Framsóknarblaðið


Framsóknarblaðið - 15.12.1952, Qupperneq 19

Framsóknarblaðið - 15.12.1952, Qupperneq 19
FRAMSÓKNARBLAÐIÐ 19 á syllum í bergveggjum þeirra. Síðan land byggðist hafa þar verið stundaðar fuglaveiðar og eggjatekja. Um aldir hafa bænd- ur einir í Eyjum haft rétt til þess að stunda þann atvinnu- veg. Þeir sjálfir og búliðar þeirra hafa innt þennan starfa af hendi ár frá ári og öld af iild. Oft gengu tómthúsmenn i þjónustu bændanna við þenn an starfa og fengu þeir þá fyr- ir það hlutá af veiði eða eggja- fet^g. En nú er þessi atvinnu- vegur aðeins svipur af því sem áður var. Að nokkru leyti er það rétt, sem eldri Eyjamenn hafa á orði, að fuglaveiðar og eggja- tekja sé nú meira stundað „sem sport“ en atvinnuvegur í Eyjum. Áður fyrr og fram á fyrstu ára tugi þessarar aldar, voru fugla- veiðar bjargræðisvegur,' sem gaf bændum í Eyjum mikið búsílag. Á haustin áttu þeir fleiri ílát full af fugli, svartfugli, lunda, súlu og fýlunga. Nú er öldin önnur. Bannað er með lögum að veiða fýlungann vegna sjúk- dómshættu. Lundi er enn veidd- ur tugþúsundum saman og seld ur nýr í verzlunum í Eyjum eða manna á milli. Einnig er mikið selt til annarra lands- Iiluta. Satt er það, að margir ungir Eyjamenn hafa það nú að „sporti" í sumarfríum sínum að liggja við í Úteyjum og veiða lunda. Fá þá bændur, sem veiðiréttinn leigja, lduta af veiðinni. Fram undir síðustu aldamót var lundaveiðin stund- uð langan tíma úr sumrinu. En árið 1895 voru veiðarnar tak- markaðar með sérstakri sam- þykkt. Hefur sá háttur haldizt síðan, að veiðin sé stunduð mán aðartíma úr sumrinu. Nokkrar tölur gefa hug- mynd um árlega fuglaveiði og þær breytingar, sem orðið hafa á þessum veiðiföngum: Árið i8r,6 nernur lundaveið- in í Eyjum 331 þúsundi. Árið 1900 34000 lundar. — — 28000 fýlungar. — 1910 26000 lundar. — — 19000 fýlungar. — 1930 51600 lundar. — — 12500 fýlungar. — 1940 20000 lundar. — — engir fýlungar. — 1947 17750 lundar. — 1948 20275 - — 1949 25680 — 195° 23975 ~ — 1951 H500 - Svartfuglaegg: Árið 1949 4500 stk. — 195° 35°° “ — 1951 9°°° “ Frœðslumálin. Talið er, að fyrsti barnaskóli hér á landi hafi verið stofnaður í Vestmannaeyjum árið 1744. Sá skóli lagðist niður um lang- an tíma sökum fjárskorts að haldið er. Heimilin í Eyjum munu lengst af hafa reynt að feta í fót- spor annarra um það, að kenna börnunum lestur og fullnægja öðrum kröfum til undirbúnings fermingunni. Barnafræðsla komst þar þegar í fast form upp úr aldamótum og ef til vill fyrr. Stórt og vandað barnaskóla- hús var byggt í Eyjum 1915— 1918 og stækkað og byggður við það fimleikasalur á árunum 1926—1929. í barnaskóla Vest- mannaeyja voru 1950 um 480 börn, 1951 um 520 börn og nú um 500 börn. Skólaskyldu nýju fræðslulaganna (1946) er nú fullnægt hér fyrsta sinni á þessu skólaári með því að Gagnfræða- skólinn gat flutt í nýju bygging- una. í honum eru nú um 120 nemendur. Áður voru engin tök á að fullnægja hér skólaskyld- unni sakum húsnæðisskorts. Unglingafræðslan sat lengst af á hakanum. Mesti annatími ársins er vetr- arvertíðin. Það þótti ógjörning- ur allra hluta vegna að halda stálpuðum, vinnufærum ung- lingum á skólabekk um há- bjargræðistímann. Á árunum 1915—1920 reyndu einstaka menn að stdfna til fræðslunámskeiða fyrir ungl- inga haustmánuðina til jóla. Sér staklega var kennslan miðuð við þarfir pilta, sem afla vildu sér þekkingar í sjómannafræði. Árið 1918 varð Páll Bjarna- son skólastjóri barnaskólans í Eyjum. — Páll var fæddur að Götu á Stokkseyri 26. júní 1884, d. 5. des. 1938. Hann hafði lif- andi áhuga á menningarmálum bæjarfélagsins og fannst skórinn kreppa þar æði víða að í þeim efnum. Haustið 1921 fékk Páll skólastjóri að barnaskólanum hér tvo unga kennara' þá Hall- grínr Jónasson, sem nú er kenn- ari við Kennaraskólann, og Halldór Guðjónsson, núverandi skólastjóra barnaskólans hér. Með þessum ungu starfskröft- um afréð Páll að stofna til ungl- ingakennslu 1 barnaskólahhús- inu. Engar skráðar heimildir liafa fundizt um starf og rekstur þessa unglingaskóla fyrstu tvö árin. Sumarjð 1923 er samin reglu- gjörð fyrir þennan unglinga- skóla. Hún er staðfest af kennslu málaráðuneytinu um haustið. Aðsókn var mjög lítil, flest ár- in fyrstu innan við 20 nernend- ur. Ekki þótti tiltök fyrstu árin að starfrækja skólann lengur en til áramóta. Samkvæmt lögum um gagn- fræðaskóla í kaupstöðum 48/ 1930 var Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum stofnaður það ár. Svo var kveðið á í 4. gr. þeirra laga, að árlegur starfs- tími gagnfræðaskólanna skyldi vera minnst sex mán. og mest sjö og hálfur mánuður. í 16. gr. þessara laga var þó Vestmanna- eyjakaupstað veitt undanþága í þessum efnum. Þessi grein hljóðaði þannig: ,,í reglugjörð fyrir gagnfræða- skóla í Vestmannaeyjum má á- kveða, að námstíminn sé skemmri en sex mánuðir árlega, en þó skulu próf þaðan vera hin sömu og við aðra gagnfræða- skóla, enda sé samanlagður kennslutími til prófs þar jafn- langur og í öðrum hliðstæðum skólum.“ Þannig leit löggjafinn á, að Vestmannaeyjar hefðu alveg sér stöðu um rekstur ungmenna- skóla vegna vertíðarinnar, að- al bjargræðis- og annatíma árs- ins. Það var ekki að ófyrirsynju, að þessi ákvæði voru sett í gagn fræðalögin. Hér var byggt á reynslu og svo á trú áhrifa- manna, Enda reyndist um margra ára skeið ekki unnt að halda hér unglingahóp á skóla- bekk að vetrinum, án þess að töluverður hluti hans hyrfi úr skóla til vertíðaranna eftir ára- mót. En aldrei var undan því látið og skólinn starfræktur samt í sjö mánuði árlega. Skól- inn varð að sigrast á þeim erfið- leikum, þó að^ þeir kostuðu margra ára baráttu. Hér varð að breyta hugsun almennings gagnvart gildi fræðslu- og skóla- starfs. Sú eik fellur sjaldan við fyrsta högg. E kki við annað eða þriðja heldur. Þegar styrjöldin hófst, liafði rnikið áunnizt í þessum efnum. Veturinn 1940 — 1941 stunduðu um 90 nem- endur nám í gagnfræðaskólan- um, flest allir úr Eyjum, því að nemendur utan af landi eru jafnan mjög fáir í skólanum og stundum engir. Á fyrstu styrjaldarárunum fór kaupgjald ört hækkandi og margfaldaðist á skömmum tíma. í Eyjuin mun unglingakaup hafa þrítugfaldast á tveim árum eftir að hraðfrystihúsin tóku til starfa. Of dýrt þótti þá að eiga unglingana á skólabekk á slík- um gullauðgitímum. Nemend- um Gagnfræðaskólans fækkaði því um helming á tveim árum, 1941—1943. Veturinn 1941— 1942 sagði t. d. þriðjungur nem- enda 1. bekkjar sig úr skóla á miðjum vetri og hvarf til vinnu á vertíð, flestir þeirra í hrað- frystihús. Oft hefur verið um það rætt að breyta starfstíma skólans og hefja starfið fyrr á haustin, t. d. 1. sepetember, og slíta skólanum í marzlok. En aldrei hefur verið horfið að því ráði. Ekki hefur þótt gerlegt að ná unglingunum saman til skólanáms svo snemma hausts eða seinni hluta sumars. í starfinu hefur því fyrst og fremst orðið að treysta á og trúa á aukinn skilning almennings á gildi náms og skólastarfs og byggja vonir á vakandi og vax- andi námshvöt æskulýðsins, vilja hans og skapfestu í starfi að settu marki« Nú er það hrein undantekn- Börn að leik.

x

Framsóknarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.