofunni í Hafn- arfirði. Fyrir 20 árum hóf hann störf hjá Orkuveitu Reykjavíkur, áður Raf- magnsveitu Reykjavíkur, og vann þar til ársins 2008 er hann lét af störfum. Gunnar var mikill fjöl- skyldumaður, hafði yndi af hvers kyns útiveru, þar á meðal golfi, veið- um og gönguferðum. Þá var hann virkur félagi Oddfellowreglunnar. Útför Gunnars verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 30. apr- íl og hefst athöfnin kl. 13. 1993. Lengst af bjuggu þau Gunnar og Guðný í Hafnarfirði en fluttu síðan í Garðabæ. Fyrir þrem- ur árum fluttu þau í nýja íbúð að Hallakri 1 í Garðabæ. Börn Gunnars og Guðnýjar eru: 1) Hilmir Þór f. 24.8. 1971, mál- arameistari og bygg- ingafræðingur. Sam- býliskona hans er Steinunn Lund, f. 14.9. 1973, móttökuritari. Börn þeirra eru: Kristjana Guðný, f. 19.8. 2006 og Hilmir Þór f. 8.1. 2010. Dóttir Hilmis fyrir sambúð er Ok- tavía Signý f. 28.2. 1996. Sonur Steinunnar fyrir sambúð er Sveinn Andri f. 8.1. 1998. „Þakka þér fyrir samveruna Stein- unn mín og hvað þú hefur verið mér góð tengdadóttir.“ Með þessum hlýju orðum kvaddi Gunnar mig og svo sannarlega var hann góður tengda- faðir. Strax við fyrstu kynni tókst með okkur samband, byggt á vænt- umþykju og trausti. En ég kom ekki ein í fjölskyldu Gunnars, með mér kom einnig Sveinn Andri sonur minn. Ég veit að í slíkum tilfellum geta orð- ið hnökrar og vandamál en því var ekki til að dreifa hjá þeim hjónum Guðnýju og Gunnari, þau buðu son minn velkominn í hópinn og í þeim eignaðist hann nýja ömmu og afa til viðbótar þeim sem fyrir voru. Fyrir þetta eitt og sér erum ég og sonur minn óendanlega þakklát. Gunnar var í eðli sínu hógvær og laus við alla framagirni. Fjölskyldan var honum allt, Guðný, börnin, tengdabörnin og svo barnabörnin sem komu í heiminn hvert á fætur öðru. Stundanna með þeim naut hann til fulls og barnabörnin fundu fljótt að hjá afa og ömmu áttu þau tryggt at- hvarf. Fyrir um tveimur árum hætti Gunnar að vinna eins og sagt er og hlakkaði til að eyða efri árunum með fjölskyldunni – ferðast, spila golf og annað það sem fólk á „besta aldri“ sér fram á að geta leikið sér við að lokinni langri starfsævi. En margt fer öðru- vísi en ætlað er og fyrir rúmu ári greindist Gunnar með þann illvíga sjúkdóm sem nú hefur lagt hann að velli – eins og svo marga aðra. Í fyrstu virtust horfur góðar en svo kom, að öllum var ljóst í hvað stefndi, þar á meðal Gunnari sjálfum, sem horfði raunsæjum augum á málið. Til Gunnars og Guðnýjar var gott að koma og mikið var gaman að fá þau í heimsókn. Dóttir okkar Hilmis, Kristjana Guðný, varð einn af auga- steinum afa síns og sú stutta var ekki lengi að átta sig á elskulegum afa sem var svo gott að koma til. Alltaf á þriðjudögum náði afi í hana á leik- skólann og svo var farið á rúntinn og keyptur ís. Í janúar sl. fæddist svo einn afastrákur í viðbót og Gunnar naut þess innilega að hafa litla dreng- inn hjá sér og hann þykir líkjast afa sínum. Síðustu daga Gunnars vék fjöl- skyldan ekki frá honum og börnin hans og kletturinn hún Guðný stóðu hvíldarlaust vaktina. Gunnar vissi í hvað stefndi, kvaddi fólkið sitt og þakkaði því samveruna hér á jörðu – æðrulaus mætti hann örlögum sínum og skapara. Við sem eftir sitjum söknum Gunn- ars óumræðilega mikið og trúum því vart að hann sé ekki lengur meðal okkar, glaður og hress – brosandi og góður, en svona er lífið sem Drottinn bæði gefur og tekur. Börnin eiga einnig eftir að sakna afa, en eftir lifa dýrmætar minningar. Ég kveð kæran tengdaföður með þakklæti og bið algóðan Guð að veita Guðnýju og fjölskyldunni allri styrk og trú á erfiðum tímum. Guð blessi þig Gunnar minn og varðveiti þig að eilífu. Þín tengdadóttir, Steinunn Lund. Afi minn var sá sem allir eiga góðar minningar um. Hann var sá sem sýndi öllum í kringum sig ást og um- hyggju og veitti okkur þann styrk sem við þurftum til að halda áfram og lifa lífinu. Það skipti hann miklu máli að fólkinu sem honum var annt um liði vel og héldi í gleðina í lífi sínu. Ég er þakklát fyrir allar þessar stundir sem ég átti með afa og voru þær allar alltaf dásamlegar. Við vorum alltaf hlæjandi, brosandi og grínuðumst mikið saman. Ég ferðaðist mikið með afa og ömmu og fórum við oft að Úlfljóts- vatni í sumarbústað. Ég á endalausar minningar úr þessum ferðalögum þar sem við skemmtum okkur saman. All- ar róluferðirnar með afa eru mér minnisstæðar og sérstaklega þegar við afi stukkum ofan af grindverkinu, róluðum svo hátt upp í loftið, fram og aftur, hring eftir hring og afi gaf frá sér indjánahljóð. Þannig var afi, alltaf svo hress og kátur. Í ferðalögunum spiluðum við á hverju kvöldi og var svartipétur vinsælastur. Á kvöldin var farið í kvöldgöngur þar sem við krakkarnir höfðum gaman af þegar afi hræddi okkur með alls kyns sög- um og hljóðum. Afi sýndi mér mikla þolinmæði þegar hann kenndi mér golf og er ég mjög þakklát fyrir það. Við fórum marga golfhringi saman og veit ég að afi mun standa hjá mér, í bláa jakkan- um og með derhúfuna, og styðja mig í öllu því sem ég tek mér fyrir hendur. Mér finnst eins og það hafi verið í gær sem afi leyfði mér og Gunnari Árna frænda mínum að kíkja í „stjörnukíki“. Þá sagði afi okkur að leggjast á gólfið og kíkja á stjörnurn- ar og lét jakkann sinn yfir okkur og við kíktum út um ermina á jakkanum. Afi lét þá smá vatnsgusu, sem átti að vera stjörnur, falla niður í ermina og framan í okkur. Við höfðum mikið gaman af þessu fyndna uppátæki afa. En nú er afi kominn þangað sem stjörnurnar eru, á góðan stað þar sem hann hefur fengið hvíld. Ég mun alltaf hugsa um þig hvar og hvenær sem er, hverja einustu stund, þú munt ávallt vera fremstur í mínu hjarta. Þú ert hetjan mín, elsku afi. Þín, Oktavía Signý. Við kveðjum í dag kæran bróður, Gunnar Árnason. Margar minningar koma í hugann, ljúfar og fallegar æskuminningar frá Miðhúsum á Lindargötu 43a í Reykjarvík, þar sem við vorum bæði fædd og uppalin. Esj- an, Viðey og Engey voru útsýnið úr eldhúsglugganum okkar og stutt var í fjöruna við Skúlagötu sem hafði alltaf mikið aðdráttarafl. Þetta var á þeim árum þegar hægt var að leika horna- bolta og brennibolta á götunni, renna sér á skíðum niður Vatnsstíginn í einni bunu frá Laugavegi og niður á Skúlagötu. Arnarhóllinn var líka vin- sælt leiksvæði, allt umhverfið var æv- intýri líkast, þarna liðu árin falleg og áhyggjulaus með góðum foreldrum, öfum og ömmum, skyldmennum og góðum vinum. Gunni var kraftmikill ungur mað- ur, hann hafði ávallt mikið hug- myndaflug, hann var fljótur að safna saman hóp af krökkum og leiða þau með sér í mörg ævintýrin. Hann var góður drengur, sem sýndi sig best í því þegar hann laumaðist í skápana heima eftir mat fyrir villikettina og jafnvel rotturnar sem þarna voru, þær fengu jafnvel náð fyrir hans aug- um. Útigangsmenn sem áttu sér heimili í sundi fyrir neðan húsið okk- ar, fengu margan matarbitann hjá honum og voru margir þeirra hans bestu vinir. Þessi ljúfmennska fylgdi Gunna alla tíð, hann var aldrei mikið fyrir að tala um sjálfan sig og það sem hann gerði. Hann vildi frekar miðla öðrum með gæsku sinni. Honum verður aldrei fullþakkað fyrir um- hyggjuna sem að hann sýndi móður okkar eftir að pabbi fór. Elsku Gunni, þín er sárt saknað af okkur öllum, ég er þakklát fyrir góðu stundirnar og símtölin sem við áttum síðustu vikur. Vonandi ertu kominn á grænar grundir og farinn að sveifla golfkylfunni sem þú hlakkaðir svo til að gera í sumar. Ég hef trú á því að leiðir okkar eigi eftir að liggja saman á æðra tilverustigi. Góði Guð styrki Guðnýju og börnin ykkar á erfiðri stund. Elsa systir. Baráttunni var lokið og það voru erfið spor að heimsækja Gunna í síð- asta sinn, minn besta vin í meira en hálfa öld. Hvernig tekst mér að horf- ast í augu við dauðann? hugsaði ég. Ég þurfti ekki að óttast, Gunni sjálfur tók á móti því óhjákvæmilega af sinni eðlislægu ró. „Maggi minn,“ sagði hann „ég er bæði sáttur og þakklátur – því ég hef átt mjög gott líf“. Þrátt fyrir þá ósk að fá að njóta þessa góða lífs enn um stund tók hann því sem ekki verður umflúið með einstöku æðruleysi. Hann kvaddi fjölskyldu sína með ást og þakklæti og sú ynd- islega stund sem ég átti með honum, þar sem hann var vafinn elsku sinna nánustu, sýndi mér hvernig á að horf- ast í augu við dauðann. Við Gunni kynntumst á unglings- árum og urðum strax góðir vinir og þótt við værum ekki úr sama hverf- inu, ekki í sama skóla og ekki í sömu klíku dró eitthvað okkur hvorn að öðrum. Vináttan óx eftir að við kvæntumst okkar góðu konum, sem vildu samt, þótt óskiljanlegt sé, reyna að betrumbæta okkur. Við vorum t.d. sendir á matreiðslunámskeið og tangónámskeið, en ekki er ég viss um að við höfum átt erindi sem erfiði. Ég minnist óteljandi veiðitúra sem við fórum í án þess að koma með nokkra fiska heim en við nutum hverrar stundar, enda var hægt að ræða við Gunna um heima og geima eða bara þegja. Maður var alltaf maður sjálfur með honum. Allra okkar samveru- stunda, hvort sem var í sólarlanda- ferðum með börnin ung, í berjamó, göngutúrum eða í brids er ljúft að minnast. Aldrei féll skuggi á okkar vináttu. Þegar Margrét mín kvaddi Gunna í hinsta sinn á sumardaginn fyrsta sl. rifjaði hann upp Rómarferð, sem við fórum í tilefni sextugsafmælis okkar beggja í október 2001. „Margrét,“ sagði hann „ég sé mest eftir því að hafa ekki, eins og þú, skriðið upp Scala Santa og þakkað í hverri tröppu fyrir allt það góða sem mér hefur hlotnast, því það er, eins og þú sagðir, það eina sem við getum gert“. Í þess- um orðum skynja ég vel af hverju Gunni var gæfumaður í lífi sínu, hon- um var svo eðlislægt að njóta og gefa af sér. Með þeim orðum þakka ég vináttu okkar. Blessuð sé minning Gunnars Árnasonar. Magnús Jónsson. Gunnar Árnason HINSTA KVEÐJA Undanfarna daga hefur Okt- avía, dóttir mín, verið dugleg að segja mér sögur af sér og afa Gunnari. Gaman hefur verið að hlusta á sögurnar úr ferðalög- unum sem hún hefur farið í með afa og ömmu Guðnýju. Gunnar reyndist Oktavíu ætíð vel. Með góðsemi sinni og allri þeirri ást og hlýju sem hann veitti henni þakka ég fyrir. Ég sendi fjölskyldu Gunnars mínar dýpstu samúðarkveðjur. Berglind Þyri Finnbogadóttir. 28 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2010 ✝ Kristín Ísleifs-dóttir fæddist í Miðkoti, Fljótshlíð, 3. desember 1927. Hún lést á líknardeild Landspítalans Landa- koti 23. apríl sl. For- eldrar hennar voru Ísleifur Sveinsson, bóndi og trésmiður, f. 18. júní 1900 í Mið- koti, Fljótshlíð- arhreppi, Rang- árvallasýslu, d. 21. apríl 1981 og Ingi- björg Kristjánsdóttir, húsfreyja, f. 26. desember 1891 á Voðmúlastöðum, Austur-Land- eyjahreppi, Rangárvallasýslu, d. 5. október 1970. Systkini Kristínar eru: Kristbjörg Lilja Árnadóttir, f. 21. mars 1914, d. 17. janúar 1985, Sveinn Ísleifsson, f. 22. ágúst 1923, d. 22. júlí 1989, Margrét Jóna Ís- leifsdóttir, f. 8. október 1924, Bóel Ísleifsdóttir, f. 13. apríl 1926, Ís- björg Ísleifsdóttir, f. 14. apríl 1929 og Guðrún Ísleifsdóttir, f. 12. sept- ember 1930. Eftirlifandi eiginmaður Krist- anna Jónsdóttir, f. 11. mars 1974. Ingibjörg Guðjónsdóttir, f. 16. febrúar 1953. Guðjón Axel Guð- jónsson, f. 26. september 1968, maki Katrín Björk Eyvindsdóttir, f. 6. apríl 1981. Börn þeirra eru: Sandra Dögg, f. 28. september 2000, Thelma Rún, f. 12. júní 2002, og Rakel Lilja, f. 20. september 2006. Kristín Laufey Guðjóns- dóttir, f. 16. október 1971, maki Óðinn Jónasson, f. 19. janúar 1969. Börn þeirra eru Arna Björk, f. 1. ágúst 1995, Tómas Darri, f. 17. október 1999, og Ísleifur Óli, f. 9. febrúar 2008. Barnabarnbörn Kristínar eru 13 talsins. Kristín ólst upp í Miðkoti í Fljótshlíð til ársins 1942 er fjöl- skyldan fluttist á Hvolsvöll. Þar kynntist Kristín eftirlifandi eig- inmanni sínum, Guðjóni Tóm- assyni, og hófu þau búskap sinn þar 1951. Þau fluttust til Reykja- víkur árið 1955 og var þeirra fyrsta heimili í Þingholtsstræti 8. Þar bjuggu þau til ársins 1963 er þau hófu byggingu raðhúss í Álfta- mýri 53. Þar var þeirra sameig- inlega heimili til ársins 2008 er Kristín fluttist á Kleppsveg 62. Útför hennar fer fram frá Há- teigskirkju föstudaginn 30. apríl 2010 og hefst athöfnin kl. 15. ínar er Guðjón Tóm- asson, f. 16. mars 1931 í Reykjavík. Kristín og Guðjón gengu í hjónaband 15. mars 1953 og eignuðust fjögur börn en fyrir átti Kristín einn son. Börnin eru: Krist- mann Grétar Ósk- arsson, f. 24. apríl 1944, maki Bergljót Hermundsdóttir, f. 17. desember 1943. Þeirra börn eru: Gyða, f. 7. mars 1964, maki Jón Ríkharð Kristjánsson, f. 4. júní 1967, Auður, f. 11. september 1973, maki Þórður Pálmason, f. 11. nóv- ember 1956, og Kristín Margrét, f. 20. ágúst 1979, maki Jóhann Ölvir Guðmundsson, f. 24. desember 1976. Sigríður Guðjónsdóttir, f. 27. september 1951, maki Jón Ingvars- son, f. 8. febrúar 1946. Börn Sig- ríðar eru: Guðrún Þóra Björns- dóttir, f. 25. október 1971, og Kristín Lilja Björnsdóttir, f. 6. des- ember 1979. Dóttir Jóns er Sús- Elskuleg móðursystir mín, Kristín Ísleifsdóttir, er látin. Á þessari stundu er mér efst í huga þakklæti fyrir hennar góðvild í minn garð. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að búa á heimili hennar um tíma þegar ég, ung sveitastelpan, var að fóta mig í höf- uðborginni. Hún hlúði að mér á þann hátt sem ég mun aldrei gleyma. Alla tíð síðan hefur verið mikill samgangur okkar á milli. Síðustu 15 árin höfum við búið við sömu götu og notið nálægðarinnar hvor við aðra. Margar góðar stundir höfum við átt saman yfir sameig- inlegu áhugamáli okkar, sem er prjónaskapur. Stína var algjör snillingur á því sviði og af hennar viskubrunni var ómetanlegt að nema. Þau eru mörg falleg hand- verkin sem liggja eftir hana meðal frændfólksins. Fyrir tryggð, ástúð og um- hyggju, einlægan áhuga á mér og mínum, þakka ég af alhug. Hver minning dýrmæt perla að liðn- um lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Sofðu rótt, Erna Hanna Guðjónsdóttir. Þegar við fluttum í Álftamýrina fyrir 35 árum leið ekki á ýkja löngu áður en tvær ungar frænkur birtust á tröppunum hjá okkur og spurðu hvort þær mættu sjá „baddið“. Önnur telpnanna var dóttir Kristínar Ísleifsdóttur, hin dótturdóttir. Telpurnar héldu áfram að hafa áhuga á barninu og þetta leiddi til þess að fljótlega komst á kunningsskapur við mömmuna og ömmuna, Kristínu, og reyndar alla fjölskylduna í Álftamýri 51. Þessi kunningsskap- ur varð fljótlega að vináttu sem haldist hefur allt til þessa dags. Kristín var mannkostakona, góð heim að sækja, greiðvikin og hjálp- söm ef þess þurfti með. Hún barst ekki mikið á. En hún vissi vel hvað var að gerast umhverfis hana, fylgdist vel með nágrönnunum enda vel liðin af þeim öllum. Hún hafði gott lag á að umgangast börn, en einnig var hún dýravinur. Hún var ötul við að rækta garðinn sinn, hafði það sem margir kalla græna fingur. Hún var þeirrar gerðar sem naut þess meir að gefa en þiggja. Allir þessir eiginleikar komu vel fram í umgengni okkar við hana. Ekki skal fjölyrt frekar um mannkosti Kristínar. Nú þegar hún er horfin okkur er okkur efst í huga þakklæti fyrir ótal samveru- stundir og margan þann greiða sem við nutum af hennar hendi. Við sendum eiginmanni hennar, börnum og barnabörnum innilegar samúðarkveðjur og óskum þeim blessunar Guðs. Hanna S. Antoníusdóttir og fjölskylda. Kristín Ísleifsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.