Morgunblaðið - 14.05.2010, Síða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2010
Jóni Magnússyni er bersýnilegabrugðið vegna dæmalausrar
framgöngu þingmannanna Björns
Vals Gíslasonar og Guðmundar
Steingrímssonar. Jón, sem hefur
bæði reynslu sem þingmaður og
hæstaréttarlögmaður, undrast að
vonum að þing-
mennirnir virð-
ast telja eðlilegt
að þeir sem
stjórnmálamenn
grípi fram fyrir
hendur á ákæru-
valdi og dóm-
stólum.
Jón segir: „Þeg-ar óeirðafólk-
ið sem sótti að
Alþingi, slasaði starfsfólk við ör-
yggisvörslu og olli eignaspjöllum er
sótt til saka fyrir framferði sitt,
finnst þeim Birni Val og Guðmundi
eðlilegt að stjórnmálin hafi afskipti
af málinu. Treysta þeir ekki dóm-
stólum landsins?
Óneitanlega senda þessir þing-menn furðuleg skilaboð nú
þegar óeirðafólkið sýnir dóm-
stólum algjöra lítilsvirðingu eftir
að hafa sýnt Alþingi lítilsvirðingu.
Þetta er í fyrsta skipti sem dóm-stólum er sýnd lítilsvirðing og
reynt að tálma störf þeirra. Það er
alvarlegt mál og í kjölfar þess er
málflutningur þingmannanna þeim
til skammar.
Ef til vill er þeim vorkunn eftir aðhafa hlustað á holtaþokuvælið í
dómsmálaráðherra í framhaldi af
því að óeirðafólkið veittist að dóms-
valdinu og lögreglustjórinn á höf-
uðborgarsvæðinu bauð óeirðafólk-
inu síðan í kaffi á lögreglustöðina.
Í framhaldi af því var að sjálfsögðueðlilegt að prestur Laugarnes-
safnaðar skyldi blessa yfir athæfið.
Kirkjan á jú alltaf sína svörtu
sauði.“
Jón Magnússon,
fyrrverandi
alþingismaður.
Fyrst Alþingi svo dómstólar
Veður víða um heim 13.5., kl. 18.00
Reykjavík 8 skýjað
Bolungarvík 3 slydda
Akureyri 4 skýjað
Egilsstaðir 8 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 13 skýjað
Nuuk 2 heiðskírt
Þórshöfn 8 skýjað
Ósló 9 skýjað
Kaupmannahöfn 11 skýjað
Stokkhólmur 14 skúrir
Helsinki 21 skúrir
Lúxemborg 7 léttskýjað
Brussel 8 skúrir
Dublin 12 skýjað
Glasgow 8 skúrir
London 12 heiðskírt
París 9 skýjað
Amsterdam 9 skýjað
Hamborg 10 skýjað
Berlín 10 alskýjað
Vín 17 þrumuveður
Moskva 25 heiðskírt
Algarve 19 léttskýjað
Madríd 9 skýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 19 léttskýjað
Róm 19 skýjað
Aþena 27 heiðskírt
Winnipeg 13 skýjað
Montreal 14 léttskýjað
New York 16 heiðskírt
Chicago 16 þoka
Orlando 27 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR
14. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:16 22:33
ÍSAFJÖRÐUR 3:57 23:02
SIGLUFJÖRÐUR 3:39 22:46
DJÚPIVOGUR 3:39 22:09
Hinir árlegu vortónleikar Drengja-
kórs Reykjavíkur verða í Hall-
grímskirkju á morgun, laugardag-
inn 15. maí. Tónleikarnir eru
jafnframt haldnir til þess að minn-
ast þess að kórinn á 20 ára afmæli
í ár.
„Þetta er gaman og sérstakt,“
segir Friðrik S. Kristinsson, stjórn-
andi kórsins, og bætir við að senni-
lega sé um að ræða eina drengja-
kór landsins sem starfi í kirkju.
Agi og kurteisi
Kórinn æfir reglulega tvisvar í
viku og að jafnaði syngur hann í
messu í Hallgrímskirkju mánaðar-
lega á starfsárinu frá september
fram í júní auk þess sem hann
kemur fram við ýmis tækifæri.
Friðrik segir að kórfélagarnir séu
jafnframt á fullu í mörgu öðru og
margir þeirra séu hljómlistarmenn.
„Þetta eru duglegir strákar og þeir
eru fljótir að læra, hafa þessa gáfu
að geta tekið þátt í þessu öllu og
skilað sínu með sóma,“ segir hann.
Einkunnarorð kórsins eru að
syngja eins og englar, hegða sér
eins og herrar og leika sér eins og
strákar. Friðrik segir að starfsem-
in snúist ekki eingöngu um söng
heldur skipti uppeldið miklu máli.
Mikið sé lagt upp úr framkomu og
aga, að bera virðingu hver fyrir
öðrum og sýna öðrum kurteisi.
Drengjakórinn var stofnaður 6.
október 1990 og í honum eru nú
um þrjátíu 8-14 ára drengir. Ron-
ald Turner, organisti í Laugarnes-
kirkju, var helsti hvatamaður
átaksins og stjórnaði hann kórnum
þar til Friðrik tók við stjórninni
1994. Kórinn nefndist fyrst
Drengjakór Laugarneskirkju,
Drengjakór Neskirkju 2001 til 2004
og síðan Drengjakór Reykjavíkur
eftir að starfsemin fluttist í Hall-
grímskirkju.
Til Bandaríkjanna í júní
15 drengir á aldrinum 10-12 ára
voru stofnfélagar og munu söngv-
arar úr þeim hópi syngja með
kórnum á afmælistónleikunum.
Annað hvert ár fer kórinn um land-
ið og heldur tónleika en hitt árið er
farið til útlanda. Kórinn hefur m.a.
sungið í Bandaríkjunum, Austur-
ríki, Englandi, Tékklandi, Frakk-
landi og á Spáni. Að þessu sinni fer
kórinn í 10 daga ferð til Bandaríkj-
anna upp úr miðjum júní, þar sem
hann tekur meðal annars þátt í há-
tíð Íslendingafélaganna í Minnea-
polis og norrænni sumarhátíð í
Fargo auk þess sem hann syngur í
Mountain.
Friðrik stjórnar líka Karlakór
Reykjavíkur og þar er hann farinn
að sjá menn sem byrjuðu í
Drengjakórnum. „Karlakór
Reykjavíkur er verndari Drengja-
kórsins og vonandi fáum við sem
flesta úr Drengjakórnum í Karla-
kórinn þegar fram líða stundir,“
segir Friðrik.
Hátíðarsamkoman á laugardag
hefst klukkan 14 og eru meðlimir
Karlakórs Reykjavíkur sérlegir
gestir.
Morgunblaðið/Kristinn
Á æfingu Drengjakór Reykjavíkur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar æfir stíft fyrir afmælistónleikana.
Englar, herrar og strákar
Afmælistónleikar Drengjakórs Reykjavíkur í Hallgríms-
kirkju á morgun 10 daga ferð til Bandaríkjanna í júní
Árni Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Gildis lífeyrissjóðs, hefur sent
Sjómannafélagi Íslands svar við
bréfi þess frá 29. apríl, þar sem Sjó-
mannafélagið krafðist afsagnar
stjórnar og framkvæmdastjóra Gild-
is.
Kemur fram í svarinu að réttindi
sjómanna í Gildi
hafi hækkað um
1,9% umfram
hækkun vísitölu
neysluverðs á
tímabilinu janúar
2005 til apríl 2010,
að teknu tilliti til
7% lækkunar rétt-
inda nú.
„Hrun fjármála-
kerfisins á Íslandi í
október 2008 hefur
haft mikil áhrif á
afkomu Gildis eins
og annarra lífeyrissjóða og fjárfesta
og því miður hefur Gildi eins og
margir aðrir lífeyrissjóðir þurft að
grípa til lækkunar réttinda. Það vill
hins vegar gleymast að Gildi hækk-
aði réttindi um 7% árið 2006 og um
10% árið 2007. Þá fengu sjómenn
4,1% réttindahækkun við stofnun
Gildis árið 2005. Þessar hækkanir
eru umfram hækkun vísitölu neyslu-
verðs sem lífeyrisgreiðslur miðast
við,“ segir í svarbréfinu.
Bera sömu ábyrgð á fjárfest-
ingarstefnunni og aðrir
„Á ársfundi Gildis 28. apríl sl. var
borin upp tillaga Jóhanns Páls Sím-
onarsonar um að stjórn sjóðsins og
framkvæmdastjóri segðu af sér.
Ástæða er til að benda á að Sjó-
mannafélag Íslands (áður Reykja-
víkur) átti ávallt fulltrúa í stjórn Líf-
eyrissjóðs sjómanna og bera þeir
fulltrúar sömu ábyrgð á fjárfest-
ingum sjóðsins og aðrir stjórnar-
menn,“ skrifar Árni Guðmundsson í
bréfinu.
Báru ekki
skarðan
hlut
Framkvæmdastjóri
svarar gagnrýni
Gildi hækk-
aði réttindi
um 7% árið
2006 og um
10% 2007