Morgunblaðið - 14.05.2010, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 14.05.2010, Blaðsíða 24
24 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2010 Allar minningar á einum stað. ÍS L E N S K A S IA .I S M O R 48 70 7 01 /1 0 –– Meira fyrir lesendur Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar Um leið og framleiðslu er lokið er bókin send í pósti. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 og til dagsins í dag. ✝ Jakob BragiBjörnsson fæddist á Neðri-Þverá í Vest- urhópi hinn 3. mars 1929. Hann andaðist á líknardeild Landa- kots hinn 6. maí 2010. Bragi var sonur hjónanna Jónínu Bjarnadóttur frá Bjarghúsum, f. 25. september 1892, d. 18. júlí 1979, og Árna Björns Jakobssonar, f. 1. september 1889, d. 30. júní 1938. Systkini Braga: Lilja, f. 12. mars 1921, d. 2003, Ágúst Bjarni, f. 8. september 1922, d. 1988, Hreiðar, f. 18. nóvember 1930, Sigurbjörg, f. Bragi í föðurstað og ólu þau svo upp son Hauks, Jóhannes, f. 9. októ- ber 1979. Þau slitu samvistir árið 1999. Bragi ólst upp á Neðri-Þverá. Móðir hans brá búi árið 1944 og fluttist til Reykjavíkur með börnin. Hann fór í sveit að Mjósundi í Flóa um tveggja ára skeið. 18 ára að aldri fór hann að vinna í Stein- stólpum í Höfðatúni, fyrst sem verkamaður svo sem verkstjóri í Byggingariðjunni á Stórhöfða. Að lokum vann hann hjá Forsteypunni í Kópavogi og á Kjalarnesi. Áhuga- málin voru mörg. Bragi hafði brennandi áhuga á ættfræði, landa- fræði og lestri góðra bóka. Einnig fannst honum gaman að spila brids. Bragi ræktaði fjölskylduböndin vel og „húsvitjaði“ reglulega. Útför Braga fer fram í Grafar- vogskirkju í dag, 14. maí 2010, og hefst athöfnin kl. 13. 30. nóvember 1933, d. 2008, og Björn Skafti, f. 17. apríl 1936. 31. desember 1957 kvæntist Bragi Helgu Jónsdóttur, f. 18. des- ember 1939. For- eldrar hennar voru Ragna Sigurgísladótt- ir, f. 23. júní 1919, d. 1977, og Jón Þorberg- ur Jóhannesson, f. 20. október 1916, d. 1996. Börn Braga og Helgu eru Björn Gísli, f. 23. október 1959, Ragn- ar, f. 14. mars 1961, Jón Þorbergur, f. 28. febrúar 1962, og Íris Kolbrún, f. 23. september 1964. Syni Helgu, Hauki Davíð, f. 6. júlí 1955, gekk Ó, elsku pabbi, ég enn þá er aðeins barn, sem vill fylgja þér. Þú heldur í höndina mína. Til starfanna gekkstu með glaðri lund, þú gleymdir ei skyldunum eina stund, að annast um ástvini þína. Þú farinn ert þangað á undan inn. Á eftir komum við, pabbi minn. Það huggar á harmastundum. Þótt hjörtun titri af trega og þrá, við trúum, að þig við hittum þá í alsælu á grónum grundum. Þú þreyttur varst orðinn og þrekið smátt, um þrautir og baráttu ræddir fátt og kveiðst ekki komandi degi. (Hugrún) Hvíl í friði elsku pabbi minn. Þín dóttir og tengdasonur, Íris og Hannes. Með nokkrum orðum langar mig að kveðja elsku afa minn. Afi var reyndar svo miklu meira en afi fyrir mér þar sem hann var minn uppeld- isfaðir og því meira eins og pabbi minn. Ég á því afa margt að þakka og átti hann stóran þátt í því að gera mig að þeim manni sem ég er í dag. Afi hafði mikinn áhuga á landa- fræði og naut ég góðs af því. Þau voru ófá skiptin sem maður hringdi og spurði hann um eitthvað sem maður þurfti að vita og þá stóð nú aldrei á svörunum og alltaf komu smáupplýsingar og fróðleikur með í lokin. Það var nú ekki mikið sem hann afi ekki vissi, hvort sem það tengdist landafræði, ættfræði, sögu, eða bara því sem var að gerast hverju sinni. Minnisstæðar eru allar ferðirnar í Þjórsárdalinn á Lödunni og svo seinna gamla Polonesinum. Ég er enn að reyna að finna hvar sá bíll var framleiddur því ég held að afi hafi fengið eina eintakið af þessum skrjóð. Það var svo sem ekkert leið- inlegt að keyra niður brekkuna í Hvalfirði á 80 km hraða með Rás 1 í botni. Já, þetta var sko kerra í lagi! Eins eru eftirminnilegar ferðirn- ar til útlanda. Sérstaklega í eitt sinn þegar panta átti mat á veitingahúsi í Palma sem gekk nú ekki alveg eins auðveldlega fyrir sig og ætla skyldi. Fyrr en varði voru allar hendur komnar á loft og dýrahljóð notuð til þess að reyna að gera sig skiljanlegan. Þjónninn skildi þó að lokum hvað verið var að panta og líka allir hinir sem voru í 5 metra radíus! Þegar afi kom í heimsókn voru það alltaf sömu spurningarnar sem bar á góma; hvernig gengi í vinnunni, hvort það væri nóg að gera þar, hvernig bíllinn gengi og svo hvort það væri ekki nóg að gera á barnaheimilinu hjá Hildi Rut. Svo eftir að Bjartur Orri fæddist var iðulega spurt um heilsuna hjá hon- um, sem og hvort hann væri ekki duglegur að borða svo hann myndi stækka því ekki gerðist það nú hratt hjá litla stubbnum. Meðan Hildur Rut var að skrifa ritgerðina sína spurði afi líka reglulega hvern- ig gengi með hana og fannst það greinilega ganga heldur hægt. Í eitt skipti voru mikil „smiðs- læti“ í íbúðinni fyrir ofan, þá var afi fljótur að grípa tækifærið og spurði hvort þessi væri farinn að smíða rit- gerðina fyrir hana! Svona er afa einmitt vel lýst, alltaf fljótur að hugsa og finna spaugilegu hliðarnar á hlutunum. Hann var mikill húm- oristi og skein glettnin hreinlega úr augunum á honum. Bjarti Orra fannst alltaf gaman að hitta afa sinn og hændist að hon- um frá fyrstu kynnum. Þegar við vorum að reyna að útskýra fyrir honum að nú væri afi Bragi kominn til Guðs og englanna á himninum var hann nú ekki tilbúinn að sætta sig við að afi sinn kæmi ekki aftur til okkar og sagði: „En, mamma, tunglið getur bara sent hann afa Braga til okkar aftur“ svo horfði hann til himins og fór að leita að afa sínum. Já, hann er sko ekki sá eini sem væri til í að afi kæmi í heim- sókn með tunglinu því mikið á mað- ur eftir að sakna hans! Þér á ég margt að þakka, elsku afi, þú kenndir mér margt um lífið og tilveruna sem á eftir að koma mér að góðum notum um ókomin ár. Minningin um yndislegan afa mun ávallt lifa í hjarta mínu. Þinn, Jóhannes Hauksson. Bragi Björnsson móðurbróðir okkar er látinn. Við það reikar hug- urinn og margt rifjast upp. Eftir æsku- og uppvaxtarár hans að Neðri-Þverá í Vesturhópi flutti Jónína amma með börnin sín til Reykjavíkur. Afi Björn hafði dáið sex árum áður. Það var erfitt á þessum tíma að búa í sveit með stóran barnahóp. Hann fylgdist vel með og hafði einlægan áhuga á að vita allt mögu- legt enda fróður maður á ferð. Við komum ekki að tómum kofunum hjá honum þegar ættfræðin var annars vegar. Bragi kom á hverju ári og heim- sótti æskuslóðirnar. Oftast gisti hann hjá mér og konu minni á Hvammstanga. Hann vildi aldrei láta hafa neitt fyrir sér. „Ekkert vesen,“ heyrðist þegar hann kom. Hann spurði um ættingja og vini og var mjög duglegur við að rækta þau vinabönd. Ekki minnkaði ánægjan í heim- sóknum Braga þegar við systkinin fengum okkur sumarbústað við Vesturhópsvatn. Vesturhópið var jú sveitin hans. Ánægjulegt er að minnast þess þegar Bragi kom norður snemma vors í ekta norðlensku vorveðri, þá á áttræðisaldri. Hann ætlaði að hjálpa okkur við að byggja við sum- arbústaðinn. Það var hvasst og komin hríð. Sá gamli stóð í stig- anum með hamar í hendi. Hann vildi ekki hætta. Byrjað var á verk- efninu og því skyldi lokið, brjóst- birtan var vel þegin þegar hlaupið var í skjól. Hann stóð við gefin lof- orð. Viðbyggingin hlaut nafnið Bragabót þó Stella systir hans vildi heldur kalla viðbótina koníaksstofu. Bæði nöfnin eru notuð til skiptis. Bragi var trúr og tryggur. Hann heimsótti systkini sín og kom yf- irleitt alltaf á sama degi og sama tíma hvað sem tautaði og raulaði. Eftir fráfall Stellu, systur hans, hélt hann áfram að heimsækja Sig- urgeir á þriðjudögum klukkan 14:10. Þetta er stundvísi af gamla skólanum. Við þökkum Braga allan hlýhug og góðmennsku sem hann hefur sýnt okkur alla tíð. Afkomendum hans sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Hafi Íris og Hannes þakkir fyrir allt sem þau gerðu fyrir frænda okkar. Far þú í friði, elsku frændi, sjáumst síðar. Björn Ingi og Hrafnhildur. Dagur er að kveldi kominn og nú er hann Bragi búinn að fá hvíldina. Hann hafði verið heilsuhraustur um dagana og stundað vinnu sína fram á áttræðisaldur. Því brá honum við að þurfa að leggjast inn á sjúkrahús og gangast undir sína fyrstu aðgerð, kominn nærri áttræðisaldri. Bragi var dulur maður og hafði sig lítið í frammi, en var vel heima í mörgum málum og hafði sínar ákveðnu skoð- anir. Vel fór á með okkur alla tíð og við eigum eftir að sakna þess að fundir okkar urðu ekki fleiri. Velkomin nótt sem allir þreyttir þrá, og þjáða getur svæft með frið- arkossi. Hver tekur sér það vald að vekja þá, sem vakna undir dagsins þyngsta krossi? Þið munduð ekki girnast glaum og dans, ef gistuð þið í verkamannsins kofa. Ó hafið lágt við litla gluggann hans og lofið dagsins þreytta barni að sofa. (Davíð Stefánsson) Við sendum ástvinum hans sam- úðarkveðjur. Jóna Gísladóttir og Ívar Hannesson. Bragi Björnsson Lífið er flókið og mannfólkið með. Við berjumst fyrir lífinu og reynum hvað við getum að gefa okkar nánustu það besta. Ég átti mér frænku sem var 11 ára þegar ég fæddist á afmæl- isdegi hennar, rétt einum degi fyrir afmælisdag mömmu. Móðir mín var elst sjö systkina frá Arnkötlustöð- um og Áslaug yngst. Við Sigga systir heimsóttum Ás- Áslaug Hannesdóttir ✝ Áslaug Hann-esdóttir fæddist á Arnkötlustöðum í Holtum 23. mars 1943. Hún andaðist á Heilbrigðisstofun Suðurlands 16. apríl sl. Útför Áslaugar fór fram frá Selfosskirkju 23. apríl 2010. laugu um daginn, heyrðum hennar kunnuglegu rödd og bergmálið af þekktum hlátri. Hlustuðum eft- ir líðan hennar og skynjuðum barátt- una. Þrátt fyrir þunga árás mikils meins náði hún að gantast við gestina. Það er eitt- hvað svo sjálfsagt að vinna þrekverkin og láta ekki á neinu bera þótt brattinn sé nán- ast óheyrilegur. Næsta dag vaknaði hún ekki til lífs- ins. Hugurinn leitar minninga. Að vera yngst felur í sér eilífan ung- dóm. En lífið er bara barátta og sú yngsta þarf líka að leggja þetta allt á sig. Mér fannst þau Hörður falleg þegar ég var lítil og dæturnar þeirra tvær. Selfoss alltaf í leiðinni í sveit- ina. Heilt tímabil hverfur mér vegna langdvalar erlendis. Þau Hörður áttu enn tvo myndarlega syni, bjuggu um tíma í Lækjarhvammi en skildu sárt um síðir. Næst hitti ég hana hamingjusama með Valla. Ein- hver dásamleg ró yfir þeim saman. Þau voru miklir félagar, sérlega samrýnd og ánægju höfðu þau mikla af ferðalögum innan lands sem utan. Áðu meira að segja eitt árið á fæð- ingarstað pabba í Fossgerði á Beru- fjarðarströnd. Þannig hittumst við einhvern tímann alltaf aftur. Minn- ing á minningu ofan. Innileg kveðja hennar í faðmlagi á erindi til allra þeirra sem henni þótti vænt um. Gangi þér vel. Hanna Steinunn. Þig faðmi liðinn friður guðs, og fái verðug laun þitt góða hjarta, glaða lund og göfugmennska í raun. Vér kveðjum þig með þungri sorg, og þessi liðnu ár með ótal stundum ljóss og lífs oss lýsa gegnum tár. Vér munum þína högu hönd og hetjulega dug, og ríkan samhug, sanna tryggð og sannan öðlingshug. Guð blessi þig! Þú blóm fékkst grætt, og bjart um nafn þitt er. Og vertu um eilífð ætíð sæll! Vér aldrei gleymum þér. (Jón Trausti) Þinn elskandi eiginmaður, Valdimar. Elsku Sigga mín, mig langar að kveðja þig með fáeinum orð- um. Þú fórst hægt og hljótt þrátt fyrir þær þungu byrðar sem lagðar voru á þínar herðar á lífsleiðinni en alltaf hélstu áfram róleg og prúð í fasi og með fallega brosið þitt. Við Árni áttum notalega stund með þér eftir að þú misstir hann Gauja þinn svo stuttu seinna komst þú til mín og færðir mér fallega gjöf sem þú bjóst Sigríður Ásgeirsdóttir ✝ Sigríður Ásgeirs-dóttir fæddist 3. september 1958. Útför Sigríðar fór fram frá Laugarnes- kirkju 31. mars 2010. sjálf til, og ætluðum við að hittast aftur fljótlega en af því get- ur því miður ekki orðið að sinni. Elsku Sigga, mín ég veit að Gaui og allir aðrir sem voru þér ást- kærir hafa tekið vel á móti þér. Ég bið Guð að blessa börnin þín, barnabörn og systkini sem syrgja þig sárt. Minning þín mun lýsa þeim í framtíðinni. Guð þig ávallt geymi elsku stelpan mín. Englar Guðs þig leiði beina leið til sín. Erla föðursystir. Morgunblaðið birtir minningar- greinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efn- isliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.