Nýr Stormur - 23.09.1966, Qupperneq 6
6
FÖSTUDAGUR 23. sept. 1966
\
)
Menn hafa tekið efW því
undanfarið, að þeir Morgun-
talaðsmenn hafa saknaö
„Austra“ nánar tiltekiö Magn
úsar Kjartanssonar ritstjóra
Þjóðviljans mjög mikið, /en
hann hefir dvalið meðal vina
sinna í Austur-Evrópu undan
farið. Mjög óttast þeir Mbl.-
menn um sálarheill Magnús-
ar á þessum ferðum hans, en
eru þó öðrum þræði fegnir
því að hinn bitri penni hans
húðflengir þá ekki þá stund-
ina.
Uppáhaldsnafn þeirra á
Magnúsi eru „slúðursagnahöf
undur“, en við engann mann
ræða þeir þó meir í blaði sínu,
en slúðursagnahöfundar hafa
ekki hingað til verið hátt skrif
aðir meðal íslendinga! Ekki
hafa hinir verið hærra skrif
aöir, sem eltazt við slúðursög
ur og má þá segja að „skrif-
X>XS GI
bentar“ Mbl. hafi skipaö sjálf
um sér verðugan sess. Þótt
þeir Mbl.-menn hafi þannig
dregið sjálfa sig í dilk, mun
þó hitt vera sönnu nær, að
„slúðursögur“ Magnúsar hitta
í mark. „Sálarháski“ hans er
ekki meir en svo, að fylgst er
með hverju orði sem hann
skrifar og reynt að neyta afls
munar í mismun þeim, sem er
á útbreiðslu Morgunblaðsins
og Þjóðviljans.
Hins vegar er hér um mikla
auglýsingu aö ræða fyrir
Magnús og Þjóðviljann og
munu æsingaskrif Morgun-
blaðsins gegn Magnúsi hafa
þveröfug áhrif við það sem
til er ætlast.
310 milljónir
Ráðlegt væri forsætisráö-
herranum að hlusta á segul-
bandstækið, áður en hann
lætur skrifa upp eftir sér
Reykjavíkurbréfið, og bera
saman við það er hann hefir
áður ritað og rætt. Laugar-
daginn 17. september s.l. skýr
ir hann á sinn glögga og grein
argóða hátt hinn „þrautseiga
misskilning" að hinar miklu
framfarir á íslandi síðustu ár
ín eigi rót sína að rekja til
ágóða íslendinga af setulið-
inu á Keflavíkurflugvelli.
Forsætisráðherrann leið-
réttir þennan misskilning
rækilega og bendir vafalaust
réttilega á að netto tekjur
þjóðarinnar af varnarliðinu,
séu aðeins 310 milljónir kr. —
Jafnframt vekur hann athygli
á að þessar tekjur séu að-
eins 1,5% af þjóðartekjunum
og síðan segir herra forsætis-
ráðherra:
„Af þessu er ljóst, að þær
miklu framkvæmdir og um-
bætur, sem hér verða ár frá
ári, eiga að sáralitlu leyti
rætur sínar að rekja til tekna
af varnarliðinu. Sannleikur-
inn er sá, að fjárhagslega
skiptir vera þess okkur litlu
sem engu.“
Allir vita að forsætisráð-
herrann hefir sett sína póli-
tísku framtíð á spil, til þess
að fá erlent fjármagn inn I
landið. Yfirleitt eru menn
ekki mótfallnir því, en deilir
hinsvegar á um, með hvaða
hætti það skuli vera. Ráð-
herrann ruddi nýjar brautir
i þessu máli, sem ekki eiga
sér fordæmi meðal nágranna
okkar svo sem þeirra er við
berum okkur helzt saman við
af eðlilegum ástæðum, en það
eru Norðmenn.
Erlendir aðilar eiga að öllu
leyti þau atvinnutæki. sem
hér er um að ræða, á sama
hátt og Bandaríkjamenn eru
EINIR um hernaðarrekstur-
inn á. Keflavikurflugvelli.
Tekjur þjóðarinnar af her-
stöðvunum á Keflavíkurflug-
velli eru þær sömu, eða þá
öllu heldur nokkru meiri, en
áætlaðar tekjur þjóðarinnar
eiga að vera af hinni erlendu
aluminvinnslu!
Forsætisráðherrann hefir
skrifað ótal greinar og hald-
ið enn fleiri ræður um hve
geysilega þýðingarmikið það
væri fyrir þjóðina að fá hina
erlendu „álbræðslu“ inn í
landið. Tekjurnar, um 300
milljónir á ári, á að nota til
atvinnuuppbyggingar um allt
land. íslenzku þjóðinni er bú-
in björt og betri framtíð, ein-
mitt vegna hinna fyrirhuguðu
framkvæmda hinna erlendu
aðila. Þá eru hér ekki lengur
„1,5% af þjóðartekjum" sem
„fjárhagslega skiptir . . . okk
ur litlu sem engu“, heldur er
þar um að ræða mestu og
dýrmætustu framkvæmdir,
sem nokkurn tíma hafa verið
unnar í þessu landi!
„ . . . og dettur hann enn!“
Það er engu líkara en for-
sætisráðherrann sé alltaf „á
hrömmunum". Spjótin berast
að honum svo ótt og títt að
hann nær ekki að rísa al-
mennilega á fætur. Það er
ekki aðeins að „Magnús Kjart
ansson sé stöðugt að hrella
hann, heldur standa stað-
reyndirnar í götu hans, ekki
sem hundaþúfur, heldur stór
björg, sem ekki er unnt að
bifa, eða komast framhjá.
Með því að reyna að gera
upp reíkningana í sambandi
við setuliðið raskast allt bók
haldið og talnadálkarnir breyt
ast úr tiltölulega saklausum
dálkum, yfir í púka, sem eru
líkastir þeim, sem menn muna
úr „Pétri Gaut“.
Niðurstaðan er:
310 milljón króna tekjur af
setuliðinu skipta okkur „litlu,
sem engu máli“ en 300 milljón
króna árstekjur af „ál-
bræðsiu" á að vera hyrningar
steinn undir uppbyggingu at-
IIMfllMHI MMMIMIMMMM
■ ■■■■■■ ■■■■■■■■■’■ I
í hundruð ára hefir þessi
merldlegi og sögufrægi staður
verið flestum gleymdur — nú
er þar ferðamannaparadís og á-
hugamál fyrir verkfræðingana,
sem vilja og telja sig geta unnið
dýrmæt verðmæti úr innihaldi
þess.
ÞAÐ ER KOMIÐ LÍF í
PAUÐA HAFIÐ
Fyrir nokkrum árum þegar
brezkir flugbátar lentu reglulega
á Dauða hafinu, skemmtu flug-
mennirnir sér við að segja við
Ætla má að leiki
forvitni á að lesa
þessa grein, þar
sem hún opnar
mönnum innsýn á
stað sem allir
kannast við, en fá-
ir þekkja af eigin
reynd.
farþegana: „Herrar mínir og
frúr, við erum nú 300 metra
fyrir neðan sjávarmál....“
Sagði hann undir sjávarmáli?
Já víst gerði hann það, því að
Dauða hafið er lægsta land-
svæði á jörðinni; að meðaltali
400 metra undir sjávarmáli. Fyr-
ir milljónum ára opnaðist jarð-
skorpan hér og eftir var sprunga
sem liggur frá Litlu-Asíu og
næstum 6500 ldlómetra í gegn-
um Afríku. Dýpsta sprungan er
á milli ísrael og Jordaníu. Hér
er botninn um 790 metra undir
sjávarmáli og sprungan er hálf-
full af þessu beiska nornabruggi
sem nefnist Dauða hafið. Það
er í rauninni ekld haf, heldur
stöðuvatn, stöðuvatn, sem er
einkennilegra og fegurra en
nokkuð annað vatn í veröldinni.
Frá ómunatíð hafa menn álitið
umhverfið í kringum Dauða haf
ið, sem óhollt svæði þar til nú,
að þar er orðin heilsulind. Ferða
mennirnir streyma í þúsunda-
tali að hótelunum til að drekka
hið holla ölkelduvatn og til að
sjá hina helgu staði sem allir
þekkja úr Biblíunni. Næstum
því allir ferðamenn, sem til Jer
úsalem koma, fórna nokkrum
klukkutímum til að fara til
Dauða hafsins, sem er aðeins í
tuttugu kílómetra loftlínu í
austur.
Dauða hafinu er skift á milli
tveggja fjandsamlegra ríkja, Isra
el og Jordaniu. Jordania á norð-
ur og austurhlutann, sem er næst
um því þrisvar sinnum stærri
en suðvestur hornið, sem ísrael
á. Og bæði löndin auglýsa í
ferðamannabæklingum lægsta
þetta og hitt. ísrael er með
lægsta þetta og hitt. ísrael er
með lægsta pósthús í heiminum
— vandaða byggingu, sem heit-
ir Króin hennar frú Lot. Og við
norðurhlutann er nýtízku hótel
með spilavíti.
BANVÆN EFNI.
Frá ómunatíð hefir áin Jord-
an og margar aðrar minni ár
runnið í Dauða hafið. Ekkert
afrenzli er úr hafinu, svo að
aðeins er um uppgufun að ræða
en það er heldur ekkert smáræði
því að daglega gufar upp um
7 milljónir tonna af vatni.-
Saltinnihald vatnsins verður
eftir og þessvegna verður vatn
Dauða hafsins stöðugt saltara
og þyngra. Saltmagnið er nú um
27%, en til samanburðar má
geta þess að í sjó heimshafanna
er aðeins lítil 4%. Einn líter af
vatni í Dauða hafinu vegur um
1200 gr. þar sem venjulegt vatn
er 1000 gr.
Menn trúðu því lengi vel að
ekkert líf fyndist i hafinu, en
það er ekki rétt.
Rannsóknir sýna að þar finn-
ast bæði bakteríur og gerlar, en
það er líka allt og sumt. Á
hverju ári þegar flóð koma í
Jordan, lenda þúsundir af fersk-
vats fiskum í hafinu og drepast.
Vatnið er heldur ekki gott á
bragðið. Eitt eða tvö glös valda
miklum uppsölum og dæmi eru
um að menn hafi dáið af því
að drekka það. Og þótt það lýsi
og lokki með sitt bláa og kvrra
vatn, þá eru fáir sem sigla á því
og enginn baðar sig í því.
SALTVINZLA ÚR VATNINU
En hið eitraða vatn Dauða
hafsins er gullnáma fyrir löndin,
sem eiga það. Menn áætla að
í því séu um það bil 45 milljarð-
ar tonna af verðmiklum grunn-
efnum, meðal annars natrium,
klor, brennisteinn, kalium, kal-
cium, magnium og brom. íbúar
nágrennisins hafa unnið þar
matarsalt frá elztu tíð, og nú hef
ir ísrael, sem næstum engin hrá-
efni hefir í sínu landi, ákveðið
að hætta geysilegum fjármun-
um í að vinna hráefni úr vatn-
inu.
Menn eru nú byrjaðir á fyrsta
áfanga á mikilli og kostnaðar-
samri verksmiðjubyggingu, sem
á að vinna saltið í stórum stíl.
Nú í árslok verður hinn ísra-
elski suðurhluti „girtur af“ með
mikilli stíflu, sem verður um 50
kílómetra löng og hefir ísrael
þegar lagt í verið 450 milljónir
króna.