Framsóknarblaðið


Framsóknarblaðið - 15.12.1952, Side 33

Framsóknarblaðið - 15.12.1952, Side 33
PRAMSÓKNARBLAÐIÐ fjallaferðír allar með leikni og veiðikænsku. Þannig leið tíminn til 18 ára aldurs þeirra bræðra. Eftir vetr- árvertíðina réðu þeir'sig til sum arróðra og eins árs útvers suð- ur með sjó, báðir á sama bát- ínn. — Sigurður kvaddi þá inni- lega, bað þá vel lifa og bróður- lega og skrifa sem allra oftast heim.------------ Þeir voru farnir. Sigurður svaf ekki mikið þá nótt. Hann fann sig einmana. Það var hon- úm kvöl að sjá af drengjunum ?nda þótt hann vissi að þeir kæmu aftur innan tíðar, Þeir áttu nú í fyrsta skipti að lúta stjórn annara en hans og ham- ingjan ein mátti vita hvernig sú stjórn og aðhlynning yrði. Gott uppeldi höfðu þeir fengið én slæm áhrif áimara gátú gert þeim mjög illt: Hann ásakaði sjálfan-áíg fyrir að hafa ekki far- tð með þeim, en fann fljótt að það var ómögulegt, hann var of gamall, nærri sjötugur karlfausk úr. Já, hann varð að sætta sig við fjærveru þeirra. — ' Nokkra daga reikaði hann um eyrðarlaus af leiðindum, en flýði svo til Steinvarar konu áinnar með söknuð sinn. Hann sá aldrei betur en nú, að þau tvö áttu vel saman, bæði orðin gömul og útslitin. Ellin samein- aði þau og það var eins og hveitibrauðsdagar þeirra væru nú loksins að renna upp. Fyrr á árum hafði varast verið tími til að njóta þeirra, þar eð Sigurður yar þá sjaldan heima, en hafði stundað sjóinn nær árlangt meira heiman en heima. Bræðurnir skrifuðu oft heim. Þeir undu vel hag sínum og um heimkomu var ekki að ræða strax. Sigurði, sem helzt aldrei hafði sjálfur skrifað’ héim, fanst þeir skrifa allt of sjaldan og lít- ið, hann skrifaði nú með hverri ferð til þeirra, stærðar bréf, en þeir máttu kannske ekki vera að því að skrifa honum, bless- aðir drengirnir hans. — Þegar póstskipin komu var hann ávallt fyrsti maður niður í „Miðbúð“ og beið meðan póst- urinn var lesinn upp, beið á vallt á sama stað- aiidspæniS póstmanninum. Hvert sinn er nafnið Sígurður var lesið upp tók liann viðbragð og oft var liönd hans komin á loft til að taka á móti bréfinu þegar upp var lesið framhald utanáskrift- arinnar. Póstmaður las upp og stimplaði svo hratt sem hann gat, en Sigurði fanst honum ekkert. ganga. „Sigurður Péturs- son Elínarhúsi“ las póstmaður „hver vill taka vþaðV?.,,,Hér er. það“ kallaði einhver í mann- þyrping.u'nni-.og-bréfið gekk svo mann frá manni til þess er svar- að háfði. Sigurðuf gamli mændi á eftir bréfinu. Bara að hann hefði átt það. Biðin var honum óbærilega. „Sigurður Gíslason Kornhól, hver . . .'“ Endirinn af upplestri póstmanns kafnaði í Svari Sigurðar: „Hér er það“ nær því öskraði hann, þreif bréf ið og ruddist út gegnum mann- fjöldann. Hann þurfti að flýta sér heim að lesa bréfið sitt, hið langþráða bréf.------- Dag einn skömmu fyrir jól gerði NA-ofsaveður og brim svo póstskipið varð ekki afgreitt,* en varð að liggja við Eiðið. Dag inn eftir slotaði eitthvað, en af- greiðsla skipsins samt dæmd ó- gerleg. Sigurði fannst það hart að ekjki skyldi reynt að fara út að sækja póstinn, því honum fanst sjóriim fær. Hann var viss um að drengirnir hefðu skrifað. Máske vantaði þá eitthvað eða voru veikir — dauðveikir. Hann eyrði ekki og þegar svo kaup- maðurinn sagði að sér bráðlægi á að nálgast bréf frá skipstjóra, þoldi Sigurður gamli ekki ínát- ið. Hann mannaði út bát af Eið inu og lagði frá. Allt sýndist ætla að ganga vel, en þá reið að ólag stórt og kraftmikið eí' hreit bátinn og hvolfdi honum strax í brimgarðinum. Bátsverj- ar björguðust nauðuglega í land á farviðum og við hjálp þeírra ér í sandinum voru, en Sigurð- úr drukknaði. Rak lík hans rétt síðar. Það bar stórt sár á höfði., sem sýndi að hann mundi hafa rotast. Sigurður í Kornhól var fall- inn í valinn. Hann hafði barist heiðarlega og íallið með hreysti. „Þau voru dýrkeypt bréfin þau arnar,“ sagði fólkið. Ójá, — en hvað liafði hann ekki viljað gera til þess að geta verið sem næst sonura sínum í hvívetna-- Hafði hann ekki helgað þeim lú sitt? Jú, sannarlega, allt til hinstu stundar — Það voru liðin fjögur ár. Bræðurnir komnir heim og voru á stýrimannanámskeiði. Þeir voru orðnir fullþroska ínenn, rösklega tvítugir og þóttu bera mjög af jáfnölclrum sínum. Blómarósir Eyjanna renndu líka óspart lil þeirfa' liýru auga, ihrifnar af mannvænleik þeirra ;og atgjörfi allri, en ekki voru :þeir þó bundnir enn, bundnir í viðjar ástarinnar svo fólk vissi :um. — EfLÍr að hafa lokið ágætis stýrimannaprófi, urðu leiðir bræðranna að skilja í fyrstá :sinni þar eð þeir tóku sinn hvorn bátinn. EJ.rðú þeir brátt 'hinir mestu sjósóknarar og afla- menn svo orð fór af. Vor og haust skiptu þeir um verstöðvár að hætti föður síns eða fórú flutningaferðir fyrir eyjakaup- . menn og aðra landsbúa. Heim . til Eyja komu þeir á hverju hausti, hvar sem þeir annaýs voru að störfum, og sagði fólk að það væri helzt til þess að hitta Sigrúni á Eyri, leiksystur þeirra og dóttur kaupmannsins þar. Fólk sagði að þeir færðu henni stór gjafir jafnt móðúr sinni og stystrum, þegar þeir kæmu lrá Reykjavík eða öðrum verstöðvum. Sannleikurinn var annars sá að þéir elskuðu Sigrúnu búðir og var full kunnugt um hvór annars tilfinningar en vöruðust hins vegar að miúnast á það hvor við annan eða láta það í ljós á nokkurn hátt. Þeir vissu vel að vináttu og bræðraband þeirra var í stórhættu hennar vegna og að innan tíðar hlaút að koma að því stóra augna- bliki að annarhvor yrði að víkja ef vel átti að fara. Bróðurlegár tilfinningár gátu þar um engu ráðið. — Sigrúnu var fullkunnugt um tilfinningar bræðránna gagnvart sér og hún viðurkenndi líka fúslega að hún endurgalt þær af innilegri ást, En sá galli var á FRÁ ÚTFÖR FORSÉTA ÍSLÁNDS, HERRA SVEINS BJÖRNSSONAR

x

Framsóknarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.