Morgunblaðið - 14.05.2010, Síða 35
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Robert Downey Jr.,
Samuel L. Jackson,
Gwyneth Paltrow,
Scarlett Johansson,
Don Cheadle og
Mickey Rourke
eru mætt í fyrstu
STÓRMYND
SUMARSINS
FYRRI MYNDIN
GERÐI ALLT
VITLAUST OG
ÞESSI ER ENN
BETRI!
Ath. það er sérstakt leyniatriði
á eftir creditlistanum í lok myndarinnar.
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
HHH
T.V. - Kvikmyndir.is
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í SMÁRABÍÓI
Robin Hood kl. 5 - 8 - 11 B.i. 12 ára Iron Man 2 kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i. 12 ára
Robin Hood kl. 5 - 8 - 11 LÚXUS She‘s Out of My League kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
The Back-Up Plan kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ The Spy Next Door kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ
Nanny McPhee kl. 3:40 LEYFÐ
POWE
RSÝN
ING
Á STÆ
RSTA
DIGIT
AL
TJALD
I LAN
DSINS
KL. 10
FYRRI MYNDIN GERÐI ALLT VITLAUST OG ÞESSI ER ENN BETRI!
Ath. það er sérstakt leyniatriði á eftir creditlistanum í lok myndarinnar.
Sýnd kl. 2(600kr) og 5
Sýnd kl. 2(600kr), 4, 7 og 10 (POWER SÝNING)
ÍSL. TAL
Sýnd kl. 5, 7:30 og 10 Sýnd kl. 8 og 10:10
HEIMSFRUMSÝNING
Sýnd kl. 2(900kr)
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greið með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
www.laugarasbio.is
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
-bara lúxus
Sími 553 2075
með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2010
andi í sætum sínum að bíða eftir því
að nógu margir færu að dansa svo
þeir gætu horfið í fjöldann.
En hver eru þessi Amadou og
Mariam? Fáir afrískir tónlistarmenn
hafa notið viðlíka hylli og þau hin
seinustu ár og þau hafa unnið með
heimskunnum listamönnum og
hljómsveitum á borð við Damon Al-
barn, Manu Chao og David Gilmour
úr Pink Floyd, svo einhverjir séu
nefndir. Í tónlist þeirra renna saman
tveir heimar, tónlist frá heimaslóð-
unum, Malí, og vestrænt rokk og
popp. Þessi bræðingur er velheppn-
aður eins og tónleikagestir fengu að
heyra í fyrrakvöld. Á tónleikunum
var tekinn ágætur þverskurður af
þeim plötum sem parið hefur gefið
út, að því er undirritaður best veit
eftir samtöl við aðdáendur, þó lögin
séu misskemmtileg, eins og gengur
og gerist. Útsetningar einhverra laga
á tónleikunum munu hafa verið öðru-
vísi en á plötunum en það er eitthvað
sem alltaf má búast við, plata er eitt
og lifandi flutningur annað. Flutn-
ingur hljómsveitarinnar var hnökra-
laus og Amadou og Mariam náðu
gestum á sitt band með hlýlegu við-
móti og ástarjátningum milli laga.
Skemmtilegra hefði þó verið að skilja
það sem sagt var, frönskumælandi
áheyrendur gátu einir hlegið að því
sem parið hafði að segja. Það hefði
verið gott að hafa túlk á sviðinu en
þeir er nú sjaldséðir á tónleikum.
Þetta var skemmtileg kvöldstund og
falleg og tónleikarnir hefðu gjarnan
mátt vera lengri, í ljósi þess stuðs
sem gestir voru komnir í þegar sein-
ustu lögin voru leikin.
Retro Stefson Hitaði gesti almennilega upp.
Tónlistarmennirnir Eminem og
Jay-Z ætla að halda tvenna tón-
leika saman í sumar í heima-
borgum sínum, í Detroit annars
vegar og New York hins vegar.
Tónleikarnir verða haldnir á
íþróttaleikvöngum enda vinsæl-
ir tónlistarmenn báðir tveir.
Tónleikarnir í Detroit verða
haldnir 2. september í Comerica
Park en tónleikarnir í New
York í leikvangi Yankee-
hafnaboltaliðsins, 13. sept-
ember.
Félagarnir greindu frá þessu
á hafnaboltaleik í fyrradag, þar
sem Yankess og Tigers áttust
við á leikvanginum Comercia
Park. Ekki hefur verið tilkynnt
enn hvenær miðasala hefst.
Eminem og Jay-Z halda
tvenna tónleika saman
Reuters
Eminem og Jay-Z Tvær stórstjörnur í
heimi rappsins á hafnaboltaleik í fyrradag.