Morgunblaðið - 14.05.2010, Síða 40

Morgunblaðið - 14.05.2010, Síða 40
Jóna Guðlaug Vigfús- dóttir, landsliðskona í blaki frá Neskaupstað, varð á dögunum tvöfaldur Noregsmeistari með liði sínu UIS Volley frá Stav- anger. „Það var ein- staklega sætt að vinna þennan leik,“ sagði Jóna við Morgun- blaðið um sigurinn í úrslitaleiknum um norska meistaratitil- inn. »4 Norðfirðingurinn Noregsmeistari FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 134. DAGUR ÁRSINS 2010 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 1. Íslenskar stúlkur lausar úr haldi 2. Jón Ásgeir í The Times 3. Mök í miðjum tíma 4. Íslensk kona dæmd í New York »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Opnunartónleikar Listahátíðar í Reykjavík með malíska tvíeykinu Amadou og Mariam voru afar vel- heppnaðir. Fjallað er um tónleikana í gagnrýni í dag. »36-7 Velheppnaðir opnunartónleikar  Jónsi og félagar í hljómsveitinni Í svörtum fötum ætla að fagna út- gáfu safnplötunnar Tímabil með tveimur dansleikjum um helgina, í Kaupfélaginu Akranesi í kvöld kl. 23 og í Hvíta húsinu á Sel- fossi á morgun á sama tíma. Platan hefur að geyma helstu smelli sveit- arinnar auk þriggja nýrra laga. Í svörtum fötum fagnar safnplötu  Hversu mikið hafa höfundar ís- lenskra gaman- þátta fengið að láni frá erlendum grínistum á borð við Rowan At- kinson? Blaða- maður veltir því fyrir sér í pistli og segist m.a. vona að þættir á borð við Gættu að því hvað þú gerir maður og Fastir liðir eins og venjulega, séu ekki fengnir að utan. »33 Hversu íslensk er íslensk fyndni? Á laugardag Norðaustan 5-13 m/s. Rigning með köflum norðan- og austanlands, en annars skýjað með köflum og þurrt að kalla. Hiti 2 til 12 stig, hlýjast suðvestanlands. Á sunnudag Norðan 5-13 og slydda n- og austanlands, annars bjart veður. Kólnar heldur. Spá kl. 12.00 í dag Skýjað með köflum suðvestanlands en annars skýjað og rigning með köflum. Hiti 2 til 14 stig, hlýjast sunnanlands. VEÐUR Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir fær heldur betur verðuga andstæð- inga á demantamótinu í Katar í dag. Þar mætir hún öllum þremur verð- launahöfunum frá Ólympíuleikunum í Peking og einn þeirra er jafnframt heimsmethafinn í greininni, Barbora Spotaková frá Tékklandi. Sex af sjö mótherjum Ásdísar hafa kastað lengra en Íslandsmet hennar er. »1 Ásdís gegn þeim allra bestu Ólafur Rafnsson, forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, er nú staddur í Þýskalandi þar sem hann stendur í kosningabaráttu. Á morgun verður kosið á milli Ólafs og Tyrkjans Turgay Demirel um það hvor verður næsti forseti evrópska körfuknatt- leikssambandsins FIBA Europe. Ólaf- ur ræðir við Morgunblaðið um kosn- ingabaráttuna. »1 Ólafur Rafnsson í kosningabaráttu ÍÞRÓTTIR Morgunblaðið/Ómar Legókallar? Smiðirnir raða grindinni saman eftir kúnstarinnar reglum. Ingibjörg Rósa Björnsdóttir ingibjorgrosa@mbl.is Loks má sjá glögg merki þess að Lækjargata 2 rís á ný. Hafist er handa við að setja að nýju saman grind hússins en eftir eldsvoðann fyrir rúmum þremur árum var húsið tekið niður, spýtu fyrir spýtu, og not- hæft timbur úr því sett í þurrk. Verð- ur síðan notast við það efni sem heil- legt er til að endurbyggja húsið en fyrsta hæðin, svokallað fótstykki, var orðin mjög fúin og þarf því talsvert af nýju byggingarefni þar. Til að hafa mælingar sem nákvæmastar og halda upprunalegri smíð hússins var húsgrindin sett saman vestur á Fiskislóð og er síðan flutt í pörtum að Lækjargötu þar sem smiðir vinna að endurbyggingu. Má því nánast segja að smiðirnir séu í kubbaleik, þar sem þeir raða húsinu saman. Mikil nákvæmnisvinna er þó framundan en gaman verður fyrir borgarbúa og aðra að fylgjast með framvindu endurbyggingarinnar að Lækjargötu 2 í sumar. Raða húsi saman  Lækjargata 2 rís eins og fuglinn Fönix Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Óvænt úrslit urðu í fyrstu umferð Ís- landsmóts kvenna í fótbolta í gær þegar Þór/KA varð að sætta sig við jafntefli, 2:2, gegn liði Grindvíkinga. Reiknað hafði verið með því að Ak- ureyrarliðið væri einna líklegast til að veita Val keppni um Íslands- meistaratitilinn en það missti tvö dýrmæt stig í þeirri baráttu. Dagmar Þráinsdóttir var hetja Grindvíkinga, sem lentu 0:2 undir í leiknum, því hún skoraði tvö mörk beint úr aukaspyrnum og jafnaði metin. Íslandsmeistarar Vals misstigu sig hins vegar hvergi og sigruðu ný- liða Hauka í Hafnarfirði, 5:0. Dóra María Lárusdóttir skoraði tvö mark- anna. Breiðablik sigraði Fylki, 3:1, í leik tveggja liða sem reiknað er með að verði í toppbaráttunni. KR lagði FH að velli í Vesturbænum, 2:0, og Stjarnan vann Aftureldingu, 5:0, í Mosfellsbæ. » Íþróttir Grindvíkingar komu á óvart  Dagmar skor- aði tvö mörk úr aukaspyrnum Morgunblaðið/Golli Ánægðar Valskonur fagna einu af fimm mörkum sínum gegn nýliðum Hauka á Ásvöllum í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.