Morgunblaðið - 14.05.2010, Side 10
Leikkonan Sarah Jessica Parker er
farin að láta meira á sér bera upp á
síðkastið enda styttist óðum í að nýj-
asta mynd hennar Sex and the City 2
verði frumsýnd. Það verður örugglega
nóg af flottum flíkum í henni til að
slefa yfir en þangað til verðum við að
láta okkur Parker á rauða dreglinum
nægja. Hún hefur einstakt lag á að
líta vel út, yfirleitt í
sætum en um leið
töff kjólum,
dásamlegum
skóm og með
krúttlega fylgi-
hluti. Já þær eru
eflaust margar
sem væru til í að
vera í skóm Sö-
ruh Jessicu
Parker.
ingveld-
ur@mbl.is
Tískufríkið Sarah Jessica Parker úr Beðmálunum
Sætir kjólar
og töff skór
Reuters
Töffari Parker á ShoWest verðlaunahá-
tíðinni í Las Vegas í mars.
Gullin rós Hér er Par-
ker á Óskars-
verðlaunahátíðinni í
byrjun mars.
Prinsessa Heldur
betur fönguleg og
fín á Metropolitan
galasamkomunni í
byrjun maí.
Flott Óneitanlega
glæsileg í æðislegum
skóm við fínan kjól á
frumsýningu í New
York í desember.
Fataskápsundraland er
tískublogg sem þrjár
stelpur úr Reykjavík, hel-
teknar af tísku, halda úti.
Bloggið er nýtt, virðist
hafa verið stofnað í mars
á þessu ári. Þær segjast
hafa haft í huga að
stofna tískublogg í langan
tíma og ákveðið að láta
vaða þar sem tíska er
eiginlega eina áhugamál
þeirra. Þær segja í einni
af fyrstu færslunum að
þær vilji hafa fjölbreytni á
blogginu; myndir og um-
fjallanir um það sem þær
klæðast, umfjöllun um
götutískuna, það sem
blæs þeim í brjóst, um
hluti sem þær kunna vel
við og hluti sem þær
kunna ekki vel við og
annað sem vekur athygli
þeirra. Svo virðist sem
þetta markmið þeirra hafi
náðst því bloggið er mjög
fjölbreytt og líflegt.
Þær taka mikið myndir
af sjálfum sér og setja á
bloggið, við hverja mynd
segja þær hvar þær
fengu fatnaðinn sem þær
klæðast og fylgihlutina
sem þær bera. Er það
bæði skemmtilegt og fræðandi fyrir
lesendur og svolítið sem vantar oft
upp á hjá tískubloggurum, því það
er mikilvægt að vita hvar tískuvitr-
ingarnir fá fötin sín.
Síðuhaldararnir fjalla sem von er
um erlenda tískuhönnuði og fyr-
irsætur og setja inn myndir af hinu
og þessu sem verður á vegi þeirra.
Mamma einnar þeirra er flott
kona og birta þær stundum myndir
af henni í ýmsum fatnaði. Verð ég
Vefsíðan: www. wardrobe-wonderland.blogspot.com
Líflegt tísku-undraland
Bambi Nýlega var fjallað um áströlsku fyrirsæt-
una Stephanie Northwood, á síðunni.
að segja að mér þykir það áhuga-
verður liður, mamman er með
þroskaðan og flottan fatastíl og er
því virkilega gaman að sjá hvernig
hún klæðir sig, sem er alltaf töff.
Það er líka gaman að sjá konu á
tískubloggi því oft er bloggunum
haldið úti af ungum stelpum og
markast tískuumfjöllunin af því.
Wardrobe-wonderland.blogs-
pot.com er lífleg bloggsíða sem
vert er að kíkja á. ingveldur@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2010
10 Daglegt líf
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
É
g hef haft áhuga á kvik-
myndum alveg frá því
ég var smástrákur,“
segir Úlfar Örn Krist-
jánsson sem er á fyrsta
ári á listabraut í FB og með óslökkv-
andi áhuga á kvikmyndum og öllu
sem þeim viðkemur.
„Ætli þessi áhugi hafi ekki
kviknað þegar ég fékk að njóta góðs
af VHS-spólusafni sem foreldrar
mínir eiga. Ég var um sjö ára þegar
ég fór að ráðast í klassíkina sem þar
er að finna, eins og til dæmis The
Godfather sem Francis Ford Cop-
pola gerði og ég sökkti mér líka í
gömlu góðu Carpenter-myndirnar og
annað slíkt. Ég var svo ungur að ég
skildi kannski ekki mikið en ég naut
þess engu að síður að horfa. Þegar ég
var tíu ára fór ég að skilja sögurnar
og þá fór ég að sækja mér sjálfur
myndir, til dæmis eftir Federico Fell-
ini, Sam Peckinpah, japanska leik-
stjórann Akira Kurosawa og aðra
meistara.“
Blóðsuguhryllingur heillar
Þótt Úlfar sé hrifinn af alls kon-
ar myndum eru hryllingsmyndir í
miklu uppáhaldi og hann kann ekki
síður að meta þær gömlu. „Elsta
myndin í safninu mínu er Dr. Calig-
ari, en hún er einmitt talin vera
fyrsta hrollvekjan sem gerð var, en
það var árið 1919. Þjóðverjinn Rob-
ert Wiene gerði hana og hún er alveg
ótrúlega góð. Hún er vissulega gerð
með frumstæðum handsnúnum
myndavélum en það undirstrikar
bara hryllinginn,“ segir Úlfar og tel-
ur upp nokkra gullmola í þessum
flokki eins og blóðsuguhryllings-
myndina Nosferatu eftir Murnau, frá
árinu 1921. Hinn austurríski kvik-
myndaleikstjóri Fritz Lang er einn
þeirra gömlu sem Úlfar kann
vel að meta og nefnir
hann þar „science-
fiction“-
myndina
Metropolis frá
1927 og mynd-
ina M frá 1931.
Ekki kemur á óvart að Úlfar er mikill
aðdáandi hinnar einu sönnu Rocky
Horror. „Ég horfði mikið á hana þeg-
ar ég var lítill og í fyrra sá ég hana á
kvikmyndahátíð þar sem allir mættu
í búningum og sungu með. Það var al-
veg geggjað.“
Allt fallegt í svarthvítu
En hvað er það við myndir
gömlu meistaranna sem eru svona
heillandi?
„Gömlu kvikmyndaleikstjór-
arnir höfðu ekki tólin og tæknina sem
til er í dag og þeir þurftu því að
treysta meira á handritið og fram-
vindu sögunnar í myndinni, í stað
þess að beita brellum til að ná áhuga
áhorfandans. Það er gaman að skoða
þetta í kvikmyndasögulegu samhengi
og sjá hvernig tæknibrellurnar hafa
þróast í gegnum tíðina. Mér finnst
andrúmsloftið í svarthvítum myndum
allt annað en í þeim sem eru í lit,
vegna þess að allt verður fallegt í
svarthvítu. Í gömlu þöglu
myndunum er líka gam-
an að fylgjast með ýkt-
um leiknum, því leik-
ararnir voru
sviðsleikarar og
vanir að leika
þannig að allt
skilaði sér á
aftasta
Hryllingur, blóðsugur
og gamlir snillingar
Hann á um 800 kvikmyndir í safni sínu og sú elsta er frá 1919 enda er hann hrif-
inn af gömlu meisturunum. Hann gerði sér lítið fyrir og vann til verðlauna þegar
hann gerði sína fyrstu stuttmynd, hina draugalegu Phasmatis.
Úlfar heldur drungalegur í hlut-
verki sínu í mynd sinni, Phasmatis.
Það er föstudagur og nóg um að vera
í höfuðborginni.
Í Nýlenduvöruverzlun Hemma og
Valda á Laugavegi 21 er Rockabilly-
kvöld. Þeir sem hafa löngun til að
tvista botninn af skónum ættu að
kíkja þangað. Fjörið hefst um kl. 23.
Fyrir hina sem vilja öðruvísi stuð
hefjast Kimi Records-tónleikar á Só-
dómu kl. 22. Þar leika tónlistarmenn-
irnir Snorri Helgason (úr Sprengju-
höllinni), Stafrænn Hákon, sem sendi
nýverið frá sér plötuna Sanitas, og
hljómsveitin Miri.
Á skemmtistaðnum Jacobsen í
Austurstræti snúa Hugarástands-
bræður, þeir Arnar og Frímann, plöt-
um með dúndrandi danstónlist.
Það verður því nóg um að vera fyrir
dansþyrsta Íslendinga.
Reuters
Dans Það má sýna kúnstir.
Ætlar þú
út að dansa í
kvöld?