Brandajól - 20.12.1939, Blaðsíða 23

Brandajól - 20.12.1939, Blaðsíða 23
tugt. Hann var snoturlega klæddur, en föt- in fóru ekki vel. Hann var fölur í andliti og veiklulegur, augun voru stór, skær og barnsleg, það var auðséð, að hann var feiminn og talsvert „spenntur". Pétur gamli heilsaði honum alúðlega, en hann hafði hitt hann áður. Eftir það nefndi hann nafn hans og okkar og opnaði stóra skápinn, þar sem bækurnar voru geymdar. Eftir það hófst vinnan. „Eruð þér alveg óvanur skrifstofu- vinnu“, spurði Gísli þurrlega. „Svo má það heita“, svaraði Árni, én það hét hinn nýi maður. „Ég hefi að vísu verið lítilsháttar við verzlun í kauptíðum hjá Jensen í Melakróki“. „Nú-já“, sagði Gísli, „jæja, þér komist sjálfsagt fljótt upp á að gera eitthvert gagn. Kunnið þér að reikna út faktúrur? Voru nokkrar faktúrur þarna hjá Jensen í Hrafnakróki ?“ „Melakróki", sagði ungi maðurinn, „jú, ég geri ráð fyrir, að það hafi verið“. „Jú, það er nú sjálfsagt dálítið öðruvísi skrifstofustarfið hérna en þarna í Hrafna- króki“, sagði Gísli. Ungi maðurinn leit snöggvast á þennan vel búna veraldarmann. — Dálítill roði hafði færzt í fölar kinnarnar. Ég sá, að hann var ekki laus við að vera skjálf- hentur. „Ég geri ráð fyrir því“, sagði hann ró- lega. „Það er líklega vissara, góði maður, að gera ráð fyrir því“, sagði Gísli. „Jæja, þá er bezt, að þér byrjið á þessu“, og hann sýndi honum hvað hann ætti að gera. Svo leið dagur eftir dag, eins og enda- laus röð af hvítum sauðum, sem ganga inn um fjárhúsdyr og hverfa inn í myrkrið. Sama vinnan endurtók sig dag eftir dag. Árni, hinn nýi maður, stóð sig vel. Það var að sönnu á engan hátt viðurkennt á skrifstofunni. Það var fyrirfram ákveðið hjá þeim Gísla og Sigurði Eiríkssyni, að skarð hins glæsilega Halldórs skyldi aldrei fyllt af þessum utanveltubesefa, þeir yrtu aldrei á hann utan starfsins, og er hann lét orð falla um daginn og veginn, létu þeir eins og þeir heyrðu það ekki, og ég varð þess var, að þeim mislíkaði stórum, er ég stundum talaði nokkur orð við Árna. Að vísu var ekki úr háum söðli að detta fyrir mig. Það var einungis af því að ég var náfrændi húsbóndans, að þeir tóku mig góðan og gildan. Gísli kallaði Árna oft „Mister Hrafnakrók“, er hann ávarpaði hann. Ég sá, að Árna þótti miður í fyrstu, en brátt lét hann sem hann heyrði það ekki, og anzaði aldrei fyr en hann var á- varpaður réttu nafni. Hann vann verk sitt þegjandi allan daginn, vann þriðjungi meira en Halldór hafði nokkurntíma gert. — Að mánuði liðnum var hann kominn inn í öll þau verk, er hann þurfti að vinna og þurfti engar leiðbeiningar. En Gísli lét hann engan frið hafa, hann var stöðugt að leiðbeina og nöldra, sérstaklega þegar Pétur var inni, eða húsbóndinn sjálfur. Árni tók því öllu með þögn og þolinmæði .að sjá. Þá var það einu öinni, að húsbóndinn kom inn úr skrifstofu sinni, vék sér að Gísla og bað hann um bréf viðvíkjandi vissu málefni. Gísli gekk að bréfaskápn- um, en fann ekki bréfin. Hann vissi að húsbóndinn var nákvæmur og vildi hafa allt í stakasta lagi. Árni hafði það verk að raða upp bréfum. Gísli snéri sér snögg- lega við. „Mister Hrafnakrókur", sagði hann hátt og leit til Árna. Húsbóndinn stóð þar rétt hjá og leit undrandi á Gísla. „Mister hvað, segið þér?“ spurði hann byrstur. BRANDAJÓL 2J

x

Brandajól

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Brandajól
https://timarit.is/publication/797

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.