Brandajól - 20.12.1939, Blaðsíða 13

Brandajól - 20.12.1939, Blaðsíða 13
LJÓSIÐ T-\ egar ég sé fólk bregða yfir sig hjúp hátíðleikans og horfa í magnlausri leiðslu á blik jólakertanna, setur stundum að mér hrollkaldan, nístandi hlátur, sem ég fæ ekki gert við. Þetta er mjög óþægilegt, — en ég get ekki gert að því, að logandi jólakerti minna mig alltaf á hin hrottaleg- ustu áflog og illindi, sem ég hefi verið sjón- arvottur að. En þótt mér fyndist sú stund ærið alvarleg, meðan á stóð, kemur mér minningin um hana svo kátbroslega fyrir sjónir, að ég get ekki á mér setið. Mér er fyllilega ljóst, að yður mun finnast fátt um þessa frásögn, en ég ætla að freista ham- ingjunnar, og treysta því, að þér aísakið þá bíræfni mína. Það var um septemberkvöld norður á Vaðlaheiði fyrir mörgum, mörgum árum. Við unnum þar um fimmtíu vegamenn við að leggja krókabrautina þjóðfrægu milli Nesánna þetta sumar. Og nú var kom- ið haust, og hinn angurblíði friður og dreymandi værð hauströkkursins vafðist um allt og alla. Tjöldin okkar hjúfruðu sig feimnislega niður á lyngflötina eins og sofandi svanir. En þrátt fyrir yndis- leik náttúrunnar og seiðandi kyrrð, ganga vegamenn til heiða snemma til rekkju. Skóflan og hakinn halda ekki vöku fyrir neinum! Tjaldfélagar mínir þetta sumar voru þeir Jörundur Pálsson frá Ilrísey og Örn Snorrason frá Akureyri, — hinir mestu gentlemenn í hvívetna og drengir góðir. Var Jörundur okkar yngstur og mest prúð- menni. Iiann svaf við línlök í einmenningi fyrir tjaldstafni, en við Örn sváfum í tví- breiðu rúmi undir súð, og sneru höfðagafl- arnir saman. Eftir S. B. Er svo hagaði til, höfðum við sameign- arljósmeti og lásum á kvöldin við glætu af einu kerti, sem stóð á rúmgafli okkar höfðalagsmegin og skein þaðan í allar áttir. Og þetta kvöld vorum við gengnir til rekkju og hafði hver gripið til sinna bók- fanga. En brátt kom í ljós, að Erni var eitt- hvað venju fremur órótt í skapi. Hvað eftir annað vakti hann máls á því, að Jörundur hefði stolið kexi úr sameiginlegu búi tjaldsins, sem var mjög ómakleg ásök- un. En Jörundur anzaði því engu. Örn kunni því illa, að ,,dóninn“ skyldi ekki virða sig svars og gerðist órórri, unz hann spratt upp, greip eftir kertinu og settist upp á koddann. Ilélt hann ljósinu í handar- krika sínum og laut yfir það, þannig að / tjaldinu við tveir gátum séð til að lesa — en Jör- undur féll í skuggann og náði þangað engin skíma. Kvaðst hann sjálfur eiga þetta kerti persónulega, og sér dytti ekki í hug að ljá það „þjófum og þorpurum". Þá var þolinmæði Jörundar ofboðið. Reis hann upp við dogg og breif hrottalega í svitastorkinn og klepróttan hárlubba Arnar og ská- sveigði hausinn á honum niður á rúmgafl- inn, svo að buldi í. Ekkert hljóð gaf Örn frá sér, en henti kertinu og skaut sér yfir gaflinn og niður á Jörund. Tróð hann á honum með hnjám og framlimum og barði óskaplega, hvar sem hann fann fyrir hon- um. Skerandi vein, slitróttar hrygglur og enn skelfilegri vein var nokkur trygging fyrir því, að enn væri þó Jörundur hérna megin við eilíf ðina. Er stund hefndarinnar var liðin hjá, leitaði Örn uppi kertið, kveikti á því og settist upp á koddann sem fyrr, eins og ekkert hefði í skorizt. En að baki hans var myrkur og þaðan heyrðust andköf og ang- istarfullt snökkt. Jörundur var að gráta. Andköfin urðu dýpri og snökktið slitr- BRANDAJÓL 11

x

Brandajól

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Brandajól
https://timarit.is/publication/797

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.