Morgunblaðið - 30.04.2010, Page 37

Morgunblaðið - 30.04.2010, Page 37
Dagbók 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2010 Sudoku Frumstig 4 3 5 8 9 6 2 5 4 9 3 6 4 1 8 2 2 1 3 2 5 8 9 1 6 4 1 4 7 3 7 2 8 1 2 1 9 7 3 8 9 6 2 3 1 8 6 4 6 3 8 5 8 7 4 5 2 9 3 8 4 9 9 2 6 7 3 7 3 2 5 3 2 5 5 4 8 6 1 9 6 5 7 2 3 8 4 5 7 4 3 8 6 1 2 9 2 3 8 9 4 1 5 7 6 4 1 5 2 3 7 9 6 8 7 6 3 1 9 8 2 4 5 9 8 2 6 5 4 7 1 3 8 2 9 4 1 5 6 3 7 6 5 7 8 2 3 4 9 1 3 4 1 7 6 9 8 5 2 3 6 7 8 5 4 2 9 1 1 9 5 3 2 6 8 7 4 4 8 2 7 1 9 3 5 6 2 5 1 9 6 8 4 3 7 7 4 9 2 3 5 1 6 8 8 3 6 4 7 1 9 2 5 5 2 3 1 4 7 6 8 9 6 1 8 5 9 3 7 4 2 9 7 4 6 8 2 5 1 3 9 7 3 1 5 4 2 6 8 4 8 6 7 3 2 1 9 5 2 5 1 8 6 9 7 3 4 5 6 8 2 1 3 4 7 9 7 3 2 4 9 8 5 1 6 1 9 4 6 7 5 8 2 3 3 2 5 9 4 1 6 8 7 8 4 7 3 2 6 9 5 1 6 1 9 5 8 7 3 4 2 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 30. apríl, 120. dagur ársins 2010 Orð dagsins: En Jesús sagði við þá: „Gjaldið keisaranum það, sem keis- arans er, og Guði það, sem Guðs er.“ Og þá furðaði stórlega á honum. (Mark. 12, 17.) Þegar rykið virtist vera að setjastog ákveðin ró að færast yfir á ný í samfélaginu kom enn ein sprengjan. Súkkulaðifíklar eru þunglyndari en þeir sem borða minna súkkulaði, samkvæmt nýlegri könnun í Kaliforníu. x x x Víkverji telur sig vera í hópi létt-ari manna, að minnsta kosti hvað hugarfar og skaplyndi varðar. Hins vegar tók hann eftir því fyrir um tveimur árum að sum föt hans í klæðaskápnum voru í þrengra lagi en hann sá ljósið í myrkrinu. Minn- ugur slagorðsins, í kjólinn fyrir jólin, og þeirrar staðreyndar að karlar eru lengur að sumu en konur, setti hann sér það markmið að komast í fötin í sumarbyrjun 2010. Það þýddi tölu- verð umskipti, aukna hreyfingu og breytt mataræði, en allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Um árabil hafði Víkverji lagt sitt af mörkum til að halda lífinu í sæl- gætisframleiðendum og ekki síst súkkulaðiverksmiðjum. Síríus súkkulaði með rúsínum eftir stað- góðan morgunmat gaf auk þess tón- inn fyrir góðan dag og svefninn var sjaldan betri en eftir góðan skammt af Nóakroppi yfir sjónvarpinu. Fátt var betra en súkkulaði á milli mála og helst mikið af því. Fyrir tveimur árum lauk þessari sælu. Ekkert súkkulaði í tvö ár. Og það sem meira var. Engar hnallþórur, nánast engin aukasætindi fyrir utan hunangið í teið. Stundum hvarflaði að Víkverja að hætta þessari vitleysu og kaupa ný föt í stað þess að halda í gömlu druslurnar en þrjóskan var öllu yf- irsterkari. Og hún gerði skemmti- legt líf enn skemmtilegra. x x x Í vikunni lauk tveggja ára súkku-laðibindindi Víkverja og hann hugsaði sér gott til glóðarinnar. Nú skyldi tekið á því. En gleðin var skammvinn og í gær hrökk Víkverji hreinlega í lás. Hvort það var gamla brjósklosið eða súkkulaðileysið á eft- ir að koma í ljós. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 sjá eftir, 4 hungruð, 7 trylltur, 8 fífl, 9 hagnað 11 hreyf- ist, 13 espi, 14 múlinn, 15 hrörlegt hús, 17 skyn- færi, 20 elska, 22 borð- að, 23 gömul, 24 rót- arskapur, 25 smáöldur. Lóðrétt | 1 ferill, 2 lestr- armerki, 3 siga, 4 brytj- að kjöt, 5 styrk, 6 skoff- ín, 10 romsan, 12 rándýr, 13 samtenging, 15 kvenfuglar, 16 fnyk- ur, 18 furða, 19 bára, 20 mannsnafn, 21 nöldur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 heilbrigð, 8 fenni, 9 fuður, 10 fet, 11 síðla, 13 asnar, 15 sterk, 18 sakka, 21 ell, 22 magur, 23 atóms, 24 harðjaxla. Lóðrétt: 2 efnað, 3 leifa, 4 rifta, 5 gæðin, 6 ofns, 7 grær, 12 lár, 14 sóa, 15 sómi, 16 eigra, 17 kerið, 18 slaga, 19 kjóll, 20 assa. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 d5 2. c4 dxc4 3. e4 Rf6 4. e5 Rd5 5. Bxc4 e6 6. Rf3 a6 7. a3 b6 8. O-O Bb7 9. Rbd2 Be7 10. Bd3 Rd7 11. Re4 Rf8 12. De2 Rg6 13. g3 Dd7 14. h4 f5 15. exf6 gxf6 16. h5 Rf8 17. Bh6 Hg8 18. Hfe1 O-O-O 19. Bxa6 Bxa6 20. Dxa6+ Kb8 21. Hac1 Bd6 22. Hc4 Dc8 23. Db5 Dd7 24. Rxd6 Dxd6 25. Hc6 De7 26. Bxf8 Dxf8 27. Hcxe6 Df7 28. h6 Dh5 29. Db3 Rf4 Staðan kom upp á Skákþingi Íslands, landsliðsflokki, sem lauk fyrir skömmu í Mosfellsbæ. Ingvar Þór Jóhannesson (2343) hafði hvítt gegn stórmeist- aranum Þresti Þórhallssyni (2407). 30. Hxb6+! cxb6 31. Dxb6+ Ka8 32. He7! svartur ræður nú ekki við máthótanir hvíts. 32…Re2+ 33. Kg2 Rf4+ 34. Kg1 Re2+ 35. Kf1 Rxg3+ 36. Ke1 Dh1+ 37. Kd2 Hxd4+ 38. Rxd4 Re4+ 39. Kc2 Hc8+ 40. Rc6 og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Spurning um íferð. Norður ♠KG4 ♥D10865 ♦K8 ♣874 Vestur Austur ♠Á8 ♠106532 ♥KG7 ♥32 ♦DG95 ♦1043 ♣DG109 ♣652 Suður ♠D97 ♥Á94 ♦Á762 ♣ÁK3 Suður spilar 3G. Hvort sem samningurinn er 3G eða 4♥, þá ráðast úrslitin af því einu hvernig unnið er úr hjartalitnum. Þar má vörnin fá einn slag, ekki tvo. Fjórir sagnhafar Íslandsmótsins unnu sitt geim, átta sagnhafar fóru niður. Þeir sem ekki voru á skotskón- um svínuðu tvisvar í gegnum austur í von um annan hámanninn þeim megin (eða báða). Sem er hin tæknilega rétta íferð og skilar fjórum slögum í 71% tilvika. Í alfræðiriti bridsmanna eru þó færð rök fyrir annarri íferð: Að spila fyrst litlu að blindum og svína tíunni. Eigi austur gosann er svínað til baka fyrir kónginn. Þessi leið er betri er, segir ritið, ef vestur er mannlegur og fer upp með kónginn frá ♥Kx. Eða fipast, alla vega. Gegn tölvu, eða taugalausum mótherja, er fyrrnefnda leiðin betri. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Einhver kemur þér á óvart svo að þú verður að játa þá staðreynd að aldrei skyldi dæma eftir útlitinu einu saman. Kúnstin er að færa til allt sem ruggar bátnum. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þótt rétt sé að gefa sér tíma til að kanna málavöxtu, kemur alltaf að því að það verður að taka ákvörðun. Ekki láta góma þig í umferðinni. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það getur reynst nauðsynlegt að taka smávægilega áhættu til þess að hlut- irnir gangi upp eins og best verður á kos- ið. Allir leggja spilin á borðið og andrúms- loftið er hreinna fyrir vikið. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú mátt ekki vanrækja líkama þinn; þú færð ekki annan. Gerðu þér í hugarlund hvernig þú verður í ellinni. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Það er ýmislegt sem getur byrgt manni sýn þótt maður haldi að allir hlutir séu á hreinu. Eitthvað sem þú gast ekki ímyndað þér að myndi nokkru sinni ger- ast er raunverulegur möguleiki í dag. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú ferð á fallegan stað þar sem smáatriðum er veitt athygli, og þú tekur þátt í stórri sýn einhvers annars. Snúðu við blaðinu áður en þú eyðileggur líf þitt með neikvæðninni. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú færð stórtækar hugmyndir um breytingar á heimilinu í dag. Þér er mik- ilvægt að ákveða núna hverjar þarfir þín- ar og langanir eru. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Dagurinn verður annasamur, ekki síst fyrir hádegi. Með réttu lagi tekst þér að sigla milli skers og báru. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Hafðu stjórn á tilfinningum þínum þótt eitthvað verði til að róta upp í þeim. Ef þú finnur til öfundar í garð vinar skaltu minna þig á ástæðurnar fyrir því að þú valdir þér hann/hana að vini. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Nú gefst tækifæri til þess að koma á hreint máli sem hefur lengi verið að angra þig. Vertu viðbúin/n að fara með skömmum fyrirvara hvert sem er. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú ert annars hugar og átt erf- itt með að einbeita þér að þeim verk- efnum sem fyrir liggja. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Finndu góðar aðferðir til að afla meiri tekna, því útgjöld eru á næsta leiti sem þú vilt geta staðið undir. Stjörnuspá 30. apríl 1959 Útvarpið birti frétt um að sex- höfða kálfur hefði fæðst í Helgafellssveit á Snæfellsnesi. Síðar kom í ljós að barnakenn- ari í sveitinni hafði sent þessa frétt til að minna á að áður fyrr var til siðs að gabba fólk í lok apríl ekki síður en í byrjun mánaðarins. 30. apríl 1968 Kvikmyndin Tónaflóð (The Sound of Music) var frumsýnd í Háskólabíói, tveimur árum eftir að hún hlaut fimm Ósk- arsverðlaun. „Ein stórfengleg- asta kvikmynd sem tekin hef- ur verið,“ sagði í auglýsingu. Alls sáu um 45 þúsund Íslend- ingar myndina, og var það met sem stóð í mörg ár. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Steinvör Est- her Ingimund- ardóttir verður áttræð 2. maí næstkomandi. Af því tilefni verður opið hús á afmæl- isdaginn frá kl. 15, á heimili hennar að Kambahrauni 7 í Hveragerði. Allir vinir og vandamenn hjartanlega velkomnir. 80 ára Sigurbjörn Þór Sigurðsson oft þekktur sem Bói á Kaffi Duus verður sextugur 3. maí næstkom- andi. Af því til- efni tekur hann á móti gestum á veitingastað sín- um, Kaffi Duus, í Keflavík á morg- un, laugardaginn 1. maí frá kl. 20 til 23. 60 ára VEISLUHÖLD verða ekki á dagskrá hjá Rögnu Margréti Árnadóttur, sjúkraliða á Dalvík, í dag. „Ég skelli kannski í eina súkkulaðiköku fyrir nán- ustu fjölskyldu, en annars ætla ég bara að sleppa afmælishaldi og hafa það þess í stað huggulegt og prjóna,“ segir Ragna Margrét. Hún hefur enda í nógu að snúast við að ganga frá lopapeysum og öðrum prjónafatnaði fyrir handverksmarkaðinn á Árskógsströnd, þar sem hún verður með bás á morgun. „Þar verður góð stemning og gaman að koma.“ En Ragna Margrét er mikil prjónakona og hefur áður selt handverk sitt á slíkum mörkuðum. Hún segist hins vegar ekki vera mikið fyrir afmælisveislur, en er þó eftirminnileg óvænt heimsókn systur sinnar úr Reykjavík á fertugs- afmælinu. „Hún stóð hér allt í einu á tröppunum í skítakulda og slyddu og við eyddum deginum á kaffihúsum og gönguferðum á Ak- ureyri og höfðum það mjög huggulegt,“ segir Ragna Margrét. „Ann- ars er ég lítil afmæliskona og er eiginlega strax farin að velta því fyr- ir mér hvort ég geti ekki forðað mér úr landi á fimmtugsafmælinu sem er þó ekki fyrr en eftir fimm ár.“ annaei@mbl.is Ragna Margrét Gunnarsdóttir 45 ára Undirbýr handverksmarkað Nýirborgarar Akureyri Sigurður Barði fæddist 13. febrúar kl. 13.13. Hann vó 3.645 g og var 51 cm langur. For- eldrar hans eru Sóley Kristín Sigurðardóttir og Magni Barðason. Reykjavík Ari Flóki fæddist 21. júlí kl. 10.44. Hann vó 4.215 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Hjördís Elsa Ás- geirsdóttir og Helgi Þór Arason. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.