Morgunblaðið - 14.05.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.05.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Mikill kraftur var í eldgosinu í Eyja- fjallajökli í gær og náði gosmökk- urinn allt að níu km hæð. Gosvirkni var stöðug. Mökkurinn er þónokkuð hærri en á miðvikudag og eins og landið liggur núna bendir ekkert til gosloka. Tilkynningar bárust frá nokkrum bæjum undir Austur- Eyjafjöllum um öskufall sem stóð frá því snemma í morgunsárið og fram eftir degi með hléi um miðjan daginn. Askan var hins vegar nokkru fíngerðari en áður. Lítið skyggni „Öskufall hér byrjaði snemma í morgun og er búið að vera sleitu- laust síðan. Að vísu kom einhver smáuppstytta milli þrjú og fimm í dag en síðan helltist þetta yfir aftur og askan sest á allt. Ætli skyggnið sé nema hundrað metrar. Hér er logn í augnablikinu en ef vind hreyf- ir fýkur askan,“ sagði Sigurjón Páls- son, bóndi á Steinum undir Eyja- fjöllum. Sigurjón er með fjárbú og um sextíu vetrarfóðraðar ær á húsi. Sauðburður er langt kominn og þarf að hafa fé á húsi vegna öskunnar, en hafa þó gengt í gerði utan fjárhúss- ins. Víða eru þrengsli þó farin að valda bændum vandræðum og hafa nýborin lömb drepist. Þrengsli orsök veikinda Katrín Helga Andrésdóttir, héraðsdýralæknir á Suðurlandi, segir ekki hægt að alhæfa að þrengsli í fjárhúsum séu orsök fjár- dauða. Vissulega geti slíkt þó verið orsök ýmissa veikinda, svo sem um- hverfissýkinga, garnapestar, júgur- bólgu og flosnýrnaveiki í lömbum. Þá geti flúroreitrun valdið doða. Katrín segir að ef fé veikist sé mik- ilvægt að bændur tilkynni slíkt. Drepist fé séu vottorð grundvöllur greiðslna úr Bjargráðasjóði. Flugi flýtt Í dag, föstudag, spáir Veður- stofan öskufalli suður og suðvestur af eldstöðinni og hefur flugáætlun- um verið breytt til samræmis við það. Vélar Icelandair til Evrópu áttu að fara utan kl. fimm nú í morgun í stað þess að fara milli klukkan sjö og átta. Síðdegisflug til Kaupmannahafnar og Bretlands- eyja hefur verið blásið af. Morgunblaðið/RAX Mökkur Gosstrókurinn nær um níu kílómetra hæð og er svipmikill víða frá. Skagnes í Mýrdal er hér í forgrunni. Sleitulaust öskufall  Eldgosið enn kröftugt  Öskufall undir Eyjafjöllum og sáralítið skyggni  Flugáætlanir í uppnámi og ferðum aflýst Morgunblaðið/RAX Lambfé Víða er basl með sauðburð því fé er á húsi vegna öskufallsins. Bændurnir í Hraungerði í Álftaveri sjást hér huga að lömbum og marka. „Mér finnst í raun undarlegt að sveitarfélögin hafi ekki sýnt lit á því að ganga frá þessu máli. Við viljum launahækkanir í samræmi við það sem framhaldsskólakennarar og rík- ið sömdu um og þar er rétt að tala um óskir frekar en kröfur,“ segir Ei- ríkur Jónsson, formaður Kennara- sambands Íslands. Samningslausir í eitt ár Viðræðunefndir kennara og sveit- arfélaga hittast hjá ríkissáttasemj- ara í næstu viku. Þar verður farið yf- ir mál kennara í grunn-, leik- og tónlistarskólum sem hafa verið samningslausir í um það bil eitt ár. Kennarar sem starfa við framhalds- skólana hafa hins vegar gildan samning og leggur Eiríkur áherslu á að ekki myndist enn frekari launa- munur milli þeirra kennara sem starfa hjá ríki annars vegar og hins vegar sveitarfélögum. Í áðurnefndum samningum ríkis og framhaldsskólakennara á sl. ári var lögð áhersla á hækkun lægstu launa. Hún kemur til framkvæmda í sumar þegar mánaðarlaun undir 285 þús. kr. hækka um 6.500 kr. „Okkur reiknast til að launahækkun á þess- um nótum sé kostnaðarauki fyrir sveitarfélögin sem er vel innan við eitt prósentustig,“ segir Eiríkur. Ganga ekki í takt Fulltrúar Kennarasambands Ís- lands hafa sett fram þau sjónarmið að takist ekki að gera nýja kjara- samninga fyrir öll aðildarfélög sam- bandsins sé tómt mál að tala um að KÍ verði í samfloti við aðra aðila á vinnumarkaði. Þar er átt við ein- hverskonar framlengingu á stöðug- leikasáttmálanum þar sem Eiríkur telur það fjarri lagi að allir hafi gengið í takt. Hnífnum beitt „Niðurskurðarhnífnum hefur trú- lega verið beitt heldur meira en ráð var fyrir gert. Þá eru vextir enn allt of háir og gjaldeyrishöft hindra eðli- lega uppbyggingu í atvinnulífinu sem leiðir til allt of mikils atvinnu- leysis,“ sagði Eiríkur á ársfundi KÍ á dögunum. sbs@mbl.is Kennarar segjast vera með óskir, ekki kröfur  Vilja kjarasamninga við sveitarfélögin Morgunblaðið/Árni Sæberg Ósamið Grunnskólakennarar með lausa samninga frá júní 2009. Á ársfundi KÍ á dögunum gerði Eiríkur Jónsson að um- talsefni starf nefndar sem starfar í krafti stöðug- leikasáttmálans og fjallar um lífeyrismálin í heild sinni. Þar hefði komið í ljós að opinbera lífeyris- sjóðakerfið ætti mjög undir högg að sækja. „Skuld- bindingar þar eru háar og vaxa mörgum í augum,“ sagði Eiríkur Jónsson. „Hitt er svo allt annað mál hvort samkomulag tekst um það að setja á stofn eitt lífeyriskerfi fyrir alla landsmenn hvað varðar framtíð- ina. Áður en ákvörðun um slíkt verður tekin verður að liggja fyrir að núverandi lífeyrisþegar og þeir sem nú eru í starfi og greiða í opinberu sjóðina verði ekki fyrir ólögmætri eignaupptöku með skerðingu á greiðslum.“ Skuldbindingar vaxa í augum OPINBERA LÍFEYRISKERFIÐ Á UNDIR HÖGG AÐ SÆKJA Lífeyrismálin eru mikilvæg. „Ég lít svo á að þessi yfirlýsing ráð- herra sé ekki minni en svo að samn- ingaviðræður við Evrópusambandið hljóti að vera í algjöru uppnámi,“ segir Einar K. Guðfinnsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks. Einar beindi þeirri fyrirspurn til Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, á Alþingi í fyrradag hvort til álita kæmi að hverfa frá núgildandi landbúnaðar- stefnu, heimila innflutning á lifandi dýrum og aflétta tollvernd gagnvart landbúnaðarafurðum í samræmi við álit framkvæmdastjórnar ESB. Jón svaraði því til að það væri „al- veg klárt að þeir fyrirvarar sem settir eru, bæði af hálfu Bænda- samtakanna og af hálfu Alþingis í þessu efni, ég er ekki reiðubúinn að falla frá þeim. Það liggur líka fyrir af hálfu Vinstri grænna að flokkurinn er ekki samþykkur því að gerast að- ili að Evrópusambandinu“. Einar segist fagna þessari afstöðu sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra og hann er henni sammála. „En það er ljóst mál að ef menn halda fast við þessa fyrirvara þá eru þeir ekkert að fara að semja við Evr- ópusambandið um aðild vegna þess að hér er um að ræða þvílík grund- vallaratriði í sjálfri Evrópulöggjöf- inni að þau verða ekki leyst með neinum tæknilegum lausnum.“ Einar telur að aðildarmálin hljóti að bera á góma á þingfundi í dag í ljósi hinnar afdráttarlausu yfirlýs- ingar Jóns. una@mbl.is Segir að viðræður við ESB hljóti að vera í uppnámi Einar K. Guðfinnsson Jón Bjarnason  Ráðherra segist ekki falla frá fyrirvörum stjórnvalda og BÍ fjórir jarðskjálftar mældust undir Eyjafjallajökli í gær. Skjálftarnir voru allir grunnir. sex km er jafnaðarhæð gos- makkarins. Hann rís þó stundum upp í 9 km hæð. ‹ ELDGOSIÐ Í TÖLUM › »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.