Morgunblaðið - 14.05.2010, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.05.2010, Blaðsíða 21
Minningar 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2010 ✝ Guðmundur Garð-ar Guðmundsson fæddist í Reykjavík 22. febrúar 1956. Hann lést á gjör- gæsludeild Landspít- alans 5. maí síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guðmundur Friðriksson og Guð- ríður Ástráðsdóttir, þau eru bæði látin. Bræður Guðmundar eru Ástráður, f. 1946, Reynir, f. 1949, og Gunnar, f. 1952. Guðmundur kvæntist Sigríði Val- geirsdóttur árið 1992 og eignuðust þau dótturina Lilju 4. október 1988. Þau bjuggu sín búskaparár bæði í Hveragerði og Reykjavík en slitu samvistir árið 2007. Fyrir átti hann Hrafnhildi, f. 22. febr- úar 1975. Áhugamál Guð- mundar voru stang- veiði og hesta- mennska, var hann mikið viðloðandi Lundarreykjadal og unni sveitinni sinni alla tíð, einnig hafði hann gaman af leik og söng og söng í mörgum kórum. Útför Guðmundar verður gerð frá Kristskirkju Landakoti í dag, 14. maí 2010, og hefst athöfnin kl. 15. Náinn vinur minn og félagi Guð- mundur Garðar er fallinn frá í blóma lífsins. Leiðir okkar lágu fyrst sam- an á Bændaskólanum á Hvanneyri veturinn 1973-1974. Strax tókust með okkur ágæt kynni. Ég komst fljótt að því að Guðmundur Garðar var mikill hæfileikamaður. Hann var bráðgreindur, léttur í lund, úrræða- góður, söngvinn, skemmtilegur, sagna- og vísnamaður ágætur og drengur góður. Eftir Hvanneyrarvistina héldum við kunningsskapinn og urðum á seinni árum söngfélagar í kórum, veiðifélagar og góðir vinir. Ekkert þótti Guðmundi Garðari skemmtilegra en að sækja heim sveitina sína, Lundarreykjadalinn. Þangað fór ég með honum nokkrum sinnum og fann fljótt að þar var hann svo sannarlega á heimavelli. Naut ég mjög leiðsagnar hans. Það er alltaf harmsefni þegar fólk fellur frá langt um aldur fram. Hins vegar er það huggun harmi gegn að minningin um einstakan ágætis- mann lifir. Ég þakka Guðmundi Garðari kærlega fyrir áralanga vin- áttu, gleðina, trygglyndi og hlýju í minn garð. Ástvinum hans og fjöl- skyldu sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Blessuð sé minning Guðmundar Garðars Guðmundssonar. Magnús Ástvaldsson. Kveðja frá Kór Kristskirkju, Landakoti Guðmundur Garðar Guðmunds- son kórfélagi okkar er látinn langt fyrir aldur fram. Lífið fór ekki alltaf sérlega mjúk- um höndum um hann og síðustu árin urðu þessum mæta dreng og góða félaga áreiðanlega þung í skauti enda margt honum mótdrægt og heilsan tæp. Guðmundur Garðar hafði brenn- andi áhuga á tónlist og hann tók alla tíð, hvar sem hann dvaldi, mikinn og virkan þátt í tónlistarlífi og kór- starfi. Eftir að hann flutti aftur til höfuðborgarinnar gerðist hann ötull og ómetanlegur félagi í kór kirkju Krists konungs í Landakoti. Auk þess að syngja í bassanum valdist hann í forystusveit kórsins. Þar var hann ötull og viljugur samstarfs- maður sem ætíð lagði gott til mála og leitaði ávallt lausna sem byggðust á málamiðlun og sátt. Guðmundar Garðars verður lengi og sárt saknað meðal kórfélaga sem minnast notalegrar nærveru hans, hlýju og elskulegs húmorsins. Góður og mætur maður er genginn. Megi Guð hugga og styrkja ástvini Guð- mundar Garðars, geyma anda hans og blessa minningu hans. F.h. kórs Landakotskirkju, Stefán Ásgrímsson. Við Guðmundur Garðar hittumst fyrst þegar réttargeðdeildin á Sogni var sett á fót í október 1992. Guð- mundur hafði ráðið sig til starfa við deildina og ég var þá nýorðinn fram- kvæmdastjóri SFR stéttarfélags. Ekki vorum við hjá félaginu sátt við þau kjör sem bjóða átti starfsmönn- um við deildina svo það sló í brýnu milli SFR og stjórnenda stofnunar- innar. Úr hópi starfsmanna vakti Guðmundur strax athygli því hann var fremstur í flokki þeirra sem tóku þátt í þessari baráttu. Við höfðum mikil samskipti næstu árin meðan hann vann á Sogni, en hann var m.a. trúnaðarmaður starfsmanna þar. Frá Sogni hélt hann til starfa hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Suðurlandi. Hann tók þar að sér verkstjórn og að þróa nýja fram- leiðslu á vernduðum vinnustað. Síð- ar flutti hann í bæinn og hóf störf á geðdeildum Landspítala – háskóla- sjúkrahúss. Ekki var þess langt að bíða að vinnufélagar hans kusu hann til að verða trúnaðarmaður. Hann tók sæti í samstarfsnefnd SFR og LSH og þar reyndi fyrir alvöru á hans miklu félagslegu hæfileika til að koma málum á framfæri og leiða þau til lykta. Guðmundur var kosinn í stjórn SFR árið 2006 og sat þar til dauðadags. Hann var virkur á flest- um sviðum félagsins, sat m.a. í rit- nefnd SFR blaðsins og í fyrravor var hann hvatamaður að stofnun kórs fyrir félagsmenn BSRB og var aðal- sprautan í starfinu þar. Guðmundur var einn af þeim mönnum sem ætíð voru tilbúnir að taka að sér verkefni sem leitað var til hans með. Hann var alltaf já- kvæður og eljusamur við að leysa þau af hendi eins vel og unnt var. Hann var eldhugi sem gott var að hafa í kringum sig í félagslegu starfi – starfi sem krefst ætíð meira og meira en jafnframt verður erfiðara að fá fólk til að taka þátt í. Í lífi flestra eru hæðir og lægðir og fór Guðmundur ekki varhluta af þeim. Síðustu árin voru honum án efa mjög erfið. Hann lenti í slysi og fótbraut sig, sem í sjálfu sér hefði ekki átt að hafa miklar afleiðingar. Í einstökum tilfellum gerast hlutirnir þó ekki eins og venjulega. Brotið greri hægt og illa og hann var frá vinnu meira og minna síðustu árin og það reyndist honum mjög erfitt. Hann kom oft á þessum tíma og sett- ist inn á skrifstofu hjá mér, þá rædd- um við stöðuna. Í þessum samtölum okkar skynjaði ég að líf hans var ekki bara dans á rósum og að það hvíldu á honum áhyggjur af framtíð- inni. Þrátt fyrir mótlætið sem hann varð fyrir þessi síðustu ár slokknaði aldrei baráttuandinn. Oftar en ekki enduðu samtöl okkar á því að hann kom með ábendingar og áeggjanir um hvort stéttarfélagið yrði ekki að pota betur hér og þar eða taka á þessu og hinu málinu. Missir okkar allra sem þekktum Guðmund Garðar er mikill og við munum sakna hans úr starfinu. Hann hafði sterkan og gefandi per- sónuleika og hreif aðra með sér, hvort sem var í baráttu eða góðum söng. Við hér hjá SFR stéttarfélagi vottum fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð um leið og við kveðj- um góðan dreng. Árni Stefán Jónsson, for- maður SFR stéttarfélags í almannaþjónustu. Það er erfitt að tala eða skrifa um Guðmund Garðar í þátíð, svo brátt varð um hann og svo lifandi er hann enn í huga þeirra mörgu sem hann þekktu og þótti vænt um hann. Það er líka erfitt að sætta sig við það að góður og glæsilegur maður á besta aldri skuli skyndilega horfinn úr þessum heimi. Við Gummi, eins og vinir hans kölluðu hann, vorum skólasystkin í Landakotsskóla frá sex ára aldri. Síðan skildi leiðir um langa hríð, þangað til hann gerðist leigjandi hjá mér fyrir nokkrum árum. Þar á milli leið vissulega langur tími. Ekki þó sérlega langur í huga okkar Gumma, þar sem við áttum svo marga sam- eiginlega vini og minningar, eins og títt er um fólk á sama aldri. Með sumum á maður reyndar fátt annað sameiginlegt en ártalið, en þannig var það ekki með okkur Gumma. Það var skemmtileg tilvilj- un að hann skyldi koma til búsetu hér í húsinu og aldrei var nema gott að hafa hann hér. Aðrir munu væntanlega verða til að rekja lífshlaup Guðmundar Garð- ars. Við hér á Ásvallagötunni minn- umst hans hins vegar best fyrir góð- ar samvistir undanfarin ár. Guðmundur Garðar var sérlega ljúfur, greindur og góður maður. Hann var vel lesinn, fróður og skemmtilegur, hafði góða nærveru, var frábær söngvari í kór Krists- kirkju til fjölda ára og virkur í sínu stéttarfélagi, enda með ríka réttlæt- iskennd. Hann hafði komið víða við og bjó að margþættri lífsreynslu. Það var því hvergi komið að tómum kofunum hjá Gumma og hægt að ræða við hann um flest milli himins og jarðar. Syni mínum á unglingsaldri þótti líka vænt um Gumma og gott að tala við hann, enda kom Gummi fram við alla af sömu prúðmennsku og innsæi. Heimilishundurinn okkar hér á efri hæðum, hún Skotta, hafði síðan alveg sérstaka ást á Gumma, fannst hún alveg eiga í honum hvert bein. Það var, veit ég, alveg gagn- kvæmt og þegar Skottan okkar safn- aðist til feðra sinna í vetur sem leið tók Gummi einlægan þátt í eftir- sjánni. Vonandi hittast þessir góðu vinir nú á annarri strönd. Það fór síðan ekkert milli mála hvað Gumma þótti vænt um börnin sín og bar þau fyrir brjósti. Lilja, dóttir hans, kom oft að heimsækja pabba sinn hingað í Vesturbæinn og var honum afar góð og umhyggju- söm dóttir. Það er líka gott til þess að hugsa að hann náði að mæta í fermingu barnabarnsins Arons Orra í vor. Það var stoltur og glaður afi sem kom heim úr þeirri fermingar- veislu. Undir lokin átti Gummi við heilsu- leysi að stríða, m.a. vegna fótbrota sem höfðu í för með sér slæmar af- leiðingar. Aldrei kvartaði hann þó né bar sig illa. Slíkt var einfaldlega ekki til í hans hugarheimi eða hegðan. Grannar og vinir Guðmundar Garðars hér á Ásvallagötunni kveðja góðan dreng með söknuði og vænt- umþykju. Sendum fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Hildur Helga Sigurðardóttir. Guðmundur Garðar Guðmundsson ✝ Gísli Ólafur Em-ilsson, f. 16. sept- ember 1924, lést á dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Garðv- angi miðvikudaginn 28. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðný Helga Guð- mundsdóttir, f. 6. ágúst 1896, d. 16. júní 1974, og Emil Theo- dór Guðjónsson, f. 10. maí 1896, d. 11. janúar 1976. Gísli fæddist og ólst upp í Hátúni við Seyðisfjörð og var áttundi í röð tólf systkina, þrjú þeirra eru enn á lífi, Valgerður, Friðrik og Guðrún. Látin eru Guðjón, Ásdís, Jór- unn, Guðmundur, Vilhjálmur, Val- geir, Emil og Ásgeir. Uppeldissystk- ini hans eru Jóhanna, Rún og Hreinn. f. 1952, Rafn, f. 1954, Björg, f. 1960, og Sigurður, f. 1965. Frá unga aldri tók Gísli þátt í því að draga björg í bú og byrjaði sjö ára í beitningum á Seyðisfirði. Hann stundaði sjómennsku og vertíð- arvinnu á sínum yngri árum eða þar til hann varð fyrir slysi um tvítugs- aldurinn þegar hann fór í spil á báti og var nærri búinn að missa fótinn við ökkla. Betur fór en á horfðist, en þetta háði honum þó alla tíð. Hann tók þátt í síldarævintýrinu á árunum 1960 til 1965 eins og margir á þeim árum og vann þá aðallega sem beyk- ir á síldarplani á Seyðisfirði og Rauf- arhöfn. Hann vann um tíma í tré- smiðju Sigurðar Elíassonar hf. í Kópavogi. Hann byrjaði sem aðstoð- armaður í prentun í Prentsmiðjunni Eddu 1966, var í Blaðaprenti 1972- 1991 og lauk sínum starfsferli hjá Prentsmiðjunni Odda 1995. Útför Gísla fór fram í kyrrþey frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði 6. maí sl. Gísli kvæntist 2. ágúst 1952 Málfríði Jensdóttur, f. 12. júní 1929, d. 5. september 1987, dóttir hjónanna Þorgerðar Guðmunds- dóttur og Jens Krist- jánssonar fisksala í Hafnarfirði. Þau eign- uðust soninn Heiðar 10. september 1950. Kona hans er Stefanía Víg- lundsdóttir, f. 7.7. 1951 og eiga þau dótturina Fríðu Kristínu, f. 31. júlí 1979. Síðustu árin bjó Gísli í Keflavík með Sigríði Júlíusdóttur, f. 16. ágúst 1930 á Siglufirði. Sigríður giftist Hall- dóri Péturssyni f. 21. janúar 1926, d. 22. mars 1991. Börn Sigríðar og Hall- dórs eru Jóhann Pétur, f. 1946, d. 14. janúar 2010, Júlíus, f. 1950, Ingibjörg, Mig langar með nokkrum orðum að þakka mínum elskulega tengda- föður samfylgdina í næstum 40 ár. Hann var einstakt ljúfmenni, hægur og rólegur, vinnusamur og duglegur og gerði vel allt sem hann tók sér fyr- ir hendur. Við Heiðar áttum góð ár með honum og Fríðu heitinni þegar við bjuggum undir sama þaki um nokkurra ára skeið, og svo seinna eft- ir að Fríða lést þá keyptum við okkur aftur hús saman í Hafnarfirði og bjuggum þar í u.þ.b. 10 ár eða þar til Gísli flutti til Keflavíkur til Sissu sinnar, þar sem hann bjó síðustu ár ævi sinnar, en síðustu 10 mánuði á hjúkrunarheimilinu Garðvangi í Garðinum, þegar hinn illvígi sjúk- dómur Alzheimer hafði náð algjörum tökum á líkama hans. Minningarnar um Gísla eru hlýjar og ánægjulegar og frábært var að hlusta á hann segja gamansögur af mönnum og málefnum frá liðinni tíð austan af Seyðisfirði og sögur af stórum systkinahópi sem maður fann hvað hann elskaði mikið og hvað tengslin voru ljúf og góð. Við nutum þess að fara í tjaldútilegur með Gísla og Fríðu fyrstu árin okkar saman og stundum var líka farið í sumarbú- staðaferðir með veiðiskap, grilli og leikjum og ekki má gleyma því að alltaf var leitað að næsta sundstað og aldrei sleppt að taka sundsprett hvar sem því var við komið og svo naut hann heitu pottanna alveg í botn. Hann var einlægur aðdáandi enska fótboltans og þá sérstaklega Man- chester United. Gísli reyndist Fríðu Kristínu ein- staklega góður afi og vildi allt fyrir hana gera. Hann var barngóður með eindæmum og börn hændust að hon- um, því hann gaf sig alltaf á tal við þau þegar tækifæri bauðst. Hann lét þau finna að þau skiptu máli. Einnig var hann stríðinn og gantaðist með þau og fór í leiki. Það voru gæfuspor fyrir afa Gísla þegar leiðir hans og Sissu lágu saman eftir að hafa bæði misst maka sína. Þau áttu góð og farsæl ár saman eða þar til að sjúkdómurinn fór að ná al- gjörum tökum á honum. Það er erfitt að horfa upp á náinn aðstandanda verða þessum sjúkdómi að bráð. Sissa hefur reynst afa Gísla alveg ein- staklega vel og hefur verið stoð hans og stytta og erum við henni afar þakklát fyrir umönnun hennar. Með þakklæti fyrir allar góðu stundirnar okkar saman kveð ég nú Gísla með söknuði. Stefanía. Afi Gísli hefur kvatt þennan heim eftir erfiða baráttu við Alzheim- ersjúkdóminn. Afi var yndislegur afi og góður maður. Mér þótti svo vænt um afa, hann hafði góða nærveru enda ljúfur og með mikið jafnaðargeð. Mínar bestu minningar eru stundirnar með afa Gísla og ömmu Fríðu, enda um- vöfðu þau mig hlýju og kærleika. Afi var mjög þolinmóður, það fékk ég að reyna þegar hann kenndi mér að flauta, reima skóna mína, leysa hnúta eða vinna í garðinum og hann þreytt- ist aldrei á að spila við mig. Afi var áhugamaður um enska boltann og uppáhaldsliðið hans var „Manstu eft- ir Júnæted“ – eins og hann sagði allt- af. Í garðinum á Köldukinninni spil- aði hann við mig fótbolta og kenndi mér helstu reglurnar enda mátti nú ekki gleymast að hann hefði spilað með Hugin á Seyðisfirði sem ungur maður og þótti nú bara býsna efnileg- ur! Þegar ég var lítil fórum við afi oft í sund í gömlu Hafnarfjarðarlaugina. Hann hafði mikinn metnað fyrir því að kenna mér að synda enda sagðist hann vera algjör „syndaselur“ í þeirri merkingu að í lauginni vildi hann helst alltaf vera. Hann elskaði heitu pottana þar sem hann spjallaði við kunningjana, enda var hann alltaf brúnn og sællegur og spurði okkur reglulega að því hvort hann væri nú ekki sætur? Svo hló hann. Afi fór stundum með mig í heimsókn í Blaða- prent og lét mig flauta fyrir vinnu- félagana lagið úr Dallas-þáttunum enda montinn af því hafa kennt mér að flauta. Afi kallaði mig Fríðu litlu lipurtá og söng gjarnan fyrir mig: „Fríða litla lipurtá, ljúf með augu fög- ur djúp og blá.“ Það var mikil sorg fyrir okkur afa þegar amma Fríða féll skyndilega frá 58 ára að aldri. Eftir að hún lést bjuggum við afi í sama húsi og var því samgangurinn mikill. Afi fór með mig í bíltúra niður á bryggju þar sem hann sagði mér sögur af því þegar hann var á sjó í gamla daga og við fengum okkur ís í leiðinni enda var afi ekki „sárhentur í sætabrauðinu“ eins og hann sagði gjarnan. Á síðari árum endurnýjaði afi kynni sín við Sigríði Júlíusdóttur (Sissu) og það varð honum mikil gæfa því maður sá hvað þeim leið vel sam- an. Eftir að ég veiktist var samgang- urinn á milli okkar afa því miður of lítill. En alltaf var gott að hittast þeg- ar hann kom í heimsókn. Sissa hugs- aði mjög vel um afa, ekki síst eftir að hann veiktist. Síðasta sumar var afi Gísli kominn á Garðvang þar sem hann lést 28. apríl sl. Ég heimsótti afa fáum vikum fyrir andlátið. Við viss- um aldrei hvort hann þekkti okkur og oft gat hann lítið talað en síðustu orðaskipti okkar afa voru þau að ég beygði mig niður að honum og kyssti hann á kinnina í kveðjuskyni og sagði: „bless afi minn“ og hann svar- aði á móti: „bless elskan.“ Þegar ég lít til baka er ég þakklát fyrir þessi hinstu lokaorð sem okkur fóru á milli. Ég kveð nú elsku afa Gísla og þakka honum fyrir yndislegu árin sem við áttum saman og allar góðu minningarnar. Ég bið þess að hann sé nú umvafinn englum Guðs í faðmi Jesú Krists á himnum þar sem engin tár eða sorg eru framar til. Blessuð sé minning afa Gísla. Fríða Kristín afastelpa. Meira: mbl.is/minningar Gísli Ólafur Emilsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.