Framsóknarblaðið


Framsóknarblaðið - 15.12.1952, Blaðsíða 27

Framsóknarblaðið - 15.12.1952, Blaðsíða 27
FRAMSÓKNARBLAÐIÐ 27 Ópið á heiðixmi Ég greiddi »fargjaldið, kvaddi- -sámferðamennina og steig út úr bílnum. I'aö var snjókoma og | dálítil gola og tekið að rökkva Farkostur minn hvarf mér þvi fljótlega sjónum. Þá var ég kominn Iieim í sveit ina mína í jólaleyfi skóla míns. Ég segi „sveitina mína“. enda þótt ég sé kaupstaðarbarn. í faðmi þessarar drottningar ís- lenzkra sveita, var ég svo lánsam ur að fá að dvelja í mörg sum- ur hjá frændfólki mínu. Ég hafði hugsað mér að koma við hjá vinafólki mínu, sem ný- lega var flutt í sveitina, en ganga síðan stytztu leið heirn til frændfólks míns. Ég axlaði nú farangur minn, sem var bakpoki með viðspennt- um svefnpoka, og þrammaði í áttina að Laufskógum, bæ fyrr- nefndra vina rninna. Eygði ég fljótlega ljósin frá bænum, enda var nú hríðarmugga.n að ganga hjá. Mér var tekið tveim höndum af þessum vinum mínum. Hitti ég þó þannig á, að margt gesta var á bænum og því mikil önn á heimilinu, bæði vegna jóla- undirbúnings og gesr.anna. Dvaldi ég langt fram eftir kvöldi í góðu yfirlæti að Lauf- skógum. Er ég hugði til ferðarinnar hei nrað Rauðuhömrum, bæjar frændfólks míns, bað fólki'ð mig lengstra orða að vera um kyrrt yfir nóttina, þó að ég yrði að gera mér að góðu þrengslin á heimilinu. Ég hefði þegið það, ef Veðurstofan hefði spáð betur fyrir næsta degi. Þorði ég ekki að tefja lengur, enda var nú veður orðið hið bezta. Ég hafði einsett mér að fara yfir heiði eða fjallháls, sem iiggur milli þessara bæja. Bæði var það, að ég liaf'ði aldrei áður farið þessa leið, var hún mér því framandi í þessari sveit, þar sem ég þó þekkti hvern stein að heita mátti. Svo og hitt, að leiðin styttist til muna. Þar sem þjóðvegurinn liggur í stórum boga fram fyrir fjallið. Á leiðinni eru tvær ár, sitt hvoru megin fjallsins. Þær gat ég auðvitað geiigið þurrum fót- um, ef ég færi eftir veginum, því báðar eru þær brúaðar. En ég losnaði einnig við að vaða ána hjá Laufskógum, þó ég færi heiðina, því að ekki alllangt upp í heiðinni, fyrir ofan bæ- inn er bjarg yfir árfarveginn, sem komast má yfir án þessað blotna. Og setti ég þá ekki fyrir mig, þó áð ég þyrfti að vaða yf- ir ána heima hjá Rauðuhömr- um, enda þekkti ég hana.pú svo vel frá fyrri árum, þegar maður óð og svamlaði hana sér til skemmtunar. Ég fór vel kvaddur af öllum vinuin mínum frá Laufskóg- um. Fylgdi eldri sonur Hilmis bónda mér upp að „stein- brúnni“ á Fossá, því ég var henni ókunnur, sem fyrr er sagt. Við kvöddumst á gljúfur- barminum, en hann dokaði við meðan ég kom mér yfir um og veifaði til mín, þegar ég var kominn upp á gljúfurbrúnina hinu megin árinnar. Síðan sneri hann heim á leið. Nú gaf ég mér tíma til að lit- ast um. Glaða tungsljós var og svo að segja bjart, sem á degi. Töluverður snjór var á jörðu, þó ekki svo að það spillti gang- færi til muna. Ég reiknaði rúeð, áð ég yrði fljótari, ef ég færi innar á heið- ina og ekki yrði eins erfið gang an, því þar virtist heiðin mikl- um mun sléttari. Hóf ég nú gönguna og fór eins hratt og mér var unnt. Ég var glaður í huga yfir því, hvað þetta allt ætlaði að ganga vel. Ekki var löng leið eftir að háheiðinni, þegar ég allt í einu varð var við einhvern dökkan díl, sem færðist nær mér með miklurn hraða norðan af heið- inni. Ég stanzaði og góndi á þessi undur. Það var engum blöðum um það að fletta, að þarna var skíðamaður á ferð. Hann hvarf nokkrum sinnum bak við hæðir, en hélt alltaf sömu stefnunni í áttina til mín. Þetta bar svo brátt að, að ég hafði lítinn tíma til Iiugleið- inga. Samt þótti mér þetta í alla máta undarlegt. Hvaða máður gat það verið, er iðkaði skíðaíþrótt hér uppi á há heið- um svo seint dags? Skíðamaðurinn kom nú á mikilli t'erð eftir kambinurti, senr ég stóð utan í. Ég sá liann allgreinilega. Hann var nijög mikið klæddur svo að varla sást nokkur mannsskapnaður á hon- um. Allt í einu beygði hann snöggt í brekkunni, svo snjór- inn þyrláðist upp undan skíð- unum. Þá sá ég, að liann bar mikinn ferðaútbúnað á baTs,inu. Hann bvarf mér sjónum leift- ur snöggt bak við hæðina. Og þá skeði það, sem er uppistaðan í þessari sögu, Ég heyrði eða hélt mig heyra óp. Ég tók á rás, áð þeim stað, sem maðurinn hafði horfið mér sjónum. Eftir augnablik var ég kominn upp á. hæðina. Ég snar- stanzaði. Fyrir fótum mér var djúpt og hrikalegt gil, sem skar þarna sundur kambinn og end- aði, tvö til þrjú hundruð metr- um neðar í litlum og sakleysis- legum lækjarfarvegi. Mér sortnáði fyrir augum af skelfingu. Maðurinn hafði auð- vitað ekki áttað sig á þessari hættu og henzt ofan í gilið. Ég áttaði mig þó fljótt. Henti af mér bakbyrði minni og sent- ist í löngum stökkum niður brekkuna meðfram gilinu. Eft- ir skamnra stund var ég kominn niður fyrir og tekinn að klöngr- ats upp eftir gilbotninum. Nú var ekki lengur eins bjart og áður. É1 var nú í þann veg- inn að ganga yfir. Ég flýtti ferð minni það mest ég mátti og loks var ég kominn á þann stað í gilinu, sem ég hugði manninn vera. En enginn var þar sjáanlegur. Ég stanzaði og hélt niðri í mér andanum. Ekkert hljóð. Einhver óljós geig ur greip mig allt í einu. Ég reikaði nokkrum skrefum lengra , varð fótaskortur og féll við. Mér fannst allt fara á hreyfingu kringum mig. Ég held ég hafi hljóðað af skelfingu. Þá áttaði ég mig. Ég hafði fælt rjúpu hóp til flugs. Ég var að staulast á fætur, þegar síðasta atriði þessa und- urs reið yfir. Eitthvað ferlíki kom veltandi niður í gilið yfir mig. Ég stóð eins og negldur við jörðina, og hafði ekki einu sinni rænu á að forða mér. Það féll með dynk að fótum mínum. Hér var þá ekkert áð óttast. Ég hafði sett bakpokann minn það nálægt gilbrúninni, að hanrt vah niður. Hver ósköpin voru þetta? Ég hafði séð skíðamann hverfa við gilbrúnina. Ég hafði heyrt óp. Nú gat ég ekkert fundið, sem bent gæti til þess, áð mennskur maður hefið verið þarna á ferð. Mig rámaði nú í það, að ég hefði engin skíðaför séð áð gil- inu, og maðurinn var ósjáanleg- ur. Ég skalf á beinunum af hræðslu. Rjúpurnar og bakpok- inn höfðu gert sitt til að espa spenntar taugar mínar. Allt í einu heyrði ég sjálf- an mig biðja til guðs hárri titr- andi röddu. Ég bað hann vermda mig og vera með mér. Ég báð hann að halda verum annarra heima utan míns sjón- arhrings. Bænin hafði undraverð áhrif á mig. Óttinn hvarf eins og dögg fyrir sólu. Ég tók bakpok- ann minn rólegum tökum, festi I hann á herðar mér og gekk var- lega niður eftir gilinu. Þegar því sleppti, tók ég beina stefnu yfir ásinn. Var ég nú kominn íangt af þeirri leið, sem ég upphaflega ætlaði að fara. Nú varð töluverð snjókoma. Ferðin gekk mér þó að öllu leyti vel. Ég komst hindrunar- laust niður af heiðinni, en jieim megin er heiðin öll sund- urskorin af giljum og skorning- um. Óð ég Kaldá, sem ekkert væri, þó hún beljaði straum- hörð milli skara og íshröngl fleytti kerlingar í strengnum. Að Rauðuhömrum kom ég laust fyrir miðnætti. Kvenfólkið var enn að störfum við jólaund- irbúning. Freyr bóndi, frændi minn, klæddi sig aftur, þegar hann heyrði um komu mína. Er Framhald ó 29. síðu. Fró Stoðvörfirði. Smásaga eftir Trausta

x

Framsóknarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.