Morgunblaðið - 21.06.2010, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2010
Fyrir bústaðinn og heimilið
NÝJAR VÖRUR
Spennandi olíur og krydd með
grillmatnum.
Ávaxtaskálarnar komnar
Hlynur Orri Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
Með hlýnandi veðri verður útigangs-
fólk meira áberandi í mannlífi
Reykjavíkurborgar. Hins vegar er
ekki svo að þeim sem ekki eiga sér
víst athvarf fjölgi á sumrin. Jónas H.
Jónasson, sem sér um svokallað
heimili fyrir heimilislausa við Njáls-
götu, segir að útigangsmenn í borg-
inni séu á milli fimmtíu og sextíu
talsins og fjöldinn sveiflist lítið.
„Þeir koma hins vegar meira úr
felum þegar hlýnar. Margir þeirra
búa í yfirgefnum húsum, en verða
meira sjáanlegir, t.d. á Austurvelli á
sumrin,“ segir Jónas og bætir því við
að götunnar menn, eins og hann
kallar þá, séu ánægðari með lífið og
tilveruna á þessum árstíma.
„Götunnar mönnum líður alltaf
miklu betur á sumrin. Margir sem
búa hér gleypa þá bara í sig morgun-
matinn en eru svo farnir út, því það
er svo gaman að vera á Austurvelli á
þessum árstíma. Þá sofa þeir jafnvel
bara undir einhverri hríslu, þótt þeir
hafi hér húsaskjól.“
Flestir hafa næturstað
Í heimilinu við Njálsgötu eru
herbergi fyrir átta karlmenn sem
eru í neyslu og eiga ekki í önnur hús
að venda. Jónas segir að flestir þeir
sem ekki eiga öruggt húsaskjól geti
fengið þak yfir höfuðið ef þeir óska
þess, t.d. í gistiskýlinu við Þingholts-
stræti eða smáhúsunum á Granda.
Þjónusta Reykjavíkurborgar við
götunnar menn hafi því stóraukist á
undanförnum árum.
Mikill meirihluti útigangsfólks
er karlar, segir Jónas, þótt vissulega
séu einnig konur í þessum hópi. Hins
vegar getur verið erfiðara að vera
kona á götunni, enda sé það síður
samfélagslega viðurkennt að konur
geti orðið heimilislausar. Einnig sé
líklegra að konurnar verði fyrir
árásum enda geti þær síður varið
sig.
Kreppan ekki haft áhrif
Hin margumrædda efnahags-
kreppa hefur ekki haft áhrif á um-
ræddan hóp, segir Jónas, enda er
langt síðan flestir úr honum hafa
verið með fasta vinnu. „Það verða
ekki miklar sveiflur í þessu. Einn og
einn fer í meðferð en fellur svo
kannski aftur. Fjöldinn hefur því
haldist nokkuð óbreyttur undanfar-
inn áratug.“
Þá segir hann að þrengingar á
Vogi hafi ekki mikil áhrif á hans
menn, en eins og greint hefur verið
frá getur sjúkrahúsið síður tekið við
bráðatilfellum en áður þar sem fjár-
framlög til SÁÁ hafa dregist saman.
„Þetta eru menn sem hafa farið
margoft í meðferð, en eru orðnir svo
veikir í dag að þeir hafa fæstir leng-
ur áhuga á að nýta sér þjónustuna á
Vogi,“ segir Jónas.
„Götunnar mönnum líður
alltaf miklu betur á sumrin“
Fjöldi heimilislausra sveiflast lítið Á milli 50 og 60 Reykvíkingar eru á götunni
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Setið úti á Austurvelli Margir hafa notað hlýindin það sem af er sumri til að sitja úti á Austurvelli.
Keníska bar-
áttukonan Wilter
Nyabate heldur
fyrirlestur í Nor-
ræna húsinu í
dag. Hefst fyrir-
lesturinn kl. 17 og
mun Nyabate
fjalla um baráttu
sína fyrir mannréttindum í Kíbera
sem er stærsta fátækrahverfi höf-
uðborgar Kenía, Naíróbí.
Í tilkynningu kemur fram að Nya-
bate sér ein fyrir tveimur börnum en
hefur verið óþreytandi í baráttu sinni
fyrir bættum kjörum íbúa hverfisins.
Búa þeir í lélegu húsnæði með litlu
aðgengi að hreinu vatni, skól-
plögnum, heilsugæslu eða menntun.
Vatnslagnir liggja í gegnum hverfið
sem veita vatni í efnaðri hverfi í nág-
reninu en íbúar Kíbera eiga þó ekki
kost á að nýta sér þær. Þá eiga þeir á
hættu að verða fluttir burt af heim-
ilum sínum.
Keníska ríkisstjórnin hóf átak fyrir
tveimur árum sem miðar að bættum
húsnæðismálum í hverfinu en íbúar
þess eru illa upplýstir um það og ótt-
ast að missa húsnæði sitt vegna um-
bótanna.
Heimsókn Nyabate til Íslands er
liður í alþjóðlegri herferð Amnesty
International sem tengir saman
heimsmeistaramótið í Suður-Afríku
og baráttuna fyrir mannréttindum.
Berst fyrir
fátæka
í Kenía
Wilter Nyabate
Fyrirlestur í Nor-
ræna húsinu í dag
„Þetta mun ekki setja hreppinn á
hausinn en einhverjir hundrað þús-
und kallar fara í nýjar kosningar og
þá hefði mátt nýta í margt gagn-
legt,“ segir Gústaf Jökull Ólafsson
oddviti Reykhólahrepps.
Á vef Reykhólahrepps var í gær
birt bréf frá Guðjóni D. Gunnarssyni
á Reykhólum þar sem hann hvetur
til þess að fólkið sem hlaut kosningu
til hreppsnefndar Reykhólahrepps í
kosningunum sem nú hafa verið úr-
skurðaðar ógildar leggi fram einn
lista sem verði sjálfkjörinn. Gústaf
segir að þó svo þetta verði gert þá
þurfi samt sem áður að endurtaka
kosninguna og því leysi þetta ekki
málið. Hann segir það vissulega vera
mistök að bréfið hafi ekki verið sent
til Flateyjar en hins vegar hafi kjör-
fundur ætíð verið haldinn í Bjarkar-
lundi frá sameiningu sveitarfélaga.
Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun
um hvenær kosningarnar verða end-
urteknar en sveitarstjórnin ákveður
það næstu daga. svanbjorg@mbl.is
Stungið upp á að leggja fram
einn lista í Reykhólasveit
Ný kosning gæti breytt
skipan hreppsnefndar
» Á kjörskrá voru 208 manns.
» Atkvæði greiddu 129 eða
62%.
» Kosningarnar eru persónu-
kjör og nýjar kosningar geta
breytt skipan hreppsnefndar.
Það er náttúrukraftur í kvennahlaupum ekki síður en
jökulhlaupum. Jökulhlaupin eru yfirleitt staðbundin en
það eru kvennahlaupin ekki því hlaupið var á 94 stöð-
um á landinu og að auki hlupu íslenskar konur í útlönd-
um. Ömmur, mömmur, dætur og vinkonur hlupu saman
í þessu tuttugasta og fyrsta Kvennahlaupi Íþrótta- og
ólympíusambands Íslands. Um 15.500 konur tóku þátt í
hlaupagleðinni og þar af hlupu um 460 þeirra í öðrum
löndum. Það ríkti andi einingar og kátínu í hlaupinu og
keppnisharka var víðs fjarri. Öllum konum er gert
kleift að taka þátt í kvennahlaupinu, skiptir ekki máli
hvort þær eru feitar eða mjóar, stórar eða smáar, hrað-
skreiðar eða hægar, í hjólastól eða fráar.
svanbjorg@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Kraftmiklar kátar konur í kvennahlaupi